Morgunblaðið - 23.09.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 2006 45
Nú er haustið á heimleið
í dalinn.
Það er hljótt þetta
septemberkvöld.
Yfir dagsólar dvínandi
glæður
húmið dregur sín þungbúnu tjöld.
Meðan angurblíð, einmana kveðja
berst frá ásum og fölbleikum mó
rennur hljómkviða hallandi sumars
inn í heiðanna dulúðgu ró.
(Ólína Jónasdóttir)
Elsku Unnur Bettý mín, þegar sú
harmafregn barst okkur að þú hefðir
látist í bílslysi var margt sem fór
gegnum hugann á þeirri sorgar-
stundu. Hvers vegna? Þessu er erfitt
að svara, að svo ung og yndisleg
stúlka skuli tekin burt svo fljótt.
Þróttmikil stúlka, sem rétt er að
hefja sitt lífshlaup. Minningarnar
þjóta gegnum hugann eins og þegar
Unnur Bettý
Guðmundsdóttir
✝ Unnur BettýGuðmundsdóttir
fæddist í Reykjavík
5. september 1987.
Hún lést af slysför-
um 28. ágúst síðast-
liðinn og var útför
hennar gerð frá
Hofsósskirkju 9.
september.
þú varst að segja mér
frá framtíðaráformum
þínum, hvað þig lang-
aði að læra. Að ljúka
við tréiðnarnámið og
fara síðan til Dan-
merkur til að nema
arkitektúr.
Elsku Unnur Bettý,
hvíl þú í friði og minn-
ingin um þig mun lifa í
hjörtum okkar.
Kæru Guðrún, Guð-
mundur, Björn Svavar
og Brynjar Örn, harm-
ur ykkar er mikill við
fráfall ykkar elskulegu dóttur og
systur. Megi Guð vernda ykkur og
styrkja.
Á hendur fel þú honum,
sem himna stýrir borg,
það allt, er áttu í vonum,
og allt, er veldur sorg.
Hann bylgjur getur bundið
og bugað storma her,
hann fótstig getur fundið,
sem fær sé handa þér.
(Björn Halldórsson í Laufási.)
Björn afi og Jórunn amma.
Elsku Unnur Bettý, vinkona mín
og frænka.
Það var sorgardagur þegar þær
fréttir bárust mér og minni fjöl-
skyldu að þú hefðir dáið í bílslysi.
Sorgin og reiðin greip mig heljar-
taki, þvílíkt óréttlæti og synd að
þessi fallega og góða stúlka hafi ver-
ið tekin frá okkur svo fljótt.
Minningarnar um þig sem litla
brosandi stúlku hellast yfir mann og
þær eru margar sem ég mun geyma
hjá mér um ókomin ár. Ég minnist
sérstaklega þeirra stunda sem við
áttum saman í Reykjavík þegar þú
hringdir stundum í mig og baðst mig
um að keyra þig eitthvað. Það voru
bæði erfiðar og góðar stundir en
þrátt fyrir margar hindranir þá
gastu oftast brosað og allt ljómaði í
kringum þig. Það er brosið þitt sem
ég mun aldrei gleyma og allar minn-
ingarnar sem ég mun geyma í hjarta
mínu.
Blessuð sé minning þín elsku
frænka og megir þú hvíla í friði og
ró.
Hví var þessi beður búinn
barnið kæra, þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan: ,,Kom til mín!“
Kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
(Björn Halldórsson í Laufási)
Elsku Guðrún, Gummi, Bjössi og
Brynjar, ég votta ykkur mína dýpstu
samúð, megi Guð almáttugur styrkja
okkur öll á sorgartímum og þerra
tárin.
Steinar Már Björnsson.
út fyrir landsteinana komið. Við fór-
um í ferðalag um Evrópu og keyrð-
um um átta lönd. Hápunktur ferð-
arinnar hjá Stínu var að koma í
Svartaskóg. Þar var sjúkrahúsið
Schwarzwald klinik skoðað, en þar
var vinsæll sjónvarpsþáttur tekinn
upp. Hann var sýndur í sjónvarpinu
hér á landi og horfði Stína á hvern
einasta þátt. Við sátum úti á veitinga-
stað við Lorelei með hvítvínsglas og
dáðumst að umhverfinu. Einnig fór-
um við í ógleymanlega heimsókn í Tí-
volí Kaupmannahafnar.
Eftir að við fluttum til Íslands aft-
ur fórum við oft að heimsækja Stínu.
Hún var mjög góð við börnin mín og
sýndi þeim mikinn áhuga. Vildi alltaf
vita hvað var í gangi, hvernig gengi í
skólanum eða íþróttum. Hin síðari ár
gerði hún of grín af frænkum sínum,
Sirrý og Stínu, fyrir að vera ekki með
neina kærasta til að kynna fyrir
henni.
