Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
OFT er líflegt við höfnina en flutn-
ingaskip hafa verið lítt áberandi á
Akureyri undanfarin misseri. Það
breytist væntanlega innan skamms
því bæjarráð ákvað í gær að leggja
fram 7,5 milljónir kr. í hlutafé nýs
skipafélags sem ætlað er að stunda
fraktsiglingar milli Akureyrar og
nokkurra hafna í Evrópu. Stærstu
hluthafar eru norskir og hefur
skipafélagið hlotið nafnið Byr.
Leigt hefur verið skip sem getur
flutt 600 gámaeiningar. Heimahöfn
þess verður á Akureyri og einnig
aðalbækistöðvar fyrirtækisins.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Byr í seglin – fyrir 7,5 milljónir
SLIPPURINN Akureyri ehf. hefur
keypt ráðandi hlut í fyrirtækinu
Naust Marine hf. en fyrirtækið, sem
stofnað var 1993 í Garðabæ, hefur
verið leiðandi í framleiðslu sjálfvirks
togvindubúnaðar.
Naust Marine hefur alla tíð verið í
eigu nokkurra starfsmanna, sem nú
eru níu, og aðalverkefni þess verið
sjálfvirkt togvindukerfi, sem félagið
hóf að þróa 1979. Velta fyrirtækisins
hefur síðustu ár verið um 200 millj-
ónir á ári en skv. upplýsingum Morg-
unblaðsins er reiknað með að hún
verði um 400 milljónir króna á þessu
ári, ekki síst vegna verkefnis við
skipasmíðar í Taívan.
Slippurinn Akureyri hefur síðustu
misseri keypt bæði DNG og Seiglu.
Með ráð-
andi hlut
í Nausti
Velta Naust Marine
talin tvöfaldast í ár
ÁÆTLAÐ er að 100,6 milljóna kr. tekjuhalli verði
af starfsemi Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri á
þessu ári, miðað við endurskoðaða starfsemis- og
rekstraráætlun. Eftir sjö mánuði var tekjuhalli á
rekstri 63,6 milljónir eða 3,3% miðað við fjárlög og
2,4% miðað við áætlun.
„Halli á launalið nemur 43 milljónum, á almenn-
um rekstrargjöldum 6 milljónum og á sértekjum 1
milljón eða samtals um 50 milljónum króna,“ segir
í greinargerð með áætluninni.
Þar segir líka: „Ástæður fyrir verri rekstrar-
afkomu eru nokkrar. Starfsemin hefur vaxið á
flestum sviðum og hefur það leitt til aukins launa-
kostnaðar, einkum í formi yfirvinnu. Þá hefur orð-
ið nokkurt launaskrið vegna almennrar þenslu í
þjóðfélaginu og innbyggðra þátta í kjara- og stofn-
anasamningum.“
Ákveðið hefur verið að fresta áætluðum fram-
kvæmdum og kaupum á búnaði, að andvirði 17,7
milljónir króna, en vegna ýmissa ófyrirséðra
kaupa á búnaði og viðbótarframkvæmda á árinu er
lækkunin í raun minni, eða fjórar milljónir.
Skv. upplýsingum FSA má fyrst og fremst
rekja hækkunina, sem orðið hefur á rekstrargjöld-
um umfram áætlun og fjárveitingar, til ytri að-
stæðna, þ.e. launaskriðs og óhagstæðrar verðlags-
og gengisþróunar. „Ekki er talið raunhæft að
setja fram áætlun sem kemur rekstrinum á núll-
punktinn í árslok. Lækkun útgjalda af þeirri
stærðargráðu sem nú blasir við er ekki gerleg
nema breyta starfsemi spítalans umtalsvert og
þar með þjónustu hans við sjúklinga á svæðinu.“
Launaáætlun hefur verið endurreiknuð til sam-
ræmis við nýlega kjara- og stofnanasamninga og
útgjöld áætluð vegna ógerðra samninga.
Tekjuhalli FSA 100 milljónir
Ýmsum framkvæmdum og kaupum á búnaði hefur verið slegið á frest
Í HNOTSKURN
»Launagreiðslur á FSA voru 43 millj-ónum króna hærri fyrstu sjö mánuði
ársins en áætlað var.
»Ekki er lagt til að svo stöddu að gerðarverði neinar grundvallarbreytingar á
þjónustu og starfsemi spítalans.
SÝNING á verkum þeirra lista-
manna sem tilnefndir voru til Ís-
lensku sjónlistaverðlaunanna 2006
hefur staðið yfir á Listasafninu á
Akureyri undanfarið, en henni lýk-
ur á sunnudaginn.
Þeir sem voru tilnefndir til verð-
launanna, og eiga þar af leiðandi
verk á sýningunni, eru myndlist-
armennirnir Hildur Bjarnadóttir,
Katrín Sigurðardóttir og Margrét
H. Blöndal, Guðrún Lilja Gunn-
laugsdóttir hönnuður, Steinunn
Sigurðardóttir fatahönnuður og
arkitektarnir Margrét Harð-
ardóttir og Steve Christer.
Sjónlistasýningu
lýkur á sunnudag
Stoðvinafélag
Minjasafnsins á
Akureyri stend-
ur fyrir dagskrá
um sr. Matthías
Jochumsson í
Amtsbókasafn-
inu á Akureyri á
morgun, laug-
ardag, fyrsta
vetrardag kl. 14.
Flutt verða stutt
erindi sem sýna manninn, prestinn
og þjóðskáldið frá ýmsum sjón-
arhornum. Matthías var sókn-
arprestur á Akureyri frá árinu
1887 til 1900.
