Morgunblaðið - 10.11.2006, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
www.torhildur.is
Nýsköpun er verðmæti
ÞING um Matthías Joch-
umsson, höfund þjóðsöngsins
og trúarskáldið, verður haldið
á fæðingardegi hans, 11. nóv-
ember, í tilefni af útgáfu ævi-
sögu Matthíasar eftir Þórunni
Erlu Valdimarsdóttur, sagn-
fræðing og rithöfund. Fyrirles-
arar verða auk Þórunnar dr.
Gunnar Kristjánsson prófast-
ur, Gunnlaugur A. Jónsson
prófessor, Helga Kress pró-
fessor, Kristján Árnason, bókmenntafræðingur
og þýðandi, og Sveinn Yngvi Egilsson dósent.
Leikkonurnar Guðrún Ásmundsdóttir og Hall-
dóra Malín Pétursdóttir koma einnig við sögu.
Matthíasarstefna
Þing í tilefni af
útgáfu ævisögu
Matthías
Jochumsson
TINA Turner Tribute heitir
söngskemmtun sem verður
frumsýnd á skemmtistaðnum
Broadway í kvöld.
Söngkonurnar Bryndís Ás-
mundsdóttir, Sigga Beinteins
og stuðboltinn Friðrik Ómar
flytja alla helstu slagara Tinu
Turner.
Auk þeirra taka þátt í sýn-
ingunni valinkunnir tónlist-
armenn ásamt dönsurum.
Listrænn stjórnandi sýningarinnar er Ástrós
Gunnarsdóttir og um tónlistarstjórn sér Þórir
Úlfarsson.
Næstu sýningar verða 17. og 18. nóvember.
Söngskemmtun
Tina Turner heiðr-
uð á Broadway
Tina
Turner
HALLDÓR Ásgeirsson opnaði
sýninguna Hrauntákn í Galleríi
Dverg 20. október sl.
Halldór fremur gjörning í
sýningarrýminu á morgun kl.
18. Innsetningin verður opin í
dag kl. 18–20, án gjörnings.
Sýning Halldórs er framlag
sýningarrýmisins til Sequen-
ces-listahátíðarinnar í Reykja-
vík, sem stóð yfir dagana 13.–28. október. Sýning-
arrýmið Gallerí Dvergur hefur verið starfrækt í
nokkra mánuði á ári síðan 2002 og hafa verið
haldnar þar alls 18 einkasýningar innlendra sem
og erlendra listamanna, svo og tónleikar og víd-
eósýningar.
Myndlistarsýning
Gjörningur í
Galleríi Dvergi
Eftir Flóka Guðmundsson
floki@mbl.is
„UNDANFARNA tvo áratugi hefur
umræðan um þetta tímabil ein-
kennst af miklum upphrópunum á
þann hátt að menn eru annaðhvort
miklir aðdáendur Maós eða hat-
rammir andstæðingar. Okkur þótti
því full ástæða til að efna til opinnar
og ekki síður hlutlægrar umræðu
um þetta tímabil kínverskrar nú-
tímasögu.“ Þetta segir Arnþór
Helgason, varaformaður Kínversk-
íslenska menningarfélagsins (Kím),
um tilefni alþjóðlegs málþings um
tímabil Maós Zedongs í Kína 1949–
1976, en þingið verður sett klukkan
9.30 á morgun í hátíðarsal HÍ.
„Við teljum það vera nauðsynlegt
fyrir þá sem hafa áhuga á að efla
samskipti við Kína, t.d. á sviði við-
skipta og menningar, að kynna sér
þetta tímabil og hvað raunverulega
gerðist,“ heldur Arnþór áfram. „Í
því samhengi er svo mikilvægt að
forðast að fordæma hvaðeina sem
fyrir augu og eyru ber. Því okkar er
ekki að fordæma þar sem við getum
ekki sett okkur almennilega í spor
þeirra sem bæði urðu fyrir hremm-
ingum á þessu tímabili og þeirra sem
stjórnuðu þeim.“
Fjölbreyttir fyrirlestrar
Auk íslenskra fyrirlesara koma
erlendir fyrirlesarar frá þekktum
háskólastofnunum til að taka þátt í
þinginu. Erindin eru af fjölbreyttara
taginu en eiga það sameiginlegt að
fjalla á einn eða annan hátt um hug-
myndir, athafnir og arfleifð Maós
sem og viðbrögð við þeim á þessum
umrótatímum.
Meðal þess sem tekið verður fyrir
er þróun stjórnmála í Kína og áhrif
hennar á alþjóðastjórnmál. Hugað
verður að ólíkum þáttum svo sem
notkun og hlutverki þjóðsagna og
dæmisagna í pólitískum áróðri auk
þess sem ljóðlist, söngvum og mynd-
list rauðu varðliðanna verða gerð
skil. Þá verður rakin síbreytileg
ímynd Maós frá stofnun Kínverska
alþýðulýðveldisins allt fram á þenn-
an dag og litið á siðferði, tungumál
og heimspeki tímabilsins.
Mikill áhugi að utan
„Þetta er í fyrsta skipti, svo okkur
sé kunnugt, sem efnt er til al-
þjóðlegs málþings um þetta tímabil í
sögu Kína. Við vonum að þetta verði
til þess að fleiri fari að sinna þessu
með heildstæðum hætti,“ upplýsir
Arnþór og segir það greinilegt á
þeim viðbrögðum sem skipuleggj-
endur hafa fengið frá fræðimönnum
frá Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu
að mikill áhugi sé á viðfangsefninu
og miklar rannsóknir stundaðar.
