Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN STÓR hópur öryrkja getur ekki bætt sér upp tekjumissi sinn með at- vinnutekjum. Þetta er fólkið sem lifir af þeim bótum einum sem það fær frá Tryggingastofnun rík- isins og tekjum úr líf- eyrissjóði, hafi það átt þar rétt sem dugað hef- ur til framreiknings. Vandi öryrkja er mjög sértækur þar sem viðmiðun þeirra til framreiknings til launa úr lífeyrissjóði er oft mjög lítil og gefur þar afleiðandi aðeins rétt til mjög lágra greiðslna úr viðkomandi lífeyr- issjóði. Sennilega er best að skýra þetta með því að setja upp dæmi sem eru til staðar innan lífeyrissjóðanna 14 sem ákváðu að endurmeta réttindi þeirra sem fengu lífeyrisgreiðslur úr sjóð- unum vegna örorku sinnar. Dæmisögur Skipstjóri sem slasast hafði í starfi sínu var oftast á góðum launum. Ef hann verður 75% öryrki og er metinn útfrá því að hann var fullstarfandi í góðum tekjum, fær hann góðan fram- reikning. Framreikningur hans er byggður á tekjum í fullu starfi og réttur úr lífeyrissjóði verður t.d. um 300 þús. kr. á mánuði. Svona dæmi er til. Þó engin hamingja felist í því að slasast er viðkomandi með tekjur til framfærslu sinnar í framtíð. Tökum síðan annað dæmi af konu úr sveit sem starfaði við heimilishald og við búreksturinn ásamt bónda sín- um. Hún var á lágum launum enda staða bænda lengi þannig að varla var afgangur til lágmarkslauna fyrir einn, hvað þá tvo. Auk þess var að- dragandi að örorku hennar langur, bæði veikindi og slys. Þannig kom örorka hennar til á nokkrum árum. Fyrst tímabundin, og síðan 25% þar til að því dró að hún varð 75% öryrki nokkrum árum síðar. Viðmiðunarárin hennar þrjú gáfu lága tekjuviðmiðun og ekki varð framreikningurinn til launa úr lífeyrissjóði hár, hvað þá að sú upphæð tryggði afkomu hennar í framtíðinni. Á þessu ári fær hún greiðslu upp á um 24.000 krónur á mánuði úr lífeyrissjóði og á rétt á örorkubótum til viðbótar. Með ákvörðun um endurreikning sem tek- in var í stjórnum 14 líf- eyrissjóða verður henn- ar greiðsla nánast engin. Svo virðist að uppbót vegna lyfja- kostnaðar og lágur bensínstyrkur sem hún átti rétt á, hafi verið reiknaðir sem tekjur í endurreikningi en ekki sem endurgreiðsla á móti út- lögðum kostnaði hennar. Þessi end- urgreiðsla vegna lyfja og bens- ínkostnaðar virðist jafnvel hafa orsakað það að hjónin fengu ekki lækkun fasteignagjalda þar sem þessar greiðslur voru reiknaðar inn sem laun. Eftir að hringferðinni milli lífeyr- issjóðalækkunar úr 24.000 krónum niður í innan við 1.000 krónur á mán- uði til hennar og endurreiknings hjá Tryggingastofnun ríkisins á næsta ári lýkur, fær hún auknar greiðslur frá Tryggingastofnun upp á 40–42% af 24 þúsund krónunum sem hún missti. Þannig að örorkulífeyrir frá Tryggingastofnun hækkar um 10–12 þúsund krónur. Getur nokkur sætt sig við þetta óréttlæti? Rangar forsendur útreikninga Útreikningar lífeyrissjóðanna byggjast á neysluvísitölu, það er á verðlagsþróun en ekki launavísitölu. Verði kaupmáttaraukning, þ.e. laun hækki umfram almennt verðlag, eins og gerst hefur á undanförnum árum, dregst öryrkinn kjaralega aftur úr í launum. Lífeyrissjóðir hafa nú lagst í þá vinnu að skoða réttindi hvers og eins lífeyrisþega, sem fær örorkubætur úr sjóðunum. Reglur sjóðanna gera ráð fyrir að þeir horfi eingöngu til neyslu- vísitölunnar. Niðurstaðan verður sú að stór hópur verður fyrir skerðingu. Sú niðurstaða er röng miðað við fyrirheit um tekjutryggingu öryrkja. Lífeyrissjóðunum ber tvímælalaust að haga reglum sínum á þann veg að framreikningurinn byggist á launa- vísitölu en ekki neysluvísitölu. Aðeins þannig er hægt að ná fram sam- svörun við launakjörin, sem fyrirheit voru um að tryggja. ASÍ hefur gert að kröfu sinni að