Morgunblaðið - 23.09.2006, Qupperneq 27
Í Menntaskólanum í Kópavogi hefur
verið tekin upp sú nýbreytni að bjóða
nemendum sem stunda afreksþjálfun
upp á námskeið á vegum HK og
Breiðabliks sem metið er til íþrótta-
eininga innan skólans.
Þeir nemendur sem kjósa þessa ný-
breytni þurfa ekki að stunda leikfim-
istíma á vegum skólans.
Afreksþjálfun
„Bæði HK og Breiðablik fóru þess á
leit við okkur, núna fyrir haustönnina,
að vera með sérstök námskeið,“ sagði
Helgi Kristjánsson, aðstoðarskóla-
meistari MK, þegar hann var spurður
út í þessa nýbreytni. „Félögin halda
þessi námskeið fyrir nemendur sem
stunda afreksþjálfun. Félögin velja
sjálf þessa nemendur og því er þannig
komið fyrir að þeir séu ekki samtímis í
tímum í skólanum,“ sagði Helgi.
„Nú er verið að vinna ítarlega
námslýsingu og í framhaldinu verður
það þannig að námskeiðin verða metin
sem íþróttaeiningar.“
Eins og er eru námskeiðin ein-
göngu í boði fyrir stráka og stelpur
sem stunda fótbolta. „Þetta er alveg
óháð því hvort þau æfa með sínum
flokki, námskeiðin eru alveg sér,“
sagði Helgi og bætti við að ekki væri
verið að verðlauna nemendur fyrir að
æfa með sérstökum félögum, allir
nemendur sem eru í afreksþjálfun
eiga kost á að fara á þessi námskeið.
Tvær einingar
„Þeir geta sleppt íþróttum í skól-
anum og farið á þessi námskeið í stað-
inn, samkvæmt aðalnámskrá fram-
haldsskólanna,“ sagði Helgi og
upplýsti að tíminn sem færi í þetta
væri sex skipti sem samsvarar fjórum
kennslustundum. „Mér sýnist, sam-
kvæmt uppkastinu sem ég er með að
námslýsingunni, að þetta yrðu tvær
einingar.“
Komið hefur fram áhugi hjá öðrum
íþróttafélögum í Kópavogi á að bjóða
upp á sérnámskeið, að sögn Helga.
„Sá áhugi kom til eftir að þetta spurð-
ist út,“ sagði hann. „Við munum skoða
það fyrir vorönnina.“
Mikið hefur verið spurt um nám-
skeiðin í MK og þau hafa verið afar
vinsæl hjá krökkunum sem standa
námskeiðin til boða.
Reuters
Íþróttir Kannski eru það upprennandi fótboltastjörnur sem nú stunda fótbolta í MK og fá fyrir tvær einingar.
Fótbolti í stað
skólaíþrótta
menntun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 27
D-VÍTAMÍN minnkar hættuna á
briskirtilskrabbameini um tæpan
helming, ef marka má nýja rannsókn.
Áður höfðu rannsóknir bent til þess
að D-vítamín minnkaði líkur á
brjóstakrabba og tilraunir á dýrum
hafa bent til þess að D-vítamín hindri
óeðlilegan frumuvöxt og minnki hætt-
una á krabbameini. „Ég hef haft efa-
semdir um að D-vítamín gegni hlut-
verki í því að hindra krabbamein en
nú trúi ég að eitthvað sé til í því,“
sagði Len Lichtenfeld, aðstoðardeild-
arstjóri hjá bandaríska krabbameins-
félaginu.
Um 450 alþjóðlegar einingar (IU) á
dag af vítamíni minnkuðu hættuna á
briskirtilskrabbameini um 43% í
rannsókn vísindamanna við North-
western- og Harvard-háskóla. Meira
magn hafði óveruleg áhrif umfram
þetta en 150–300 alþjóðlegar einingar
á dag minnkuðu hættuna um 22%.
D-vítamín myndast í húðinni fyrir
tilstilli útfjólublárra geisla sólar en
vísindamennirnir gátu ekki metið hve
mikið D-vítamín þátttakendurnir
fengu með þeim hætti. Lýsi og feitur
fiskur eins og síld, lax, silungur, sard-
ínur og lúða eru þær fæðutegundir
sem hafa mest af D-vítamíni og fjör-
mjólk er D-vítamínbætt.
D-vítamín
minnkar
hættu á
briskrabba
Bændur
bera ekki ábyrgð
á háu verðlagi
á Íslandi
Íslenskar landbúnaðarafurðir
hafa hækkað minna frá áramótum en
aðrar matvörur, hvort sem um er
að ræða innlendar eða erlendar vörur.
Fræðsluauglýsing nr. 3
Bændasamtök Íslands
16
40
.3
Miðað er við vísitölu neysluverðs sem gefin er út af Hagstofu Íslands.
Vísitalan 100 er verð vöruflokkana þann 1. janúar síðastliðinn. Íslenskar
búvörur hafa hækkað um 7% frá áramótum en aðrar innlendar matar- og
drykkjarvörur hafa hækkað um 9.5% á sama tíma.
Innf
lutta
r
mat
- og
dry
kkja
rvör
ur
Íslen
skar
búv
örur
án g
ræn
met
is
Aðr
ar in
nlen
dar
mat
- og
dry
kkja
rvör
ur
106
106,5
107
107,5
108
108,5
109
109,5
107
108,2
109