Morgunblaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.11.2006, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍSLENDINGAR hafa átt í óformleg- um viðræðum við Japana um fyrir- komulag á mögulegum innflutningi hvalkjöts til Japans. Stefán Ás- mundsson, skrifstofustjóri í sjávarút- vegsráðuneytinu, segir þó að ekki sé um að ræða beinar viðræður um inn- flutning, enda sé það ekki stjórnvalda að semja um sölu á hvalkjöti. Hins vegar hafi verið rætt um það hvernig íslenskt hvalkjöt geti fallið inn í sölu- kerfi Japana, og strangt eftirlit þeirra með því að um lögmætar afurðir sé að ræða. Stefán segir að til að koma í veg fyrir ásakanir um að verið sé að selja ólöglegt kjöt sé eftirlit strangt í Jap- an. Lífsýni eru tekin úr hvölum og sett inn í gagnabanka, en sýni eru svo tekin handahófskennt í verslunum. Ef selja á íslenskt hvalkjöt í Japan þarf því afurðin að falla inn í það kerfi. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir að fyrirtækið láti rannsaka sýni úr hvalkjötinu með tilliti til ým- issa óæskilegra efna úr umhverfinu. Það taki tvo til þrjá mánuði. Ekki sé forsvaranlegt að bjóða kjötið til sölu fyrr en þessar niðurstöður liggi fyrir þar sem langt sé um liðið frá því fyr- irtækið veiddi síðast hval og lét efna- greina sýni. Innflutningur ekki bannaður Ástralski netmiðillinn World News Australia hafði það eftir fréttastofu Reuters í gær að íslensk stjórnvöld ættu í viðræðum við Japani um fyr- irkomulag á sölu á hvalkjöti. Þar hef- ur heimildamaður Reuters eftir jap- önskum erindreka í Ósló að Japanir muni ekki leyfa innflutning á hval- kjöti og að íslensk og japönsk stjórn- völd þurfi að komast að pólitísku sam- komulagi svo af því geti orðið. Stefán Ásmundsson í sjávarút- vegsráðuneytinu segir að ekkert banni í raun innflutninginn og því sé ekki verið að semja sérstaklega um leyfi til innflutnings. Beðið sé eftir niðurstöðum rannsókna á sýnum úr hvölunum til að tryggja að kjötið sé hæft til manneldis enda hafi lang- reyður ekki verið veidd lengi. Stefán segir þó enga ástæðu til að ætla ann- að en að gott komi út úr þeim mæl- ingum. Árni Finnsson, formaður Náttúru- verndarsamtaka Íslands, segir skjóta skökku við að sjávarútvegsráðuneyt- ið sé nú fyrst að athuga grundvöll fyr- ir sölu á hvalkjöti til Japans. Jafn- framt spyr hann hvers vegna sjávarútvegsráðherra hafi ekki haft vaðið fyrir neðan sig og aflað upplýs- inga um mögulega sölu áður en hval- veiðar voru leyfðar. Lyginni líkast Hvalur 9 er nú kominn í gamla stæðið sitt við Ægisgarð eftir litla og óvenjulega en vel heppnaða hvalver- tíð. Skipið veiddi sjö hvali í sex veiði- ferðum af þeim níu sem leyfilegt var að veiða. „Þetta var lyginni líkast,“ segir Kristján Loftsson um vertíðina. Hvalur hf. hefur ekki áður veitt hval svona seint að hausti. Kristján líkti ástandinu við hverasvæði, svo mikið hafi verið af hval. Þá hafi vinnslan í landi gengið eins og í sögu. Rætt við Japana um fyrirkomulag Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kominn í stæðið Hvalur 9 er kominn aftur í gamla stæðið sitt innan við hina gömlu hvalbátana við Ægisgarð í Reykjavíkurhöfn. Báturinn gegndi hlutverki sínu vel þótt langt væri síðan hann var síðast notaður. Óformlegar við- ræður um inn- flutning á hval ÚR VERINU EINN af aðalhöfundum skýrslu um rannsóknir á líffræði hafsins sem birtist í tímaritinu Science lét þau orð falla í tölvupósti til samstarfs- manna að spáin um hrun allra fiski- stofna heims á árinu 2048 gæti nýst sem beita til að fanga athygli al- mennings. Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að hún bendi til þess að nær þriðjungur fiskistofna heimsins hafi hrunið og hnignunin sé sífellt að verða örari enda sé hún nátengd minnkandi líffræðilegum fjölbreytileika í höfunum. Því er haldið fram að útlit sé fyrir að nán- ast engir fiskistofnar verði eftir til að veiða um miðja öldina. Fjallað var um rannsóknina á vef The Seattle Times, eins og víðar. Þar koma fram efasemdir annarra vísindamanna um niðurstöðurnar, ekki síst um hrunið 2048. Tími til að vakna Fram kemur að Boris Worm, aðal- höfundur skýrslunnar, hafi sent samstarsfólki sínu tölvubréf þar sem fram kemur að spáin um hrun- ið gæti nýst til að beina athygli al- mennings að málinu. Það sé kom- inn tími til að vakna enda muni afleiðingarnar koma í ljós um okk- ar daga ef þróunin haldi svona áfram. Tölvubréfið var fyrir mistök sent til Seattle Times. Þegar blaðið spurði Worm um tölvubréfið sagð- ist hann standa við niðurstöðurnar og spána um 2048, þróunin gæti leitt til hruns allra fiskistofna heims. Jafnframt ítrekaði hann að unnt væri að snúa þróuninni við. Til þess þyrfti pólitískan vilja. Efast um spá um hrun fiski- stofna 2048 SAMTÖK fiskvinnslu án útgerðar (SFÁÚ) heldur aðalfund sinn á Grand hóteli á morgun, laugardag. Að loknum aðalfundarstörfum verður opinn fundur með dagskrá sem hefst kl. 17. Meðal annars flyt- ur sjávarútvegsráðherra ræðu og pallborðumræður verða um gæða- ímynd íslenskra sjávarafurða. Aðalfundur SFÁÚ haldinnH ö n n u n / S m í ð i / V i ð g e r ð i r / Þ j ó n u s t a SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN verður með prófkjör vegna alþing- iskosninganna í vor í Suðvestur- kjördæmi á morgun, laugardag. Kjörstaðir verða opnaðir klukkan 9 og gefa ellefu frambjóðendur kost á sér, en gert er ráð fyrir að fyrstu tölur liggi fyrir fljótlega eftir að kjörstöðum verður lokað klukkan 18. Þetta er í fyrsta skipti sem flokk- urinn er með prófkjör í kjördæm- inu eftir kjördæmabreytingu, en stillt var upp lista flokksins fyrir síðustu alþingiskosningar. Tals- verðar breytingar verða fyrirsjáan- lega á listanum þar sem Árni Mathiesen fjármálaráðherra, sem leiddi listann í síðustu kosningum, hefur fært sig yfir í Suðurkjördæmi og Sigríður Anna Þórðardóttir al- þingismaður gefur ekki kost á sér. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fimm þingmenn kjörna af ellefu þing- mönnum kjördæmisins í síðustu kosningum, en vegna fjölgunar í kjördæminu fjölgar þingmönnum þess nú í tólf. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra gefur ein kost á sér í fyrsta sæti listans og Bjarni Benediktsson alþingismaður í ann- að sætið. Níu gefa kost á sér fjögur sætin þar á eftir en það eru Ár- mann Kr. Ólafsson, forseti bæjar- stjórnar Kópavogs, Árni Þór Helgason arkitekt, Bryndís Har- aldsdóttir varaþingmaður, Jón Gunnarsson framkvæmdastjóri, Pétur Árni Jónsson skattaráðgjafi, Ragnheiður Elín Árnadóttir, að- stoðarmaður forsætisráðherra, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjar- stjóri í Mosfellsbæ, Sigurrós Þor- grímsdóttir alþingismaður og Stein- unn Guðnadóttir íþróttakennari, Kosið er á