Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is MONA Sahlin var tilnefnd formaður sænska Jafnaðar- mannaflokksins í gær og tekur hún við af Göran Pers- son, sem verið hefur leiðtogi flokksins í tíu ár. Sahlin verður fyrsta konan sem tekur við leiðtogahlutverkinu hjá jafnaðarmönnum, sem setið hafa að völdum í Svíþjóð í sex af undanförn- um sjö áratugum. Sem stendur er þó við völd samsteypustjórn hægri- og miðflokka undir forystu Fredrik Reinfeldts forsætisráðherra er tók við í september eftir sigur umræddra flokka er unnu saman í þingkosning- unum. Persson skýrði eftir kosning- arnar frá því að hann myndi hætta störfum sem flokksleiðtogi. Sahlin verður formlega kjörin leið- togi á flokksþingi í mars en engir aðr- ir munu bjóða sig fram og því verður kjörið aðeins formsatriði, að sögn sænskra fjölmiðla. Kannanir sýndu lengi vel að kjósendur flokksins vildu helst að Margot Wallström, sem nú situr í framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins, tæki við af Persson en hún vildi ekki gefa kost á sér. Áður hafði Anna Lindh, þáverandi utanrík- isráðherra, verið talin augljós arftaki forsætisráðherrans en hún var myrt í Stokkhólmi 2003. „Ég mun gera allt sem ég get til að efla á ný Jafnaðarmannaflokkinn, ekki einvörðungu til forystu í ríkis- stjórn heldur sem flokk sem heldur vöku sinni og bregst hratt við áskor- unum,“ sagði Sahlin á blaðamanna- fundi eftir að skýrt var frá því að hún hefði samþykkt að verða í kjöri í mars. Hún sagðist vera afar stolt en lýsti um leið hryggð sinni yfir því að það væri ekki Anna Lindh sem nú væri í hennar sporum. Sahlin er þrautreynd í stjórnmál- um og gegndi ráðherraembættum í alls 12 ár. En hún hefur einnig verið umdeild. Talið var líklegt að hún tæki við leiðtogahlutverkinu af Ingvari Carlsson eftir að hann sagði af sér 1996 en hún hafði verið aðstoðarfor- sætisráðherra hans 1994–1995. En þá kom í ljós að hún hafði keypt ýmislegt handa sjálfri sér og tekið út þúsundir evra á krítarkort sem skráð var á rík- isstjórnina. Þetta olli miklu hneyksli og neyddist Sahlin til að hverfa úr stjórnmálum um hríð. Sahlin sagðist hafa litið á úttektina sem lán og greiddi féð aftur úr eigin vasa. Hún var ekki ákærð. Mál Sahlin varð til þess að tryggja Persson leiðtoga- starfið en hún varð ráðherra í stjórn hans 1998. Mona Sahlin nýr leið- togi jafnaðarmanna Fær engan mótframbjóðanda á flokksþinginu í mars Mona Sahlin ÞAÐ VAR vart búið að hreinsa upp korktappana úr kampavínsflösk- unum frá hátíðahöldunum á gaml- árskvöld í Sófíu, höfuðborg Búlg- aríu, vegna inngöngu landsins í Evrópusambandið, ESB, þegar landeigendur í dreifbýli fylktu liði á götum borgarinnar í gær til að mót- mæla þeim áætlunum sambandsins að friða búlgörsk landsvæði. Telja þeir friðunina koma í veg fyrir að þeir hagnist á jarðasölu. AP Búlgarar mótmæla ESB í Sófíu NORÐMENN juku hlutdeild sína í norsk-íslenzka síldarstofninum um 4 prósentustig, úr 57% í 61%, í samn- ingum sem nú hafa tekizt um nýtingu síldarinnar. Þeir gáfu hins vegar eftir af sínum ýtrustu kröfum, sem hljóð- uðu upp á 70% hlutdeild. Aðrir við- semjendur gáfu eftir af sínum hlut en fengu á móti aðgang til síldveiða í norski lögsögu. Hlutur Íslands minnkar þannig úr 15,54% í 14,51%. Vegna aukins kvóta eykst hlutur Íslands úr 154.000 tonnum í tæp 185.000 tonn. Hefðu ýtrustu kröfur Norðmanna náð fram að ganga hefði hlutur Íslands líklega orðið ríflega 90.000 tonn, en hlutur Norðmanna 896.000 tonn í stað 780.800 tonna. Samningurinn felur það í sér að heild- araflinn verður 1.280.000 tonn og skiptist þannig að í hlut Íslands koma 185.728 tonn eða 14,51%, í hlut Nor- egs koma 780.800 tonn eða 61,00%, í hlut Færeyja koma 66.048 tonn eða 5%, í hlut Rússa koma 164.096 tonn eða 12,82% og í hlut ESB koma 83.328 tonn eða 6,51%. Aukinn aðgangur Samkvæmt samningnum hefur Ís- land meiri aðgang til síldveiða innan norskrar lögsögu en var samkvæmt þeim samningum sem í gildi voru árin 1996–2002. Íslenzk skip hafa ótak- markaðan veiðiaðgang á Jan Mayen- svæðinu, auk þess sem þau hafa heimild til að taka allt að 18,6% af veiðiheimildum Íslendinga í norskri fiskveiðilögsögu norðan 62°N. Norð- menn fá heimild til að veiða 7,03% í ís- lenzku efnahagslögsögunni en höfðu heimild til að veiða 11,47% sam- kvæmt samningnum frá 1996. Viðbrögð norskra útgerðarmanna við samningnum hafa verið mjög harkaleg. Þeir segja að með samn- ingnum séu hinum þjóðunum gefnir þrír milljarðar króna. Hlutur Noregs sé allt of lítill og stjórnvöld hafi huns- að ráðleggingar hagsmunaaðila. +/     (  (  ,  (     012 +      012   ! " " #$$ $$    !" ! 