Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 51

Morgunblaðið - 30.11.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 2006 51 Þjónustudagur Beco föstudaginn 1. desember Hinn árlegi Canon þjónustudagur Beco verður haldinn þann 1. desember nk. en þá býður fyrirtækið öllum Canon notendum upp á fría yfirferð á Canon EOS myndavélum og fylgihlutum. Sérfræðingar Beco fara yfir búnaðinn þinn og þú færð ítarlega ástandsskýrslu. Ef þú kemur með búnaðinn á milli 10:00 og 13:00 færðu hann til baka samdægurs. Ef þú kemur eftir kl. 13:00 færðu búnaðinn 2. desember. Við hvetjum alla Canon EOS notendur til að nýta sér þetta einstaka tækifæri og kynna sér ýmsar Canon nýjungar og tilboð í leiðinni, m.a. útprentanir úr nýjum Canon prenturum. Allir fara í Canon lukkupottinn þar sem þrír heppnir geta unnið Ixus Wireless, Canon Speedlite 220EX flass og SELPHY CP510 ljósmyndaprentara. Heitt á könnunni og jólastemning. Remote switchar og fjarstýringar með 20% afslætti. Canon EF 24-105mm f/4L IS USM „Standard zoom” linsa sem auðvelt er að ferðast með þar sem myndgæði eru í fyrirrúmi. Lágmarks ljósop er F22 og er linsan með 3- stops Image Stabilizer. Verð 108.900 kr. Canon PowerShot G7 Mögnuð smávél með 6x optical Image Stabilizer zoom linsu, 10 megapixlum, 2.5” LCD skjá, ISO 1600 og DIGIC III örgjörvanum ásamt Face Detection tækni. Verð 59.900 kr. Canon Speedlite Transmitter Þráðlaus flass sendir sem gefur óendalega notkunarmöguleika á flassi, dregur 12-15 m. E-TTL flass mæling og innbyggt ,,Auto” fókus ljós. Verð 19.900 kr. Canon iP5300 A4 prentari Gríðarlega afkastamikill - 10x15 blæðandi ljósmyndir á u.þ.b. 21. sek. • Framúrskarandi prentgæði – Allt að 9600x2400 dpi upplausn (1 píkólíter). • Tveir pappírsbakkar, sjálfvirk tvíhliða prentun og DVD/CD prentun. • PictBridge tengi – Óþarfi að nota PC tölvu. • Lágur rekstrarkostnaður með Single Ink kerfi – Fimm aðskilin blekhylki. • Canon ChromaLife100 kerfið lengir endingu mynda. Verð 18.900 kr. Canon iX5000 A3+ prentari Háþróaður A3+ prentari til að prenta út hágæða skjöl, myndir og grafík. • Allt 25 bls. pr. mín. í svörtu – 17 í lit (A4). • A3+ ljósmyndagæði á u.þ.b. 166 sek. í Standard mode. • Ljósmyndagæði – Allt að 4800x1200dpi. • Skýr texti, lifandi litir. • ChromaLife100 kerfið lengir endingu mynda. • PictBridge tengi. • Single Ink aðskilin blekhylki. Verð 39.900 kr. Canon IPF5000 teikningaprentari – plotter 12 lita blekkerfi tryggir litabreidd með betri blæbrigðum í A2 útprentun. • 1200 punkta útprentun í 17” (A2+). • Frábær myndgæði með nýju 12 lita kerfi. • Framúrskarandi eftirprentanir. • Sveigjanlegir pappírsmöguleikar. • Hugbúnaðarviðbætur og þar á meðal PosterArtist. Verð 225.900 kr. Tilboð í tilefni dagsins: Leikarahjónin Richard Gere ogCarey Lowell munu lesa ljóð og aðra texta eftir bandaríska fanga á morgun á ráðstefnu sem haldin er í New School-háskólanum í New York-borg. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að bandaríska refsi- kerfinu og þeim áhrifum sem það hefur á gjörvallt bandaríska sam- félagið.    