Morgunblaðið - 30.11.2006, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
NIÐURINN í Varmánni og tístið í fuglunum
glöddu eyrun utandyra þegar Morgunblaðs-
menn heimsóttu handverkstæðið Ásgarð við
Álafossveg 24 í Mosfellsbæ í gær. Innan dyra
var ys og þys og starfsmenn önnum kafnir við
iðju sína. Jólamarkaður Ásgarðs verður hald-
inn næstkomandi laugardag, 2. desember, frá
kl. 12 til 17, og kepptust allir við að ljúka við
sem flesta muni fyrir markaðinn.
Óskar Albertsson, talsmaður þeirra í Ás-
garði, sagði stemninguna fína. „Aðalvertíðin
hjá okkur er í desember þegar jólin nálgast.
Annars er alltaf talsvert rennirí af fólki,“ sagði
Óskar. Oft koma rútur í Álafosskvosina með
ferðamenn. Ullarvörumarkaður Álafoss er
gegnt Ásgarði og ferðafólkið lítur við á báðum
stöðum. Óskar sagði vinnustaðinn mikils virði
fyrir starfsfólk Ásgarðs. „Geta starfsmanna er
misjafnlega mikil en við reynum að laga vinn-
una að hverjum og einum.“
Á jólamarkaðnum verða til sölu leikföng,
listmunir og annað sem starfsmenn hafa búið
til úr viði, ull, skeljum, steinum, beini og leðri.
Einnig verður gestum boðið að kaupa kaffi,
súkkulaði og kökur á vægu verði. Systkinin
KK og Ellen munu koma í heimsókn um tvö-
leytið.
Starfsmenn Ásgarðs hafa lagt áherslu á að
hanna og þróa einföld, sterk og skemmtileg
leikföng sem eiga sér samsvörun í íslenskum
þjóðháttum. Hvort sem um er að ræða sjávar-
útveg, landbúnað, þjóðsögur eða ævintýri.
Þessa sér stað í leikföngunum þar sem ým-
islegt er framleitt sem t.d. tilheyrir fluginu og
sveitinni svo tvö ólík svið séu nefnd. Eins má
sjá virðulega leikfangabíla og dúkkuvagna úr
viði.
Hillurnar í sýningarsalnum, sem einnig er
matsalur, voru næstum farnar að svigna af
fjölbreyttu úrvali listmuna og leikfanga, við-
arskúlptúra og mynda. Allt er þetta unnið úr
náttúrulegum efnum og talsvert lagt á sig til
þess. Náttúrulegir litir eru t.d. fluttir inn dýr-
um dómum frá Svíþjóð og leikföngin eru olíu-
borin með matarolíu. Það þarf því ekki að ótt-
ast eitrunaráhrif þótt þau rati í litla munna.
Lurkar í skúlptúra eru fengnir úr trjám sem
hafa t.d. verið grisjuð úr görðum. Trjábolirnir
þurfa að þorna í tvö ár utandyra áður en þeir
eru færðir inn og hægt að vinna úr þeim.
Starfsmennirnir eru af höfuðborgarsvæð-
inu. Auk þess að vinna í Ásgarði mynda starfs-
menn leikhópinn MAS sem hefur sýnt bæði
hér heima og erlendis. Ásgarður er verndaður
vinnustaður, stofnaður 1993. Þar vinna 28
þroskaheftir einstaklingar og sjö verkstjórar.
Forstöðumaður Ásgarðs er Heimir Þór
Tryggvason.
Listmunagerð og leikfangasmíð
Morgunblaðið/RAX
Vinnufélagar Haukur Sveinsson, Óskar Albertsson og Sigurbjörn Gunnarsson voru í vinnu-
stofu Ásgarðs. Haukur var að vefa armband og Sigurbjörn að vefa jólaklút úr ull.
