Morgunblaðið - 04.12.2006, Side 19
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Hann er þekktur sem bestaeftirherman meðal páfa-gauka. Rannsóknir hafasýnt fram á að þeir geti
raunverulega skilið mannamál. Hann
getur verið mjög skapstór og kulda-
legur. Hann á það til að plokka sig ef
honum leiðist og einnig tengist hann
oft aðeins einni manneskju. Sagt er
að hann hafi gáfur á við fimm ára
barn og tilfinningaþroska á við
tveggja ára barn.
Bræðurnir Sindri Snær og Krist-
ján Ingi eiga einn svona páfagauk,
sem skemmtir heimilisfólkinu í tíma
og ótíma enda er hann mikil fé-
lagsvera og meira að segja farinn að
læra mannamál. „Við erum búnir að
vera að kenna honum að segja nokk-
ur orð. Hann kann til dæmis nú orðið
að segja mjá, voff, mamma og svo
segir hann halló í hvert skipti sem
síminn hringir. Við þurfum hinsvegar
að tyggja orðin nokkuð oft í hann áð-
ur en hann lærir þau til fulls, en það
er voða gaman að eiga talandi páfa-
gauk,“ segir Sindri, sem er 12 ára
nemandi í Snælandsskóla og stundar
auk þess fimleika og tennis. Bróðir
hans Kristján bætir við að hann Bósi
sé voðalega forvitinn um hvað sé í
matinn og eigi það til að fá sér að
smakka af diskunum.
Lífslíkurnar eru allt að 75 árum
Bósi heyrir til tegund að nafni
Congo African Grey sem á uppruna
sinn í Mið-Afríku. Kongó-grápáfinn
er aðallega grár að lit. Hann er hvítur
í kringum augun og á lærum og er
með rautt stél. Goggurinn er svartur
og fæturnir gráir. Lífslíkurnar geta
orðið allt að 75 árum.
Bræðurnir segja að hann borði
nánast allt sem að kjafti komi, svo
sem kornfóður, ávexti, grænmeti,
kjöt og fisk, en uppáhaldið er grillaðir
barbeque-kjúklingavængir og ostur.
Foreldrar Kristjáns og Sindra, þau
Ásta Rósa Magnúsdóttir og Svan-
berg Hreinsson, keyptu fuglinn fyrir
rúmum tveimur árum óséðan í egg-
inu sínu í versluninni Furðufuglum
og fylgifiskum, en Bósi fæddist fið-
urlaus þann 27. september árið 2004
og komst þá fljótlega í hendur ætt-
leiðingarfjölskyldunnar sinnar þar
sem hann unir hag sínum einkar vel.
„Við eigum líklega öll upp á pall-
borðið hjá honum,“ segir Ásta og
bætir við að hann sé einkar fé-
lagslyndur. „Hann þarf helst að fá að
sitja á öxlunum eða á hausnum á okk-
ur og hann fylgir mér fast eftir í
heimilisstörfunum.“
Kúkar í klósettið á morgnana
Fjölskyldan hefur í gegnum tíðina
alið venjulega páfagauka, síðast par,
sem sinnaðist með þeim afleiðingum
að kerlingin drap karlinn einn góðan
veðurdag þegar hann var að skoða
eggin.
Bósi á sitt eigið búr, sem hann sef-
ur í á næturnar og heldur til í þegar
enginn er heima. Svo fær hann frelsi
til að hreyfa sig um leið og einhver úr
fjölskyldunni kemur heim. „Það þarf
að vængstýfa hann reglulega með því
að klippa flugfjaðrirnar, því glingrið
okkar er í stórhættu fái hann að
flögra um með óklippta vængi,“ segir
Svanberg.
Bósi kann líka mannasiði því hann
kúkar alltaf í klósettið á morgnana,
en svo gerast slys af og til, enda er
Bósi bara tveggja ára. „Klósettið
hans er nefnilega vaskurinn á baðinu.
Og svo fer hann alltaf með mér í
sturtu á morgnana, stendur á hand-
klæði fyrir utan sturtuklefann og
syngur fyrir mig. Sjálfum finnst hon-
um líka svolítið gaman að busla í
vatni, en þá stendur hann gjarnan í
dalli og eys yfir sig vatni,“ segir
Svanberg að lokum.
Bósi segir „halló“
þegar síminn hringir
Morgunblaðið/Sverrir
Bræður Kristján Ingi og Sindri Snær ættleiddu Bósa ófæddan.
Heimilisfaðirinn Svanberg Hreinsson kjáir framan í Bósa.
Heimilisstörfin Bósi fylgir húsmóðurinni, Ástu Rósu Magnúsdóttur,
hvert fótmál á meðan hún sinnir húsverkunum.
gæludýr
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 2006 19
með flutningabílum búnum sérhönnuðum
kæli- og frystitækjum og geymast í þar til
gerðum vörumóttökum, vottuðum af
gæðaeftirlitskerfi GÁMES. Vel skipulagt
flutningakerfi og reynsla í faglegum matvæla-
flutningum um allt land tryggja að neytand-
inn fær vöru sína ferska innan 24–48 tíma og
alla leið
... upp í munn og
ofan í maga!
Frekari upplýsingar um afgreiðslustaði
er að finna á landflutningar.is
Allur matur
á að fara ...
Skútuvogur
Kjalarvogur
Sæbraut
B
rú
arvo
g
u
r
K
lep
p
sm
ýrarveg
u
r
H
o
ltaveg
u
r
Við
erum hér
Barkarvogur