Elsku Stína, það var mín gæfa að
fá að kynnast þér og vera með þér í
gegnum árin, þú sýndir mér einlæga
vináttu. Það sem þú kenndir mér var
að finna það jákvæða í lífinu hvernig
svo sem aðstæður voru.
Yndisleg kona hefur fengið hvíld-
ina. Hafðu þökk fyrir allt og Guð
geymi þig.
Dóra Gerður Stefánsdóttir.
Nú í dag, hinn 23. september,
verður Kristín Bjarnadóttir eða hún
Stína mín kvödd. Stína var engin
venjuleg kona í mínum augum þó
hún væri í raun mjög venjuleg.
Kannski óvenjulega venjuleg. Hún
var kona sem maður gat elskað og
borið óþrjótandi virðingu fyrir. Að
hafa þekkt hana og hennar fjölskyldu
hefur gert mig og börnin mín að betri
manneskjum. Stína var þannig per-
sóna að hún fékk mann til að hugsa
svo margt, m.a. um tilgang lífsins. Til
hvers að eltast við og eignast hluti?
Felst hamingjan í því? Nei, Stína var
ekki manneskja sem hugsaði þannig.
Hún var mjög nægjusöm og fannst
hún alltaf hafa nóg af öllu. Hún vildi
ekki mikinn íburð eða safna hlutum,
hlutum sem við „unga fólkið“ köllum
í dag sjálfsögð lífsgæði. Stínu leið vel,
hún hafði nóg. Í mat og drykk var
hún einnig hófsöm og þegar henni
var boðið eitthvað þá svaraði hún oft-
ast: „bara lítið“. Stína var frekar lítil
vexti en samt svo stór á margan hátt.
Ég kynntist Stínu, og Jónu systur
hennar, fyrst fyrir rúmum 24 árum
síðan. Tvær systur héldu þá heimili
og bú saman í Meiri-Tungu 1, en áð-
ur hafði Þórður bróðir þeirra búið
með þeim. Hann hafði þá látist
tveimur árum áður, en ég skynjaði
þó vel að hann lifði samt sterkt áfram
með fjölskyldunni. Enda voru þau
systkinin öll miklar og sterkar per-
sónur, vel gefin og víðsýn. Yngsti
bróðir Stínu var Valtýr. Hann var sá
eini af systkinunum sem gekk
menntaveginn og varð læknir. Valtýr
giftist Sigríði Jóhannsdóttur og eign-
aðist með henni 4 börn. Ég var svo
heppin að kynnast yngsta syni Val-
týs og tengjast þannig inn í fjölskyld-
una. Börn Valtýs, þau Bjarni, Jó-
hann, Valtýr og Siddý, höfðu þá öll
dvalið langtímum saman í sveitinni
hjá þeim systkinum og Valtýr og
Siddý gengu auk þess í tvö ár í
Laugalandsskóla. Öll börn Valtýs
voru sem þeirra eigin börn. Það var
hlúð að þeim og þeim kennt margt
um lífið og tilveruna. Þá hefur oft
verið fjör á bænum, því í dag eru
sagðar margar sögur af hinum ýmsu
uppátækjum þeirra barna. Alltaf
héldu þau systkini ró sinni og tóku
fagmannlega á öllum málum sem upp
komu þótt þau hefðu ekkert lært um
barnauppeldi og hefðu ekki sjálf
eignast börn. Svona voru þau systk-
inin. Þannig unnu fjölskyldurnar vel
saman og sérstaklega þegar erfið-
leikar steðjuðu að. Það var mikið
áfall þegar tengdapabbi veiktist al-
varlega og tengdamamma varð að
vinna mikið úti frá 4 börnum. Þá voru
Stína og fjölskyldan í Meiri-Tungu
mikil hjálp þótt það hafi verið erfitt
fyrir tengdamömmu að senda börnin
svona mikið í burtu frá sér. En börn-
unum leið vel í sveitinni og eru þau
öll þakklát fyrir þá umhyggju ástúð
sem þau þáðu þar.
Öll börn Valtýs og Sigríðar konu
hans hafa nú eignast börn og eru nú
afkomendur þeirra orðnir 12. Öllum
þessum börnum hefur Stína fylgst
vel með og verið sem besta „amma“
þeirra allra. Hún hefur fylgst með
uppeldi, gefið góð ráð og verið góður
vinur. Stína hafði allt að gefa, en vildi
lítið þiggja. Ef hún gat hjálpað ein-
hverjum einhvers staðar þá var hún
komin og til þjónustu reiðubúin. Eft-
ir að við Valtýr kynntumst kom ég
oft í sveitina og oft vorum við hérna
um hverja helgi. Hér var alltaf nóg
að gera og hérna leið okkur alltaf vel.