Handverk Axel Erlingsson var að fægja jólatré sem sagað var út
úr trjálurk. Börkurinn er látinn njóta sín, svo þetta er ekta tré.
Jólamarkaður Ásgarðs
við Álafossveg verður á
laugardaginn kemur
Í HNOTSKURN
»Ásgarður erverndaður vinnu-
staður í Álafosskvos-
inni, stofnaður 1993.
Þar vinna nú 28
þroskaheftir ein-
staklingar og sjö
verkstjórar.
»Handverkið erhaft í hávegum og
allir munir gerðir úr
náttúrulegum efnum.
Leikföng og listmunir
verða til sölu á jóla-
markaðnum nk.
laugardag.
Fjölbreytt Margs konar munir eru gerðir í
Ásgarði, jafnt handunnin leikföng og list-
munir úr náttúrulegum efnum.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
SIGRÚN Björk Jakobsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar, tekur við starfi bæjarstjóra á Akureyri
af Kristjáni Þór Júlíussyni á fyrsta fundi bæj-
arstjórnar á næsta ári, 9. janúar. Kristján Þór,
sem gegnt hefur starfinu í tæpan áratug, er nýr
oddviti sjálfstæðismanna í Norðausturkjör-
dæmi og sest á þing í vor.
Kristján Þór og Sigrún Björk hafa raunar
sætaskipti 9. janúar því Kristján verður forseti
bæjarstjórnar, en var ekki tilbúinn í gær að
segja hve lengi. Sagði þó vel koma til greina að
vera bæjarfulltrúi samhliða þingmennsku.
Sigrún Björk verður bæjarstjóri til vors 2009,
en Samfylkingin skipar bæjarstjóra síðasta ár
kjörtímabilsins skv. samkomulagi meirihluta-
flokkanna frá því sl. vor. Kristján Þór lýsti
ánægju með að Sigrún yrði bæjarstjóri, þegar
ákvörðun sjálfstæðismanna var tilkynnt á
blaðamannafundi í gærmorgun. Sagði hana hafa
mikla reynslu og „við erum að sjálfsögðu stoltir
af því að sjálfstæðismenn skuli eiga þann heiður
að skipa fyrstu konuna sem bæjarstjóra á Akur-
eyri. Það er gríðarlega skemmtilegt og ánægju-
legt“.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Sigrún
Björk það mikinn heiður að verða bæjarstjóri
og kvaðst fagna því sérstaklega að kona tæki við
embættinu. Þegar Sigrún var spurð hvort hún
teldi það mikilvægt svaraði hún: „Í jafnrétt-
isbarbaráttunni skiptir allt máli og ég lít á þetta
sem gott skref í þeirri baráttu. Ég er fyrst og
fremst ánægð vegna þess. Vonandi verður það
ekki mikil frétt í framtíðinni að kona verði bæj-
arstjóri heldur algjörlega sjálfsagður hlutur en
það er ekki orðið enn þannig að ég fagna þessu
gríðarlega.“
Þú varst fyrst kjörin í bæjarstjórn árið 2002.
Það má segja að frami þinn sé skjótur.
„Já, kannski má segja það. Ég hef reynt að
vera heiðarleg og trú sjálfri mér og hef ekki ver-
ið í neinum blekkingaleik um það sem ég stend
fyrir. Mönnum hefur greinilega líkað það vel.“
Er eitthvað sem þú ert sérstaklega ánægð
með af þínum störfum í bæjarstjórn til þessa?
„Já, ég er mjög stolt af stöðunni í menningar-
málum hér á Akureyri. Ég tel að þær áherslu-
breytingar sem við sjálfstæðismenn hófum á
síðasta kjörtímabili hafi heppnast mjög vel, t.d.
hvað varðar rekstur menningarstofnana; það
hvernig þær hafa komið sér á framfæri og
styrkt ímynd bæjarins tel ég eitt af mínum aðal-
afrekum.“
Það er margt framundan, er eitthvað öðru
fremur sem þú ert spennt að takast á við?
