Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 61
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hrúturinn er meira virði og veit af því.
Hugrekkið felst í því að fara fram á
meira. Þegar þú ert búinn að ganga frá
fjármálunum getur þú haldið áfram að
láta þig dreyma um einhvers konar stór-
innkaup, en reyndar er líklegra að þú
getir leyft þér að hugleiða þau alvarlega
núna.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er ekki ýkja tímafrekt að hafa allt
sitt á þurru, og gerir það svo miklu auð-
veldara viðfangs. Yfirfærðu þetta á vinn-
una. Þeir sem þú skiptir við meina vel,
en það er öruggara að fá allt skriflegt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vinir koma þér til hjálpar, leysa eitt
vandamál fyrir þig sem gefur þér svig-
rúm til þess að fást við annað vandamál.
Sýndu viðeigandi þakklæti og þá færðu
meira af því sama.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það sem gerist í dag er að mestu leyti
eitthvað sem þú getur ekki ráðið við.
Láttu þig fljóta með straumnum. Bag-
aðar sálir þurfa á þinni hárfínu mýkt að
halda í kvöld. Bara hún ein gerir allt ein-
hvern veginn betra.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ef ljónið hefur verið í sömu stöðu svo ár-
um skiptir eru verðlaun fyrir trúfestu
innan seilingar. Loksins kann einhver að
meta þig. Kaldhæðnin er sú, að nú lang-
ar þig einmitt til þess að hætta. Ekki
gefast upp.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan hélt að hún væri á loksins á
réttri hillu en finnur nú að hún passar
kannski ekki jafn fullkomlega og hún
ætlaði.
Svona er lífið hjá hinni sívaxandi og sí-
batnandi meyju. Ekki hafa áhyggjur,
næsta hilla er rétt innan seilingar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vogina langar að sjálfsögðu til þess að
vera með félaga sér við hlið þegar hún
ræðst til atlögu við heiminn, en umbunin
fyrir einflug verður ríkuleg í dag. Not-
aðu tímann sem þú hefur í einrúmi til
þess að endurmeta það sem þú sjálf vilt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdrekinn hefur slett svo oft úr
klaufunum að undanförnu að hann veltir
fyrir sér hvort hann eigi það líka skilið í
kvöld.
Hvers vegna ekki? Bráðum verður svo
mikið fyrir stafni í félagslífinu að þú átt
eftir að gleðjast yfir tækifæri af þessu
tagi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hugmynd bogmannsins um velgengni
breytist vegna fordæmis sem hann
kemst á snoðir um. Bogmaðurinn er vin-
samlegur í garð einhvers sem hann dáist
að og fær innsýn í leyndardóma viðkom-
andi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Rómantískur millikafli er í uppsiglingu.
Ástarævintýrið er á milli þín og vinnunn-
ar. Bráðum þarftu að taka mikilvæga
ákvörðun, en í bili skaltu láta nægja að
dansa við tónlistina sem bara þið tvö
heyrið.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberinn er vanur að sýna minni
máttar þægilegt viðmót. Þess vegna
leita þeir sem þurfa á umhyggjusömum
talsmanni að halda, til hans. Hugsanlega
hefur þú engan tíma að gefa, en finnur
hann samt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er þeim kostum gæddur að
geta stillt sig saman við alls konar ólíka
einstaklinga. Þú og félagi þinn komið
saman til þess að annast einhvern sem
er annaðhvort miklu eldri eða miklu
yngri en þið.
Nýtt tungl í vog er á næsta
leiti. Búum okkur undir
storma í sálinni og þeyti-
vinda andans sem for-
sendur breytinga. Þegar
allt er orðið hljótt komum
við undan rykskýinu sem nýjar og breytt-
ar manneskjur.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Biluð
skemmtun!
NELGDI FYRSTA SÆTIÐ ÞEGAR HÚN VAR SÝND Í USA FYRIR NOKKRU.
Jackass gaurarnir
JOHNNY KNOXVILLE
og STEVE-O
eru KOMNIR aftur,
bilaðri en
nokkru
sinni fyrr!
Þú átt eftir
að skemmta
þér sjúklega
vel.
eee
LIB, Topp5.is
eeee
H.Ó. MBL
Systurnar Hilary Duff og Haylie Duff
fara hér á kostum í frábærri rómantískri gamanmynd.
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku og ensku tali !
