Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 11 FRÉTTIR Það er mitt mat að þessi 40%lækkun á tollum hafi raun-verulegt verðaðhald í förmeð sér, einkum á kjúk- lingum og svínakjöti.“ Þetta segir Erna Bjarnadóttir hagfræðingur Bændasamtakanna. Hún segir að hægt sé að kaupa inn kjúklinga á það lágu verði erlendis að hægt verði að bjóða þá á samkeppnishæfu verði hér á landi þrátt fyrir að umtalsverð- ur tollur verði áfram lagður á kjúk- linga. Hluti af nýjum samningi Íslands og Evrópusambandsins um viðskipti með landbúnaðarvörur felur í sér 40% lækkun á tollum. Þessi breyting þýðir t.d. að eftir lækkun þurfa inn- flytjendur að greiða 615 kr. í toll af hverju kílói af innfluttum kjúklinga- bringum. Finnur Árnason, forstjóri Haga, hefur haldið því fram að þessi tollalækkun muni ekki leiða til lækk- unar á matarverði vegna þess að toll- arnir verði eftir sem áður of háir til að það borgi sig að flytja inn. Tollurinn er kominn niður fyrir gjaldið sem greitt var í sumar Erna spáir því hins vegar að versl- unin muni sjá sér hag í því að flytja inn kjúklinga á þessum tollum vegna þess að hægt sé að kaupa mjög ódýra kjúklinga erlendis og þessi innflutn- ingur muni fela í sér raunverulegt verðaðhald fyrir innlenda fram- leiðslu. Í þessu sambandi er kannski rétt að rifja upp að mikill áhugi var á síð- asta ári á innflutningi á kjúklingum og niðurstaða útboðs á tollkvótum varð sú að innflytjendur buðust til að greiða 719 kr/kg fyrir að fá að flytja inn kjúklinga. Aðföng, fyrirtæki Haga, fékk nær allan kjúklingakvót- ann í þessu útboði. Það er því ólíklegt annað en að Aðföng og fleiri fyrir- tæki muni reyna að flytja inn kjúk- linga með 615 kr/kg tolli. Erna telur líklegt að lækkun tolla á svínakjöti hafi einnig í för með sér verðaðhald fyrir innlenda fram- leiðslu. Greiða þarf 831 krónu toll vegna innflutnings á svínalundum. Innan við 3% af innanlands- neyslu Annar hluti samkomulagsins við ESB er um innflutning á 650 tonnum af kjöti án tolla, þ.e. 100 tonn af nautakjöti, 200 tonn af svínakjöti, 200 tonn af alifuglakjöti, 50 tonn af pylsum, 50 tonn af unnum kjötvörum og 50 tonn af skinku. Hver verða áhrifin af þessum innflutningi á verð til neytenda? Til að geta svarað því er nauðsynlegt að hafa í huga að á síðasta ári borðuðu íslenskir neyt- endur rúmlega 23 þúsund tonn af kjöti og jókst um 2% milli ára. 650 tonn eru því innan við 3% af innan- landsneyslu. Það er líka ekki alveg rétt að tala um að þetta kjöt verði flutt tollfrjálst til landsins. Ástæðan er sú að hægt er að ganga út frá því sem vísu að innflytjendur munu vilja flytja inn mun meira af kjöti en þessi 650 tonn. Til að ákveða hverjir fái að flytja inn þetta kjöt verður viðhaft uppboð á tollkvótum. Þeir sem hæst bjóða fá að flytja inn. Undanfarinn einn og hálfan ára- tug hefur þetta uppboðsfyrirkomu- lag verið viðhaft við innflutning á kjötvörum á lágmarkstollum. Þegar þetta fyrirkomulag var tekið upp var áhugi á innflutningi mikill. Síðan dró úr honum og sum árin voru þeir ekki einu sinni fullnýttir. Að undanförnu hefur áhugi á innflutningi kjötvara aukist verulega. Í síðasta útboði, sem fram fór í júní sl., var heimilað að flytja inn 448 tonn af kjöti og ostum. Þeir