fimm stöðum í kjör- dæminu. Á Álftanesi er kosið í skátaheimilinu Breiðumýri, í Garðabæ í sjálfstæðisheimilinu á Garðatorgi, Víðistaðaskóla í Hafn- arfirði, sjálfstæðisheimilinu Hlíða- smára 19 í Kópavogi, Lágafells- skóla í Mosfellsbæ, en þar kjósa einnig íbúar Kjósarhrepps og á Sel- tjarnarnesi í Sjálfstæðissalnum, Austurströnd 3. Í prófkjörinu skal velja sex fram- bjóðendur, hvorki fleiri né færri, og raða þeim í númeraröð. Ellefu gefa kost á sér í Suðvestur- kjördæmi SAMFYLKINGIN verður með prófkjör um val á lista flokksins í Reykjavík vegna alþingiskosning- anna í vor á morgun, laugardag. Kosið verður í Þróttarheimilinu milli klukkan 10 og 18 og er gert ráð fyrir að fyrstu tölur liggi fyrir fljótlega eftir að kjörstaður lokar. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefur staðið yfir frá 30. október síð- astliðnum og hafa um 600 kosið utan kjörfundar til þessa. Að auki geta Samfylkingarfélagar greitt atkvæði í prófkjörinu á Netinu í dag og á morgun og sagðist Sigurður Ás- björnsson, formaður kjörstjórnar Samfylkingarinnar í Reykjavík, eiga von á því að hluti Samfylkingar- félaga myndi nýta sér það, en þannig væri gengið frá málum að ekki væri hætta á misnotkun þótt greidd væru atkvæði á Netinu. Fimmtán gefa kost á sér í próf- kjörinu og geta allir Samfylkingar- félagar og þeir sem undirrita stuðn- ingsyfirlýsingu við flokkinn tekið þátt í því. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar, gefur ein kost á sér í 1. sætið og Össur Skarphéð- insson og Jóhanna Sigurðardóttir gefa kost á sér í 2. til 3. sætið. Þau tólf sem gefa kost á sér í sætin þar á eftir eru: Ágúst Ólafur Ágústsson, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, Ell- ert B. Schram, Glúmur Baldvinsson, Guðrún Ögmundsdóttir, Helgi Hjörvar, Kristrún Heimisdóttir, Mörður Árnason, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Valgerður Bjarnadótt- ir og Þórhildur Þorleifsdóttir. Fimmtán í framboði hjá Samfylkingunni í Reykjavík PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi vegna alþingiskosninganna í vor fer fram á laugardaginn kemur. Kosið er á 23 stöðum í kjördæminu sem tekur yfir allt Suðurland frá Reykjanesi til Hafnar á Hornafirði og eru kjörstaðir víðast hvar opnir frá kl. 9 til 20, en gert er ráð fyrir að fyrstu tölur geti legið fyrir um tíuleytið um kvöldið. Samtals gefa þrettán manns kost á sér á framboðslist- ann. Árni Mathiesen fjármálaráðherra sækist eftir efsta sætinu og Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, sæk- ist eftir að vera í fremstu víglínu. Þrjú sækjast eftir 2. sæti á listanum, alþingismennirnir Drífa Hjartardóttir og Kjartan Ólafsson og Kristján Pálsson, fyrrverandi alþing- ismaður. Guðjón Hjörleifsson alþingismaður sækist eftir 2.–3. sætinu og eftir 3.–4. sætinu sækjast Björk Guðjóns- dóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, Gunnar Örn Örlygsson alþingismaður og Kári H. Sölmundarson sölustjóri. Grímur Gíslason framkvæmdastjóri sækist eft- ir 3.–5. sætinu, Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarfræðing- ur sækist eftir 4. sætinu, Unnur Brá Konráðsdóttir sveit- arstjóri sækist eftir 5. sætinu og Birgitta Jónsdóttir Klasen náttúrulæknir sækist eftir 5.–6. sætinu. 13 í framboði hjá Sjálfstæðis- flokknum í Suðurkjördæmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.