Morgunblaðið - 30.11.2006, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 39
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga.
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu
verði. Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Geymum
hjólhýsi, fjallabíla og fleira. Húsn. er
loftræst, upphitað og vaktað.
Stafnhús ehf.,
símar 862 1936 - 899 1128.
Geymslur
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir og
endurnýjun raflagna.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025
lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is
Bílar
Til sölu vegna veðurs Dodge
RAM 1500 árg. 2003, ekinn 84 þ. km,
næsta skoðun 2007. HEMI Magnum
V8-5.7 l, 345 hestöfl. Heilsársdekk á
20” krómfelgum, leður, geislaspilari
og DVD spilari með tveimur þráðlaus-
um heyrnartólum. Bíllinn er skráður 6
manna, pallhús og vetrardekk á 17”
felgum fylgja. Verð 2.640 þ. Nánari
upplýsingar veitir Ólafur, or@os.is.
Athugið að nýjasti veðurhaunkurinn,
Hálfdán, hefur setið í bílnum!
Verðhrun á bílum!
Nýlegir bílar frá öllum helstu fram-
leiðendum allt að 30% undir mar-
kaðsverði. Bestu kaupin valin úr 3 m.
nýrra og nýlegra bíla í USA og
Evrópu. Íslensk áb. og bílal. 30 ára
traust innflutningsfyrirtæki. Fáðu be-
tra tilboð í síma 552 2000 eða á
www.islandus.com.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið,
Subaru Impreza 2006, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Mótorhjól JÓLATILBOÐ
Eigum eftir nokkrar vespur 50cc 4-
gengis í 3 litum. Hjálmur fylgir 149 þ.
Samsettar og götuskráðar. Einnig eru
hjólin fáanleg ósamsett og óskráð á
119 þ.. Hjálmur fylgir. Þú setur þær
saman sjálfur og getur fengið leið-
sögn ef með þarf.
Vélasport
Sölusímar 578 2233 og 845 5999.
Þjónusta og viðgerðir
Sími 822 9944.
MÓTORHJÓL
Hippi 250 cc, verð 395 þús. með
götuskráningu, 3 litir.
Racer 50 cc, verð 245 þús. með
götuskráningu, 3 litir.
Dirt Bike (Enduro) 50 cc, verð 188
þús. með götuskráningu, 2 litir.
Vélasport
Sölusímar 578 2233 og 845 5999.
Þjónusta og viðgerðir
Sími 822 9944.
Til sölu Hyundai Accent 1500
árg. ‘98, ek. 82 þús., Sk. 07, sjálfsk.
rafm. í rúðum. Lítur mjög vel út. Verð
170 þús. Uppl. í síma 847 9650.
Bílar aukahlutir
plexiform.is, Dugguvogi 11. Nýtt
útlit á bílinn, saumum og pöntum
áklæði úr leðri í flesta bíla, sport-
legt útlit ef óskað er. Aftursæti
er hægt að breyta í stíl við sport-
stóla. Uppl. í síma 555 3344.
Óska eftir
Kaupi jazzplötur (lp). Kaupi vinyl-
plötur (lp, 45). Borga betur en aðrir,
helst jazz en annað kemur til greina.
Kaupi líka stærri söfn. Sími 699 3014.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Smáauglýsingar
sími 569 1100
TÍMARITIÐ Gestgjafinn fagnar 25
ára afmæli um þessar mundir og
býður því landsmönnum til veislu
föstudaginn 1. desember.
Veislan verður haldin í 9 matvöru-
verslunum í Reykjavík, á Selfossi og
Akureyri og öllum Íslendingum er
boðið.
Afmælisfagnaðurinn byrjar
klukkan 15 og stendur á meðan veit-
ingarnar duga. Boðið er upp á ljúf-
fengt hreindýrapaté, sem Úlfar
Finnbjörnsson býr til, og konfekt frá
Nóa Siríusi. Daginn áður, eða 30.
nóvember, kemur jólablað Gestgjaf-
ans í verslanir með fjölmörgum upp-
skriftum að jólamatnum. Blaðið er
188 síður að stærð.
Afmælisveislan verður föstudag-
inn 1. desember kl. 15, í þessum
verslunum:
Hagkaupum, Smáralind, Kringl-
unni og Skeifunni
Nettó, Mjódd og Akureyri
Nóatúni, Grafarholti, Nóatúni og
Selfossi
Fjarðarkaupum, Hafnarfirði
25 ára
afmæli
Gestgjafans
FRÉTTIR
2,2 hektara
landfylling
Í GREIN okkar Bjarna Dags Jóns-
sonar um landfyllingu á Seltjarn-
arnesi „Bónus á leið af Seltjarn-
arnesi“, sem birtist í Morgunblaðinu
í gær, er meinleg villa. Þar er talað
um 22 hektara landfyllingu, á að
vera 2,2 hektarar.
Arnþór Helgason.
Fjórar söngkonur
Í GREIN í Morgunblaðinu í gær um
aldarminningu sr. Garðars Þor-
steinssonar var mishermt að þrjár
söngkonur úr Kór Hafnarfjarð-
arkirkju frá tíma sr. Garðars myndu
syngja í hátíðarmessu í Hafnarfjarð-
arkirkju nk. sunnudag. Hið rétta er
að þær eru fjórar, nafn Guðnýjar
Árnadóttur féll því miður niður.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
LEIÐRÉTT
HÁTÍÐARATHÖFN í kapellu Há-
skóla Íslands fer fram í dag,
fimmtudaginn 30. nóvember, eftir
gagngera endurnýjun kapellunnar.
