Morgunblaðið - 30.11.2006, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Katrín MargrétGuðjónsdóttir
fæddist í Tóarseli í
Breiðdal 10. ágúst
1912. Hún lést á
líknardeild LSH á
Landakoti að kvöldi
þriðjudagsins 21.
nóvember síðastlið-
ins. Foreldrar
hennar voru Jónína
Sigurbjörg Eiríks-
dóttir frá Búlands-
nesi við Djúpavog
og Guðjón Jónsson
frá Flögu í Skrið-
dal. Systkini Katrínar eru Eiríkur
Karl, f. 1903, d. 1972, Guðrún
Rannveig, f. 1905, d. 1938, Borg-
hildur, f. 1907, d. 1990, Hansína, f.
1909, Guðmundur, f. 1911, d.
2006, Sigurbjörg, f. 1914, Jónína
Ásgerður, f. 1915, Halldór Óskar,
f. 1918, d. 1927 og Unnur, f. 1921.
Fósturbróðir þeirra er Óskar
Jónsson frá Þorvaldsstöðum.
Katrín giftist 1936 Helga Sigur-
vini Sigurjónssyni frá Hafnar-
firði, f. 1911, d. 1991. Hann var
sonur Jónfríðar Halldórsdóttur
frá Grundum í Kollsvík við Pat-
reksfjörð og Sigurjóns Gunnars-
sonar frá Gunnarsbæ í Hafnar-
firði. Börn Katrínar og Helga eru:
1) Örn Óskar, f. 1936, maki Svana
Sigmundur Geir og Hans Aðal-
steinn. Kjördóttir Helga er Guð-
rún, dóttir Stefaníu, og fóstur-
dóttir þeirra er Anna Vilborg
Ómarsdóttir. c) Oddný, f. 1962,
maki Sigurgeir Ólafsson. Sonur
þeirra er Ólafur. Dóttir Oddnýjar
fyrir hjónaband er Kristjana
Helga, maki Helgi Ragnar Guð-
mundsson og dætur þeirra eru
Dagmar Silja, Móey og Dalía
Máney. 3) Stefanía Dagný, f. 1941,
maki Árni Ragnar Guðmundsson,
f. 1935. Börn þeirra eru: a) Ragn-
ar, f. 1959, maki Birgitte Bæk
Árnason. b) Katrín Helga, f. 1963,
maki Haldor Gunnar Haldorsen.
Þeirra börn eru Hrafnhildur og
Árni Stefán. c) Árdís, f. 1965,
maki Ásbjörn Ólafur Ásbjörnsson.
Börn þeirra eru Stefanía Kolbrún
og Ásbjörn Árni. 4) Guðjón, f.
1943, maki Helga Sigríður
Jóhannsdóttir, f. 1943. Börn
þeirra: a) Jóhann, f. 1963, í sam-
búð með Rakel Kristinsdóttur. b)
Kjartan, f. 1972, í sambúð með
Söndru Maríu Polanski Steinars-
dóttur. c) Katrín Margrét, f. 1974,
maki Pétur Arason, börn þeirra
eru Sunneva Rán, Þórunn Salka
og Pétur Ari. d) Svanborg, f.
1978, í sambúð með Niels Smede-
gaard. Dóttir Svanborgar úr fyrri
sambúð er Rakel Eva Hove.
Katrín var í vist á yngri árum
og starfaði einnig við þrif og eld-
hússtörf um tíma, en fyrst og
fremst var hún húsmóðir.
Katrín verður jarðsungin frá
Neskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
Jónsdóttir, f. 1939.
Börn þeirra eru: a)
Anna, f. 1959, maki
Egill Guðnason.
Börn þeirra eru;
Örn, maki Hafdís
Búadóttir og eiga
þau Hafþór Örn og
Heiði Söru, Ragnar
og Margrét, maki
Guðjón B. Tómasson
og eiga þau nýfædd-
an son. b) Halldóra
Hafdís, f. 1962, maki
Friðrik Friðriksson.
Dætur þeirra eru
Heiðrún Arna og Svana María. c)
Jón Örn, f. 1966, maki Nína Borg
Reynisdóttir. Börn þeirra eru
Reynir Ver, Ólöf Eir og Arna Ósk.
d) Helga Margrét, f. 1971, maki
Helgi Hauksson. Dóttir þeirra er
Hafdís Erla en dóttir Helgu og
Hallgríms Kvaran er Anna Kvar-
an. 2) Hrafn, f. 1939, maki Sigríð-
ur Helga Ólafsdóttir, f. 1941.
Börn þeirra eru: a) Katrín, f.