sem fengu heimildir til að flytja inn þurftu að greiða 193 milljónir fyrir að fá þessa tollkvóta. Niðurstaða samskonar útboðs á árinu 2005 varð sú að fyrirtækin lýstu sig tilbúin til að greiða 105 milljónir fyrir tollkvót- ana. Sem dæmi má nefna var með- alverð á innfluttu nautakjöti 382 kr/ kg en var 175 kr/kg árið á undan. Verðið fyrir kjúklinga hækkaði mik- ið, fór úr 393 kr/kg í 719 kr/kg. Árið 2005 náðist ekki að fylla kvóta fyrir innflutt svínakjöt en í fyrra greiddu innflytjendur 306 kr/kg fyrir að fá að flytja inn svínakjöt. Samkomulagið við ESB þýðir að það verður leyfilegt að flytja inn meira af kjöti án tolla. Hvort það leiðir til lækkunar á kjötverði ræðst m.a. af því hvort áhugi á innflutningi kjötvara verður áfram mikill. Yfir 900 tonn af kjöti flutt inn í fyrra Á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs voru flutt inn 845 tonn af kjöti. „Við höfum ekki áður séð svona háar tölur,“ segir Erna Bjarnadóttir og bendir á að árið 2005 voru flutt inn 236 tonn af kjöti. Þessi innflutningur í fyrra er bæði á háum og lágum toll- um. Það sem skýrir aukinn áhuga verslunar- og innflutningsfyrirtækja á að flytja inn kjöt er fyrst og fremst að fyrirtækin telja að það sé skortur á kjöti á innanlandsmarkaði. Finnur Árnason sagði í samtali við Morgun- blaðið í síðustu viku að það væri búið að vera viðvarandi skortur á kjúk- lingum og einnig hefði skort svína- kjöt fyrir jólin. Þá hefur verið veru- legur skortur á nautakjöti á markaði, en á síðasta ári voru flutt inn um 500 tonn af nautakjöti. Þó fyrirtækin hafi vissulega áhuga á að bjóða neytend- um sem hagstæðast verð á kjöti skiptir ekki síður máli að þau telja sig ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að innflutta kjötið seljist ekki. Það er ólíklegt annað en að inn- flutningur á kjöti eigi eftir að aukast á næstunni. Hann nam yfir 900 tonn- um í fyrra og þær breytingar á toll- um og markaðsaðgengi sem felast í nýjum samningi við ESB munu væntanlega auka þennan innflutn- ing. Það er vert að hafa í huga að nú er svo komið að um 15% af öllu nautakjöti sem neytt er hér á landi er innflutt. Erna segir ekki annað sjáanlegt en að þarna sé kominn markaður sem mjög erfitt verði fyrir innlenda framleiðendur að vinna aft- ur. Allur samanburður á verði ein- stakra kjöttegunda milli Íslands og nágrannalandanna sýnir að verð- munurinn er langmestur í kjúkling- um. Almenn lækkun á tollum mun því án efa hafa mest áhrif á viðskipti með kjúklinga. „Tollalækkunin hefur í för með sér raunverulegt verðaðhald“ Morgunblaðið/Þorkell Meira innflutt Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra skoðar hér kjötúrvalið í versluninni Spar. Guðni hefur lagt áherslu á að Íslendingar velji íslenskt kjöt, en flest bendir til þess að meira verði flutt inn af kjöti á næstunni. Í HNOTSKURN »Á síðasta ári voru flutt inntil landsins yfir 900 tonn af kjöti, þar af um 500 tonn af nautakjöti. Þetta er mikil aukning milli ára, en árið 2005 nam þessi innflutningur 236 tonnum. »Ef mið er tekið af því verðisem innflytjendur voru til- búnir til að greiða fyrir inn- flutningskvóta á kjúklingum í sumar er ólíklegt annað en að þeir muni sækjast eftir því að flytja inn kjúklinga