ríkið komi að því með fjárframlagi af fjárlögum að létta byrði lífeyrissjóða vegna mikils örorkukostnaðar í sum- um sjóðanna. Það er hægt að grípa til sértækra aðgerða gagnvart þeim líf- eyrissjóðum sem bera mestu ör- orkubyrðarnar en þess eru dæmi að örorkubætur eru yfir 40% heildar- greiðslna úr sjóðum. Það sjá allir að slíkar útborganir án iðgjalda geta orðið sjóðunum erfiðar til lengri tíma litið. Þessi vegferð öll hjá lífeyrissjóð- unum nú þarf endurskoðunar við og stenst varla lög. Framkvæmdinni á að fresta þegar í stað og skoða málin að nýju. Öryrkjar – óréttlát aðgerð Guðjón A. Kristjánsson fjallar um málefni öryrkja » ASÍ hefur gert aðkröfu sinni að ríkið komi að því með fjár- framlagi af fjárlögum að létta byrði lífeyrissjóða vegna mikils örorku- kostnaðar í sumum sjóð- anna. Guðjón A. Kristjánsson Höfundur er formaður Frjálslynda flokksins. HÉR á landi hefur þekking og framboð á fjölbreyttum meðferð- arúrræðum fyrir börn og ungmenni aukist mikið. Þessi úrræði hafa hins vegar ekki fengið nægilega kynn- ingu og kannski þess vegna hafa geðlyf í auknum mæli verið notuð til að stjórna hegðun barna ein og sér. Þannig hefur sú gífurlega þekking sem til staðar er á öðrum úrræðum ekki verið nýtt. Úrræði sem hafa gefist vel að nota ein eða samhliða lyfjagjöf. Ástæða er til að nefna þetta þar sem lyfjagjöf vegna líðanar og hegð- unar íslenskra barna hefur aukist meira en í nágrannalöndunum. Samkvæmt sam- norrænni skýrslu um notkun lyfja er notkun þunglyndislyfja hjá 0– 14 ára börnum marg- falt meiri á Íslandi en á hinum Norðurlönd- unum sbr. meðfylgj- andi töflu. Hér á landi tíðkast jafnvel að gefa þriggja til fjögurra ára börnum lyf vegna hegðunarvanda. Til Miðgarðs hafa leitað foreldrar með börn sem hafa verið á kvíðastillandi lyfjum í mörg ár án árangurs. Áherslan virð- ist vera að sjúkdómsgera mótlæti í lífinu í stað þess að kenna börnum og ungmennum að takast á við erfiðleika og vera þannig sterkari og sig- urstranglegri í lífsins ólgusjó. Sem dæmi um þetta má nefna sextán ára stúlku sem grét mikið og leið illa vegna þess að kærastinn sagði henni upp. Móðir hennar fann til með henni og fór með hana til heimilislæknisins sem gaf stúlkunni kvíðastillandi lyf. Í hraða og stressi nútímasamfélags virðist fyrsta hugsun um lausn vera lyfjagjöf í stað þess að sinna börn- unum og sjálfum sér með aukinni umönnun eða nauðsynlegu tilliti. Áherslan er á það sjúka í stað heil- brigðis. Geðlyf eru vissulega gagnleg og hafa sannað gildi sitt en öfgafull notkun þeirra er ekki til góðs. Því miður er alltof algengt að foreldrum sé ekki vísað í úrræði, sem gætu hentað börnum þeirra. Hér verður að nokkru minnst á það sem sveit- arfélögin eru að gera og alltof lítið hefur farið fyrir í umræðu um heil- brigðiskerfið. Sveitarfélögin hafa lagt mikla áherslu á ýmiss konar forvarnir í formi öflugs íþróttalífs og fjöl- breyttra tómstunda fyrir börn. For- varnaráætlun Reykjavíkurborgar er afar framsækin og unnið er að marg- víslegri samhæfingu þjónustutilboða til að bæta þjónustu við börn og auð- velda uppeldishlutverk foreldra. Nýr meirihluti hefur lýst metnaðarfullum áherslum og víðtækum stuðningi við börn og fjölskyldur. Með þessum sterku áherslum í átt að fjöl- skylduvænu samfélagi þarf að koma virkur stuðningur frá heilbrigðiskerf- inu. Börn, foreldrar og aðrir sem koma að kennslu og umönnun barna þurfa að heyra hvernig stuðla má að betra lífi með góðu mataræði, hreyf- ingu, útiveru, tómstundum og virkni í jákvæðum athöfnum svo eitthvað sé talið. Í Miðgarði eru starfandi 15 sér- fræðingar sem vinna að ýmiss konar þjónustu við börn og fjölskyldur. Áhersla er á velferð allr- ar fjölskyldunnar og því ekki horft aðeins á vanda eins meðlims