Morgunblaðið - 23.09.2006, Qupperneq 54
Staðurstund
Handhafar Sjónlistarorðunnar
2006 veittu verðlaununum
viðtöku í Samkomuhúsinu
á Akureyri í gærkvöldi. » 56
sjónlist
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík ætlar að standa fyrir
sýningum á framsæknum kvik-
myndum allt árið um kring. » 56
hátíð
Kvikmyndin Börn kemur til
greina sem besta erlenda
myndin á Óskarsverðlauna-
hátíðinni á næsta ári. » 56
kvikmynd
Kunningjar okkar í Supernova
verða að breyta nafni sveitar-
innar en hið nýja nafn ætti ekki
að koma mörgum á óvart. » 57
Gestir æptu af hrifningu í lok
tónleika Peters Maté í vikunni.
Jónas Sen kallar tónleikana
listræna opinberun. » 59
tónlist
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Kannski er þetta frægastasetning úr barnaleikriti,að minnsta kosti á Íslandiog líklega á Norðurlönd-
unum: Ekki ger’ eins og mamma þín
segir, Jens.
Allir vita að vont er að fá tannpínu,
en hafi maður lifibrauð af því að
skemma tennur barna er kannski
ekki sérlega skemmtilegt að segja
upp á besta aldri, fara á eftirlaun og
setjast í helgan stein – ekki frekar en
í öðrum störfum. Eða þá að vera rek-
inn, þó svo maður hafi verið óvinsæll
í starfi.
Leikararnir tveir og leikstjórinn
gera sér grein fyrir því að gaman er
að spreyta sig á þessu verkefni, þrátt
fyrir að persónurnar tvær séu ekki
líklegar til þess að hljóta mikla sam-
úð hjá áhorfendum. Og þó; þau eru á
þeirri skoðun að þótt félagarnir tveir
séu í leiðinlegri kantinum, eða a.m.k.
ekki beinlínis skemmtilegir, hafi þeir
nóg að gera.
Á alltaf erindi
„Leikritið á alltaf erindi, þetta er
eitthvað sem allar kynslóðir
þurfa að horfa á og hlusta á – svo
lengi sem við höfum tennur,“ sagði
Ástrós Gunnarsdóttir leikstjóri í
samtali við Morgunblaðið í vikunni.
Hún er þekktari sem dansari og
danshöfundur en hefur áður
starfað í leikhúsi, aðallega
sem aðstoðarmaður leik-
stjóra.
„Ég held að ekki sé
vanþörf á svona boð-
skap núna þegar allt
veður í sætindum,“ segir
Ástrós.
Guðjón Davíð Karls-
son, sem leikur Baktus í
sýningunni, segist hafa
afskaplega gaman af hlut-
verkinu. „Mér finnst sumar
línurnar í leikritinu stórkostleg-
ar; það að segja Ekki ger’eins’og
mamma þín segir, Jens er
eins og að segja Að
vera eð’ ekki
vera í Hamlet.
Maður fær hreinlega gæsahúð af því
að segja þetta!“
Þeir Ólafur Jón eru sammála um
að það sé „stórkostlegt að leika fyrir
börn, þau eru mjög góðir áhorf-
endur; láta skoðun sína óspart í ljós
og eru ekki að fela neitt. Það er ekki
hægt að fela neitt fyrir börnum,“
eins og Guðjón Davíð orðar það.
Karíus, Ólafur Jón Ingunnarson,
segir: „Maður kastar ekki til hönd-
unum í barnaleikriti frekar en öðr-
um,“ og Ástrós leikstjóri tekur undir
og heldur áfram: „Enda eiga börnin
einungis skilið það besta.“
Guðjón Davíð segir: „Sýningin er
full af gleði, kátínu og rokki. Við höf-
um bara æft leikritið í þrjár vikur,
verðum að vera tilbúin á réttum tíma
og það er bara gott mál. Sýningin er
tiltölulega stutt en samt erfið lík-
amlega fyrir leikarann. Algjört svita-
bað!“
Erfitt verk
Segja má að tvímenningarnir séu
á fleygiferð allan tímann, dansandi
og syngjandi, og Ástrós leikstjóri
segist telja að áhorfendur fái mikið
fyrir peninginn. „Sýningin er erfið
bæði fyrir leikarana og tækjamann-
inn; það er mikil vinna í lýsingu og
hljóðum.“
Þau benda öll á mikilvægi þess að
bjóða upp á „lifandi“ sýningu.