Biskup Íslands Karl Sigurbjörns-
son mun af þessu tilefni syngja
messu. Organisti verður Hörður
Áskelsson söngmálastjóri og
Kvennakór Háskóla Íslands undir
stjórn Margrétar Bóasdóttur leiðir
safnaðarsöng. Athöfnin hefst kl. 12.
„Kapella Háskóla Íslands hefur á
yfirstandandi hausti hlotið gagn-
gera endurnýjun sem miðað hefur
að því að færa hana til upprunalegs
útlits en kapellan þótti á sínum tíma
einstaklega fögur.
Við athöfnina verða tekin í notk-
un kaleikur og patína sem ásamt
hökli eru gjafir frá afkomendum sr.
Jónasar Jónassonar frá Hrafnagili
en nú eru 150 ár liðin frá fæðingu
hans,“ segir í tilkynningu.
Háskólakapellan var vígð sunnu-
daginn 16. júní 1940, daginn áður
en háskólabyggingin sjálf var vígð
og raunar hófst sjálf vígsluathöfn
háskólabyggingarinnar með guðs-
þjónustu í kapellunni. Guðjón Sam-
úelsson húsameistari réð útliti kap-
ellunnar og var leitast við að hafa
allt sem vandaðast innan hennar.
Kapella HÍ
opnuð á ný með
helgiathöfn
NÚ ER jóla-
mjólkin kom-
in aftur á
markað um
land allt og af
því tilefni hef-
ur vefurinn
jolamjolk.is
verið opn-
aður. Á vefn-
um er að finna ýmislegt efni tengt
jólunum, s.s. spurningaleik með
glæsilegum verðlaunum, litabók
fyrir yngstu börnin, jólauppskriftir,
rafræn jólakort og ýmislegt um
jólasveinana.
Frá 1. til 24. desember verður á
síðunni jóladagatal með opn-
anlegum gluggum fyrir yngstu
börnin.
Vefurinn
jolamjolk.is
opnaður
HALLDÓRA Arnórsdóttir hefur
opnað verslunina Kvenlegar listir í
Hlíðasmára 15 í Kópavogi.
Nafnið er fengið frá sr. Sveini
Ólafssyni presti í Vallarnesi á Hér-
aði. Hann orti árið 1654 heilræða-
kvæði til Guðríðar Gísladóttur um
þær kvenlegu listir, sem hún yrði
að nema áður en hún giftist. „Bið
ég að þú lærir bestu hannyrðir,“
kvað klerkurinn.
Í Kvenlegum listum er fjölbreytt
úrval af flestu því sem til þarf til
útsaums, meðal annars garn úr
bómull, ull og silki. Mikið úrval er
af bókum og blöðum til útsaums,
frá meðal annars Inspirations og
Country Bumpkin. Að auki fæst
prjónagarn frá hinum þekkta
danska hönnuði Marianne Isager,
ásamt uppskriftum hennar. Einnig
er í versluninni að finna hönnun frá
Helgu Isager, sem er ungur og
upprennandi prjónahönnuður. Þá
verður boðið upp á nýjungar í
þrykki, úrval af mismunandi
þrykkilitum og -festum sem gefa
spennandi áferð.
„Í búðinni er góð vinnuaðstaða
og þar með góð aðstaða til nám-
skeiðahalds. Því er hægt að koma á
námskeið í Kvenlegum listum í öllu
því sem í boði er í búðinni, það er í
útsaumi, prjóni og þrykki. Í versl-
uninni er góð aðstaða til að setjast
niður, fá sér kaffi og skoða gott úr-
val af bókum og blöðum um allra
handanna handverk,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Verslunin
Kvenlegar
listir opnuð í
Kópavogi
Konurnar í Kvenlegum listum Erla Hrönn Sigurðardóttir, textílkennari,
til vinstri, og Halldóra Arnórsdóttir, eigandi verslunarinnar.
ELDASKÁLINN, sem selur inn-
réttingar í eldhús, baðherbergi og
svefnherbergi, flutti nýlega úr
Brautarholti 3 í Ármúla 15. Fyr-
irtækið var stofnað fyrir 25 árum en
í Eldaskálanum hafa menn fengið að
kynnast innréttingunum frá danska
fyrirtækinu Invita. Í Eldaskálanum
er lögð áhersla á persónulegt eldhús
og gæði og eru Invita-innrétting-
arnar með 20 ára ábyrgð, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Eldaskálinn var fyrst á Grens-
ásvegi en hefur verið í 20 ár í Braut-
arholti. Húsnæðið í Ármúlanum er
mun stærra en í Brautarholti og
leiðir það til þess að hægt er að
leggja meiri áherslu á að sýna eld-
húsin, baðherbergisinnréttingar og
rennihurðir fyrir svefnherberg-
isskápa en gert hefur verið.
Auk innréttinga eru seld ítölsk og
þýsk ljós í Eldaskálanum sem er í
samvinnu við ýmsa aðila varðandi
sölu á vönduðum heimilistækjum,
gólfefnum, hreinlætistækjum, hús-
gögnum og öðru sem þarf við upp-
byggingu heimilisins.
Eldaskálinn flytur í Ármúla 15
Nýr Eldaskáli Erlingur Friðriksson (t.h.), eigandi Eldaskálans, og Egill
Sveinbjörnsson sölumaður, við rauða háglansinnréttingu.