345     ! "#$  3! 55 6 7 56 85 !    ! 3465 Hlutdeild Noregs eykst um 4% Samið um norsk-íslenzku síldina „FYRST og fremst erum við auðvitað mjög ánægðir með að það skuli vera kominn á samn- ingur. Stjórnlaus- ar veiðar úr þess- um mikilvæga stofni gátu auð- vitað ekki gengið til lengdar og hefðu verið ógn við síldarstofninn,“ segir Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra. „Við veiddum í fyrra nærri þriðjung umfram ráð- leggingar fiskifræðinga og þó að stofninn hafi verið sterkur nú þá er augljóst að hann hefði ekki þolað það veiðiálag til lengri tíma. Það er auðvitað enginn ánægður í sjálfu sér með skiptinguna í þessum samningi en að mínu mati eru jákvæðu tíð- indin þau að þessar ábyrgu fisk- veiðiþjóðir hafa tekið höndum sam- an. Mér finnst að ef hægt er að tala um sigur einhvers sé það sigur heil- brigðrar skynsemi. Þarna láta allir eitthvað af sínum kröfum til að ná mikilvægu samkomulagi. Þetta sam- komulag er líka grundvöllur fyrir því að hægt sé að tryggja hagkvæm- ari veiðar en ella væri, meðal annars vegna ákvæðis um aðgang til veiða innan lögsagna ríkjanna. Það held ég að skipti líka miklu máli,“ segir sjávarútvegsráðherra. Komið í veg fyrir ofveiði Friðrik J. Arngrímsson, fram- kvæmdastjóri LÍÚ, sem var í sendi- nefnd Íslands, segir afar mikilvægt að samningar skuli hafa tekist. „Það ástand sem skapaðist þegar Norð- menn neituðu að endurnýja samn- inginn frá 1996 var algjörlega óvið- unandi. Það leiddi til rúmlega 32% meiri veiði úr stofninum í fyrra en sú nýtingarstefna sem var við lýði kvað á um. Það blasir við að slíkt kemur niður á stofninum. Þótt það sé hart að gefa eftir af hlut Íslands til Norðmanna, sem hafa hagað sér með afar óábyrgum hætti, tel ég það réttlætanlegt til að koma í veg fyrir að stofninn verði ofveiddur. Það hef- ur gerst áður með afleiðingum sem öllum eru kunnar,“ segir Friðrik. Ánægjulegt að semja „Ég er mjög ánægður með að við skyldum semja. Við eigum að vera með fiskveiðisamninga við nágranna okkar. Mér finnst við þó hafa þurft að gefa meira eftir en ég hefði viljað, en þegar maður semur verður mað- ur að vera tilbúinn að láta eitthvað af hendi,“ segir Aðalsteinn Helga- son, forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Síldarvinnslan ásamt tengdum aðilum er með mestan kvóta í norsk-íslenzku síldinni, eða 36,2%. Það eru um 67.000 tonn af núverandi úthlutun. Aðalsteinn seg- ir að það fari eftir öðrum veiðum hvenær íslenzku skipin hefji veiðar á norsk-íslenzku síldinni. Verði lítið úr loðnuvertíð fari menn fyrr í kol- munna og hugsanlega í síld. Sigur heilbrigðrar skynsemi Friðrik J. Arngrímsson Aðalsteinn Helgason Einar K. Guðfinnsson ÚR VERINU Union í Missouri. AP. | Shawn Horn- beck, bandaríski unglingurinn sem sl. föstudag fannst á heimili manns- ins sem rændi honum fyrir fjórum og hálfu ári síðan, segir að hann hafi stöðugt beðið þess að fá að hitta foreldra sína á ný. Hornbeck og fjölskylda hans voru gestir í sjónvarpsþætti Opruh Winfrey í gær. „Ég óskaði þess að einn daginn myndu foreldrar mínir finna mig og ég kæmist í faðm þeirra á ný,“ sagði Hornbeck við Winfrey í þætti sem sendur var út í gær. Viðtalið var tekið upp á þriðjudag. Horn- beck sagðist ekki tilbúinn til að ræða út í hörgul hvernig það gerð- ist að Michael Devlin rændi honum frá heimili hans í afskekktum hluta Missouri en þá var Hornbeck aðeins ellefu ára. Né vildi hann ræða um vistina með Devlin en hún varaði í 51 mánuð. Mál þetta hefur vakið mikla at- hygli vestra en svo virðist sem Hornbeck hafi haft næg tækifæri til að flýja eða hafa samband við for- eldra sína. Móðir Hornbecks, Pam, og stjúp- faðir hans, Craig Akers, sögðu við Winfrey að þau hefðu hlýtt ráðum sérfræðinga og ekki spurt son sinn út í reynsluna. Þau sögðust hins vegar sannfærð um að Hornbeck hefði ekki haft samband við þau vegna þess að hann hefði verið dauðhræddur um eigið líf, þeirra líf eða annarra í fjölskyldunni. Þá sagðist móðirin, Pam Akers, telja að Hornbeck myndi segja henni allt af létta er fram liðu stundir. Bæði kinkuðu þau kolli þegar Winfrey spurði hvort þau teldu, að Devlin, sem er 150 kg maður og sagður skapstór, hefði misnotað Hornbeck kynferðislega. Þráði að komast heim AP Frelsi Shawn Hornbeck (f. miðju) ásamt Ophrah Winfrey, frænku sinni Shari Frazier (t.v.) og Craig og Pam Akers.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.