Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 20.10.2006, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2006 51 menning Komdu í Hygeu í dag eða á morgun Sérfræðingar Kanebo verða hjá okkur og bjóða upp á förðun ásamt því að veita faglega ráðgjöf um allt sem viðkemur umhirðu húðarinnar. Hægt er að panta tíma í förðun í síma 533 4533. Vertu velkomin að koma til að kynnast því nýjasta frá Kanebo. www.kanebo.is Kringlunni, sími 533 4533 Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is KVIKMYNDIN Mýrin verður frumsýnd í dag víða um land. Eins og flestum er kunnugt er myndin gerð eftir samnefndri bók Arnaldar Indriðasonar, einhverri mest lesnu íslensku skáldsögunni. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan Arnaldur sendi frá sér Mýrina fyrir jólin árið 2000. Samkvæmt upplýsingum frá Eddu, útgefanda bóka Arnaldar, hefur Mýrin selst í vel á þriðju millj- ón eintaka víða um heim. Ekkert lát virðist vera á vinsældum bóka hans og hafa þær setið ofarlega á met- sölulistum í Danmörku, Noregi, Sví- þjóð, Hollandi, Belgíu, Þýskalandi og Frakklandi auk Íslands. Sífellt bætast svo fleiri þjóðir við. Fyrir skömmu lauk sjö daga upp- boði á réttinum á Mýrinni milli tveggja stærstu bókaforlaga Ísr- aels, þar sem upphæðin áttfaldaðist milli fyrsta og síðasta tilboðs. For- lagið sem að lokum tryggði sér rétt- inn hefur að auki heimild til sölu bókarinnar á hebresku víða um heim, svo þar opnast Mýrinni nýjar dyr. Fjölmörg útgáfufélög kappkosta einnig að tryggja sér útgáfurétt óút- kominna bóka Arnaldar. Margverðlaunuð Auk þess að vera margföld met- sölubók er Mýrin einnig margverð- launuð. Meðal þeirra verðlauna sem bók- in hefur fengið frá því hún kom út eru Glerlykillinn árið 2002, Nor- rænu glæpasagnaverðlaunin, sem besta norræna glæpasagan, hin sænsku Caliber-verðlaun fyrir bestu glæpasögu ársins 2003, Svarta hjartað 2005 (Le Prix du Coeur Noir de Sa- int-Quentin-en- Yvelines) sem besta þýdda glæpasaga árs- ins í Frakklandi auk verðlaunanna Le Prix Mystère de la Criti- que 2006 sem besta þýdda glæpasaga árs- ins í Frakklandi. Í fyrrnefnda flokknum skákaði Arnaldur rit- höfundum á borð við Ian Rankin. Auk þess var Mýrin tilnefnd til hinna sænsku Martin Beck- verðlauna 2003 fyrir bestu þýddu glæpasögu ársins, sem besta glæpa- sagan í Hollandi 2003 af crimezon- ne.nl og sem ein besta glæpasaga ársins 2004 á Nýja Sjálandi, af The New Zealand Herald. Mýrin þótti svo ein af 10 athyglisverðustu glæpasögunum í Bandaríkjunum árið 2005, samkvæmt Kan- sas City Star. Bækur Arnaldar, Grafarþögn, Röddin og Kleifarvatn geta einnig státað af verðlaunum og viðurkenningum. Hvort velgengni bók- arinnar víða um heim muni auka útbreiðslu kvikmyndarinnar verður tíminn að leiða í ljós en ljóst er að hún mun trúlega ekki skemma fyrir. Mýrin hin víðlesna Lögreglumaðurinn Ingvar E. Sigurðsson fer með hlutverk Erlendar Sveinssonar rannsóknarlögreglumanns, aðalsöguhetju Mýrarinnar. Arnaldur Indriðason Mýrin eftir Arnald Indriðason hefur selst í vel á þriðju milljón eintaka um heim allan og er nú komin á hvíta tjaldið KVIKMYNDIN Mýrin er frumsýnd víða um land í dag. Þó hafa nokkrir landsmenn fengið forskot á sæluna, meðal annarra nokkrir Skagfirð- ingar. Leikstjórinn Baltasar Kormákur bauð Skagfirðingum til heims- frumsýningar á Mýrinni í Bifröst á Sauðárkróki síðastliðið mið- vikudagskvöld. Að sögn viðstaddra hyllti fullur salur Baltasar í lok sýn- ingar með langvarandi lófataki. Mýrin er sem kunnugt er gerð eftir metsölubók Arnaldar Indr- iðasonar. Með helstu hlutverk fara þau Ingvar E. Sigurðsson, Björn Hlynur Haraldsson, Ólafía Hrönn Jóns- dóttir og Ágústa Eva Erlendsdóttir sem fara með hlutverk Erlendar, Sigurðar Óla, Elínborgar og Evu Lindar. Með önnur hlutverk fara þau Þorsteinn Gunnarsson, Atli Rafn Sigurðsson, Elma Lísa Gunn- arsdóttir, Theódór Júlíusson, Valdi- mar Örn Flygenring, Þórunn Magnea Magnúsdóttir og Raf- nhildur Rósa Atladóttir. Mýrin er frumsýnd í dag í Smára- bíói, Regnboganum, Laugarásbíói, Háskólabíói, Borgarbíói Akureyri, Selfossbíói og Sambíóunum Kefla- vík. Morgunblaðið/Björn Björnsson. Frumsýning Baltasar voru færð blóm og hamingjuóskir í sýningarlok. Mýrin heimsfrum- sýnd á Sauðárkróki AUGLÝSINGASÍMI 569 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.