hennar. Svo dæmi sé tekið ef faðir á við alvar- legan áfengisvanda að etja eða móðir stríðir við alvarlegt þunglyndi er stuðningur ekki ein- ungis miðaður við þeirra þarfir heldur metið hvort börnin þurfi líka stuðning. Sérfræðingar vinna því oft þverfag- lega að velferð fjöl- skyldu. Oft er samvinna við sérfræðinga annarra stofnana eða lækna á einkastofum. Þessi vinna er ætíð á for- sendum fjölskyldunnar og með hennar sam- þykki. Þessi hug- myndafræði er grund- völluð á forvörn; áhersla er lögð á að styðja við börn og fjölskyldur áður en vandinn er orðinn mikill. Sálfræðingar Miðgarðs eru sex fyrir utan undirritaðan. Þeir eru með sérhæfingu í þörfum barna, bæði varðandi greiningu á erfiðleikum þeirra og ráðgjöf og meðferð. Ráð- gjöf og meðferð eru aðallega byggð á hugrænni atferlismeðferð, sem talin er gagnast best gagnvart erfiðleikum tengdum kvíða, depurð, vægu þung- lyndi og sjálfsmati einstaklinga. Sál- fræðingarnir hafa allir þjálfun í at- ferlisgreiningu og hegðunarmótun og vinna við það í samvinnu við kennara. Tveir sálfræðingar Miðgarðs taka þátt í þróunarverkefni sem kallast Stuðningur við jákvæða hegðun (Positive Behavior Support) sem ver- ið er að innleiða í tveimur skólum í Grafarvogi og fimm öðrum skólum í Reykjavík. Önnur úrræði sem sér- fræðingar Miðgarðs standa að eru m.a:  Tvenns konar uppeldis- námskeið fyrir foreldra.  Ég þori, vil og get, sjálfstyrk- ingarnámskeið fyrir unglingsstúlkur.  Reiðistjórnunarnámskeið fyrir börn.  Lært á lífið, þjálfunarnámskeið í félagsfærni, reiðistjórnun og sið- ferðilegri rökhugsun.  PMT. Foreldrafærni vegna barna sem sýna erfiða hegðun. Sérfræðiþjónusta Miðgarðs er öfl- ug þjónusta fyrir börn og foreldra og getur sinnt flestum vandamálum tengdum hegðan og líðan barna. Mik- il samvinna er við skólana, þar sem börnin eru lungann úr deginum, og við lækna og heilsugæslu eftir þörf- um. Erfiðustu málunum er vísað á BUGL og Greiningarstöð ríkisins og eftir að mál koma þaðan er skilvirk eftirfylgd af hálfu Miðgarðs þegar þess er óskað. Úrræði fyrir börn og foreldra Helgi Viborg skrifar um úrræði við hegðunarvanda barna og ungmenna Helgi Viborg » Áherslanvirðist vera að sjúkdóms- gera mótlæti í lífinu í stað þess að kenna börn- um og ung- mennum að tak- ast á við erfiðleika … Höfundur er sálfræðingur og deild- arstjóri í Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness. Notkun þunglyndislyfja eftir kyni og aldri 2003. Dagneysla á 1000 einstaklinga. Danmörk Færeyjar Finnland Ísland Svíþjóð karlar konur karlar konur karlar konur karlar konur karlar konur 0-14 ára 0.7 0.7 0.5 0.0 0.5 0.4 12.6 7.2 1.2 1.0 15-24 ára 10.7 23.7 4.0 5.0 12.1 21.7 36.0 55.0 15.5 31.8 25-44 ára 30.9 54.2 14.5 51.7 34.7 50.4 65.2 117.0 41.7 78.9 45-64 ára 50.7 93.1 23.7 50.6 46.4 74.6 94.7 177.0 57.4 115.4 65-74 ára 64.0 111.6 35.6 57.5 37.1 56.0 112.2 176.6 59.6 103.8 75 + ára 105.9 175.0 65.2 93.0 51.7 80.5 110.9 134.1 101.0 164.7 Medicine consumption in the Nordic Countries 1999-2003 Í PISTLINUM Með á nótunum sem birtist í Fréttablaðinu sl. mánu- dag, minnist Árni Heimir Ingólfsson á sjónvarpsþáttaröðina Tíu fingur sem er í um- sjón undirritaðs. Þætt- irnir fjalla um fram- úrskarandi hljóðfæraleikara á Ís- landi og samanstendur hver þáttur, sem er um klukkustund að lengd, af viðtali og tónlistarflutn- ingi í sjónvarpssal. Árni Heimir segir: „Þættirnir eru frábært framtak og eiga eflaust eftir að vekja forvitni margra. Það er bara þessi einstaklega bragðdaufi tónlist- arflutningur í sjónvarpssal sem ég á bágt með að þola, þótt ég viti vel að hann sé ódýrari kostur en að fara á stúfana og mynda flytjendur á tón- leikum. Það er bara ekki um sama hlut að ræða. Lifandi tónlistarflutn- ingur á sviði fyrir framan fullan sal af áheyrendum er einstakt fyrirbæri, andrúmsloftið er rafmagnað og flytj- andinn leggur allt í sölurnar.