Morgunblaðið - 23.09.2006, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Voff, voff, voff.
VEÐUR
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
'-
'-
'.
'.
'-
''
-/
-/
'-
-0
1'
2 3!
2 3!
4
)
%
2 3!
3!
3!
3!
3!
3!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
-5
-/
-6
-/
-5
-0
''
'1
''
-5
-6
2 3!
2 3!
7 *%
3!
)*3!
3!
3!
2 3!
)
%
)
%
2 3!
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
--
(
0
/
0
+'
1
/
-.
-/
-5
2 3!
2 3!
3!
7 3!
7 %
3!
)
%
3!
)
%
9! :
;
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
89
;=
-
7 : )
* ;7
7 %
1 -< ;)3!
=
5 : )
* ;7
7 %
1 -< ;)3!
=
!!
:!
=
*
>% )* 7
;
4
( -1
?@ *3
*A
"3(4>
><4?"@A"
B./A<4?"@A"
,4C0B*.A"
<.5
'6/
6-6
<;6
<;1
<;'
/6'
(66
---0
.</
-'60
-6</
-5-<
-<-6
-0<<
'<6.
'11-
-/-6
5-1
5-5
5<<
/.'
-0'/
-01-
-0-.
-(66'''1
1;0
';<
-;'
';-
<;.
<;1
<;'
<;.
.;<
';-
-;1
';- <;.
Í fréttum ríkissjónvarps í gær-kvöldi var haft eftir Valgerði
Sverrisdóttur utanríkisráðherra
að fulltrúar nokkurra tuga þjóða
hefðu lofað Íslandi stuðningi við
kjör í öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna.
Utanríkisráðherra hefur verið íNew York og m.a. átt fundi
með fulltrúum fjölda þjóða til
þess að afla fylgis við framboð Ís-
lands.
Ekki skal dreg-ið í efa að
allt er þetta rétt
eftir haft og að
fjöldi fulltrúa
hafi gefið
utanríkis-
ráðherra okkar
fyrirheit um
stuðning.
Hins vegar erástæða til að minna á, að ver-
öldin er hrá og heimur al-
þjóðlegra samskipta einkennist af
meira undirferli, sviksemi og flá-
ráðri framkomu við fólk og full-
trúa þjóða, en við getum nokkru
sinni ímyndað okkur.
Í þennan heim eigum við Íslend-ingar, bláeyg og saklaus þjóð
norður í hafi, lítið erindi.
Við höfum heldur ekki efni á aðbjóða fulltrúum fjölda þjóða í
skemmtisiglingar eins og gert
hefur verið og mundum ekki gera
þótt við hefðum peninga til.
Dæmi eru um að Íslendingarhafa talið sig hafa haft nægi-
legan fjölda atkvæða í keppni um
stöður í alþjóðastofnunum en þeg-
ar upp var staðið skilaði sér ekki
eitt einasta atkvæði af þeim, sem
lofað hafði verið.
Vonandi vegnar okkur betur aðþessu sinni en enginn skyldi
verða fyrir vonbrigðum ef niður-
staðan verður sú, að við náum
ekki kosningu til öryggisráðsins.
STAKSTEINAR
Valgerður
Sverrisdóttir
Sýnd veiði …
SIGMUND
VEGNA umræðna um byggingu nýs
Landspítala – háskólasjúkrahúss vill
prófessoraráðið, sem er samráðs-
vettvangur prófessora í læknadeild
HÍ sem starfa við spítalann, leggja
áherslu á nauðsyn þess að ljúka sam-
einingarferlinu með fyrirhugaðri ný-
byggingu Landspítala og koma þar
með allri starfseminni í eitt hús.
Í ályktun ráðsins segir að öflug
vísinda- og menntastarfsemi á há-
skólasjúkrahúsi sé undirstaða há-
gæðaþjónustu við alla landsmenn og
forsenda þróunar á þessu sviði.
„Undirbúningsvinna hefur þegar
farið fram og væri óráð að hvika frá
þeirri stefnu að byggja upp nýtt há-
skólasjúkrahús við Hringbraut.
Fyrsta skrefið í átt að nýju háskóla-
sjúkrahúsi var sameining sjúkrahús-
anna á höfuðborgarsvæðinu. Frá
upphafi var ljóst að fullur árangur af
sameiningunni næðist ekki meðan
starfsemin væri dreifð á mörgum
stöðum í borginni. Frekari árangur
byggist á því að ljúka sameiningar-
ferlinu með fyrirhugaðri nýbyggingu
Landspítala – háskólasjúkrahúss og
koma þar með allri starfseminni í eitt
hús sem svarar kalli tímans varðandi
aðstöðu sjúklinga og starfsfólks. Til
þess að byggja upp öflugt háskóla-
sjúkrahús þarf sameinaða krafta og
víðtækur stuðningur við slíka upp-
byggingu er því brýnt hagsmunamál
lækna og annarra heilbrigðisstarfs-
manna en umfram allt sjúklinga
framtíðarinnar.
