Morgunblaðið - 30.11.2006, Síða 4

Morgunblaðið - 30.11.2006, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Hjálmar Jónsson hjalmar@mbl.is FYRIRHUGAÐ er að reisa bíla- stæðahús fyrir 1.600 bíla í Austurhöfn Reykjavíkur þar sem tónlistar- og ráðstefnuhúsið á að rísa, en það mun nær tvöfalda fjölda bílastæða í mið- borginni sjálfri frá því sem nú er. Í húsinu verða um fjórum hundruðum fleiri stæði en eru samanlagt í öllum sjö bílastæðahúsum Bílastæðasjóðs Reykjavíkur sem fyrir eru í miðborg- inni, en þar eru nú samtals um 1.200 stæði. Tvær hæðir neðanjarðar Bílastæðahúsið verður á tveimur hæðum neðanjarðar undir þeim byggingum sem rísa eiga í austur- hluta hafnarinnar á svæðinu frá Ing- ólfsgarði að Hafnarstræti og frá Kalkofnsvegi að Miðbakka, en þar á auk tónlistar- og ráðstefnuhússins að rísa hótel, höfuðstöðvar Landsbank- ans, verslunar- og atvinnuhúsnæði og fleira. Frummatsskýrsla vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinn- ar hefur verið lögð fram hjá Skipu- lagsstofnun og er frestur til að gera athugasemdir við framkvæmdina til 12. janúar nk. Samkvæmt skýrslunni er gert ráð fyrir að bílastæðahúsið verði alls um 50 þúsund fermetrar að stærð. Það verður allt neðanjarðar á tveimur hæðum og nær lægst um átta metra niður fyrir núverandi götumynd. Að auki verða bílastæði á yfirborði við akstursleiðir og eru þau hugsuð sem skammtímastæði. Fram kemur að bygging bílastæða- hússins sé hluti af framkvæmdum á svæðinu og byggingu ráðstefnu- og tónlistarhúss. Tilgangurinn með byggingu þess sé að anna fyrirhug- aðri bílastæðaþörf vegna ýmiss konar starfsemi sem fyrirhuguð sé á svæð- inu, auk þess sem húsið muni einnig að hluta til anna almennri bílastæða- þörf í miðbænum, sem fari sívaxandi. Gert er ráð fyrir alls fimm leiðum til og frá húsinu, sem eiga að dreifa umferðinni vel frá svæðinu. Er meg- in-hönnunarforsendan sú að koma tónleikagestum með hagkvæmum og skilvirkum hætti til og frá tónlistar- húsinu. Segir í skýrslunni að bygging tónlistarhússins og annarra bygginga hafi í för með sér gagngerar breyt- ingar á hafnarsvæðinu og nánasta umhverfi þess og starfsemi sem þess- ari fylgi mikil þörf fyrir bílastæði. Er gert ráð fyrir að tónlistar- og ráð- stefnumiðstöð kalli á 460 stæði, hótel á 180 stæði, skrifstofur og verslanir á 710 stæði, auk þess sem stæði Bíla- stæðasjóðs Reykjavíkur verða sam- tals 250 talsins. Í skýrslunni segir að aðrir mögu- leikar á lausn á bílastæðaþörfinni á svæðinu en að reisa bílastæðahús séu ekki raunhæfir og bygging þess og rekstur muni ekki hafa veruleg óaft- urkræf umhverfisáhrif. Á fram- kvæmdatíma séu hins vegar áhrif framkvæmdarinnar nokkur, en þar sé um að ræða tímabundin og afturkræf áhrif, auk þess sem framkvæmdinni sé áfangaskipt og ekki allur grunn- urinn grafinn upp í einu. Portus Group stendur að fram- kvæmdum á svæðinu, en tillaga fyr- irtækisins var talin hagstæðust eftir samningskaupaferli um einkafram- kvæmd 2004–2005 í framhaldi af hug- myndasamkeppni um skipulag svæð- isins. Að Portus standa Landsafl, sem er fasteignafélag í eigu Landsbank- ans, og Nýsir hf. og er gert ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið 2010. 1.600 bílastæði undir tón- listar- og ráðstefnuhúsinu Morgunblaðið/Brynjar Gauti Bílastæði Grunnurinn að bílastæðahúsinu er gríðarstór, enda á húsið að vera á tveimur hæðum og rúma 1.600 bíla. Til samanburðar eru öll gjaldstæð bílastæði í Reykjavík 3.200 talsins í bílastæðahúsum og annars staðar.                                        !      "                                       !"# $                         Bílastæðahúsið mun nær tvöfalda fjölda stæða í miðborginni frá því sem nú er LÖGREGLAN í Reykjavík telur að hið mikla magn kókaíns, sem tekið var af íslenskum farþega í Leifsstöð í síðustu viku, geti bent til þess að smyglarar séu farnir að freista þess að smygla stærri sendingum inn til landsins en áður þekktist. Ljóst sé að kókaínneysla hafi aukist und- anfarin ár en á hinn bóginn geti ein stór haldlagning skekkt heild- armyndina í þessu sambandi. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli en tæknideild lögreglunnar í Reykjavík er til að- stoðar. Verð á kókaíni fellur Að sögn Ásgeirs Karlssonar, að- stoðaryfirlögregluþjóns og yf- irmanns fíkniefnadeildar LR, hafa haldlagningar á amfetamínsend- ingum, svo tekið sé dæmi af öðru meginfíkniefni í flokki örvandi efna, verið af slíkri stærðargráðu það sem af er ári að annað eins þekkist ekki. Hleypur magnið í fjórum stærstu amfetamínmálum ársins á fleiri tug- um kílóa en það sem tekið hefur ver- ið af kókaíni undanfarin ár nemur um einu kílói á ársgrundvelli frá árinu 1999 – með tveimur und- antekningum, þ.e. árið 2004 og 2006. Bent hefur verið á að hugsanlega geti innflutningur aukist þegar verð á fíkniefnum fer lækkandi en í því samhengi má benda á að verð á einu grammi af kókaíni hefur nú ekki ver- ið eins lágt um langt skeið. Í síðustu verðkönnun SÁÁ, frá 30. september, kostaði 1 gramm af kókaíni 9.250 kr. sem skoðast sem mikil lækkun mið- að við að grammið kostaði á bilinu 10–13 þúsund krónur misserin á undan. Fara þarf aftur til júní 2005 til að finna lægra verð en nú er, en þá kostaði grammið 7.750 krónur. Ungt fólk á örvandi efnunum Neysla örvandi efna er bundin við 20–35 ára neytendur og fyrr í þess- um mánuði útskýrði Þórarinn Tyrf- ingsson, yfirlæknir á Vogi, að þessi efni væru tengd skemmtanalífinu og áfengisneyslu. Þá benti hann á að örvandi vímuefnaneysla væri meiri túraneysla en neysla annarra vímuefna. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli tjáði sig ekki um rannsókn stóra kókaínmálsins í gær en einn maður situr í gæsluvarðhaldi vegna rann- sóknarinnar. Reyna stórsmygl frekar Kókaín haldlagt Sprenging er kókaínhaldlagningum á árinu miðað við árin á undan. Allar tölur í grömmum. 1999 955 2000 945 2001 599 2002 1870 2003 1192 2004 6160 2005 1138 2006 12808 Heimild: Ríkislögreglustjóri SAMRÁÐSHÓPUR hefur verið settur á laggirnar vegna áforma um að byggja allt að 300 m² skólp- hreinsistöð í næsta nágrenni við ný- legan vistvænan leikskóla, grunn- skóla, íþróttamiðstöð og íbúðabyggð í Grundarhverfi á Kjal- arnesi. Tillaga um breytingu að deili- skipulagi þar sem gert er ráð fyrir skólphreinsistöðinni hefur mætt harðri andstöðu meðal íbúa í hverf- inu og hafa yfir 100 manns ritað nafn sitt á undirskriftalista í mót- mælaskyni. Af hálfu hverfisráðs situr Hólm- ar Þór Stefánsson í hópnum auk fulltrúa frá Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavíkurborg. Að sögn Hólmars Þórs mun hópurinn eiga fund í næstu viku. Hann sagðist ekki geta sagt til um hvenær hóp- urinn kæmist að niðurstöðu en sagðist vonast til að það yrði sem allra fyrst. Í samtali sem birtist í Morgun- blaðinu í gær sagði Guðbrandur Sigurðsson, íbúi í Grundarhverfi, að fólk í hverfinu hefði áhyggjur af umferðaröryggi í hverfinu, sjón- og lyktarmengun. Þá gagnrýndi hann að tillagan að breytingu á deili- skipulagi hefði ekki verið kynnt íbúum. Samráðsnefnd um hreinsistöð VON er á djúpri lægð upp að landinu um hádegi í dag, og í kjölfar hennar er von á stormi víða um land. Sam- kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands verður veðrið verst vestan til; á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og á Breiðafirði; og á Suðausturlandi, þar sem vindur gæti farið í 25 m/s. Skást verður veðrið á Norðvest- urlandi, en búast má við áframhald- andi kulda og norðanátt í þeim lands- hluta. Gera má ráð fyrir miklum vindhviðum undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi, og ekkert ferðaveður verður þegar veðrið verður hvað verst. Reikna má með að vindstyrkur verði yfir 20 m/s víða fram á föstu- dag. Veðrinu mun fylgja mikil úr- koma, mest suðaustanlands, en hiti verður yfir frostmarki víðast hvar og því verður um rigningu eða slyddu að ræða. Lægðin mun grynnast yfir landinu í dag og kvöld, en eftir að hún gengur norður yfir landið má búast við frosti víða um land, þó hiti gæti haldist um frostmarkið á Suðurlandi. Lítið ferða- veður víða um land ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.