Morgunblaðið - 19.01.2007, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Við höldum með þér!
... ef þú kemur við á næstu Olís-stöð og lætur
fylla bílinn af eldsneyti. Þannig færðu fría
áfyllingu á rúðupissið í kaupbæti.
Meðan við fyllum á geturðu svo fengið
þér pylsu og kók á tilboði.Þorratilboð
á þjóðarrétti Íslendinga
pylsa og kók
199kr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
Hinni árlegu bílasýningu í bílaborginniDetroit lýkur núna um helgina ensýningin er ein sú stærsta sinnar teg-
undar í heiminum. Hátt í milljón manns sækja
sýninguna að jafnaði en í ár er verið að kynna
tæplega átta hundruð nýja bíla frá öllum
helstu bílaframleiðendum heims. Þykir það
mjög eftirsóknarvert að afhjúpa nýjustu af-
urðirnar á þessari sýningu en þarna eru
frumsýndir bæði framúrstefnulegir hug-
Reuters
Hugmyndaríki Yfirmenn General Motors völdu hugmyndabílinn Holden Efijy til sýningar á bílasýningunni í Detroit og vakti hann gífurelga athygli.
Fallegar
línur í Detroit
föstudagur 19. 1. 2007
bílar mbl.isbílar
Yngri ökuþórar taka við í formúlunni » 5
HÖRÐ ÁTÖK Í LISSABON
DAKAR RALLINU LÝKUR UM HELGINA >> 4
!
""
Sportlegur Chrysler Nassau
hugmyndabíllinn er afar glæsilegur.
Fjölskylduvænn Nýr Dodge Magnum.
myndabílar og framleiðslubílar.
Í ár flykktist atvinnu- og áhugafólk til
Detroit til að berja það nýjasta og glæsilegast
í heimi bílanna augum. Mikið bar á afar fram-
úrstefnulegum hugmyndabílum og for-
vitnilegum hönnunarlínum sem gefa
skemmtilega innsýn inn í það sem vænta má á
komandi árum.
Meira um sýninguna í Detroit er að finna á
næstu síðum.
Um átta hundrað bílar sýndir
Yf ir l i t
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 26
Staksteinar 8 Umræðan 28/29
Veður 8 Minningar 30/38
Alþingi 10 Brids 40
Viðskipti 13 Menning 41/44
Úr verinu 14/15 Leikhús 42
Erlent 15 Myndasögur 44
Menning 16/17 Dægradvöl 69
Höfuðborgin 18 StaðurStund 46/47
Akureyri 2 Dagbók 48/49
Austurland 19 Víkverji 48
Suðurnes 19 Velvakandi 48
Daglegt líf 20/25 Ljósvakamiðlar 50
* * *
Innlent
Utanríkisráðherra aflétti í gær
leynd af gögnum er varða varn-
arsamning Íslands og Bandaríkj-
anna. Vekja þau spurningar um
hvort bandarísk heryfirvöld hafi það
á valdi sínu að ákveða einhliða í
tengslum við ófrið eða hernaðarlegt
hættuástand að yfirtaka fulla stjórn
og ábyrgð á almennri flugstarfsemi
á Keflavíkurflugvelli. »Forsíða
Ekki vinnst tími til að ljúka heild-
arendurskoðun á stjórnarskránni
fyrir komandi þingkosningar líkt og
stefnt var að. Stjórnarskrárnefnd
mun því ekki gera tillögur að ákvæði
um sameign náttúruauðlinda, en það
mál var mikið til umræðu innan
nefndarinnar, auk fjölda annarra
breytinga. »Forsíða
Verðmunur á íslenskum kjúk-
lingum og kjúklingum í nágranna-
löndum okkar er það mikill að ólík-
legt er annað en að verslunin sjái sér
hag í að flytja inn kjúklinga þegar
búið er að lækka tolla á kjötvörum
um 40%, segir hagfræðingur
Bændasamtakanna. »Baksíða
Erlent
Mona Sahlin var tilnefnd formað-
ur sænska Jafnaðarmannaflokksins
í gær. Hún verður að öllum líkindum
fyrsta konan sem tekur við leiðtoga-
hlutverkinu hjá sænskum jafn-
aðarmönnum. » 14
Stjórnvöld í Írak sögðust í gær
hafa byrjað að ráðast gegn víga-
sveitum sjíta, að sögn The New York
Times. Bandaríkjamenn hafa kvart-
að yfir því að her og lögregla Íraks
hafi látið vígasveitir sjíta óáreittar
en einbeitt sér að vígasveitum súnní-
araba. » 15
OECD, Efnahags- og framfara-
stofnunin, sagði í gær að sérfræð-
ingar hennar hefðu „þungar áhyggj-
ur“ af þeirri ákvörðun bresku
stjórnarinnar að stöðva rannsókn á
meintum mútugreiðslum bresks fyr-
irtækis til manna í konungs-
fjölskyldu Sádi-Arabíu. » Forsíða
MEÐ dómi sínum í gær lagði Hæsti-
réttur fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur
að fjalla efnislega um tiltekna dóm-
kröfu í máli Sigurðar Hreinssonar
gegn Keri hf., fyrrum eiganda Esso,
vegna tjóns sem Sigurður telur sig
hafa orðið fyrir vegna ólöglegs sam-
ráðs stóru olíufélaganna þriggja.
Neytendasamtökin hafa staðið við
bakið á Sigurði í málarekstrinum en
hann sneri sér til samtakanna í kjöl-
far þess að samkeppnisyfirvöld kom-
ust að þeirri niðurstöðu að olíufélög-
in hefðu gerst sek um ólöglegt
samráð á árunum 1993–2001.
