Morgunblaðið - 10.11.2006, Síða 66
66 FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
Sun 12/11 kl. 14 UPPS. Sun 19/11 kl. 14
Sun 26/11 kl. 14 Sun 3/12 kl. 14
Í kvöld kl. 20 UPPS. Fim 16/11 kl. 20
Sun 26/11 kl. 20 Fös 1/12 kl. 20
Lau 11/11 kl. 20 UPPS. Fös 17/11 kl. 20
Fös 24/11 kl. 20 Lau 2/12 kl. 20
Fim 16/11 kl. 20 UPPS. Fim 23/11 kl. 20
Sun 3/12 kl. 20 Fös 8/12 kl. 20
Í kvöld kl. 20 Sun 19/11 kl. 20
Síðustu sýningar.
Lau 11/11 kl. 14 Frumsýning
Lau 18/11 kl. 14 Lau 25/11 kl. 20
Frítt fyrir 12 ára og yngri
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
HELGA RAFNS
Mið 22/11 kl. 20 Miðaverð 2.300
Lau 11/11 kl. 20 Sun 12/11 kl. 20
Fös 17/11 kl. 20 Lau 18/11 kl. 20
SAKAMÁL Á SVIÐ
Leiklestrar á 3ju hæðinni.
Sun 12/11 kl. 17 ath. breyttan tíma
Sun 19/11 kl. 20
Allir velkomnir, ókeypis aðgangur
Sun 12/11 kl. 20 4.sýning Græn kort
Lau 18/11 kl. 20 5.sýning Blá kort
Sun 19/11 kl. 20 Lau 25/11 kl. 20
Lau 11/11 kl. 17 Miðaverð 1.000
WATCH MY BACK
Kómískur spuni. Flutt á ensku.
Í kvöld 10/11, sun 19/11, sun 26/11
kl. 20:10 Miðaverð 1.000
JÓLALEIKRITIÐ RÉTTA LEIÐIN
Mið 22/11 kl. 18 og 20 Frums. UPPS.
Fim 23/11 kl. 9:30 og 13:00
Fös 24/11 kl. 9:30 og 13:00
Mán 27/11 kl. 9:30 og 13:00
Sýningartími 1 klst. Miðaverð 500 kr.
Stuðbandalagið
í kvöld
Fjölbreyttur sérréttaseðill og tilboðsmatseðill
á leikhúskvöldum
www.kringlukrain.is Sími 568 0878
www.leikfelag.is
4 600 200
Herra Kolbert
Fös 10. nóv kl. 19 UPPSELT - 7. kortasýn
Umræður að lokinni sýningu. Allir velkomnir
Lau 11. nóv kl. 19 UPPSELT - 8. kortasýn
Fim 16. nóv kl.20 örfá sæti - 9.kortasýn
Fös 17. nóv kl.19 UPPSELT - 10.kortasýn
Lau 18. nóv kl. 19 UPPSELT
Næstu sýn: 23/11, 24/11, 25/11, 1/12. Ekki við hæfi barna.
Einungis sýnt í nóv og des! – Tryggðu þér miða núna
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Sun 12.nóv kl. 14 UPPSELT
Sun 12. nóv kl. 15
Sun 19.nóv kl. 14 og 15 örfá sæti laus
Næstu sýn: 25/11, 2/12, 8/12, 9/12, 16/12. Sýnt í nóv og des.
Ath styttri sýningartími – lækkað miðaverð
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
ATH! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Frumsýning 18. nóvember kl. 20 - 2. sýning 25. nóvember kl. 20
3. sýning 2. desember kl. 20
ATH! AÐEINS ÞESSAR ÞRJÁR SÝNINGAR
STRENGJALEIKHÚSIÐ
Strengjaleikhúsið í samvinnu við íslensku óperuna
SKUGGALEIKUR
Ný íslensk ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Sjón og Messíönu Tómasdóttur
ARÍUR UM ÁSTINA - HÁDEGISTÓNLEIKAR ÞRIÐJUD. 14. NÓV. KL.12.15
Jónas Guðmundsson, tenór, og Kurt Kopecky, píanó, flytja rússneskar og ítalskar aríur í hádeginu
Tónlistardagar Dómkirkjunnar
Sunnudaginn 12. nóvember kl. 17.00
Kórtónleikar í Hallgrímskirkju
Flutt verður Missa choralis eftir F. Liszt og
mótettur eftir Palestrina og Bruckner
Aðgöngumiðar verða til sölu í Dómkirkjunni,
í versluninni 12 tónar við Skólavörðustíg og
í Tónastöðinni við Skipholt
Dómkórinn í Reykjavík.
