Morgunblaðið - 10.11.2006, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 63
Við styðjum Bryndísi Haralds.
. .
Kosningaskrifstofa Bryndísar er að Bæjarlind 14 í Kópavogi. Upplýsingasími 554 1508
Ólafur G.
Einarsson
fyrrv. ráðherra
Sigríður Anna
Þórðardóttir
þingmaður
Salome
Þorkelsdóttir
fyrrv. forseti Alþingis
Almar Grímsson
Bæjarfulltrúi og
lyfjafræðingur
Gullveig
Sæmundsdóttir
fyrrv. ritstjóri
Haraldur
Sverrisson
bæjarfulltrúi
Bjarki
Sigurðsson
handboltamaður
Helga Guðrún
Jónsdóttir
kynningarstjóri
Kristinn
Andersen
verkfræðingur
Stefán
Hilmarsson
tónlistarmaður
Rósa
Guðbjartsdóttir
bæjarfulltrúi
Sólveig Pálsdóttir
framhaldsskólakennari
og varabæjarfulltrúi
Ragnhildur Inga
Guðbjartsdóttir
bæjarfulltrúi
Ásthildur Helgadóttir
fótboltakona
og bæjarfulltrúi
Sigríður Rósa
Magnúsdóttir
bæjarfulltrúi
María Kristín Gylfadóttir
formaður Heimilis og skóla
og varabæjarfulltrúi
Guðrún Brynja
Vilhjálmsdóttir
framkvæmdastjóri
Borgar Þór
Einarsson
formaður SUS
Hafsteinn Þór
Hauksson
fyrrv. formaður SUS
Ragnheiður
Guðmundsdóttir
varabæjarfulltrúi
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
NME, útbreiddasta tónlistarrit
Bretlandseyja, leggur opnugrein
undir hljómsveit sem enn hefur
ekki gefið út plötu. Sá sjaldgæfi
heiður hefur þó hlotnast íslensku
hljómsveitinni Jakobínurínu, sem
sló ekki einasta í gegn á Airwaves-
hátíðinni í fyrra heldur og á þeirri í
ár.
Greinin hefst á stuttu spjalli við
framkvæmdastjóra Iceland Airwa-
ves, Eldar Ástþórsson, og fer
NME fögrum orðum um hátíðina,
segir hátíðina þá bestu sem blaðið
hafi upplifað í langan tíma. Opnuna
prýðir svo flennistór mynd af Jak-
obínurínu, og í baksýn snjór og
fjöll, nema hvað. Í greininni er svo
talað fjálglega um sveitina og tón-
list hennar, og lýsingar á lífsstíl og
ævintýrum meðlima eru litríkar.
Heimir Gestur Eggertsson, gít-
arleikari sveitarinnar, er að vonum
ánægður með umfjöllunina.
„Mér finnst mjög fyndið hvernig
þetta er skrifað. Þetta er stíll þessa
blaðs, að ýkja hlutina á réttum
stöðum. Ekki að það hafi ekki verið
mikið stuð og stemning hjá okkur
undanfarna mánuði, og stundum
komi fyrir að við göngum of langt.
En einhvern veginn verða þeir að
selja blaðið.“
Of mikil athygli?
Það hefur mikið verið rætt um
Jakobínurínu undanfarin misseri.
Of mikil athygli kannski?
„Stundum finnst mér fullmikið
látið með okkur, miðað við það að
við erum ekki enn búnir að gefa út
plötu,“ segir Heimir. „Það er eins
og flestir hafi heyrt af okkur en
ekki í okkur.“ Það sem liggur fyrir
á útgáfusviðinu er þriggja laga
smáskífa, „His Lyrics Are Dis-
astrous“, sem út kom hjá hinu goð-
sagnakennda breska útgáfufyr-
irtæki Rough Trade í sumar.
Það var Ken Thomas sem upp-
tökustýrði lögunum (Sigur Rós,
Wire). Og stóra platan er í burð-
arliðnum en hennar má vænta í
janúar eða febrúar á næsta ári.
„Við erum að vinna hörðum
höndum að henni í þessum töluðu
orðum,“ segir Heimir. „Sumir vilja
koma henni út sem fyrst en flestir í
bandinu vilja meiri rólegheit, og
meiri metnað í vinnsluna.“ Þessir
„sumu“ eru starfsmenn Big Dip-
per, umboðsfyrirtækis sem rekið
er af John Best, umboðsmanni Sig-
ur Rósar.
„Þetta fólk er að vinna á fullu
fyrir okkur og við erum því auðvit-
að mjög þakklátir. Þau eru að
reyna að koma okkur inn á jóla-
tónleika Rough Trade og þessi
þrýstingur frá þeim er okkur nauð-
synlegur. Það þarf að ýta okkur
áfram.“
Jakobínarína slær
í gegn … aftur
Morgunblaðið/Eggert
Vinsælir „Það er eins og flestir hafi heyrt af okkur en ekki í okkur,“ segir Heimir Gestur Eggertsson.
myspace.com/jakobinarina
BÓKAÚTGÁFAN Veröld gefur
aðdáendum Yrsu Sigurðardóttur
kost á að taka forskot á sæluna og
lesa upphaf nýrrar glæpasögu
hennar, Sér grefur gröf, á heima-
síðu forlagsins. Bókin er vænt-
anleg í verslanir þann 18. nóv-
ember næstkomandi. Að sögn
Péturs Más Ólafssonar, útgefanda
hjá Veröld, ákváðu forleggjararnir
að „slá á eftirvæntingu lesenda
með því að leyfa þeim að byrja að
lesa strax, á meðan Prentsmiðjan
Oddi lýkur við prentun bók-
arinnar.“
Þegar frumraun Yrsu, Þriðja
táknið, kom út á Íslandi í fyrra
hafði verið samið um útgáfu á
bókinni á fleiri tungumálum en áð-
ur voru dæmi um hjá íslenskum
höfundi. Nú kemur Þriðja táknið á
markað á 25 tungumálum í yfir
100 löndum í öllum byggðum
heimsálfum veraldar.
Forsmekkur
á netinu
Slóðin að verkinu er www.verold.is.