eftir að tollur hefur verið lækkaður um 40%. Fréttaskýring | Líklegt er að innflutningur á kjúklingum og að ein- hverju leyti svínakjöti aukist í kjölfar tollalækk- ana. Egill Ólafsson velti fyrir sér áhrifum samn- ings við ESB um tollamál á vöruverð til neytenda. egol@mbl.is BÆTT samskipti á netinu er mark- mið nýrrar auglýsingaherferðar sem verið er að hleypa af stokk- unum þessa dagana, en AUGA, góðgerðasjóður auglýsenda, aug- lýsingastofa og fjölmiðla, stendur að herferðinni. Að sögn Sverris Björnssonar, formanns AUGA og hönnunarstjóra á Hvíta húsinu, var sjóðurinn stofnaður í fyrra. „Sjóð- urinn er skapaður til þess að gefa góðu málefni, sem ekki á þess kost annars, tækifæri á að nýta það afl sem í auglýsingunum er,“ segir Sverrir en vinna að herferðinni er unnin í sjálfboðavinnu hópsins. Sverrir segir að í fyrra hafi verið auglýst eftir umsóknum og hafi 30 borist. Fyrir valinu varð umsókn frá SAFT um bætt netsamskipti, en SAFT er vakningarátak um örugga netnotkun barna og ung- linga á Íslandi og er rekið á vegum Heimilis og skóla. „Í framhaldi af því fór í gang hefðbundin auglýs- ingavinna, greiningar á verkefninu og vandanum,“ segir Sverrir, en Capacent-Gallup, sem er sam- starfsaðili AUGA, tók þátt í þessari vinnu. Út frá því skilgreindu Sam- tök íslenskra auglýsingastofa, SÍA, helstu markmið herferðarinnar og þarnæst hófst vinna við gerð henn- ar. „Þetta var unnið af öllum stof- um innan SÍA og var að því leyti sérstakt verkefni,“ segir Sverrir. Herferðin samanstendur af sjón- varpsauglýsingu, auglýsingum í blöðum, útvarpi, á netinu og á skilt- um. Vodafone styrkir herferðina sem er að hefjast þessa dagana og segir Sverrir að mestur þunginn í henni verði á næstu vikum, en hún muni standa fram á vor. „Herferðin miðast að því að vekja athygli á því hvernig rétt nethegðun er. Í sam- vinnu við SAFT bjuggum við til fimm lykilorð að netinu – fimm lyk- ilsetningar sem spanna hvað menn eiga að varast og hvernig er rétt að haga sér á netinu.“ Þetta séu þörf skilaboð því svo virðist sem tvöfalt siðgæði sé í gangi og fólk hegði sér öðruvísi í samskiptum á netinu en í beinum samskiptum við annað fólk. Þá virðast börn og unglingar í sum- um tilfellum umgangast netið eins og það sé lokaður miðill, en ekki miðill sem allir hafa aðgang að. En hvers vegna var ákveðið að ráðast í verkefni af þessu tagi? Sverrir bendir á að það kosti tölu- verða peninga að auglýsa. Flest samtök sem eru að vinna að góðum málefnum hafi ekki yfir nægilega miklum peningum að ráða til að geta lagt út í auglýsingaherferðir. Þau geti því ekki nýtt sér þá kraft- og áhrifamiklu aðferð sem auglýs- ingar séu. „AUGA er stofnað til þess að gefa þeim kost á að nýta sér þessa aðferð við að ná til fólks og breyta hegðun þess.“ Með þessu sé auglýsingaiðnaðurinn að leggja sitt af mörkum til þess að bæta samfélagið. AUGA mun í febrúar auglýsa umsóknir vegna næstu herferðar, en Sverrir segir stefnt að því að standa að einni slíkri á ári. Stuðlað að bættum sam- skiptum á netinu Góðgerðasjóðurinn AUGA með nýja og umfangsmikla auglýsingaherferð Herferð Auglýst verður í fjölmiðlum fram á vor, t.d. í sjónvarpi og blöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.