Bygging nýs Landspítala – há-
skólasjúkrahúss útilokar ekki að
heilbrigðisþjónusta sé jafnframt
byggð upp með ýmsum öðrum hætti í
landinu; hún er þvert á móti forsenda
þess að aðrar leiðir séu mögulegar.“
Starfsemin þarf að vera í einu húsi
Prófessoraráð Háskóla Íslands ályktar til stuðnings byggingu nýs spítala
Á FUNDI aðalstjórnar Öryrkja-
bandalags Íslands á fimmtudag var
fjallað um ákvörðun lífeyrissjóðanna
um að skerða eða fella niður örorku-
lífeyrisgreiðslur hjá 2.300 lífeyris-
þegum. Fundurinn samþykkti eftir-
farandi ályktun þar sem skorað er á
stjórnir lífeyrissjóðanna að draga
ákvörðun sína til baka.
Hóta dómsmáli
„Aðalstjórn Öryrkjabandalags Ís-
lands skorar á stjórnir þeirra lífeyr-
issjóða sem ákveðið hafa að skerða
eða fella niður lífeyrisgreiðslur til ör-
yrkja að hverfa frá þeirri fram-
kvæmd. Komi ákvörðun lífeyrissjóð-
anna til framkvæmda mun það valda
keðjuverkandi tekjurýrnun margra
öryrkja næstu þrjú ár. Við það verð-
ur ekki unað og mun sjóðunum verða
stefnt fyrir dómstóla ef ákvörðun
þessari verður ekki breytt fyrir 1.
október nk.
Öryrkjabandalag Íslands lýsir
fullri ábyrgð á hendur ASÍ, Sjó-
mannasambandinu, Starfsgreina-
sambandinu og Samtökum atvinnu-
lífsins,“ segir í ályktun bandalagsins.
Ekkert hefur komið fram um að til
standi að breyta þessari ákvörðun.
Ósáttir við
lækkun líf-
eyrisbóta
ÖBÍ vill að lífeyris-
sjóðirnir hætti við
TILBOÐ í smíði nýs varðskips fyrir
Landahelgisgæslu Íslands voru
opnuð í vikunni. Lægsta tilboðið átti
skipasmíðafélagið Asmar frá Chile
en það hljóðaði upp á 27.261 þúsund
evrur, sem samsvarar 2,4 milljörð-
um íslenskra króna. Hæst bauð fé-
lagið Peene-Werft frá Þýskalandi
eða 36,8 milljón evrur, jafngildi 3,4
milljarða íslenskra króna, en alls
bárust fjögur tilboð í verkið.
Verð ræður hins vegar aðeins
35% í valinu þannig ekki er víst að
Asmar hljóti verkefnið. Tæknileg
útfærsla og hönnun ræður 50% og
gæði vélbúnaðar og tækja ræður
15%. Júlíus S. Ólafssonar, forstjóri
Ríkiskaupa, sem annast útboðið fyr-
ir hönd Landhelgisgæslunnar, segir
að unnið verði úr upplýsingum til-
boðanna á næstum tveimur vikum.
„Valið hvílir á mörgum þáttum og
sumir krefjast töluverðar vinnu við
að reikna út, eins og kostnað við
rekstur skipsins. En stefnan er að
ljúka þeirri vinnu á næstu tveimur
vikum og í framhaldinu munum við
svo mæla með einhverju tilboð-
anna,“ segir Júlíus.
Útboðið var lokað en í kjölfar for-
vals voru valdar sex skipasmíða-
stöðvar til þátttöku: Aker frá Nor-
egi, Asmar frá Chile, Bergen frá
Noregi, Damen frá Hollandi, Peene-
Werf frá Þýskalandi og SIMEK frá
Noregi. Öll félögin nema Bergen og
Aker skiluðu inn tilboðum. Í útboðs-
gögnunum var tilgreint viðmiðunar-
verð 28 milljón evra, en aðeins til-
boðið frá Asmar hljóðaði upp á
lægri upphæð.
Í fréttatilkynningu frá Ríkis-
kaupum segir að stefnt sé að samn-
ingar verði undirritaðir í nóvember
nk.
Lægsta tilboð í
varðskip frá Chile
Í HNOTSKURN
» Nýtt varðskip Landhelg-isgæslunnar verður 1.000
tonn, 80–90 metra langt og 15–
16 metrar að breidd.
» Varðskipið Týr er til sam-anburðar 342 tonn, 71 metra
langt og 10 metrar að breidd.
Morgunblaðið/Jim Smart