Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stofustólar
Borðstofustóla
SkrifstofustóEldhússtólar
STÓLAR Í ÚRVALI
Komið og gerið góð kaup
Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40
Lazyboy
Barstólar
StaflanlegirHægindastólar
Barnastólar
Borðstofustólar
Lazyboy
Plaststólar Kollar
OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18
HÆSTIRÉTTUR hefur mildað verulega refsi-
dóma yfir Árna Þór Vigfússyni, Kristjáni Ra. Krist-
jánssyni, Ragnari Orra Benediktssyni og Stefáni
Hjörleifssyni vegna skattsvika í tengslum við rekst-
ur á fimm einkahlutafélögum þeirra á árunum 2001
til 2003. Í héraðsdómi var Árni Þór dæmdur til að
greiða 8,6 milljónir króna í sekt, sem Hæstiréttur
lækkaði í 2,6 milljónir, en mestu munaði hjá Krist-
jáni Ra. þar sem sekt hans var lækkuð úr 65,8 millj-
ónum í 18,5 milljónir. Þá lækkaði sekt Ragnars
Orra úr 15,2 milljónum í 750 þúsund og sekt Stefáns
úr 7 milljónum í 300 þúsund krónur.
Þau einkahlutafélög sem um er að ræða eru Ísa-
foldarhúsið, Kaffi Le, Lífstíll, Planet Reykjavík og
Japís, sem ákærðu stjórnuðu, einu eða fleirum, og
gaf ákæruvaldið þeim að sök undanskot upp á rúm-
ar 55 milljónir króna.
Í dómi Hæstiréttar sem kveðinn var upp í gær
segir að greitt hafi verið inn á skuldir fyrirtækjanna
og kom því til álita hvort staðin hefðu verið skil á
verulegum hluta skattfjárhæðanna í skilningi máls-
greina í lögum um virðisaukaskatt frá 1988 og lög-
um um staðgreiðslu opinberra gjalda frá 1987, eins
og þeim var breytt með lögum árið 2005, þannig að
fyrirmæli þeirra um fésektarlágmark ættu ekki við.
Hæstiréttur taldi að undanþágur frá lágmarki fé-
sektar giltu um viðurlög við brotum Ragnars Orra
og Stefáns og voru þau ekki talin meiriháttar. Und-
anþágur áttu þá við hluta brota Árna Þórs og við-
urlög flestra brota Kristjáns Ra. voru ákveðin á
grundvelli undanþágu frá lágmarki fésektar. Þá var
tekið fram að ákærðu utan Stefáns hefðu fengið
fangelsisdóma í Landsímamálinu svonefnda árið
2004, þar sem um var að ræða stórfelld brot vegna
fjárdráttar, peningaþvættis og hylmingar, en að
öðru leyti hefði Árni Þór ekki hlotið refsingu, Krist-
ján Ra. og Ragnar ekki svo máli skipti og þá hefði
Stefán ekki verið sakfelldur fyrir brot.
Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Garðar
Gíslason, Árni Kolbeinsson og Markús Sigur-
björnsson. Verjendur voru hæstaréttarlögmenn-
irnir Gestur Jónsson fyrir Árna Þór, Brynjar Níels-
son fyrir Kristján Ra., Sigmundur Hannesson fyrir
Ragnar Orra og Helgi Jóhannesson fyrir Stefán.
Sækjandi var Helgi Magnús Gunnarsson, saksókn-
ari hjá ríkissaksóknara.
Skattadómar mildaðir
Fésekt Kristjáns Ragnars lækkuð um rúmar 47 milljónir króna og heildarlækk-
un fésekta allra sakborninganna fjögurra nemur um 74 milljónum króna
Í HNOTSKURN
»Sum skattalagabrot fjórmenningannavoru ekki talin meiriháttar að mati
Hæstaréttar og því voru sektargreiðslur
lækkaðar.
»Hæstiréttur taldi að undanþágur frálágmarki fésektar giltu í sumum til-
vikum og þá var óverulegur sakaferill hjá
sumum tekinn til greina við ákvörðun
refsingar.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
SVERRIR Haukur Gunnlaugsson,
sendiherra Íslands í Bretlandi, mun
ganga á fund Ben Bradshaw, sjáv-
arútvegsráðherra Bretlands, um
miðja næstu viku.
