Morgunblaðið - 30.11.2006, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 13
ÚR VERINU
„ÞETTA er þreytandi, myrkur nánast
allan sólarhringinn,“ segir Árni Sig-
urðsson, skipstjóri á Arnari HU frá
Skagaströnd. Skipið er á leið heim úr
rússnesku lögsögunni í Barentshafi,
langleiðina norður undir rússnesku
eyjunni Novaya Zemlya.
Árni segir að það sé skíma á milli
klukkan hálftíu og hálftólf á daginn,
ekki sé hægt að tala um fulla dags-
birtu. „Það hefur allt að segja að hafa
eitthvað að gera þega svona er,“ segir
Árni. Skipverjar hafa aðgang að gervi-
hnattasjónvarpi og gervihnattasíma
en Árni segir slæmt að geta ekki heyrt
íslenskt útvarp til að fylgjast með
fréttum að heiman.
Óvíst með aðstoð
Spurður um öryggi sjómanna við
þessar aðstæður segir Árni að þau mál
þurfi að bæta. Mjög óljóst sé hvort
Rússar myndu hjálpa til með læknis-
þjónustu ef eitthvað kæmi upp á og
Norðmenn myndu ekki senda eftir
mönnum í rússneskri lögsögu. Það geti
tekið allt upp í fjóra daga að sigla til
Noregs. „Þetta er verulegt áhyggju-
efni, maður forðast bara að hugsa til
óhappa. Það er verið að senda 100 til
150 íslenska sjómenn norður í þessar
aðstæður. Íslensk stjórnvöld, útgerð-
irnar og samtök sjómanna verða að
gera eitthvað í því að skýra þessi mál
gagnvart Rússum,“ segir Árni.
Það tók Arnar sex sólarhringa að
sigla á veiðislóðina en eitthvað styttri
tíma til baka því þeir voru komnir vest-
ar í Barentshafið í lok túrsins. Skipið
var sunnan við Jan Mayen í gær og er
væntanlegt heim til Skagastrandar
síðdegis á morgun. Þeir fengu um 600
tonn af fiski upp úr sjó á 28 dögum.
Það gerir 115 til 120 milljónir kr. í afla-
verðmæti, samkvæmt upplýsingum
Gísla Svans Einarssonar, útgerðar-
stjóra hjá FISK-Seafood, sem gerir
Arnar út.
Þarf að tryggja öryggi sjó-
manna á rússneska svæðinu
Morgunblaðið/Alfons
LOKS virðist lát á aukningu í út-
flutningi ísfisks sem vaxið hefur
stöðugt undanfarin ár. Kemur þetta
fram í frétt á vef
Fiskistofu.
Fiskistofa hef-
ur tekið saman
bráðabirgðatölur
um þróun verð-
mætis og magns
útflutts afla
helstu fiskiteg-
unda á erlenda
ferskfiskmarkaði
frá fiskveiðiárinu 2003/2004 til 2005/
2006. Á síðastliðnu fiskveiðiári voru
flutt út 55.288 tonn. Það er nánast
sama magn og árið áður þegar út-
flutningur óunnins afla var 55.606
tonn. Verðmætin jukust hins vegar
verulega, eða úr 7.306 milljónum
króna í 9.918 milljónir.
Ýsan vó þyngst eins og nokkur
undanfarin ár. Út voru flutt 19.307
tonn af ýsu á síðasta ári fyrir 3.211
milljónir kr. Flutt voru út óunnin
14.589 tonn af karfa að verðmæti
1909 milljónir kr. Þá voru flutt út
8.608 tonn af þroski að verðmæti
2.086 milljónir kr.
Meðalverð íslensks þorsks sem
seldur var á erlendum ferskfisk-
mörkuðum á síðasta fiskveiðiári
hækkaði um 5% frá fyrra ári, var lið-
lega 242 kr. á kíló. Meðalverð ann-
arra tegunda virðist hafa hækkað
um 5–9%, samkvæmt tölum Fiski-
stofu. Þannig hækkaði meðalverð
ýsu um 9% milli tímabila.
Ísfiskút-
flutningur
eykst ekki
SAMTÖK sjómanna hvetja til þess í
ályktunum frá nýlegum þingum að
stofnuð verði alþjóðleg íslensk
skipaskrá. Þannig verði lögfest sam-
bærilegt skattaumhverfi og á hinum
Norðurlöndunum. Það er talið eina
ráðið til að efla íslenska far-
mannastétt.
Í ályktun þings Sjómanna-
sambands Íslands er því fagnað að
íslenskum kaupskipaútgerðum
vegni vel á Íslandi og erlendis. Vitn-
að er til frétta um að á vegum þeirra
sigli nú 65 kaupskip, öll skráð undir
erlendum fánum. „Það er kaldhæðni
örlaganna að eyþjóð sem byggir alla
sína aðdrætti og útflutning á öfl-
ugum kaupskipaflota skuli ekki vera
með eitt einasta kaupskip skráð hér
á landi,“ segir í ályktuninni.
Í ályktun formannaráðstefnu Far-
manna- og fiskimannasambands Ís-
lands kemur fram að íslenskir far-
menn séu allir erlendir launþegar,
flestir ráðnir til færeyskra útgerða.
Fram kemur það mat FFSÍ að innan
15 ára, eða þann tíma sem tekur nú-
verandi stétt skipstjórnarmanna á
kaupskipum að ná eftirlaunaaldri,
muni íslenskir skipstjórnarmenn
heyra sögunni til.
Hvatt til
stofnunar
skipaskrár
♦♦♦