Það er því kannski ekki skrítið að við
byggðum okkur hús og settum upp
heimili okkar í Meiri-Tungu. Okkur
þótti afar vænt um þegar Stína átti
erfitt með að vera ein í gamla bænum
og hún flutti til okkar. Það var mikill
styrkur fyrir börnin okkar, þá sér-
staklega hana Völu, að fá að hafa
Stínu á heimili okkar, þangað til hún
flutti á Lund vegna hrakandi heilsu.
Stína var mjög vel gefin og þótt
hún væri ekki langskólagengin þá
kunni hún dönsku og kunni einnig
fyrir sér í ensku og frönsku. Hún sá í
fjöldamörg ár um reikninga Holta-
hrepps og Laugalandsskóla. Einnig
var hún virkur þátttakandi í sam-
félaginu, s.s. sat í sóknarnefnd Ár-
bæjarkirkju og var heiðursfélagi í
kvenfélaginu Einingu.
Stína var kona sem ekki talaði illt
um nokkurn mann. Hún var passa-
söm bæði til orðs og æðis. Hún var
kona sem hafði mikla reisn yfir sér
og henni hélt hún til hinsta dags.
Hún lést á Hjúkrunarheimilinu
Lundi þann 10. september sl. Þótt
hún hefði ekki eignast nein börn
sjálf, þá átti hún samt öll börnin sem
voru hjá henni síðustu stundirnar.
Takk fyrir allt, Stína mín,
Sigrún Björk.
Elsku Stína, ég kveð þig sárlega í
dag, en veit þó að betri staður beið
þín. Minning þín mun lifa lengi með
mér. Ég minnist þess að sitja inn í
eldhúsi hjá þér sem lítill krakki, þar
sem þú bjóst til besta skyr í heimi,
„sykur undir og yfir“. Meiri-Tunga
hefur ekki verið sú sama eftir að þú
yfirgafst gamlabæinn, en í huga mín-
um ert þú ennþá þar, elsku frænka
mín, gangandi upp og niður stigana
og fylgja okkur út til að skoða féð.
Síðustu árin sem þú bjóst á Hellu á
ég margar góðar minningar. Þú viss-
ir alltaf hvað allir voru að gera á
hverjum tíma. Spurðir um alla til að
vera klár á öllu og engum gleymt.
Þú ert ein sterkasta kona sem ég
hef kynnst. Þú barst höfuðið hátt,
varst ákveðin, en alltaf hugulsöm,
góð og sást það besta í hverjum og
einum. Þú hefur veitt mér mikið
sjálfstraust, því þegar ég talaði við
þig fannst mér ég geta gert allt sem
mig dreymir um og annað minna
kæmi ekki til greina. Í dag ber ég
nafnið þitt með stolti og virðingu. Ég
vona að ég hafi erft meira en nafnið
eitt, ég vona að í mínu blóði renni
þessi styrkur og ákveðni sem mun
leiða mig eins langt og þú hafðir trú
á. Ég sakna þín afar mikið, en minn-
ingin þín mun lifa og veita okkur öll-
um styrk. Guð geymi þig, elsku Stína
frænka.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Þín
Kristín Jóna.
Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku Stína, nú ertu komin
til Guðs og búin að hitta hina
englana. Við biðjum að heilsa
afa Valtý, og við vitum að þú
heldur áfram að fylgjast með
okkur eins og þú hefur alltaf
gert. Sofðu rótt í alla nótt.
Valdís Jóna og
Gunnar Breki,
Uppsölum, Svíþjóð.
HINSTA KVEÐJA
Pantanir í síma 562 0200
Á fallegum og notalegum
stað á 5. hæð Perlunnar.
Aðeins 1.350 kr. á mann.
Perlan
ERFIDRYKKJUR
Faðir minn,
FRIÐRIK JÖRGENSEN,
er látinn.
Ólöf Heiða Friðriksdóttir.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Alhliða útfararþjónusta í 16 ár
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði
LEGSTEINAR
SteinsmiðjanMOSAIK
Hamarshöfða 4 – sími 587 1960
www.mosaik.is
Okkar ástkæra,
KRISTÍN SVEINSDÓTTIR
frá Hríshóli,
Reykhólahreppi,
Vitateigi 5,
Akranesi,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn
26. september kl. 14.00.
Garðar Halldórsson,
Gígja Garðarsdóttir, Sigurður Guðjónsson,
Gunnar Þór Garðarsson, Lilja Ellertsdóttir,
Alda Garðarsdóttir, Guðmundur Viggósson,
Svavar Garðarsson,
Sveinn Vilberg Garðarsson, Elsa Guðlaug Geirsdóttir,
Ingimar Garðarsson, Anna Signý Árnadóttir,
Halldór Garðarsson, Anna Edda Svansdóttir
og ömmubörn.