Miðasala virka
daga frá kl.11-16
og 2klst. fyrir sýn.
Sími 5629700
www.idno.is
Sýningar kl.20
Sýnt í Iðnó
Fös. Örfá 10.11
Lau. Örfá 11.11
Lau. Örfá 18.11
Sun. Upps. 19.11
Fim. Aukas. 23.11
Fös. 24.11
Lau. 25.11
!"
# $% %& '
Fös. 10. nóv. kl. 20 - Örfá sæti laus
Sun. 12. nóv. kl. 20 - Nokkur sæti laus
Fös. 17. nóv. kl. 20 - Nokkur sæti laus
Sun. 19. nóv. kl. 20 - Síðustu sýningar!
„Frábær sýning í alla staði!“ Starfsmenn Atlanta
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR!
föstudaginn 10.nóvember kl. 20.00
sunnudaginn 12. nóvember kl. 20.00
Gunnlaðarsaga
eftir Svövu Jakobsdóttur
sunnudag 22. okt. kl. 20.00
síðasta sýning
Hvað ef ...?
mán 13. nóv. kl 20.00 uppselt
þri 14. nóv. kl 20.00 uppselt
mið 15. nóv. kl 12.00 uppselt
mið 15. nóv. kl 20.00 uppselt
Miðasala í síma 555 2222
www.hhh.is | www.midi.is
ÞAÐ VAR oft ansi gaman á tón-
leikum Lars Janssons og Stórsveit-
arinnar í Tjarnarsal á miðvikudags-
kvöldið, en stundum óskaði maður
þess að Lars hætti ekki að spila eftir
glæsta innganga heldur héldi áfram
með hrynsveitinni, þvílíkur galdrapí-
anisti sem hann er. Hann lék eitt
tríólag um miðbik tónleikanna,
„Time to be alone“, fallega innhverfa
ballöðu þar sem Gunnar Hrafnsson
og Jóhann Hjörleifsson, með bursta
í höndum, stóðu fyrir sínu en Jans-
son er ekki vanur að leika með nein-
um smáköllum eins og þegar hann
heimsótti Ísland fyrir 30 árum með
kvartett norska bassasnillingsins
Arilds Andersens. Jansson er geysi-
gott tónskáld og hefur náð miklu
valdi á tónmáli stórsveitarinar. Þeg-
ar hann var á slóðum Bobs Mintzers
hrifu verk hans mig lítt en sem betur
fer fór hann oftast eigin leiðir og
sletti meira að segja Antoni Webern
í hljómsveitarúsetningu og Cecil
Taylor í píanóinngangi. Slagverkið
hefur oft verið sterkt í verkum Jans-
sons og svo var í upphafsverkinu,
öðrum kafla svítunnar Genozis,
spilamennska hljómsveitarinnar var
fín sem og í Temenos, en í „Safety
growth“ (hafi mér ekki misheyrst
því efnisskrá var engin frekar en
vanalega á djasstónleikum) fór að
færast fjör í leikinn, Webern kom til
sögunnar og bíboppið í næsta verki,
„No doubt“, þar sem Kjartan og
Stefán S. blésu línuna samstiga í altó
og trompet. Kjartan blés flottan ný-
boppsóló og Stefán fylgdi á eftir nær
frumboppinu og eilítið fönkaður í
blússtemmunni í lokin, Sigurður
Flosason tók við mjúkmáll í fyrstu
en blánaði er á leið. Stefán mætti
spila oftar, því eilítið vantar upp á
leiknina er einkenndi hann áður.
„Morguníhugun munkanna í Tíbet“
var feikiskemmtilegt verk og vel
spilað. Brassið blés í ætt við dung-
trompetana tíbesku og síðan mátti
heyra sópran, flautu og bassaklarin-
ett áður en Snorri Sigurðarson
leiddi hljómsveitina yfir á djasslend-
urnar með glæsilegum dempuðum
trompetsóló, svo var lent á fönkstr-
öndinni við vælandi gítar Edda Lár.