Maðurinn, skáldið
og sálusorgarinn
Matthías
Jochumsson
KÁRI Fannar Lárusson, nemandi í
samfélags- og hagþróunarfræði við
Háskólann á Akureyri, opnar ljós-
myndasýningu á morgun, laug-
ardag, kl. 14 í Populus Tremula í
listagilinu á Akureyri. Sýningin
stendur aðeins um helgina en þar
sýnir Kári Fannar myndir sem
hann tók í Nicaragua þar sem nem-
endur unnu rannsóknarverkefni á
vegum háskólans.
Kári Fannar:
Segðu það engum
AKUREYRI
Reykjavík | Bókaverslanir Eymundsson hafa
gefið öllum leikskólum í Reykjavík bókina
Verndum þau eftir Ólöfu Ástu Farestveit upp-
eldis- og afbrotafræðing og Þorbjörgu Sveins-
dóttur sálfræðing.
„Þetta er mjög þörf handbók fyrir starfs-
menn leikskóla og fleiri,“ segir Hildur Skarp-
héðinsdóttir, skrifstofustjóri leikskólaskrifstofu
menntasviðs. Í bókinni er fjallað um viðbrögð
við ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ung-
lingum. Bókin er gefin út af Máli og menningu í
samstarfi við menntamálaráðuneyti og Æsku-
lýðsráð ríkisins. Hún er ætluð öllum sem starfa
með börnum og unglingum.
Í tilefni af útkomu þessarar bókar ákváðu
bókaverslanir Eymundsson að gefa öllum leik-
skólum borgarinnar eintak og afhenti Kristinn
Vilbergsson, fulltrúi Eymundsson-verslananna,
leikskólastjórum bókina formlega í fundarsaln-
um Bratta í Kennaraháskólanum í vikunni. Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskóla-
ráðs, tók við fyrstu bókinni og við þetta
tækifæri kynnti Þorbjörg Sveinsdóttir bókina.
Morgunblaðið/Kristinn
Gjöf Kristinn Vilbergsson afhendir Þor-
björgu Helgu Vigfúsdóttur fyrstu bókina.
Bókagjöf til
leikskóla
ENGIN formleg stefnumörkun
er til fyrir Strætó bs. og óljóst er
hvert eigendur fyrirtækisins,
sem eru sveitarfélögin á höf-
uðborgarsvæðinu, vilja stefna
með fyrirtækið hvað varðar
grundvallarþætti, eins og mark-
mið leiðakerfisins, þjónustustig,
kostnað og starfsmannastefnu.
Þetta er meðal þess sem kem-
ur fram í stjórnsýsluúttekt sem
Deloitte hefur gert fyrir stjórn
byggðasamlagsins og kynnt var
á blaðamannafundi í gær.
Í skýrslunni kemur fram að
þær reglur um kostnaðarskipt-
ingu sem í gildi eru milli sveitar-
félaganna af rekstrinum og
byggjast á því að hvert sveitar-
félag greiði fast hlutfall heildar-
framlaga án tillits til þeirrar
þjónustu sem í boði er, bjóði upp
á tortryggni og ágreining, þar
sem hvert sveitarfélag hafi hag
af því að hafa sem besta þjón-
ustu á sínu svæði og sem
minnsta annars staðar.
Þá segja skýrsluhöfundar að
pólitísk afskipti af fyrirtækinu
hafi verið töluverð og skaðleg
því þau stuðli að ómarkvissri
stjórnun og grafi undan trúverð-
ugleika stjórnar og stjórnenda.
Þannig hafi skipting á talstöðv-
arkerfi úr VHF yfir í Tetra tí-
faldað rekstrarkostnað talstöðv-
arkerfisins, án þess að þar að
baki hafi legið rekstrarlegar for-
sendur, enda ákvörðunin tekin af
eigendum.
Í skýrslunni segir enn fremur
að verkstjórn og upplýs-
ingaöflun við innleiðingu nýja
leiðakerfisins virðist hafa verið
ábótavant og bent er á að notkun
á almenningssamgöngum hafi
farið jafnt og þétt minnkandi.
Ástæðan sé meðal annars mikil
velmegun hér sem geri það að
verkum að bílaeign sé með því
mesta sem þekkist og hafi meðal
annars leitt til þess að áform um
farþegaaukningu með nýju leiða-
kerfi hafi ekki gengið eftir. Hins
vegar hafi áætlanir almennt ver-
ið vel unnar hjá fyrirtækinu og
frávik frá áætlunum lítil.
Ármann Kr. Ólafsson, formað-
ur stjórnar Strætós bs., sagði að
margt athyglisvert kæmi fram í
skýrslunni sem stjórn og stjórn-
endur gætu haft hliðsjón af og
nýtt sér í framtíðinni við rekstur
fyrirtækisins og tillagna vegna
nýrrar kostnaðarskiptingar milli
sveitarfélaganna hefði verið flýtt
og væri að vænta fljótlega.
Stefnumörkun Strætós vantar
Rekstrarkostnaður talstöðvakerfis tífaldaðist án þarfar á breytingu
Morgunblaðið/Eyþór
Stjórnsýsluúttekt Frá blaðamannafundi stjórnar Strætós bs. F.v.: Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri
Strætós, Ármann Kr. Ólafsson stjórnarformaður og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, fulltrúi Reykjavíkur.
Í HNOTSKURN
»Reykjavík greiðir tæp70% kostnaðar, Kópa-
vogur 11%, Hafnarfjörður
9% og Garðabær og Mos-
fellsbær tæp 4%.
»Kostnaður við Tetra-kerfið er 29 millj. í ár,
en kostnaður við VHF-
kerfið var tæpar 2 millj.