„Ég er spennt fyrir öllu. Það er gríðarlega
mikið ábyrgðarstarf að vera bæjarstjóri á Akur-
eyri og ég dreg andann djúpt þegar ég hugsa
um það sem framundan er. Bærinn fer í gegn-
um mjög spennandi tímabil á næstu þremur ár-
um og stór mál á næsta ári verða t.d. skipulags-
mál og uppbygging íþróttamannvirkja, og svo
er menningarhúsið að koma í rekstur.“
Kristján hefur verið sterkur bæjarstjóri.
Heldurðu að erfitt verði að setjast í stólinn á eft-
ir honum?
„Alveg örugglega. Ég á alveg eftir að sanna
mig í þessu starfi en tekst það vonandi. Ég nýt
stuðnings Kristjáns að minnsta kosti fram eftir
ári og vonandi eitthvað lengur. Hann hefur
mikla reynslu og það verður gott að leita í hans
viskubrunn.“
Hvaðan ertu?
„Ég er úr Keflavík. Þetta er góð spurning
vegna þess að margir hafa spurt mig síðustu
daga hvernig í ósköpunum standi á því að Kefl-
víkingur muni setjast hér í stól bæjarstjóra!“
Finnst fólki það eitthvað skrýtið?
„Ég fengið mörg símtöl undanfarna daga og
allir hafa óskað mér velfarnaðar, en sumir hafa
sett spurningarmerki við þetta. En þetta er
bara ein tilviljananna sem eru svo skemmtilegar
í lífinu.“
Þér finnst það varla skipta máli hvort bæjar-
stjóri er innfæddur eður ei?
„Nei, mér finnst það ekki. Ég hef búið á
Akureyri samtals í 11 ár, tel mig vera Akur-
eyring og ætla að vinna þessum bæ vel; maður
étur ekki það sem manni er trúað fyrir. Keflavík
er líka yndislegur bær en ég ákvað að gera
Akureyri að mínum framtíðarbúsetustað og er
ekkert á leiðinni héðan.“
Hefurðu orðið vör við að einhverjir Akur-
eyringar vilji frekar innfæddan bæjarstjóra?
„Ég hef heyrt þær raddir og það hefur ein-
mitt verið gagnrýnt við núverandi meirihluta að
hann sé að mestu skipaður fólki sem fluttist
hingað. En ég held að við höfum öll gefið kost á
okkur í þessa vinnu til þess að vinna að hag
bæjarins.“
Sigrún Björk er gift Jóni Björnssyni, fram-
kvæmdastjóra Lífsvals. Börn þeirra eru
Kamilla Dóra, 10 ára, og Björn Kristinn, 8 ára.
„Gott skref í jafnréttisbaráttunni“
Í HNOTSKURN
»Jón Sveinsson var fyrsti bæjar-stjóri Akureyrar, ráðinn 1919.
Síðan hafa gegnt embættinu Steinn
Steinsen, Magnús Guðjónsson, Bjarni
Einarsson, Helgi H. Bergs, Sigfús
Jónsson, Halldór Jónsson, Jakob
Björnsson og Kristján Þór Júlíusson.
»Kristín Eggertsdóttir á Kroppi íEyjafirði var fyrst kvenna kjörin
í bæjarstjórn Akureyrar, árið 1911.
»Við bæjarstjórnarkosningarnar2002 gerðist það í fyrsta skipti að
konur voru í meirihluta í bæjar-
stjórn.
Sigrún Björk Jakobsdóttir
verður bæjarstjóri í byrjun
næsta árs fyrst kvenna
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stjórar Sigrún Björk Jakobsdóttir og Kristján Þór Júlíusson í gær. „Ég hef reynt að vera heið-
arleg og trú sjálfri mér og hef ekki verið í neinum blekkingarleik um það sem ég stend fyrir.“
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
AKUREYRI