1959, maki Stefán Þór Sigurðs-
son. Sonur Katrínar og Gylfa
Hilmissonar er Snorri Már. b)
Helgi, f. 1961, maki Stefanía
Hjartardóttir. Synir Helga og Sig-
ríðar Sigmundsdóttur eru: Hrafn,
maki Sigríður Elísabet Benedikts-
dóttir og sonur þeirra er Helgi,
Elskuleg tengdamóðir mín er nú
látin. Hún var ein af hvunndags-
hetjum þessa lands. Hún fæddist
snemma á síðustu öld og hefur því lif-
að við miklar breytingar í þjóðfélagi
okkar, flestar til framfara en henni
þóttu þær nú ekki allar til góðs. Katr-
ín bjó í sinni eigin íbúð fram undir það
síðasta og sá um sig sjálf. Hún var
alltaf vel til höfð og fín. Litlu Rakel
okkar sem á heima í Danmörku þótti
það mjög fínt þegar hún heimsótti
langömmu sína um síðustu jól að
langamma var með naglalakk, það
var toppurinn. Kvöldið áður en hún
átti að leggjast inn á sjúkrahúsið
seinni partinn í sumar var hennar að-
aláhyggjuefni að hún væri ekki nógu
góð um hárið og sem betur fer gat ég
bjargað því.
Já, elsku Katrín, margs er að minn-
ast, ég veit að um þig gæti ég skrifað
margar blaðsíður, en ég veit að það
væri þér ekki til þægðar. Mín fyrsta
minning er þegar ég aðeins sextán
ára gömul kom með Guðjóni syni þín-
um inn á heimili ykkar Helga, ég ætl-
aði að reyna að komast óséð inn til
hans, en var gripin glóðvolg og boðið
til stofu upp á mjólk og kökur. Hans-
ína systir þín var í heimsókn hjá þér
og ekki leið á löngu þar til að þið syst-
ur náðuð ykkur á strik með glens og
spaug eins og ykkur einum var lagið,
svo feimnu stelpunni þótti nóg um.
En það var ekki allt búið, þegar tími
var til að fara heim varð mér á að
hneppa lopapeysunni vitlaust og
heyrðist í þér „hva stelpa, ertu strax
farin að taka framhjá“.
Ég komst fljótt að því að hjarta-
rými var mikið hjá ykkur Helga. Þið
voruð bæði ekki aðeins góðir tengda-
foreldrar, heldur einnig góðir vinir
mínir sem aldrei bar skugga á. Ykkur
munaði ekkert um að bjóða mig vel-
komna inn á heimili ykkar, þá ófríska
að fyrsta barninu, þótt önnur fjöl-
skylda byggi hjá ykkur. Já margs er
að minnast, það var nú fjör yfir slát-
urkeppunum í gamla daga, þá fékk nú
ýmislegt að fjúka. Þú elskaðir að tala
um Breiðdalinn sem fóstraði þig
fyrstu tuttugu æviárin og margar
góðar sögur sagðir þú okkur öllum frá
uppvexti þínum og systkina þinna. Á
seinni árum hafði Guðjón það fyrir
reglu þegar hann vegna vinnu sinnar
ók um Breiðdalinn að hringja í þig og
það þótti þér vænt um. Þú sagðir mér
frá því þegar þú sem ung kona komst
til Reykjavíkur og varst í vist hjá
góðu fólki, og hvernig þú kynntist
Helga.
Þeir eru ófáir sokkarnir og vett-
lingarnir sem barnabörnin og barna-
barnabörnin og nú barnabarnabarna-
börnin hafa þegið úr hendi þinni, svo
ekki sé talað um hekluðu teppin sem
við eigum öll eftir þig og nú síðast
bangsarnir og litlu hundarnir sem þú,
orðin nærri blind, varst að prjóna í
Þorraseli. Enda er það áhyggjuefni
hjá yngstu kynslóðinnni hver eigi nú
að prjóna á þau.
Það er söknuður í huga okkar sem
syrgjum góða konu sem aldrei mikl-
aðist af verkum sínum, en átti alltaf til
hrós handa öðrum.
Elsku Katrín, takk fyrir allt, ég veit
að nú ert þú komin til ástvinarins og
saman vakið þið yfir okkur öllum.
Þín tengdadóttir
Helga S. Jóhannsdóttir.
Amma mín var einstök kona, hún
deildi lífsgleði og ástríki með því fólki
sem var samferða henni á lífsleiðinni.
Við tókum oft tal saman og höfðum
bæði gagn og gaman af, og mikið var
tíminn fljótur að líða.
Mannleg samskipti og hannyrðir
voru hennar líf og yndi, fram á síðasta
dag var hún að hugsa fyrir því hvern-
ig hún gæti glatt aðra með hannyrð-
um sínum.
Hún var ótrúlega iðin, umhyggju-
söm og glaðlynd. Hún fylgdist vel
með öllu og okkur öllum. Öll þjóðleg
málefni voru meðal áhugamála henn-
ar.
Amma mín átti góða ævi með afa,
börnunum þeirra og barnabörnum
sem öll nutu návistar hennar ríku-
lega.
Hlýjar og bjartar eru minningar
mínar og fjölskyldu minnar um góða
og skemmtilega ömmu sem nú er lát-
in 94 ára að aldri.
Mér himneskt ljós í hjarta skín
í hvert sinn, er ég græt,
en drottinn telur tárin mín –
ég trúi’ og huggast læt.
(Kristján Jónsson.)
Katrín Hrafnsdóttir
og fjölskylda.