Samkvæmt upplýsingum frá utan-
ríkisráðuneytinu hafa sendiherrar
Íslands í öðrum ríkjum ekki verið
kallaðir á fund erlendra stjórnvalda
vegna hvalveiða eftir að tilkynnt var
að veiðar í atvinnuskyni hæfust á
nýjan leik á þriðjudag. Eitthvað er
þó um að sendiherrar ræði við fjöl-
miðla sem hafa samband.
Afstaða stjórnvalda skýrð
Ben Bradshaw kallaði sendiherr-
ann á sinn fund til að gera grein fyrir
afstöðu breskra stjórnvalda til hval-
veiða Íslendinga. Haukur Ólafsson,
sendifulltrúi í sendiráði Íslands í
London, segir að reiknað sé með því
að fundurinn fari fram á miðvikudag
eða fimmtudag í næstu viku.
Eftir að Bradshaw hefur fengið
tækifæri til að skýra afstöðu breskra
stjórnvalda, mun sendiherrann gera
grein fyrir afstöðu íslenskra stjórn-
valda til hvalveiða í atvinnuskyni.
Sendiherra
kallaður
til ráðherra
Fundur haldinn um
miðja næstu viku
50 KANNABISPLÖNTUR voru
teknar í Þykkvabæ í fyrradag og
einn maður handtekinn sem við-
urkenndi ræktun þeirra.
Lögreglan á Hvolsvelli og fíkni-
efnalögreglumaður við rannsókn-
ardeild lögreglunnar á Selfossi
gerðu húsleit hjá manninum og
mun stærsta plantan vera u.þ.b. 110
cm á hæð. Þá var lagt hald á
nokkra tugi gramma af nið-
urskornu maríjúana auk áhalda til
fíkniefnaneyslunnar. Hinum hand-
tekna var sleppt að loknum yf-
irheyrslum en málið heldur áfram í
rannsókn og verður sent ákæru-
valdi.
50 kannabis-
plöntur teknar
ÞRÍR íslenskir karlmenn hafa verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald til
þriðjudagsins 24. október nk. fyrir
tilraun til innflutnings á um 500
grömmum af kókaíni til landsins.
Mennirnir sem eru á þrítugs- til
fimmtugsaldri voru stöðvaðir af
tollvörðum í Leifsstöð við komuna
til landsins frá Kaupmannahöfn, en
áður höfðu þeir verið í Amsterdam
í Hollandi, í síðustu viku. Við leit á
mönnunum fundust fíkniefnin og
voru þeir í kjölfarið hnepptir í
gæsluvarðhald.
Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yf-
irmanns fíkniefnadeildar lögregl-
unnar, er lítið hægt að segja um
málið að svo stöddu, annað en að
rannsókn haldi áfram. Hann gat
ekki sagt til hvort fleiri tengdust
málinu né hver styrkleiki efnisins
væri.
Samkvæmt síðustu verðkönnun
SÁÁ á ólöglegum fíkniefnum, sem
framkvæmd var um miðjan mánuð,
er söluverðmæti efnisins um fimm
og hálf milljón króna.
Þrír teknir með
kókaín í Leifsstöð
LÖGREGLAN á Akureyri hafði af-
skipti af karlmanni á veitingastað í
bænum um kl. 1 aðfarnótt laug-
ardags. Reyndist hann vera með
átta grömm af ætluðu amfetamíni,
tvær e-töflur og eitthvað af hassi í
fórum sínum. Í framhaldinu var
gerð húsleit á heimili mannsins, og
fann lögregla loftbyssu og tvo ólög-
lega hnífaa. Manninum var sleppt
að yfirheyrslum loknum.
Í gærnótt var einnig brotist inn í
verslunina Síðu í Bugðusíðu. Að
sögn lögreglu höfðu þjófarnir á
brott með sér eitthvað af tóbaki og
peningum. Málið er í rannsókn.
Hald lagt á fíkni-
efni og vopn
TILLAGA um að ganga eftir því við
ríkið að vannýttum lóðum við hús-
næði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti
verði skilað til Reykjavíkurborgar
var samþykkt í borgarráði í gær.
Lóðunum, sem eru norðan megin við
hús Ríkisútvarpsins, var upphaflega
úthlutað ríkinu þar sem ráðgert var
að húsnæði þess yrði stærra.
