Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 31
Stækkaðu við þig fyrir aðeins 1.990.000 kr. Reynsla bíleiganda er að pláss sé dýrt. Nýr Opel Vectra hefur hámarksrými fyrir alla farþega en er í verðflokki með mun, smærri bílum. Í akstri gefur hann dýrari bílum ekkert eftir og öll hönnun er gjörbreytt með gæði og þægindi að leiðarljósi. Nú bjóðum við þennan frábæra bíl á hausttilboði. Komdu, keyrðu hann og kollvarpaðu fyrri hugmyndum þínum um Opel. Nýr, fallegri og miklu betri Opel. Þýska tímaritið Auto Bild valdi Opel bestu þýsku bíltegundina í Þýskalandi árið 2006 Aukahlutir á mynd: álfelgur Sævarhöfða 2 S. 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga - föstudaga kl. 9:00 - 18:00 og laugardaga kl. 12:00 - 16:00 HAUST TILBOÐ Á VECTRA ELEGANCE matur MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 31 Orlando Vacation Homes If you are planning a trip to Orlando, Florida and you are interested in learning more about vacation home ownership, please contact us or visit our website. www.LIVINFL.com Contact: Meredith Mahn 001-321-438-5566 Domus Pro Realty - Vacation Home Sales Division Fegursta borg Eystrasaltsins Helgarferð til Tallinn 18. eða 26. október frá kr. 29.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum í helgarferðum til Tallinn í Eistlandi 18. eða 26. október. Gríptu þetta frábæra tækifæri á helgarferð til þessarar einstöku borgar á frábærum kjörum. Fjölbreyttir gistimöguleikar í boði í miðborginni. Verð kr.29.990 – helgarferð Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli með morgunverði, 18. okt. í 4 nætur eða 26. okt. í 3 nætur á Hotel L’Ermitage Ótrúlegt helgartilboð – aðeins 40 sæti Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Hvað er dásamlegra ensnæða heimalagaðadásamlega lerki-sveppasúpu á gömlu óð- alssetri í íslenskri sveit, sem þrungin er af öllum hugsanlegum litbrigðum haustsins? Við erum í heimsókn hjá Elísabetu Þorsteinsdóttur, eiganda og vert í Klausturkaffi, rómuðu veit- ingahúsi á jarðhæð Skriðuklausturs í Fljótsdal. Tilgangurinn er að herja út úr Elísabetu uppskrift að fyrr- greindri súpu, sem fræg er orðin um allar þorpagrundir og menn koma ár eftir ár til kokksins þjakaðir af lerk- isveppasúpuhungri. Hún bregst ljúfmannlega við þess- ari bón og sem hún tínir til hráefnið í súpugerðina í bláa eldhúsinu sínu segist hún hafa byrjað með Klaust- urkaffi fyrir sex árum, eða öllu heldur sjö sumrum, og síðan hafi verið nær stöðugur gestagangur, en mest þó yf- ir sumartímann. „Það eru ansi marg- ir sem koma hingað og spyrja hvort ég eigi lerkisveppasúpu, þeir hafi nefnilega fengið hana hér fyrir þrem- ur árum … Ég verð alltaf að eiga hana til.“ Elísabet ber lerkisveppasúpuna ævinlega fram fyrir gesti sína í fall- egri tarínu og eys á disk fyrir hvern og einn. Þannig fer tarína á hvert borð, ásamt heimabökuðu brauði. „Þetta er fljótlegasta súpa sem til er, eigir þú sveppina er ekkert vesen að gera hana.“ Lerkisveppasúpa (2 lítrar, fyrir 6–8) 1,5 l vatn 1 msk. villisveppakraftur 1 msk. grænmetiskraftur ½ msk. kjúklingakraftur ½ msk. kjötkraftur Smjörbolla (jöfn hlutföll af smjöri og hveiti, hrært saman, u.þ.b. 1 msk. af hvoru) 1 tsk. sérrí ½ lítri rjómi 150 g lerkisveppir, léttsteiktir frosnir í 1 tsk. af smjöri Villisveppa-, grænmetis-, kjúk- linga- og kjötkraftur látið sjóða sam- an í vatni ásamt smjörbollu þar til það er vel upp leyst. Sérríi og rjóma bætt út í og látið sjóða áfram. Lerki- sveppir því næst steiktir í smjöri og bætt út í súpuna og látið sjóða smá- stund áður en hún er borin fram. Hún er kremuð, þunn og afar gómsæt. Sveppina má svo minnka eða auka, eftir því hversu drjúgt bragð menn vilja hafa af súpunni. Ef nota á þurrk- aða lerkisveppi þarf m.v. uppskriftina um 15 g því þeir rýrna það mikið. El- ísabet mælir með að frysta sveppina ferska og án þess að steikja þá á pönnu. Þannig haldist þeir fag- urgulir. Þegar þeir séu svo notaðir borgi sig ekki að láta þá þiðna fyrir fram, heldur setja þá frosna beint út í matinn og þannig haldi þeir sínum fallega lit. Elísabet segist vera byrjuð að und- irbúa rómuð jólahlaðborð Klaust- urkaffis þar sem marga girnilega rétti verður að finna. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Matreiðslumeistarinn Elísabet Þorsteinsdóttir, veitingamaður í Klausturkaffi á Skriðuklaustri, eys ljúffengri lerkisveppasúpu á disk Halldóru Tómasdóttur. Súpan nýtur mikilla vinsælda meðal gesta. Galdur lerkisveppa- súpunnar afhjúpaður Súpan Lerkisveppasúpa með haustskreytingu. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.