Morgunblaðið - 23.09.2006, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fjalla› er um umsóknir flrisvar á ári.
Umsóknarfrestir er: 25. September 2006.
Frekari uppl‡singar og umsóknarey›ublö› fást hjá fer›amannará›um og á heimasí›unum
www.tourist.fo og www.icetourist.is
YASHINTA (fyrir miðju) grætur eiginmann sinn, Mar-
ianus Riwu, en hann og tveir aðrir kristnir menn voru
líflátnir í Indónesíu í gær fyrir að hafa verið í farar-
broddi fyrir hópi kristinna manna, sem myrtu um 200
manns í íslömskum skóla í trúarbragðaátökum í land-
inu á árunum 2000 og 2001.
Reuters
Aftökur í Indónesíu
Beirút, Jerúsalem. AFP, AP. | Sheikh Hassan Nasrallah,
leiðtogi hinna herskáu Hizbollah-samtaka sjía-múslíma í
Líbanon, vísar afdráttarlaust á bug kröfum alþjóðasam-
félagsins um að samtökin afvopnist. Hann sagði á fjöl-
mennum útifundi í Beirút í gær, þar sem fagnað var
„guðdómlegum sigri“ yfir Ísraelum, að enginn her í
heiminum væri nógu sterkur til að afvopna Hizbollah.
Kveðið er á um afvopnun vígasveita samtakanna í
ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en ályktunin
er grundvöllur gildandi vopnahlés Hizbollah og Ísraela.
„Það er enginn her í heiminum fær um að taka vopnin
úr höndum okkar með valdi,“ sagði Nasrallah sem kom í
fyrsta skipti fram opinberlega í gær síðan átök Ísraela og
Hizbollah brutust út 12. júlí sl. Þá sagði Nasrallah
Hizbollah enn ráða yfir um 20.000 flugskeytum. Meira en
þúsund manns létu lífið í átökunum milli Hizbollah og
Ísraela, aðallega óbreyttir, líbanskir borgarar.
SÞ hafa sent mörg þúsund manna, alþjóðlegt friðar-
gæslulið til Suður-Líbanons og á það að aðstoða her Líb-
anons við að ná þar yfirráðum. Svæðið hefur í reynd verið
undir stjórn vígasveita Hizbollah sem á tvo ráðherra í
samsteypustjórn Líbanons. Yfirlýsing Nasrallah er talin
vera bein ögrun við Fouad Siniora forsætisráðherra og
stjórn hans en flestir ráðherrarnir eru andvígir nánum
tengslum Hizbollah við Íran og Sýrland.
Mark Regev, talsmaður ísraelska utanríkisráðuneyt-
isins, fordæmdi hreyfinguna og Nasrallah, leiðtoga henn-
ar, í gær, að sögn ísraelska dagblaðsins Haaretz. „Al-
þjóðasamfélagið getur ekki sætt sig við að þessi
ofstækismaður, sem haldið er uppi með peningum frá Ír-
an, hræki í andlit alþjóðasamfélagsins,“ sagði Regev.
Nasrallah sagði í ræðu sinni að ríkisstjórnin væri ófær
um að „vernda Líbanon, endurbyggja það og sameina
það“ og hvatti til myndunar nýrrar þjóðstjórnar í land-
inu. Þá sagði hann Hizbollah hafa eflst við stríðið gegn
Ísrael, sem stóð í rúman mánuð. Talið er að um 500.000
manns, aðallega sjía-múslímar, hafi sótt útifundinn.
Hizbollah fagnar
„guðdómlegum sigri“
Nasrallah segir samtökin ekki láta vopnin af hendi
Fagnað Spjald með myndum af (f.v.) Mahmoud Ahmad-
inejad, forseta Írans, Bashar al-Assad Sýrlandsforseta
og Sheikh Hassan Nasrallah, leiðtoga Hizbollah, á úti-
fundi liðsmanna Hizbollah í Beirút í Líbanon í gær.
Reuters
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
HAMAS, hreyfing íslamista úr röð-
um Palestínumanna, samþykkir að
stofnað verði sjálfstætt ríki Palest-
ínumanna á svæðunum sem Ísrael
hernam 1967 en neitar sem fyrr að
viðurkenna Ísrael. Fram kom í máli
Ismail Haniya, forsætisráðherra og
Hamas-manns, við kvöldbænir í gær
að samtökin vildu gera 10 ára vopna-
hlé við Ísraela. Segja Hamasmenn
að þann tíma sé hægt að nota til
styrkja efnahag hins nýja Palestínu-
ríkis. En Haniya hvikaði ekki frá
andstöðunni við tilverurétt Ísraels.
