Morgunblaðið - 23.09.2006, Page 32

Morgunblaðið - 23.09.2006, Page 32
daglegt líf 32 LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Aukahlutapakki fylgir með í júlí á meðan birgðir endast. Upphækkun, heilsársdekk og 16” álfelgur. Júlípakki: 180.000 kr. STAÐALBÚNAÐUR: 2.0 lítra - 158 hestöfl, fjórhjóladrif, hiti í speglum, hraðastillir (PLUS), hiti í sætum (PLUS), hiti í framrúðu (PLUS), sjálfvirk loftkæling (PLUS), kastarar í stuðara (PLUS), sóllúga (LUX), aðgerðastýri (LUX) og leðurinnrétting (LUX). Jepplingur á verði fólksbíls. 2.590.000 kr. www.subaru.is Forester2.590.000,- Forester PLUS2.790.000,- Forester LUX 3.090.000,- Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00–18:00.Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Akureyri 461-2960 Njarðvík 421-8808 Höfn í Hornafirði 478-1990 Reyðarfirði 474-1453 Subaru Forester er mun öflugri en margir stærri jeppar en samt lipur og léttur í akstri líkt og fólksbíll. Forester var valinn dráttarbíll ársins í Hollandi og hentar því vel fyrir fellihýsi og tjaldvagna. Í Rússlandi var hann valinn jepplingur ársins og bíllinn með minnstu bilanatíðnina í Þýskalandi. Á Íslandi er hann ódýrasti sjálfskipti jepplingurinn á markaðnum í dag. Umboðsmenn um land allt Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is Fimm ár eru síðan VanessaBasañez Escobar fluttistásamt eiginmanni sínumStefáni Svavarssyni frá Mexíkó til Íslands. Á þeim tíma hafa þau hjónakorn fundið fyrir vöntun á vörum frá Mexíkó, ekki síst til mat- argerðar, þótt vissulega hafi úrval hráefna batnað mikið síðustu ár. Í ágúst létu þau svo drauminn rætast og opnuðu verslun við Laugaveg, Plaza Mexico, sem sérhæfir sig í gjafavöru, húsbúnaði og matvöru frá heimalandi hennar. „Hluti ástæðu þess að við ákváðum að fara út í þetta var að okkur langaði að bæta ímynd Mexíkó,“ segir Stefán þegar blaða- maður slær á þráðinn til hans. „Ímynd Mexíkó er kannski ekki slæm hér á landi en okkur fannst hún svo vitlaus. Okkur sárnaði líka að sjá hillurnar í stórmörkuðunum með „mexíkóskum“ mat sem er ekk- ert mexíkóskur heldur fyrst og fremst ameríkaníseraður og ekkert góður á bragðið heldur. Við vildum sýna að mexíkóskur matur væri fjöl- breyttur og alls ekki alltaf sterkur eins og gjarnan er gefið til kynna.“ Stefán segir þau því bjóða upp á nið- ursoðin matvæli, krydd og þurr- vörur frá Mexíkó, svo sem maísmjöl „til að gera tortillur úr alvörumaís eins og Mexíkóar borða.“ Íslenskur matur Stefán segir þau hjón reyndar orðin sérfróð í að búa til mexíkóskan mat úr íslensku hráefni. „Til að byrja með var erfitt að fá það sem til þurfti í matargerðina enda var varla hægt að fá lime á Íslandi fyrir fimm árum. Úrvalið hefur heilmikið batn- að síðan og núna bætist það við sem við erum með í búðinni hjá okkur, bæði af hráefnum en að auki erum við með tilbúnar mexíkóskar sósur líkar þeim sem Mexíkóar myndu sjálfir nota heima hjá sér.“ Áhuga- samir geta svo nálgast uppskriftir af mexíkóskum mat sem gerður er úr íslenskum hráefnum hjá þeim hjón- um. Gjafavaran tekur ekki síður pláss í hillum verslunarinnar en matvaran og má þar nefna muni úr svörtum leir, sem aðeins fæst í suðvestur- hluta Mexíkó, skartgripi úr gulli og silfri, handmálaða keramikhluti og bækur og bíómyndir á spænsku. Hrópað úti á götu Þennan mánuð beina þau hjón sjónum sínum sérstaklega að þjóðhátíðardegi Mexíkó sem var 16. september síðastliðinn. Stefán út- skýrir að aðalhátíðarhöldin í Mexíkó séu jafnan kvöldið áður. „Þá safnast fólk saman og hrópar „lifi Mexíkó“ og telja svo upp allar helstu þjóð- hetjurnar og hrópa þeim til heiðurs. Reyndar voru hátíðarhöldin svolítið söguleg í ár því það var lengi vel tví- sýnt um að af þeim yrði. Það eru bú- in að vera mikil mótmæli í kjölfar forsetakosninganna og mótmæl- endur slógu upp tjaldbúðum í mið- borginni. Þeir ákváðu hins vegar að færa sig fyrir hátíðarhöldin en for- setinn stýrði þeim ekki eins og venja er því hann er frekar óvinsæll í Mexíkóborg.