Fyrrverandi Strandvarða-leikkonan Pamela Anderson hefur óskað eftir því á heimasíðu sinni að fjölmiðlar geri ekki mikið úr skilnaði hennar sjálfrar og eign- mannsins til fjögurra mánaða, Kid Rock. „Ég hef miklar áhyggjur af umfjöllun fjölmiðla af skilnaðinum. Ég veit að það er fólk sem er tilbúið að verja mig eða þá verja Bob, en börnin mín geta lesið. Börn skilja ekki muninn á staðreyndum og slúðri... gerir það einhver?“ Að endingu segir hún að Kid Rock sé á margan hátt frábær en þau séu hins vegar sammála um að þau eigi ekki samleið lengur.    Dómstóll í Malaví hefur kveðiðupp þann úrskurð að mann- réttindasamtök þar í landi megi lög- sækja poppdrottninguna Madonnu vegna bráðabirgðaættleiðingar hennar á barni þaðan, David Banda. Banda býr nú hjá Madonnu og fjöl- skyldu hennar, en samtökin Human Rights Commission í Malaví telja að Madonna hafi ekki fylgt lögum um ættleiðingar. Hún þurfi að búa í landinu í eitt og hálft ár áður en hún geti ættleitt barn.    Söngvari írsku rokksveitarinnarU2, Bono, gaf Shinzo Abe, for- sætisráðherra Japans, Giorgio Arm- ani -sólgleraugu sem hann er sjálfur þekktur fyrir að bera á andlitinu. Abe og Bono áttu saman fund og eft- ir fundinn jós Bono lofi yfir Japan. Fyrir um viku síðan lék Bono á ókeypis útirokktónleikum í Melbo- urne í Ástralíu á sama tíma og fjár- málaráðherrar og seðlabankastjórar heimsins komu saman til fundar. Til- gangur tónleikanna var að krefjast þess að leiðtogarnir hertu baráttuna gegn fátækt í heiminum.    Rapparinn Snoop Dogg var hand-tekinn á þriðjudagskvöldið eft- ir að hann yfirgaf myndver NBC í Burbank nærri Los Angeles í Bandaríkjunum. Rapparinn var að koma úr upptökum á spjallþætti Jay Leno þegar hann var handtekinn, en í bíl hans fannst skammbyssa, kók- aín og maríjúana. Þetta er í þriðja sinn sem tónlistarmaðurinn kunni, sem m.a. hefur heimsótt Ísland, kemst í kast við lögin á þremur mán- uðum.    Fólk folk@mbl.is Breski tónlistarmaðurinn EltonJohn hefur gagnrýnt afstöðu ástralska forsætisráðherrans, Johns Howards, til giftinga samkyn- hneigðra. Poppstjarnan er á tón- leikaferðalagi um Ástralíu og var spurð af fréttamanni hvort hún hefði einhver skilaboð til Howards sem hafnaði lögleyfingu hjónabands sam- kynhneigðra para í júní sl. Elton John vandaði forsætisráðherranum ekki kveðjurnar: „Farðu til fjand- ans.“ Hjónaband samkynhneigðra hef- ur verið mikið hitamál í áströlskum stjórnmálum upp á síðkastið. Elton John gitist ástmanni sínum, David Furnish, hjá borgardómara í desember á síðasta ári.    Skilnaður Hollywood-leikaransChristians Slaters og sjón- varpsframleið- andans Ryans Haddons er genginn í gegn. Parið gekk í það heilaga á valent- ínusardeginum árið 2000 og sótti um skilnað í jan- úar á síðasta ári vegna „ósætt- anlegs ágreinings“. Saman eiga þau tvö börn. Hinn 37 ára gamili Slater er þekktastur fyrir hlutverk sín í myndunum Heathers og True Rom- ance. Nýjasta mynd hans er Bobby, sem fjallar um þingmanninn og for- setabróðurinn Robert Kennedy.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.