Morgunblaðið - 30.11.2006, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 25
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Við leggjum okkur fram.Knarrarvogi 2 / Sími 591 4000 / avis.is
Nýr flugvöllur í Orlando
Bókaðu bílaleigubílinn strax á avis.is
Avis býður farþega velkomna í þjónustu okkar á nýjum áfangastað
Icelandair í Sanford, Orlando Flórída.
Flórída - verð frá 247 USD á viku
m.v. flokk A. Innifalið í verði: ótakmarkaður akstur, tryggingar,
flugvallargjald, 1 tankur af bensíni, 1 aukabílstjóri og skattar.
Sanfordí Flórída
Avis er á
LEIÐSÖGUTÆKI TIL LEIGU
Leigðu GPS leiðsögutæki í bílinn,
fáðu kennslu á það hér heima og
taktu það með þér til útlanda.
Handhægt og mjög einfalt í
notkun.
P
IP
A
R
S
ÍA
6
0
7
7
1
Jólamarkaðirnir eiga rætursínar að rekja til Mið-Evrópu og þessi hefð virðistsameina álfuna betur en ótal
ráðstefnur. Í fjölmörgum Evr-
ópuborgum eru settir upp jólamark-
aðir á torgunum, litlum trékofum er
raðað hlið við hlið í lítil jólaþorp og
þar ríkir samkennd, gleði, kærleikur
og ilmurinn í loftinu er af kanil og
kryddi, fjallavið og heimagerðu sæt-
meti, heitu víni og fallega skreyttum
jólatrjám. Lýsingin kemur frá litlu
trésölubásnum og frá ljósum jóla-
trjánna sem svo aftur glampa í aug-
um eftirvæntingarfullra barnanna.
Jólamarkaðir Evrópu eiga allir
sameiginlegan hinn hlýja, sæta anda
sem svífur yfir vötnum. Jólalögin
óma í bland við hefðbundna tónlist
hvers lands, hið sæta bragð er alls
staðar og gjafir til að bíta í á hverju
strái. Piparkökur, heimatilbúið kon-
fekt, smákökur, eplastrudel og heitt
súkkulaði eða „vin brûlé“ til að ylja
með hendur og hjarta er heldur
aldrei langt undan.
Hinir sögulegu miðbæjarkjarnar
Evrópuborganna sem út af fyrir sig
eru fullir af sjarma, fyllast af enn
meira lífi, litum og ljósi mánuðinn
fyrir jól og hér er sérstaklega gam-
an að gera jólagjafainnkaup. Það
ríkir sannkallaður jólaandi á mörk-
uðunum, menn rölta í rólegheitum á
milli sölubásanna sem hafa á boð-
stólum alls kyns handgerða muni
tengda hátíðinni og jólaskraut, sem
og aðra fallega hluti sem gaman er
að gefa eða kaupa handa sjálfum sér.
Munirnir og maturinn sem til sölu er
endurspegla vitanlega handverks-
og matarmenningu hvers lands og
svæðis þar sem viðkomandi mark-
aður er.
Bolzano-markaðurinn vinsæll
Einn vinsælasti og fallegasti jóla-
markaðurinn í Evrópu er án efa í
Bolzano í Suður-Týról á Ítalíu.
Þangað streyma gestir í þúsundavís
í desember ár hvert til að upplifa
hina einstöku stemningu og bragða á
ómótstæðilegum sætindum héraðs-
ins – sacher-tertu, strüdel, krapfen
o.fl., en einnig til að kaupa jólagjafir.
Vandaðir handgerðir munir frá
svæðinu eru frægir um víða veröld
og eru jötusenurnar „presepio“
(Jesú í jötunni, María og Jósep) gott
dæmi um slíkt, sem og hlutir úr ker-
amiki, skreytt gler, blúndur, út-
saumaðir dúkar, litrík kerti, hefð-
bundin leikföng frá Val Gardena-
dalnum, húfur og aðrir nytja- og
skrautmunir úr þæfðri ull. Á mark-
aðnum er einnig að finna hnossgæti
og annan varning sem er einkenn-
andi fyrir önnur héruð Ítalíu.
Bolzano hefur það umfram marg-
ar borgir að vera við rætur Dóló-
mítafjallanna og á veturna er varla
hægt að hugsa sér jólalegra um-
hverfi. Manni fyndist því það eðlileg-
asta í heimi að heilagur Nikulás
kæmi brunandi niður fjallshlíðina
fyrir ofan borgina á hreindýrasleð-
anum sínum til að taka þátt í jóla-
gleðinni. Hver veit nema hann geri
það!
Jólamarkaðir í S-Týról
Bolzano 1. des.–23. des.
Merano 1. des.–30. des.
Bressanone 1. des.–6. jan.
Brunico 1. des.–6. jan.
Vipiteno 1. des.–7. jan.
Aðrir spennandi
jólamarkaðir í Evrópu:
Vín – Þessi sögulegi markaður hefst
um miðjan nóvember á Ráðhústorg-
inu.
Dresden – Elsti jólamarkaður í
Þýskalandi. Hann er kenndur við
Stollen-jólabrauðið þýska og Stol-
len-hátíð er þar 7. des.
Kaupmannahöfn – 15. nóv.–30. des. –
Ævinýralegur jólamarkaður er í Tí-
volígarði borgarinnar og í fyrra sótti
ein milljón manns garðinn heim á
þessum tíma.
Strassborg – 29. nóv.–24. des. Einn
stærsti jólamarkaður í Frakklandi
og sá elsti, beint framan við dóm-
kirkjuna í Strassborg.
Brussel 2. des.–1. jan. – Sjarmerandi
jólamarkaður á St. Catherine-torgi í
hjarta Brussel, steinsnar frá hinu
gullfallega aðaltorgi Grand Place.
Stokkhólmur – Jólamarkaður
sænska höfuðstaðarins er á Stóra-
torgi í gamla bænum. Fallegur
markaður í hjarta gamla bæjarins.
Berlín – Í borginni eru um 50 jóla-
markaðir en stærstir eru mark-
aðirnir á Unter den Linden, á Alex-
andertorgi og við Gedãchtniskirkju.
Ævintýralegir
jólamarkaðir
Andrúmsloftið fær á sig mýkri blæ og torgin lifna við.
Kuldinn er stingandi en stórfengleg ljósadýrð og ljúfar
tónlistarhendingar lífga upp á stemninguna. Hanna
Friðriksdóttir segir tíma jólamarkaðanna runninn upp.
Jólaandi Jólamarkaðir víða í Evrópu sem eiga allir sameiginlegan hinn
hlýja, sæta anda sem svífur yfir vötnum nú þegar líða fer að hátíðinni miklu.
smáauglýsingar mbl.is