Sigurður gat lagt fram gögn sem
sýndu að á árunum 1995–2001 keypti
hann bensín af Esso fyrir tæplega
1,2 milljónir króna. Aðalkrafa hans
fyrir dómi var að Ker, sem þáverandi
eigandi Esso, yrði dæmt til að greiða
honum 180 þúsund krónur, varakraf-
an var 35 þúsund krónur og þrauta-
varakrafa 26 þúsund krónur. Þrauta-
þrautavarakrafa var að honum yrðu
dæmdar bætur að álitum dómsins.
Héraðsdómur sýknaði Ker af aðal-
og varakröfu og vísaði hinum kröf-
unum frá dómi.
Erfitt að meta tjón
Til að hægt sé að dæma bætur
verður að sýna fram á að grundvöll-
ur fyrir bótum sé fyrir hendi og að sá
sem krefst bótanna hafi sannarlega
orðið fyrir tjóni. Í málinu kom fram
að erfitt væri að meta tjón sem þetta
og féllst Hæstiréttur á það með lög-
manni Sigurðar, Steinari Þór Guð-
geirssyni hrl., að líkur bentu ekki til
að með matsgerð væri hægt að kom-
ast hjá að dæma í málinu að álitum.
Héraðsdómur ætti því að fjalla efn-
islega um þrautaþrautavarakröfuna.
Málið dæmdu Gunnlaugur Claes-
sen, Hjördís Hákonardóttir og
Hrafn Bragason. Kristinn Hall-
grímsson hrl. var lögmaður Kers.
Fjalli efnislega um
kröfu vegna samráðs
Ein krafa gegn fyrrum eiganda Esso aftur til héraðsdóms
Í HNOTSKURN
» Sigurður Hreinsson höfð-aði mál gegn Keri, fyrrum
eiganda Esso, með stuðningi
Neytendasamtakanna sem
höfðu óskað eftir að við-
skiptavinir sem ættu gögn um
eldsneytiskaup gæfu sig fram.
» Á árunum 1995–2001keypti hann eldsneyti fyrir
tæplega 1,2 milljónir.
» Ker hafnar því að hannhafi orðið fyrir tjóni vegna
ólöglegs samráðs.
ÞORRI karlpenings þessa lands á von á góðu í dag ým-
ist í formi blóma, konfekts, kossa eða annars konar dek-
urs. Ástæðan er sú að í dag er bóndadagur, fyrsti dagur
þorra. Góa byrjar svo með konudegi, sunnudaginn 18.
febrúar næstkomandi. Þangað til láta Íslendingar það
eftir sér að borða yfir sig af þorramat því árstíð þorra-
blóta er nú hafin með tilheyrandi gleðskap. Í gömlu
kvæði segir um þorrann: Þorri hristir fannafeldinn/
fnæsir í bæ og drepur eldinn. Um góu segir hins vegar:
Góa á til grimmd og blíðu/gengur í éljapilsi síðu.
Morgunblaðið/Golli
Blóm fyrir bændur
GUÐNI Ágústs-
son landbúnaðar-
ráðherra segir að
nýgert samkomu-
lag Íslands og
Evrópusam-
bandsins um við-
skipti með land-
búnaðarafurðir sé
liður í því ætlun-
arverki ríkis-
stjórnarinnar að lækka matvælaverð
1. mars.
Það muni, ásamt lækkun virðis-
aukaskatts af matvöru og niðurfell-
ingu vörugjalda, gera að verkum að
menn muni sjá lægra matvælaverð í
landinu.
Spurður um áhrif samkomulags-
ins fyrir bændur, segir Guðni að
breytingarnar sem í því felast muni
hafa einhver áhrif en hóflega sé að
þeim staðið. „Svínabændur og kjúk-
lingabændur eiga að geta mætt
þessu og hafa reyndar verið að búa
sig undir það með stærri og færri bú-
um á síðustu árum að þetta geti
gerst,“ segir hann.
Guðni bendir á að í samkomulag-
inu felist einnig vaxandi útflutnings-
möguleikar fyrir landbúnaðarafurðir
til Evrópu. Hann kveðst hins vegar
aðspurður ekki telja að það muni
hafa nein áhrif á útflutning á land-
búnaðarvörum á Bandaríkjamarkað.
„Ég vona að bæði sá útflutningur
og þessi gefi bændum í framtíðinni
nýja möguleika til að auka íslenskan
landbúnað,“ segir Guðni Ágústsson
landbúnaðarráðherra.
Liður í lækkun
matvælaverðs
Guðni Ágústsson
KARLMAÐUR á þrítugsaldri var
fluttur á sjúkrahús, töluvert kvalinn,
eftir að hann klemmdist á milli bíla í
Grímsnesi skömmu eftir klukkan 18 í
gær. Slysið varð þegar maðurinn var
að losa taug milli tveggja bíla sem
notuð var til að draga annan þeirra
upp á veg.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Selfossi rann bíllinn sem
notaður var við dráttinn aftur á bak
og klemmdist maðurinn á milli hans
og hliðar hins bílsins.
Sjúkrabifreið flutti hinn slasaða
fyrst á Heilbrigðisstofnun Suður-
lands á Selfossi og þaðan var hann
sendur á slysadeild Landspítala –
háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Að
sögn vakthafandi læknis rifbrotnaði
maðurinn og marðist töluvert en
ekki blæddi innvortis. Hann var
hafður á spítalanum til eftirlits.
Klemmdist
milli bíla