“ Árni Heimir gefur svo í skyn að fiðluleikur Sigrúnar Eðvaldsdóttur sunnudagskvöldið 8. október og selló- leikur Gunnars Kvaran viku síðar hafi „í besta falli verið „penn“, í versta falli hrútleiðinlegur“. Og samt kvartar hann undan því, nokkru síðar í grein sinni, þegar hann fjallar al- mennt um hlut tónlistar í sjónvarp- inu, að tónlistarmenn „megi prísa sig sæla ef þeir fá eina mínútu í lok fréttatímans til að sýna hvað í þeim býr á meðan nöfn tökumanna og fréttastjóra renna yfir skjáinn á ógn- arhraða.“ Í orðum Árna Heimis má greina hugmyndir bókmenntafræðingsins Walters Benjamin um áruna, ein- stætt gildi listaverks, þann kjarna þess sem ekki er hægt að fjölfalda. Í ritgerð sinni Listaverkið á tímum fjölföldunar sinnar bendir Benjamin á að upphaflegt nota- gildi listaverksins hafi verið í helgiathöfnum, fyrst í göldrum en síð- ar í tilbeiðslu. Lista- verkið táknaði yf- irskilvitlega krafta og var tól til að með- höndla og/eða stjórna þessum kröftum. Sam- kvæmt Benjamin hef- ur ára listaverksins aldrei losnað til fulls við þessi fornu tengsl. Þegar Árni Heimir tal- ar um tónleikana sem einstakt fyrirbæri virðist hann ein- mitt eiga við þessa „magísku“ áru, hið einstæða gildi listaverksins sem að- eins er hægt að upplifa í lifandi flutn- ingi. Vera má að upplifunin á tónleikum sé ekki sú sama og að horfa á tónlist- arflutning í sjónvarpssal. En er það svo skelfilega leiðinlegt? Þýski heim- spekingurinn Theodor Adorno, kan- adíski píanóleikarinn Glenn Gould og fleiri hafa haldið því fram að upp- takan auðveldi fólki að njóta sjálfrar tónlistarinnar. Upptökurnar í þátt- unum eru ekki íþróttaviðburður og ekki trúarathöfn; tónlistin, hrein og ómenguð, er í aðalhlutverki, og hún er færð beint heim í stofu til áhorf- andans. Kvikmyndatökurnar af tónlist- arflutningnum í þáttunum mínum eru til að undirstrika það sem á sér stað í tónlistinni; þær beina huga áhorfand- ans í tiltekna átt. Klassísk tónlist byggist yfirleitt á ákveðinni atburð- arrás eða framvindu, sem kemur fram í kvikmyndatökunum. Þegar þáttaskil eiga sér stað í tónlistinni er klippt á milli sjónarhorna; þegar mikil átök eiga sér stað er yfirleitt nærmynd af höndum hljóðfæraleikarans; óróleiki í tónsmíð er undirstrikaður með tíðum klippingum; róleg, innhverf tónlist ein- kennist af lengri senum, þ.e. færri klippingum, o.s.frv. Markmiðið er að hið myndræna og hljóðfæraleikurinn skapi saman sterka, listræna heild sem auki aðdráttarafl tónlistarinnar og geri framvindu hvers verks skilj- anlegri en ella. Með Tíu fingrum er að mínu mati stigið stórt skref í að opna veröld klassískrar tónlistar fyrir öllum þorra almennings. Eitt af hlutverkum Sjón- varpsins er að fá fólk til að horfa, hlusta og hugsa um eitthvað annað en það sem markaðsöflin og gróðahyggj- an vill beina athygli okkar að. Með framleiðslu á klassísku efni, jafnvel þótt það sé „bara“ í sjónvarpssal, fá nokkrir af helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar einmitt tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og gera klass- íska tónlist aðgengilegri fyrir vikið. Er ekki full ástæða til að fagna því, Árni Heimir? Tónlistin færð heim í stofu Jónas Sen svarar pistli Árna Heimis Ingólfssonar um tónlist- arflutning í sjónvarpssal »Með framleiðslu áklassísku efni, jafn- vel þótt það sé „bara“ í sjónvarpssal, fá nokkrir af helstu tónlistarmönn- um þjóðarinnar einmitt tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og gera klassíska tónlist að- gengilegri fyrir vikið. Jónas Sen Höfundur er tónlistarmaður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.