Morgunblaðið - 30.11.2006, Síða 46

Morgunblaðið - 30.11.2006, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Pulse kl. 8 B.i. 16 ára Casino Royale kl. 5, 8 og 10.30 B.i. 14 ára Casino Royale LÚXUS kl. 5 og 8 Borat kl. 6, 8 og 10 B.i. 12 ára Mýrin kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 12 ára Open Season m.ensku.tali kl. 4 og 6 Skógarstríð m.ísl.tali kl. 4 Casino Royale kl. 6 og 9 B.i. 14 ára Borat kl. 6 og 10 Síðust sýningar B.i. 12 ára Open Season m.ensku tali kl. 8 Síðasta sýning m/ensku tali Sími - 564 0000Sími - 462 3500 Þeir eru að fylgjast með þér Þeir eru að elta þig Horfðu í augun á þeim Og þú ert orðinn sýktur Sjáðu eina ógnvænlegustu mynd ársins óklippta í bíó ...ef þú þorir! M I Ð A S A L A Í S M Á R A B Í Ó O G R E G N B O G A N N “Besta Bond myndin í áraraðir.„ eeee V.J.V. Topp5.is “Besta Bond myndin frá upphafi...„ eeee Þ.Þ. Fbl. “Ein besta myndin frá upphafi... „ eeee S.V. Mbl. M.M.J. Kvikmyndir.com eeee Blaðið Textílvinnustofa Katrínar ogStefáns, Hlaðbæ 9, Reykjavík verður opin næstu þrjár helgar kl. 14–19. Unnið er með vaxteikningu (batik) sem er útfærð í myndverk- um með þjóðlegu ívafi og fatnaði. Það nýjasta frá vinnustofunni eru borðdúkar í ýmsum stærðum og vesti úr ull og silki sem þæft er saman. Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Glæpakvöld Hins íslenska glæpa-félags er á Grand Rokk í kvöld kl. 20.30. Höfundar 5 nýútkominna glæpasagna lesa úr verkum sínum: Páll Kr. Pálsson (Farþeginn), Stef- án Máni (Skipið), Steinar Bragi (Hið stórfenglega leyndarmál heimsins), Yrsa Sigurðardóttir (Sér grefur gröf) og Ævar Örn Jósepsson (Sá yðar sem syndlaus er). Aðventuguðsþjónustan verðurlaugardaginn 2. desember nk. í St. John’s-kirkju á horninu á Princes Street og Lothian Road í Edinborg. Guðsþjónustan hefst klukkan 14 en að henni lokinni verður messukaffi. Prestar eru sr. Sigurður Arnarson frá Lond- on og sr. Sveinbjörn Bjarnason frá Tomintoul í Skotlandi. Edda Hrund Harðardóttir sér um söng og er söngfólk beðið að hafa samband við hana. Stjórnin býður upp á heitt súkkulaði, kaffi og te. Kirkjugestir eru beðnir að koma með kaffibrauð í hlaðborð ef þeir geta. St. John’s er við vesturenda Princes Street-garðsins, aðeins nokkurra mínútna göngu frá brautar- og stætóstöðvum. Í kjallara kirkjunnar er jóla- markaður, en í Castle Street er útimarkaður. Í garðinum er upplýst jólatré frá Noregi, skautasvell og ýmislegt annað til skemmtunar. www.edinburghschristmas.co.uk. Tónlist Café París | DJ Lucky spilar soul funk og reggí frá kl. 21.30–01. Café Rosenberg | Halli Reynis verður 40 ára hinn 1. des. og ætlar að því tilefni að halda tónleika á Café Rosenberg og fagna um leið sínum 7. geisladiski sem heitir Fjögurra manna far. Rás 2 mun senda beint út frá tónleikunum. Grafarvogskirkja | Kammerkórinn Vox academica flytur þætti úr Messías e. Händ- el og Magnificat e. Bach í Grafarvogskirkju föstudaginn 15. desember kl. 20. Ásamt kórnum koma fram 5 einsöngvarar og hljómsveitin Jón Leifs camerata. Stjórn- andi er Hákon Leifsson. Miðaverð 3.000/ 2.500 í forsölu. Sími 899 7579/ 864 5658. Salurinn, Kópavogi | Föstudagur 1. desem- ber kl. 20: Sigrún Eðvaldsdóttir, Gunnar Guðbjörnsson og Jónas Ingimundarson syngja og leika einsöngslög, kórlög og róm- önsur fyrir fiðlu og píanó eftir Árna Björns- son. Miðaverð: 2.000 kr. í síma 570 0400 og á www.salurinn.is. Myndlist