Morgunblaðið - 30.11.2006, Síða 19

Morgunblaðið - 30.11.2006, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 19 AUSTURLAND LANDIÐ TVEIR lögfræðingar í Reykjavík eru um þessar mundir að opna að- stöðu á þremur stöðum úti á landi. Lögefli hefur þegar opnað aðsetur á Ísafirði og í Hveragerði og á næst- unni verður opnað í Keflavík. Ef við- tökur við þessari þjónustu verða góðar er ætlunin að opna sams konar aðstöðu víðar. Héraðsdómslögmennirnir Þuríður Halldórsdóttir og Helga Leifsdóttir hafa báðar áralanga reynslu sem lög- menn fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þær sameina nú krafta sína undir nafninu Lögefli og bjóða nýja tegund þjónustu við íbúa á landsbyggðinni. Þær koma sér upp fastri aðstöðu á þessum þremur stöðum til að byrja með og stefna að því að vera þar til viðtals reglulega tvisvar í viku og oft- ar ef þörf krefur. Leggja þær áherslu á að mikilvægt sé að fólk panti tíma fyrirfram. „Við ætlum að fara til fólksins, þess sem vantar lög- fræðiþjónustu,“ segir Þuríður. Hún segir að upplýsingatæknin geri það mögulegt að veita þessa þjónustu svona dreift. Fartölvan sé í raun vinnutækið og alltaf sé hægt að ná í þær í síma. Koma í veg fyrir ágreining Þuríður og Helga leggja á það áherslu að mikilvægt sé að standa þannig að málum í daglega lífinu að koma í veg fyrir lögfræðileg ágrein- ingsmál, til dæmis með vönduðum skjalafrágangi, samningum og yfir- lýsingum. Nefnir Þuríður kaupmála og erfðaskrár í því efni. Ef lögfræði- leg álitamál komi upp sé um að gera að reyna að ná sáttum og aðstoða þær við sáttagerðir og síðan máls- meðferð fyrir dómi ef á þarf að halda. Þuríður hefur unnið mikið við fjöl- skyldumál, svo sem forsjármál, barnavernd, hjónaskilnaði og sam- búðarslit og erfðarétt. Helga hefur unnið mikið sem réttargæslumaður brotaþola í kynferðisafbrotamálum. Þær hafa einnig unnið að fjölda ann- arra mála og bjóða aðstoð í öllum al- mennum lögmannsstörfum. „Við vonum að þessi reynsla okkar geti komið að gagni og við getum að- stoðað fólk,“ segir Þuríður. Hún bætir því við að fólki finnist oft betra að tala við konur um ýmis mál sem upp koma í daglega lífinu og hún viti ekki til þess að konur séu starfandi sem lögfræðingar á þessum stöðum, að minnsta kosti ekki á Ísafirði og í Hveragerði. Opna aðsetur á þremur stöð- um úti á landi Lögfræðingar nota upplýsingatæknina til að auka þjónustu Helga Leifsdóttir Þuríður Halldórsdóttir Bifröst | Hafnar eru framkvæmdir við nýtt 420 fermetra versl- unarhúsnæði Samkaupa á Bifröst. Verslunin, sem áformað er að verði opnuð í vor, mun koma í stað 70 fermetra verslunar Samkaupa á staðnum og þjóna vaxandi há- skólabyggð. Stjórn háskólans hefur sam- þykkt að stofna sérstakt hlutafélag til undirbúnings byggingu hótels á Bifröst, en viðræður skólans við rekstraraðila Kaffi Bifrastar og fjármögnunaraðila hafa farið fram, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu. Gert er ráð fyrir að það hús tengist elsta húsi stað- arins. Væntanlegt hótel á að sinna þörfum háskólans fyrir aðstöðu fyrir fjarnema, símenntun og ráð- stefnur og er stefnt að því að það verði opnað árið 2008. Félag um bygg- ingu hótels Borgarfjörður | Opnuð hefur verið félagsmiðstöð unglinga í félags- heimilinu Þinghamri á Varmalandi. Björn Bjarki Þorsteinsson, formað- ur tómstundanefndar Borgar- byggðar, opnaði aðstöðuna við at- höfn sl. miðvikudag og afhenti stjórn Nemendafélags Varmalands- skóla gjöf af þessu tilefni. Opnun félagsmiðstöðvarinnar er liður í að bæta félagsaðstöðu ung- linga á starfssvæði Varmalands- skóla og tengja saman skólastarf, íþróttaæfingar og annað tóm- stundastarf, segir á vef Varma- landsskóla. Einnig ætti tilkoma fé- lagsmiðstöðvar að efla enn frekar starf nemendafélags Varmalands- skóla. Nemendur í 6. til 10 bekk geta nýtt sér félagsmiðstöðina síð- degis. Þá verður kvöldopnun í Gauknum, félagsaðstöðu á Bifröst, fléttuð inn í þessa starfsemi. Félagsmiðstöð á Varmalandi Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Greiðfært Óhætt er að segja að íbúar á Mið-Austurlandi muni fagna því ef vegir verða ruddir oftar að vetri til vegna starfsemi álvers Fjarðaáls. Reyðarfjörður | „Í samkomulagi um þessa fjárfestingu á sínum tíma var um það rætt að stjórnvöld myndu styrkja innviði samfélagsins, þannig að það gæti mætt framkvæmdunum og svæðið allt nyti góðs af og gæti nýtt þessi tækifæri,“ sagði Hilmar Sigurbjörnsson, upplýsingafulltrúi Alcoa Fjarðaáls, á kynningarfundi um stöðu