Elsku amma mín, Katrín Margrét
Guðjónsdóttir, lést á líknardeild
Landspítalans að kvöldi þriðjudags-
ins 21. nóvember síðastliðins 94 ára að
aldri. Hún átti stóran hluta af mínu
hjarta og ég sakna hennar sárt.
Amma fæddist í Tóarseli í Breið-
dal, sú sjötta í röð 10 systkina. Hún
var fyrsta barn langömmu og langafa
sem fæddist í Tóarseli, en þangað
fluttu þau frá Borg í Skriðdal. Hún
ólst upp við ástríki hjá foreldrum sín-
um og Halldóru, móðursystur lang-
afa, sem var þeim systkinum sem
amma.
Amma talaði oft um æsku sína, hve
kátt var á hjalla hjá þeim börnunum
og hún elskaði dalinn sinn og sveitina.
Hún var alin upp við nægjusemi og
snyrtimennsku og þau börnin skorti
ekkert þótt stundum hafi verið
Katrín Margrét
Guðjónsdóttir
✝
Systir okkar og mágkona,
KRISTNÝ ÓLAFSDÓTTIR,
(Nýja í Gíslholti),
Vestmannaeyjum,
sem lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja föstudaginn
24. nóvember, verður jarðsett frá Landakirkju laug-
ardaginn 2. desember nk. kl. 14.00.
Fyrir hönd vandamanna,
Sigríður Ólafsdóttir, Tryggvi Sigurðsson,
Guðjón Ólafsson, Hólmfríður Ólafsdóttir,
Jón Ólafur Vigfússon, Selma Pálsdóttir,
Nanna Guðjónsdóttir
og aðrir ættingjar.
✝
Elskuleg konan mín,
INGIBJÖRG SÓFUSDÓTTIR,
Köldukinn 13,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi þriðjudaginn 28. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Gunnar Guðmundsson.
✝
Okkar ástkæri vinur, faðir, tengdafaðir, bróðir og
mágur,
GUNNAR M. SIGURÐSSON
(Gunni Sig.)
starfsmaður Vífilfells,
Álfaskeiði 76,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju á
morgun, föstudaginn 1. desember, kl. 13.00.
Aðalbjörg Sigþórsdóttir,
Sigurður Örn Gunnarsson, Sif Heiða Guðmundsdóttir,
Hilmar Örn Gunnarsson, Ólöf Jónsdóttir,
Aðalbjörg Gunnarsdóttir, Höskuldur Þór Höskuldsson,
Sigríður Ósk Zoëga Sig., Guðmundur Smári Tómasson.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN ELSA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Húnabraut 20,
Blönduósi,
lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi laugar-
daginn 25. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju laugar-
daginn 2. desember kl. 14.00.
Hallbjörn Reynir Kristjánsson,
Kristján Þór Hallbjörnsson, Hanna Þórunn Skúladóttir,
Margrét Hallbjörnsdóttir, Kristján Kristófersson,
Magnús Bergmann Hallbjörnsson, Vigdís Thordersen,
Hallbjörn Reynir Hallbjörnsson, Birna Bjarnarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Minn elskulegi faðir, tengdafaðir og afi,
ÞORKELL GUNNAR SIGURBJÖRNSSON,
Sigtúni 29,
Reykjavík,
var af englum himins borinn inn í dýrð Drottins er
himinsins hlið opnuðust fyrir honum þegar hann
andaðist á líknardeild Landakotsspítala að morgni
þriðjudagsins 28. nóvember.
Útför hans verður gerð frá Hallgrímskirkju föstudaginn 8. desember
kl. 13:00.
Þeim sem vilja heiðra minningu hans er bent á Biblíusjóð Gídeonfé-
lagsins, sími 562 1870 og uppbyggingu æskulýðsmiðstöðvar KFUM í
Vatnaskógi, sími 588 8899.
Sigurbjörn Þorkelsson, Laufey G. Geirlaugsdóttir,
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson,
Geirlaugur Ingi Sigurbjörnsson,
Páll Steinar Sigurbjörnsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og
langamma,
MARTHA KRISTJÁNSSON,
Brúnastekk 2,
Reykjavík.
sem andaðist fimmtudaginn 23. þ.m. verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. desem-
ber kl 13.00
Blóm eru afþökkuð en þeir sem vilja minnast hennar eru vinsamlegast beðnir
að láta Styrktarsjóð Fóstbræðra, í síma 565 7253, njóta þess.
Vala Kristjánsson, Pétur H. Snæland,
Brynja Kristjánsson, Óskar Sigurðsson,
Hedwig Pulides,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi,
ÖRN STEINAR ÁSBJARNARSON,
Þorgrímsstöðum,
verður jarðsunginn frá Tjarnarkirkju, Vatnsnesi,
laugardaginn 2. desember kl. 14:00.
Kristín Guðjónsdóttir,
Ásbjörn Guðmundsson,
Þorbjörg Ásbjarnardóttir, J. Óskar Sigurbjörnsson,
Margrét Ásbjarnardóttir, Þorvaldur Kristjánsson,
Ásbjörn, Alexander og Þorvaldur Örn.