Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 21
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 21
sér um herbergið. Undir börðum
hattsins er örtrefjaklútur sem dreg-
ur í sig ryk, ló, mylsnu, dýrahár og
annað sem sest á gólfið. Síðan er
hægt að skipta um klút þegar þörf er
á því. Þetta er mjög einfalt í notkun,
tveir takkar eru á kúlunni, annar er
rauður til að stoppa og sá græni er til
að stilla tímann sem fólk vill láta ró-
bótinn vinna og það getur verið frá
hálftíma upp í einn og hálfan tíma.“
Gott fyrir hunda
og kattaeigendur
Róbótinn fer um gólfið þvers og
kruss þegar hann vinnur og í hvert
sinn sem hann rekst á eitthvað eins
og borðfót eða vegg, þá snýr hann
við og fer í aðra átt. „Ef það liggur
stigi niður þá þarf að setja til dæmis
Kosturinn er fyrst og fremstsá að fólk getur látið ró-bótinn um að þrífa ryk ogannað á gólfinu heima hjá
sér á meðan það fer að heiman. Eins
er þetta mjög hentugt fyrir aldraða
eða þá sem eiga erfitt með að beygja
sig til að þrífa undir rúmum eða hús-
gögnum,“ segir Valur Marinósson
sem er umboðsmaður fyrir róbót
sem hægt er að tímastilla og láta
moppa gólf á meðan fólk er að heim-
an eða nýtir tímann heima til að gera
eitthvað annað.
„Þetta er mjög einfalt og virkar
þannig að batterísdrifin kúla ýtir
hringlaga hlemmi eða hatti á undan
kústskaft þar fyrir svo róbótinn detti
ekki niður tröppurnar. Róbótinn er
ekki nema 8,5 cm á hæð og kemst því
undir flest húsgögn,“ segir Valur og
bætir við að eigendur moppuróbóta
sem eru með heimilisdýr, hunda eða
ketti, séu sérlega ánægðir því róbót-
inn hreinsar svo vel upp öll dýrahár-
in sem vilja safnast fyrir.
Róbótinn moppar 60 fermetra á
klukkustund með 98% nákvæmni og
hann má nota á parket, flísar og
dúka. Nýjasta útgáfan er endurbætt
að því leyti að nú er hlemmurinn
mýkri sem verður til þess að hann
nær að þrífa alveg út í hornin og fer
líka aðeins upp á gólflistana og tekur
rykið af þeim.
Moppuróbótinn fæst í versl-
ununum Byggt og búið, Nettó, Úr-
vali og Samkaupum og kostar um
fimm þúsund krónur.
Róbót moppar gólfin
Róbót Hann er lítill og léttur róbótinn sem moppar gólfin fyrir fólk.
www.robomop.net
Læknar hafa nú gefið útviðvörun gegn of stórumskömmtum af botoxi ífegrunarskyni, en nýlega
sagði bandaríska læknablaðið frá
því að fjórir einstaklingar hefðu
verið hætt komnir af völdum bo-
toxins. Sérstaklega var fólk varað
við því að þiggja slíkar fegrunar-
aðgerðir frá fólki eða á stofum,
sem ekki hefur til þess næga
þekkingu því brögð væru að því
að alltof stórum skömmtum af efn-
inu væri sprautað í fólk. Á það er
á hinn bóginn bent að ekki sé vit-
að hver sé æskileg skammtastærð,
en rannsóknir hafi þó bent til að
rétt sé að miða við 40 míkróg-
römm fyrir hvert kíló líkamsvigt-
arinnar.
Breskir sérfræðingar hafa bent
á að lög og reglur þurfi að ná yfir
þá sem gera út á botoxið.
Einstaklingarnir fjórir, sem
fengið höfðu banvænan botox-
skammt, lifðu af eftir að hafa
komist undir læknishendur í Atl-
anta í Bandaríkjunum, en lækn-
irinn, sem framkvæmdi fegrunar-
aðgerðirnar, lýsti sig sekan um
lyfjamisnotkun og fékk þriggja
ára fangelsisdóm í kjölfarið. Hann
mun hafa sprautað óblönduðu og
óskráðu botoxi í sjúklinga sína,
efni sem eingöngu er ætlað til
notkunar í tilraunaskyni, en alls
ekki í fólk. Eftir aðgerð þessa
ónefnda læknis fór fólkið að finna
fyrir einkennum á borð við stig-
magnandi þróttleysi, skrýtnum
taugaboðum í andliti, andnauð og
erfiðleikum við að kyngja. Of stór-
ir skammtar af botoxi geta leitt til
dauða, sé ekkert að gert, sagði ný-
lega í netmiðli BBC, þar sem fólk
er jafnframt hvatt til að kynna sér
áhættu af notkun efnisins.
Morgunblaðið/Golli
Í fegurðarskyni Botoxi er sprautað
undir húð til að slétta úr hrukkum.
Botoxið
er vara-
samt
Peningamarka›ssjó›ir eru fjárfestingarsjó›ir skv. lögum nr. 30/2003 um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i.
Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings banka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari fjárfesting
en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem
geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast
í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is.
*Nafnávöxtun í EUR og USD á ársgrundvelli fyrir tímabili› 29/9/06 - 31/10/06.
K a u p t h i n g L i q u i d i t y F u n d s
Ávaxta›u betur
- í fleirri mynt sem flér hentar
Kynntu flér kosti Peningamarka›ssjó›a
KB banka í ISK, USD, EUR og GBP. 5,5%*5,6%*
ávöxtun í evrum ávöxtun í dollurum