Fjarðaálsverkefnisins ný- verið. Ástand og vöntun samgöngu- mannvirkja innan fjórðungsins hafa brunnið mjög á íbúum hans og nú eru sett spurningarmerki við hvern- ig ganga muni með fólksflutninga til og frá vinnu í nýju álveri á Reyð- arfirði að vetrarlagi. „Samgöngumálin hafa mikið verið rædd innan fyrirtækisins að undan- förnu,“ segir Hilmar. „Við ætlum að framleiða ál alla daga ársins á þrí- skiptum vöktum og þurfum að flytja fólk til og frá vinnu. Alcoa hefur allt- af gengið út frá því í sínum áætl- unum að samgöngukerfið á svæðinu yrði bætt. Atvinnusóknarsvæði okk- ar hefur verið skilgreint sem Stöðv- arfjörður, Fáskrúðsfjörður, Egils- staðir, Reyðarfjörður, Eskifjörður og Norðfjörður. Við munum ekki bjóða upp á ferðir til og frá vinnu í aðrar byggðir vegna þess að það er talið ógerlegt yfir vetrarmánuðina, því miður.“ Vegir á hæsta þjónustustig Alcoa Fjarðaál hefur þrýst á um að gerðar væru þær samgöngubæt- ur á svæðinu sem taldar eru alveg nauðsynlegar og sent bréf þess efnis til samgönguráðherra. Þá hefur samgöngunefnd fyrirtækisins hitt þingmenn kjördæmisins. „Það er ekki annað að heyra á samgönguráð- herra nú en ráðast eigi samtímis í göng milli Arnarfjarðar og Dýra- fjarðar og milli Eskifjarðar og Norð- fjarðar og við því ekki lengur númer tvö í röðinni,“ segir Hilmar og bætir við að af hálfu fyrirtækisins hafi mik- il áhersla verið lögð á að vegir yfir Fagradal og á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar verði lagfærðir.“ Hann segir að vegna endurskoðunar samgönguáætlunar hafi Alcoa bent á að færa yrði vegi á svæðinu upp á hæsta þjónustustig hjá Vegagerð- inni þannig að þeir yrðu ruddir nán- ast allan sólarhringinn ef eitthvað væri að færð eða veðri. „Sem þýðir verulega aukin útgjöld hjá Vega- gerðinni og mun betri þjónustu en nú er. Við erum nokkuð bjartsýnir um að það verði, sem og að fá um- bætur á mannvirkjunum sjálfum.“ Á vef samgönguráðuneytis kemur fram að þrenn göng séu nú á und- irbúningsstigi, milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, ný göng í stað Odds- skarðsganga og göng um Óshlíð. Megi gera ráð fyrir að á næstu árum verði að jafnaði varið fjármagni til að unnt verði að vinna að gerð u.þ.b. 3 km jarðganga á ári. Álver kallar á úrbætur Í HNOTSKURN »Alcoa Fjarðaál telur loforðríkisins um að styrkja inn- viði samfélagsins á Austur- landi til að mæta álvers- framkvæmdinni fela í sér umbætur á samgöngu- mannvirkjun og aukna vega- þjónustu. »Fyrirtækið hefur beitt sérfyrir að farið verði í úr- bætur sem fyrst, enda taki ál- verið til starfa á næsta ári. »Aka á hundruðum mannadaglega til og frá vinnu frá þéttbýliskjörnum á Mið- Austurlandi. Vaktir verða þrí- skiptar. „LISTALÍFIÐ á Austurlandi er öfl- ugt,“ segir Svandís Egilsdóttir myndlistarmaður. Hún nefnir Seyð- isfjörð sem dæmi, ásamt metn- aðarfullum sýningum, leikhúsi og tónleikum á Austurlandi undanfarin ár, m.a. kvikmyndahátíðina 700 IS og sýningu fransk/japanska Pokkowa-Pa-leikhússins. „Listalífið hefur ekki verið njörvað niður í fast og harðlokað kerfi. Það er sem óharðnaður leir sem unnt er að móta í hvað sem er. Áhugasamt fólk getur því lagt fram hugmyndir og uppskorið stuðning og jákvæðni í sinn garð.“ Svandís var sýningarstjóri sýn- ingarinnar Dýrið í mér, sem sett var upp um síðustu helgi í gömlu slát- urhúsi á Egilsstöðum. Sýningin fór fram í aflagðri frystigeymslu og er óhætt að segja að þar hafi verið sköpuð ein kraftmesta og frumleg- asta sýningaraðstaða sem sést hefur á Austurlandi síðustu árin. Á Fljóts- dalshéraði hefur verið tekist á um þá ákvörðun bæjarstjórnar að kaupa sláturhúsið, bæði til að eiga þar opna möguleika í nýju miðbæj- arskipulagi og jafnvel til að nýta húsið til menningarstarfsemi. Sagði Soffía Lárusdóttir, forseti bæj- arstjórnar, við opnun sýningarinnar að munurinn á listamönnum og öðru fólki væri að listamenn sæju einatt verðmæti í annars konar hlutum en aðrir. Á sýningunni í slát- urhúsinu kynntu sjö listamenn verk sín, þau Svandís Egilsdóttir, Kristín Scheving, Ingunn Þráinsdóttir, Ólöf Björk Bragadóttir, Agnieszka Sosn- owska, Bjartmar Guðlaugsson og Sigurður Ingólfsson. Sýningin þótti mögnuð, framsækin og vel unnin. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Kraftur Fjöldi fólks sótti sýninguna Dýrið í mér á Egilsstöðum um helgina, þar sem sjö listamenn sýndu í gamalli frystigeymslu aflagðs sláturhúss. Öflug, ófjötruð og opin listsköpun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.