Að sögn Dags B. Eggertssonar,
eins flutningsmanns tillögunnar, er
mjög mikilvægt að lóðirnar sem um
ræðir muni ekki tilheyra þeim eign-
um sem fyrirhugað hlutafélag um
ríkisútvarpið fái í heimanmund frá
ríkinu. „Þetta eru lóðir sem ríkinu
var úthlutað vegna þess að áætlanir
gerðu ráð fyrir miklu meiri upp-
byggingu í þágu útvarps og sjón-
varps en raunin hefur orðið. Nú er
hins vegar ljóst að ekki verður byggt
meira upp,“ segir Dagur og bendir
einnig á að umræddar lóðir séu ekki
einu óbyggðu lóðirnar sem úthlutað
hafi verið til ríkisins vegna verkefna
í almannaþágu.
Ónýtt lóð í Vatnsmýrinni
„Annað dæmi er lóð fyrir 7.000
fermetra hús sem ríkinu var úthlut-
að vegna fyrirhugaðrar byggingar
náttúruvísindasafns í Vatnsmýr-
inni,“ segir Dagur og telur ekki úti-
lokað að hann muni beita sér fyrir
því að fleiri ónýttum lóðum verði
skilað til borgarinnar.
Aðspurður segir Dagur að ríkið
hafi lögformlegan rétt yfir lóðunum
við hús ríkisútvarpsins en sanngirn-
isrök leiði til þess að borgin fái þær
aftur svo að þar geti átt sér stað upp-
bygging.
Vilja að lóðirnar
tilheyri borginni
Rætt um ónýttar lóðir við Útvarpshúsið
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur dæmt karlmann á fertugsaldri í
sex mánaða fangelsi, skilorðs-
bundið til þriggja ára, fyrir sérlega
hættulega líkamsárás. Honum er
auk þess gert að greiða tæpar 111
þúsund krónur í sakarkostnað.
Ákærða er gefið að sök að hafa í
ágúst á sl. ári barið dyravörð í höf-
uðið með stóru bjórglasi á skemmti-
stað í miðbæ Reykjavíkur, eftir að
honum var vísað út af staðnum fyr-
ir að þukla á viðskiptavini. Dyra-
vörðurinn sem fyrir árásinni varð
vankaðist við höggið en náði, með
hjálp annars dyravarðar, að halda
ákærða þar til lögregla kom á stað-
inn. Flytja þurfti dyravörðinn á
slysadeild vegna meiðsla sem hann
hlaut.
Ákærði játaði fyrir dómi að hafa
barið dyravörðinn með glasinu en
sagði ástæðuna vera að hann hefði
talið dyravörðinn vera að ráðast á
sig.
Í niðurstöðu dómsins kemur fram
að árásin hafi verið einkar háska-
leg og verulegt líkamstjón hafi get-
að hlotist af. Ákærði hafi hins veg-
ar ekki sætt refsingum að
undanskildum sektarboðum sökum
umferðarlagabrota og þótti því til-
efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Skilorð fyrir
hættulega árás
ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG Íslendinga veitti í gær Vest-
urfarasetrinu á Hofsósi viðurkenningu fyrir frum-
kvöðulsstarf við kynningu og fræðslu um sögu ís-
lenskra vesturfara.
Fjölbreytt dagskrá var á Þjóðræknisþingi ÞFÍ í Þjóð-
menningarhúsinu í gær. Heiðursgesturinn Stefan Vil-
berg Benediktson, forstjóri bandaríska olíufyrirtæk-
isins Daleco Resources Corp. og dóttursonur Stephans
G. Stephanssonar skálds, greindi frá reynslu sinni í ol-
íuiðnaðinum, fjallað var um Snorraverkefnin og greint
var frá stofnun ungmennanefndar, en Ragnheiður
Diljá Gunnarsdóttir, forseti nemendasamtaka Snorra-
verkefnanna, veitir henni forstöðu.
Ólafur B. Thors, stjórnarformaður Vesturfaraset-
ursins, fór yfir 10 ára sögu setursins og síðan afhenti
Almar Grímsson, formaður ÞFÍ, Valgeiri Þorvaldssyni,
framkvæmdastjóra Vesturfarasetursins, viðurkenn-
inguna. Fjölmenni var á þinginu og þar af nokkrir gest-
ir frá Norður-Ameríku af íslenskum uppruna.
Á myndinni afhendir Almar Grímsson, formaður
ÞFÍ, Valgeiri Þorvaldssyni, framkvæmdastjóra Vest-
urfarasetursins, viðurkenninguna.
Morgunblaðið/Ómar
Vesturfarasetrið verðlaunað