„Sjálfur mun ég ekki veita forystu
nokkurri ríkisstjórn sem viðurkenn-
ir Ísrael,“ sagði hann. Ísraelar höfn-
uðu þegar vopnahléstilboði Hamas.
Nýlega var tilkynnt að Hamas og
Fatah, flokkur Mahmoud Abbas for-
seta, hygðust mynda samsteypu-
stjórn á grundvelli tillagna sem nær
allir flokkar Palestínumanna sam-
þykktu í júní. Þar er tilvera Ísraels
með óbeinum hætti samþykkt og
sagt að stofna beri Palestínuríki á
Vesturbakkanum og Gaza. Hernaði
gegn Ísraelum er ekki hafnað af-
dráttarlaust en sagt að einbeita beri
kröftunum gegn hermönnum Ísraela
á Gaza og á Vesturbakkanum.
Abbas flutti ræðu á allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna á fimmtu-
dag og fullyrti að ný ríkisstjórn Pal-
estínu myndi viðurkenna Ísrael.
Samningar frá 1993
„Ég vil ítreka hér að framtíðar
ríkisstjórn Palestínu mun, hvernig
sem hún verður skipuð, viðurkenna
alla samninga sem Frelsishreyfing
Palestínu (PLO) og Palestínustjórn
hafa undirritað,“ sagði Abbas. Með
þessum orðum vísaði Abbas meðal
annars til samnings sem Ísraelar og
Palestínuleiðtoginn þáverandi, Yass-
er Arafat, gerðu 1993 um gagn-
kvæma viðurkenningu ríkjanna.
Hamas vann þingkosningarnar í
janúar en ríkisstjórn samtakanna
hefur verið hunsuð af stórveldunum
sem hafa stöðvað nær allan fjár-
stuðning við Palestínu og krefjast
þess að Hamas-menn hafni öllu of-
beldi og viðurkenni tilverurétt Ísr-
aels. Hamas-samtökin stóðu árum
saman fyrir hryðjuverkum gegn Ísr-
aelum en hafa nú haldið að sér hönd-
um í þeim efnum í meira en ár. Í
stefnuskrá samtakanna er tekið
fram að Ísraelsríki skuli lagt niður
og stundum segja Hamasmenn að
reka beri alla gyðinga á brott frá
svæðinu.
Haniya segist
aldrei munu
viðurkenna Ísrael
Ummælin stangast á við yfirlýsingu
Abbas Palestínuforseta í ræðu hjá SÞ
Ismail Haniya Mahmoud Abbas
Í HNOTSKURN
»Alls búa tæpar fjórar millj-ónir Palestínumanna á
Vesturbakkanum og Gaza auk
nokkurra milljóna í öðrum
löndum.
»Stuðningur við Hamas hef-ur minnkað vegna þreng-
inganna sem stefna samtak-
anna hefur kallað yfir þjóðina.
»SÞ segja að neyðarástandsé að verða á Gaza vegna
skorts á brýnum nauðsynjum.
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
BANDARÍKJASTJÓRN hótaði að
sprengja Pakistan „aftur á steinöld“,
tækju stjórnvöld þar ekki fullan þátt
í baráttunni gegn al-Qaeda-hryðju-
verkasamtökunum. Kemur það fram
í viðtali við Pervez Musharraf, for-
seta Pakistans.
Musharraf sagði þetta í viðtali,
sem „60 mínútur“, fréttaskýringa-
þáttur CBS-sjónvarpsstöðvarinnar,
átti við hann, en þátturinn verður
birtur á morgun, sunnudag. Í út-
drætti úr honum kemur fram, að
Richard Armitage, fyrrverandi að-
stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, hafi átt fund með yfirmanni
pakistönsku leyniþjónustunnar eftir
hryðjuverkaárásirnar í Banda-
ríkjunum 11. sept. 2001 og sett þá
fram ýmsar „fáránlegar“ kröfur.
Þeim hafi hann fylgt eftir með þess-
um orðum: „Búið ykkur undir
sprengjuregn. Búið ykkur undir að
verða sprengd aftur á steinöld.“
Musharraf sagði, að Armitage
hefði einnig krafist þess, að Pakist-
anstjórn kæmi í veg fyrir, að ein-
hverjir einstaklingar eða hópar þar í
landi fengju að lýsa yfir stuðningi við
árásirnar á Bandaríkin.
Útdrátturinn var birtur sama dag
og Bandaríkjastjórn hrósaði Pakist-
anstjórn fyrir samvinnu í hryðju-
verkastríðinu en Musharraf ætlaði
að eiga fund með George W. Bush
Bandaríkjaforseta í gær.
Segir Bandaríkjastjórn hafa hótað að
sprengja Pakistan „aftur á steinöld“