“ Stefán segir þau Vanessu veita ýmiskonar upplýsingar um Mexíkó í búðinni. „Við erum ekki ferðaskrif- stofa en ef fólk er að hugsa um að fara í ferðalag til Mexíkó getum við mælt með stöðum og hótelum og fleiru í þeim dúr. Hugmyndin er að verslunin verði eins konar hlið að Mexíkó.“ Picaditas ½ kg Maseca-maísmjöl lófafylli af hveiti ½ tsk. salt vatn 250 g nautahakk 2 litlar kartöflur ½ laukur 100 g rifinn ostur Byrjið á að gera deig úr Maseca- maísmjölinu. Blandið hveitinu, maís- mjölinu og salti saman í skál og bæt- ið við vatni og hrærið saman. Deigið á að vera vel hart. Úr deiginu er gerðar litlar kúlur sem eru press- aðar flatar með tortillapressu þann- ig að kökurnar verði um það bil lófa- stórar. Kökurnar eru steiktar á pönnu báðum megin án olíu þar til þær eru bakaðar í gegn. Gott er búa til litla brún á kökurnar með putt- unum á meðan þær eru á pönnunni, svo kjötið detti ekki af á eftir. Flysjið kartöflurnar hráar, skerið í teninga og steikið í olíu á pönnu. Bætið kjötinu og lauknum við þegar kartöflurnar eru að verða steiktar. Saltið eftir smekk. Þegar maískökurnar er tilbúnar er kjötið sett ofan á þær, svo rifinn ostur og hver kaka steikt augnblik í smáolíu þar til osturinn er bráðn- aður. Best er að borða Picaditas með sterkri sósu, til dæmis Salsa Ranc- hera eða Salsa Taquera. Hlið að Mexíkó við Laugaveg Morgunblaðið/Kristinn Mexíkó Vanessa og Stefán veita upplýsingar um heimaland hennar. Verslunin Litrík gjafavara prýðir hillurnar. Áður en netið og tölvupóstsamskipti komu til sögunnar voru fáir með vinnuaðstöðu heima hjá sér. Nú er öldin önnur og á vef Berlingske ti- dende kemur fram að fjórði hver Dani vinni að hluta til heima hjá sér. Eftir því sem næst verður komist er talið að 650.000 manns í Dan- mörku hafi komið upp vinnuaðstöðu heima og sú tala gerir Dani að Evr- ópumeisturum í heimavinnu. Louise Thomasen, ráðgjafi hjá fyr- irtækinu Teknologisk Institut í Dan- mörku, bendir á að um tíma hafi það komið vel út fyrir fólk skattalega að vinna heima hjá sér, sem skýri þenn- an mikla fjölda sem stundi það nú. Þá er stór hluti þjóðarinnar vel menntað fólk og fær laun fyrir verk- efni sem það skilar frá sér í stað þess að fá borgað eftir viðveru eða tíma- vinnu, segir Louise Thomasen enn- fremur í samtali við blaðið. Opin vinnurými En það eru ekki bara jákvæðar ástæður fyrir því að fólk hefur í auknum mæli fært skrifstofuna sína heim. Kannanir hafa sýnt að margir hafa fundið sig þvingaða til að vinna heima eftir að fyrirtæki hafa gert breytingar á þá leið að í staðinn fyrir að vera með skrifstofur er höfð sam- eiginleg vinnuaðstaða í stóru opnu rými. Sumum gengur einfaldlega betur að vinna heima hjá sér verkefni sem krefjast einbeitingar. Ekki vinna bara heima Margrete Bak er lögfræðingur sem rekur eigið ráðgjafafyrirtæki. Hún ráðleggur því fólki sem til henn- ar leitar eindregið að vinna ekki bara heima heldur frekar að hluta til. Hún segir að hættan sé sú að ef fólk vinni eingöngu heima hjá sér þá sé það ekki sýnilegt og missi af ýmsum tækifærum sem komi upp á vinnu- stað. Starfsfélagi hennar, Carsten Niel- sen, bendir einnig á að nú á dögum, þegar lögð sé mikil áhersla á vinnu- staðamenningu, sé mikilvægt fyrir starfsfólk að vera á vinnustaðnum til að tileinka sér þann starfsanda sem þar ríki. Heima Talið er að um 650.000 Danir séu með vinnuaðstöðu heima hjá sér. Fjórði hver Dani vinnur heima

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.