Inngangur Lars að Appelton var
leikrænn og minnti um margt á
sænska píanósnillinginn Per Henrik
Wallin, sem lést í fyrra, og í „Now“
glissaði Sammi skemmtilega og Jói
Hjörleifs sló trommusóló sem var
engu síðri þeim sem Jones þriðji sló
með Elling á djasshátíð. Hann var
einnig í forustuhlutverki ásamt Pétri
kongóleikara í lokalaginu, fallegri
ballöðu af sambaættinni, „Eyes that
smile“, og blés Óli Jóns þar fínan
tenórsóló.
Stórsveitin fór vel með verk Jans-
sons og er ekki síðri Bohuslän-
stórsveitinni sænsku sem hefur flutt
verk hans mest og best. Tromp-
etarnir voru oft magnaðir og hefði
Sæbjörn Jónsson gengið stoltur af
þessum tónleikum.
Sætt og súrt
TÓNLIST
Ráðhús Reykjavíkur
Einar St. Jónsson, Eiríkur Örn Pálsson,
Kjartan Hákonarson og Snorri Sigurð-
arson trompeta, Oddur Björnsson, Edw-
ard Frederiksen og Samúel J. Sam-
úelsson básúnur, David Bobroff
bassabásúnu, Sigurður Flosason, Stefán
S. Stefánsson, Jóel Pálsson, Ólafur Jóns-
son og Steinar Sigurðarson saxófóna, Eð-
varð Lárusson gítar, Gunnar Hrafnsson
bassa og Jóhann Hjörleifsson trommur.
Stjórnandi, tónskáld og píanisti Lars
Jansson. 1. nóvember 2006.
Stórsveit Reykjavíkur
Vernharður Linnet
Bandaríski rithöfundurinnStephen King er mjög ánægð-
ur með niðurstöður þingkosning-
anna í Bandaríkj-
unum. „Þangað
til í gær fannst
mér George W.
Bush það ógn-
vænlegasta í
heimi,“ sagði
King þar sem
hann var að
kynna nýjustu
bók sína, Lisey’s
Story, í Lund-
únum í gær. „Það var þungu fargi
af mér létt þegar ég vaknaði í gær
og sá að bandarískir kjósendur
höfðu hafnað honum.“
Þá bætti King því við að það
fyrsta sem sér hefði dottið í hug
þegar hann heyrði fréttirnar væri
þekkt lína úr kvikmyndinni um
Galdrakarlinn í Oz: „Guði sé lof,
nornin er dauð.“
King, sem er 59 ára gamall, er
einn vinsælasti rithöfundur samtím-
ans og á að baki verk á borð við
Misery, Shining og Carrie.
Fólk folk@mbl.is LeikarapariðAngelinaJolie og Brad Pitteru nú sögð hafa
lagt áætlanir sín-
ar um að ættleiða
barn á Indlandi á
hilluna vegna
þeirrar neikvæðu
umfjöllunar sem
ættleiðing söngkonunnar Madonnu
á dreng frá Malaví hefur hlotið. „Það
vill enginn láta draga sig í gegn um
þá erfiðleika sem Madonna hefur
gengið í gegn um. Það er alger
synd,“ segir ónefndur heimild-
armaður breska blaðsins New. „An-
gelina var svo sorgmædd. Þegar fólk
fer að varpa fram spurningum um
réttlætingu ættleiðinga og það hvort
þú fáir að halda barninu þá verða
hlutirnir bara mjög erfiðir. Angelina
trúir því að það séu ástæður fyrir því
að fólk komi inn í líf manns og að
maður fari á ákveðna staði. Þetta
gerði Indland að fullkomnum stað
fyrir þau til að kanna möguleikann á
því að bjóða nýja menningu vel-
komna inn í líf sitt. Hún hefur svo
mikla trú á ættleiðingum.“
Jolie og Pitt eiga saman dótturina
Shiloh en auk þess eiga þau tvö ætt-
leidd börn, Maddox, frá Kambódíu,
og Zahara, frá Eþíópíu.
Fréttir á SMS