„Mér er t.d. kunnugt um að bóka-
útgáfa í Cambridge hafi sýnt áhuga
á að gefa út alla fyrirlestrana.“
Menning | Alþjóðlegt málþing um tímabil Maós Zedongs í Kína 1949–1976
Hlutlæg umræða
mikilvæg
Í HNOTSKURN
» Alþjóðlegt málþing umtímabil Maós í Kína fer
fram í hátíðarsal Háskóla Ís-
lands á morgun. Að þinginu
standa Kínversk-íslenska
menningarfélagið og Asíuver
Íslands.
» Hinn 9. september sl. voru30 ár liðin frá andláti
Maós.
» Asíuver Íslands var stofn-að 16. desember 2005.
Leiðtoginn Maó Zedong var leiðtogi Kínverska alþýðulýðveldisins allt frá
stofnun þess og fram að eigin andláti árið 1976.
AP
LEYNISKJÖL frá Englandsbanka,
sem nú hafa verið gerð opinber á
grundvelli upplýsingalaga, leiða í
ljós að bankinn rannsakaði fjár-
reiður John Lennons og George
Harrisons eftir að samstarf Bítl-
anna lagðist af. Bankanum þótti
miklir fjármagnsflutningar þeirra
til og frá landinu grunsamlegir og
komst að þeirri niðurstöðu að þeir
hefðu gerst brotlegir við lög. Brot-
in voru þó svo lítilvæg að bankinn
ákvað að lögsækja þá ekki. Fjár-
magnsflutningar til og frá Bret-
landi voru undir ströngu eftirliti á
þessum tíma og var það liður í því
að viðhalda stöðugleika í efnahags-
lífinu. Englandsbanki byrjaði að
grafast fyrir um fjármál Lennons
árið 1973, en þá var hann fluttur til
New York. Upp frá því fór bankinn
að grennslast fyrir um aðra Bítla á
sama hátt. Meðal þess sem var
rannsakað voru greiðslur til
George Harrisons sem samsvara
um 260 milljónum ÍSK að núvirði
og lán til bæði Lennons og Harr-
isons.
Haustið 1974 lét bankinn frá sér
fara að hann hefði komist að þeirri
niðurstöðu að Bítlarnir hefðu orðið
uppvísir að „tæknilegum af-
brotum …“ en þau væru of lítilvæg
til þess að hægt væri að lögsækja þá
fyrir þau.
Fjárreiður
Bítlanna
rannsakaðar
Lennon og Harrison
taldir hafa brotið lög
GRÍÐARLEG eftirvænting ríkir
fyrir tónleikaferð Dolly Parton til
Evrópu í vor, en kántrídívan mikla
hefur ekki farið í
stóra tónleika-
ferð síðan um
miðjan áttunda
áratuginn. Ferð-
in hefst á Norð-
urlöndunum og
var ráðgert að
halda fyrstu tón-
leikana í Horsens
í Danmörku 7.
mars. Þegar
miðasala hófst fyrir um viku seld-
ust 4.500 miðar upp á sjö mínútum,
og 4.300 manns eru strax komnir á
biðlista. Aðeins var ætlunin að
halda eina tónleika í Danmörku og
ljóst var að leita varð leiða til að
efna til aukatónleika. Þeir voru
loks boðaðir 6. mars og áttu miðar
á þá að fara í sölu í gær. Ljóst var
því að uppselt yrði á þá áður en
formleg miðasala hæfist, eins og
kom á daginn.
Danir hrifnir af
Dolly Parton
Dolly Parton
MEÐAL þeirra
sem koma fram á
alþjóðlegu mál-
þingi um tímabil
Maós Zedongs í
Kína er Matthías
Johannessen
skáld. Matthías
mun lítillega
segja frá kveð-
skap Maós en þó
fyrst og fremst
fara með eigin þýðingar á nokkrum
ljóðum eftir formanninn.
Þýðingar sínar á ljóðum Maós
segir Matthías tengjast almennum
áhuga sínum á kínverskum kveð-
skap.
„Ég hef heillast af kínverskum
ljóðheimi og undrast hvað hann er
nútímalegur þrátt fyrir ævafornar
rætur hans,“ upplýsir hann en bætir
við að sig hafi einnig langað að vita
hvernig Maó hugsaði sem ljóðskáld.
„Mér fannst mikilvægt að við Ís-
lendingar vissum eitthvað um það
hvernig þessi leiðtogi fjölmennustu
þjóðar heims hugsaði.“
Ekki endilega pólitískt skáld
Matthías segir að Maó hafi verið
myndrænt skáld í kínverskum anda
og þar að auki gott skáld. Þá hafi
yrkisefni hans ekki endilega verið
pólitísks eðlis.
Þýðingarnar vann Matthías úr
sænsku og ensku fyrir rúmum þrem-
ur áratugum. Það átti svo fyrir hon-
um að liggja að kynnast kínverskri
ljóðlist betur.
„Þegar ég kynntist Wang Rong-
hua, sem var sendiherra Kína á Ís-
landi [á árunum 1998–2002] og sjálfur
skáld, kynntist ég um leið kínverskri
ljóðlist miklu betur. Í sameiningu
unnum við að íslenskum þýðingum
kínverskra ljóða úr frummálinu.“
Áætlað er að framlag Matthíasar
til málþingsins hefjist klukkan 16.15.
Menning | Matthías Johannessen flytur ljóð Maós
Maó Zedong var gott
og myndrænt skáld
Matthías
Johannessen
♦♦♦