„Krakkar eru vanir því að hafa sjón-
varpsskjáinn fyrir framan sig, en hér
er ekki einu sinni svið á milli okkar
og þeirra. Þetta hlýtur að vera óg-
urlegt ævintýri fyrir þau og jafn-
framt skemmtilegt,“ segir Guðjón
Davíð.
Segja má að verkið sé löngu orðið
sígilt og því í raun óþarft að kynna
það, enda gengur það í endurnýjun
lífdaga með hverri nýrri kynslóð
ungra leikhúsgesta. Verk Thor-
björns Egners eru ætíð vinsæl en
þetta er í fyrsta sinn sem Karíus og
Baktus eru settir upp norðan heiða.
Það sem er líklega nýstárlegast í
þessari uppsetningu LA er tónlistin,
sem flutt er í nýrri grallaraútgáfu
hljómsveitarinnar 200.000 naglbíta;
hún er rokkaðri en áður og segja má
að það sé helsta breytingin sem þær
kynslóðir verða varar við, sem séð
hafa leikritið áður.
Ófrýnilegu grallararnir Karíus og
Baktus munu væntanlega gera allt
vitlaust á Akureyri næstu vikurnar;
þeir höggva, berja, öskra
og heimta í munninum á
Jens, sem gefur þeim nóg af sætindum! Það er spurning hvort
börnin verða jafndugleg og áður að
biðja foreldrana að skutla sér í
nammibúð og áður!
Gengur í ættir
Komið hefur fram í
Morgunblaðinu að
Skúli Helgason,
kunnur útvarps-
maður á árum áð-
ur og núverandi
framkvæmda-
stjóri Samfylk-
ingarinnar, fer
með hlutverk
sögumannsins í
uppsetningu
LA að þessu
sinni, en faðir
hans, Helgi
heitinn Skúla- son leikari, var leikstjóri sjónvarps-
myndar um Karíus og Baktus fyrir
margt löngu og var þá sögumaður.
Þeir Guðjón Davíð og Ólafur Jón
benda einmitt á þá skemmtilegu
staðreynd, í samtali við Morg-
unblaðið, að þriðja kynslóðin sé mætt
til leiks í uppsetningu LA. „Þetta er
kannski ættgengt; nú er það Teitur,
ungur sonur Skúla, sem fer með hlut-
verk Jens. Honum er agalega illt í
tönnunum í sýningunni. Það er
kannski verið að ala hann upp í að
verða sögumaður í verkinu um
Karíus og Baktus seinna meir,“
segir Guðjón Davíð.
Góð liðsheild Ástrós Gunnarsdóttir leikstjóri ásamt Guðjóni Davíð Karls-
syni (t.v.) sem leikur Baktus ,og Ólafi Steini Ingunnarsyni sem fer með
hlutverk Karíusar, í sýningu Leikfélags Akureyrar, sem frumsýnd er í dag.
Karíus og Baktus
Hafa í nokkrar
kynslóðir reynt að
fá hann Jens til að
borða meira nammi.
eftir Thorbjörn Egner í
þýðingu Huldu Valtýsdóttur
Leikarar: Guðjón Davíð
Karlsson og Ólafur Steinn
Ingunnarson
Lýsing: Sveinn Benediktsson
Leikmynd og búningar: Íris
Eggertsdóttir
Gervi: Ragna Fossberg
Tónlist: 200.000 naglbítar
endurútsetur og flytur
Leikstjóri: Ástrós
Gunnarsdóttir
Karíus og
Baktus
Þeir eiga alltaf erindi, segir Ástrós Gunnarsdóttir leikstjóri
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Karíus og Baktus eru
Hamlet barnaleikrita
sjónvarp
|laugardagur|23. 9. 2006| mbl.is