Anima gallerí | Helgi Þorgils Friðjónsson og Einar Falur Ingólfsson Portrett af stað. Til 2. des. Opið þriðjudag–laugardag Kl. 13– 17. Art-Iceland.com | Gunnar S. Magnússon og Álfheiður Ólafsdóttir sýna verk sín af hjartans list. Opið er frá 12–18 virka daga og 12–16 á laugardögum. Artótek Grófarhúsi | Anna Hallin mynd- listarmaður sýnir teikningar og myndband á Reykjavíkurtorgi í Borgarbókasafni Tryggvagötu 15. Nánar á www.artotek.is. Café 17 (verslunin 17) | Mæja sýnir 20 ný málverk, flest eru lítil en hver mynd er ævintýri út af fyrir sig. Allir velkomnir. Café Karólína | Hanna Hlíf Bjarnadóttir með sýninguna „Puntustykki“. Verkið sem Hanna Hlíf sýnir er um stöðu og sögu kvenna fyrr og nú. Til 1. des. Gallerí 100° | Sýning á myndlist í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Opið virka daga kl. 8.30–16. Gallerí BOX | Rannveig Helgadóttir opnar sýninguna Musteri í dag kl. 15. Til 7. des. Opið fimmtud. og laugard. kl. 14–17. Gallerí Stígur | Nú stendur yfir myndlistar- sýning Auðar Ingu Ingvarsdóttur til 10. desember. Opið þriðjudaga–föstudaga kl. 13–18, laugardaga kl. 11–16. Gallerí Úlfur | Baldursgötu 11. Dagný Sif Einarsdóttir sýnir. Opið virka daga kl. 14–18. Til 30. nóv. Gerðuberg | Gerðuberg á í safni sínu um 1.000 listaverk eftir börn sem unnin voru í listsmiðjunum Gagn og Gaman sem starf- ræktar voru sumrin 1988–2004. Fyrirtæki og stofnanir geta fengið leigð verk úr safn- inu til lengri eða skemmri tíma. Sýningin stendur til 21. janúar. www.gerduberg.is. Sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum 2006. Sýningin stendur til 21. janúar 2007. Tekið er á móti 8 ára skóla- börnum í samstarfi við Borgarbókasafnið. Sjá www.gerduberg.is. Hugarheimar – Guðrún Bergsdóttir sýnir útsaum og tússteikningar. Ein allsherjar sinfónía fjölskrúðugra lita og forma; eins og íslensk brekka þakin berjum að hausti eða brúðarklæði frá Austurlöndum. Verk Guðrúnar vitna um hina óheftu tjáningu sem sprettur fram úr hugarheimi hennar. Til 21. janúar. www.gerduberg.is. Grafíksafn Íslands | Díana M. Hrafnsdóttir sýnir tréristur þar sem hún tekst á við haf- ið í ham í mesta skammdeginu. Salur ís- lenskrar grafíkur er í Tryggvagötu 17, hafn- armegin. Opið fim.–sun. kl. 14–18. Hafnarborg | Föstudaginn 1. desember kl. 17 opnar Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, sýn- ingu í Sverrissal og Apóteki. Á sýningunni verða steinleirsmyndir og verk unnin á pappír með akrýl, olíukrít, pastel og bleki. Hjá Marlín | Birgir Breiðdal, Biggi, sýnir til 23. desember. Hrafnista Hafnarfirði | Ellen Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 8. janúar. Hún og Hún | Skólavörðustíg 17b. Sigrid Österby sýnir grafík-mósaík og tréskurð til 14. des. Opið á venjulegum verslunartíma. i8 | Sýning Katrínar Sigurðardóttur, Stig, stendur yfir í i8. Opið þri.–fös. frá kl. 11–17 og lau. kl. 13–17. Jónas Viðar Gallerí | Kristinn G. Jóhanns- son sýnir grafík. Opið föstudaga og laugar- daga 13–18. Heimasíða www.jvs.is. Karólína Restaurant | Snorri Ásmundsson sýnir óvenjuleg málverk á veitingastaðnum Karólínu. Kling og Bang gallerí | Helga Óskarsdóttir og Kristinn Már Pálmason sýna í Kling og Bang gallerí, Laugavegi 23. Listasafn ASÍ | Ásmundarsalur: Kristinn Már Pálmason sýnir málverkainnsetningu byggða á samþættingu ólíkra aðferða og merkingafræðilegra þátta í tungumáli mál- verksins. Gryfja: Þráðlaus tenging. Kristín Helga Káradóttir sýnir myndbands-svið- setningu. Arinstofa: Óhlutbundin verk í eigu safnsins. Aðgangur ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á verkum Drafnar Friðfinnsdóttur (1946– 2000). Opið 12–17 virka daga nema mánud. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Kan- adísk menningarhátíð í Kópavogi – 3 sýn- ingar á nútímalist frumbyggja í Kanada. Kaffistofa og safnbúð. Til 10. desember. Listasafn Reykjanesbæjar | Einkasýning Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar „Sog“. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Bandarísk list á þriðja árþúsundinu. Margir af fremstu listamönnum Bandaríkjanna, sem fæddir eru eftir 1970, eiga verk á sýn- ingunni. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á nýjum verkum eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara. Safnið og kaffistofan opin laugardaga og sunnudaga kl. 14–17. Listasalur Mosfellsbæjar | Sýning á verk- um Ólafar Oddgeirsdóttur í Listasal Mos- fellsbæjar. Ber sýningin yfirskriftina „Tákn- myndir“ og stendur til 9. des. Opið er frá 12–19 virka daga og frá kl. 12–15 laugar- daga. Listasalurinn er í Bókasafni Mosfells- bæjar, Kjarna, Þverholti 2. Lóuhreiður | Sýning Árna Björns í Lóu- hreiðrinu verður framlengd um óákveðinn tíma. www.arnibjorn.com. Norræna húsið | Sýningin Exercise in Touching, Æfing í að snerta er opin alla daga nema mánudaga kl. 12–17. Sýnd eru verk Borgny Svalastog sem eru unnin með ýmiss konar tækni. Sýningin stendur til 17. desember. Ófeigur listhús | Skólavörðustig 5. Mál- verkasýning Ómars Stefánssonar stendur til áramóta og er opin á verslunartíma. Skaftfell | Sýning vegna Listmunaupp- boðs. 42 verk eftir 36 listamenn af öllum stærðum og gerðum. sjá www.skaftfell.is. Smiðjan-Listhús | Sýning á verkum eftir Tolla til 30. nóv. Opið alla virka daga kl. 10– 18 og lagardag kl. 12–16. Allir velkomnir. Þjóðminjasafn Íslands | Greiningarsýning á ljósmyndum sem varðveittar eru í myndasafni Þjóðminjasafnsins og ekki hef- ur tekist að bera kennsl á. Söfn Árbæjarsafn | Leiðsögn á ensku mánu- daga, miðvikudaga og föstudaga kl. 13. Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Í tilefni af 20 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju er sýning í forkirkjunni um tilurð og sögu kirkjunnar sem Borgarskjalasafn hefur sett saman með sóknarnefnd og Listvina- félagi Hallgrímskirkju. Til. 30. nóv. Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú bú- inn húsmunum og áhöldum eins og tíðk- aðist í kringum aldamótin 1900. Veitingar í gamla prestshúsinu. Opið eftir samkomu- lagi. 500 kr. inn, frítt fyrir börn. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga nema mánudaga kl. 10–17. Hljóð- leiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. www.gljufrasteinn.is. Landnámssýningin Reykjavík 871±2 | Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld sem fannst við fornleifauppgröft í Reykja- vík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla daga kl. 10–17. Landsbókasafn Íslands – háskóla- bókasafn | Í spegli Íslands er lítil sýning í forsal þjóðdeildar safnsins. Þar er sagt frá ferðasögum til Íslands í gegnum aldirnar. Sjá nánar á heimasíðu: www.lands- bokasafn.is. Sú þrá að þekkja og nema … Sýning til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili – 150 ára minning. Jónas var prestur, rithöf- undur, þýðandi og fræðimaður, eins og verk hans Íslenskir þjóðhættir ber vott um. Sýn- ingin spannar æviferil Jónasar. www.lands- bokasafn.is. Upp á Sigurhæðir – Matthías Jochumsson var lykilmaður í þjóðbyggingu 19. aldar. Menn þekkja best sálmana, þjóðsönginn og Skugga-Svein, en skáldpresturinn sá eftir sig 28 bækur, þar af 15 frumsamdar. Til 31. des. Sjá www.landsbokasafn.is. Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns | Í húsnæði Seðlabankans á Kalkofnsvegi 1 hefur verið sett upp ný yfirlitssýning á ís- lenskum gjaldmiðli og öðru efni í eigu safnsins. Þar er einnig kynningarefni á margmiðlunarformi um hlutverk og starf- semi Seðlabanka Íslands. Gengið er inn um aðaldyr bankans frá Arnarhóli. Aðgangur er ókeypis. Sýningin er opin mán.–fös. kl. 13.30–15.30. Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12– 17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik- myndir sem segja söguna frá landnámi til 1550. www.sagamuseum.is. Tækniminjasafnið | Síminn 100 ára, nýjar lifandi sýningar. Innreið nútímans og upp- haf símasambands við útlönd. Símritari sýnir gamla ritsímabúnaðinn í fyrstu rit- símastöð landsins. Vjelasmiðja Jóhanns Hanssonar – Málmsteyperíið, Kapalhúsið og húsin á Wathnestorfunni. Opið virka daga kl.13–16 www.tekmus.is. Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn – uppstoppuð veiðidýr ásamt veiðitengdum munum, ísl. og erlend skotvopn o.fl. Opið alla daga kl. 11–18. Sjá: www.hunting.is. Þjóðmenningarhúsið | Ný sýning á bókum Berlínarforlagsins Mariannenpresse stend- ur yfir. Hver bók er listaverk unnið í sam- vinnu rithöfundar og myndlistarmanns. Aðrar sýningar eru Handritin, Íslensk tísku- hönnun og Fyrirheitna landið. Veitinga- stofa með hádegisverðar- og kaffimatseðli er í húsinu, einnig safnbúð. Þjóðminjasafn Íslands | Í Bogasal eru til sýnis útsaumuð handaverk listfengra kvenna frá ýmsum tímum. Sýningin bygg- ist á rannsóknum Elsu E. Guðjónsson, text- íl- og búningafræðings. Myndefni útsaums- ins er m.a. sótt í Biblíuna og kynjadýraveröld fyrri alda; þarna er stíl- fært jurta- og dýraskraut o.fl. Þjóðskjalasafn Íslands | Í tilefni af nor- ræna skjaladeginum 2006 hefur safnið sett upp sýningu á nokkrum skjölum um stofnun símans í lestrarsal safnsins á Laugavegi 162. Sýningin er opin á sama tíma og lestraralurinn til 28. feb. Bækur Borgarbókasafn Reykjavíkur – Kringlu- safn | Brot af því besta. Fimmtudags- kvöldið 30. nóv. kl. 20. Upplestur og léttur jóladjass í anddyri Borgarleikhússins. Rit- höfundarnir Auður Jónsdóttir, Árni Þór- arinsson, Bragi Ólafsson, Einar Már Guð- mundsson, Linda Vilhjálmsdóttir og Sigurjón Magnússon lesa úr verkum sínum. Grand Rokk | Árlegt Glæpakvöld Hins ís- lenska glæpafélags verður á Grand Rokki fimmtudaginn 30. nóv. Höfundar lesa úr nýútkomnum glæpasögum sínum. Aðgang- ur er ókeypis, dagskráin hefst kl. 20.30. Súfistinn | Höfundar Eddu útgáfu lesa á Súfistanum, Laugavegi 18, kl. 20. Sigrún Eldjárn les úr Eyju gullormsins, nýjum ævintýraþríleik, Héðinn Björnsson úr verð- launabókinni Háski og hundakjöt, Reynir Traustason úr örlagasögu Rögnu á Lauga- bóli, Ljósið í Djúpinu, og Auður Jónsdóttir úr Tryggðarpanti. staðurstund Bækur Glæpakvöld á Grand Rokk Handverk Opin textíl- vinnustofa Kirkjustarf Aðventuguðsþjónusta í St. John’s-kirkju í Edinborg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.