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eeee
HEIÐA MBL
eee
Ó.H.T. RÁS2
FRÁ HÖFUNDI „TRAINING DAY“ OG
„THE FAST AND THE FURIOUS“
kvikmyndir.is
ÞEGAR ÞÚ FÆRÐ ANNAÐ
TÆKIFÆRI ÞARFTU AÐ
TAKA FYRSTA SPORIÐ.
eee
EMPIRE
ATH! ENGIR
ÞJÓÐVERJAR VORU
SKAÐAÐIR EÐA
MEIDDIR Á MEÐAN
TÖKUM MYN-
DARINNAR STÓÐ.
SÖNN SAGA UM HUGPRÝÐI OG ÓTRÚLEGA MANNBJÖRG
NÝJASTA STÓRVIRKIÐ FRÁ OLIVER STONE. STÓRMYND SEM LÆTUR ENGAN ÓNSNORTIN.
eee
BBC
eee
ROLLING STONE
eeee
EMPIRE
eee
LIB, TOPP5.IS
NICOLAS CAGE SÝNIR
STÓRLEIK Í MYNDINNI
/ ÁLFABAKKA / AKUREYRI/ KEFLAVÍK
BEERFEST kl. 8 - 10:30 B.i. 12
STEP UP kl. 6 B.i. 7
THE THIEF LORD kl. 4 LEYFÐ
ÓBYGGÐIRNAR M/- Ísl tal. kl. 3:45 LEYFÐ
THE GUARDIAN kl. 5 - 8 - 10:50 B.i. 12
THE GUARDIAN VIP kl. 5 - 8 - 10:50
MATERIAL GIRLS kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
JACKASS NUMBER TWO kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12
WORLD TRADE CENTER kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12
THE GUARDIAN kl. 5:15 - 8 - 10:50 B.i. 12
MATERIAL GIRLS kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BEERFEST kl. 8 B.i. 12
HARSH TIMES kl. 10:10 B.i. 16
BÖRN kl. 6 B.i.12
THE THIEF LORD kl. 4 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
MÝRIN kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12
JACKASS NUMBER TWO kl. 6 - 8 B.i. 12
WORLD TRADE CENTER kl. 10 B.i. 12
THE GUARDIAN kl.5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12
MATERIAL GIRLS kl.6 - 8 LEYFÐ
JACKASS NUMBER TWO kl. 10 B.i. 12
Frá leikstjóra
“The Fugitive”
Ekki missa af kraftmestu spennumynd ársins
Þegar hættan steðjar að ... fórna þeir öllu
KEVIN COSTNER ASHTON KUTCHER
Munið afsláttinn
Fataskápar
Náttborð
Kommóður
Glerskápar
BORÐ OG SKÁPAR
Í ÚRVALI
Skenkar
Komið og gerið góð kaup
Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40
OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18
MONTY Python gríngengið var
viðstatt þegar söngleikur þeirra
Spamalaot var frumsýndur í Lond-
on á þriðjudagskvöld. Sýningin,
sem byggist á kvikmynd þeirra
Holy Grail frá 1975, var frum-
sýndur á Broadway í New York í
fyrra og vann m.a. þrenn Tony-
verðlaun, en söngleikurinn hefur
nú verið færður til London.
„Ég vona bara að þetta fari allt
saman vel,“ sagði Terry Jones, sem
leikstýrði Holy Grail á sínum tíma.
„Veðlánið er undir þessu komið.“
Meðal annarra stjarna sem voru
viðstaddar frumsýninguna í gær
voru Eddie Izzard, Cliff Richard,
Cilla Black og Stephen Fry.
Leikarinn John Cleese er eini eft-
irlifandi meðlimur Python-hópsins
sem var ekki viðstaddur í gær, en
hann vinnur nú að kvikmynd í Ástr-
alíu.
Í söngleiknum, sem byggist laus-
lega á goðsögninni um Arthúr kon-
ung, er að finna uppþembda
Frakka, fótalausa riddara og morð-
óða kanínu.
Þrátt fyrir að söngleikurinn hafi
notið mikilla vinsælda á Broadway,
en í fyrstu vikunni náðust milljón
dalir í kassann, viðurkenndi Eric
Idle, höfundur söngleiksins, að
hann væri „örlítið taugaspenntur“
vegna frumsýningarinnar í Lond-
on.
„Þetta er afar tilfinningaþrungin
stund. Ég vona að við munum lifa af
allt það tilfinningaþrungna áfall
sem þessu fylgir,“ bætti Terry Jon-
es við.
Monty
Python
saman í
London
AP
Monty Python Eric Idle, Terry Gilliam, Michael Palin og Terry Jones við
frumsýningu Spamalot: „ Þetta er afar tilfinningaþrungin stund“.