Morgunblaðið - 19.01.2007, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 15
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Fínn kjarakaupadaga-afsláttur
og mörg sértilboð í gildi nú í
vikunni. Láttu sjá þig og gerðu
góð kaup.
Umboðsmenn um land allt.
A
T
A
R
N
A
–
S
T
ÍN
A
M
.
/
F
ÍT
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
STJÓRNVÖLD í Írak sögðust í gær vera byrjuð
að ráðast gegn vígasveitum sjíta-múslíma, að sögn
The New York Times. Eitt helsta umkvörtunar-
efni Bandaríkjamanna gagnvart stjórn sjítans
Nuris Ibrahims al-Malikis forsætisráðherra hefur
verið að lögregla og her stjórnvalda láti svonefnd-
an Mahdi-her ofstækisklerksins Moqtada al-Sa-
drs og fleiri sjíta-sveitir óáreittar en einbeiti sér
að vígasveitum súnníta. Maliki segir að yfir 400
Mahdi-menn hafi verið handteknir síðustu daga.
Yfirmenn í bandaríska hernum í Írak staðfestu
að allmargir leiðtogar vígasveita sjíta hefðu verið
handsamaðir. Ekki eru þó allir sannfærðir um að
um raunverulega stefnubreytingu sé að ræða, ef
til vill sé Maliki aðeins að reyna að blíðka stjórn
George W. Bush Bandaríkjaforseta. Bush hyggst
senda rösklega 20.000 manna viðbótarliðsafla til
Bagdad og Anbar-héraðs til að reyna að bæta
ástandið í öryggismálum en hefur gagnrýnt Maliki
af æ meiri hörku að undanförnu.
Athygli vekur að Sadr hefur ekki gagnrýnt
handtökurnar. Er bent á að Mahdi-herinn sé
margklofinn og sumir hóparnir séu ekkert annað
en venjuleg glæpagengi. Sadr hafi hugsanlega
ekkert á móti því að hreinsað sé til í liðinu. Margir
liðsmenn hans í úthverfinu Sadr-borg séu auk
þess farnir að þéna vel á aðstöðu sinni og pen-
ingahjálp frá Íran, þeir hafi ákveðið að grípa ekki
til vopna en hafi yfirgefið varðstöðvar og látið sig
hverfa, ef til vill aðeins um stundarsakir.
Al-Sadr átti á sínum tíma mikinn þátt í að
tryggja Maliki völdin en árásir liðsmanna klerks-
ins hafa orðið til að gera enn erfiðara en ella að
sætta súnníta við að missa völdin í Írak. Súnní-
arabar eru aðeins um 20% þjóðarinnar en hafa
ráðið nær öllu frá því að ríkið var stofnað um 1920.
Maliki forsætisráðherra segir að útvegi Banda-
ríkjamenn íraska hernum fleiri og betri vopn sé
engin þörf á því að fjölga í herliði Bandaríkjanna í
landinu. Hann segir í viðtali við breska blaðið The
Times að skortur á nauðsynlegum vopnum hafi
leitt til þess að lengri tíma hafi tekið að brjóta upp-
reisnarmenn í landinu á bak aftur en nauðsynlegt
hafi verið. Bandaríkjastjórn er hins vegar talin
óttast að vopn sem hún afhendi Írökum lendi í
höndum uppreisnarmanna.
„Takist okkur að uppfylla það samkomulag sem
við höfum gert og hraða afhendingu vopna og
tækjabúnaðar til hersveita okkar held ég að þörf
okkar fyrir bandarískt herlið muni minnka mjög
hratt á þremur til sex mánuðum,“ sagði Maliki.
Handtaka vígamenn sjíta
Ráðamenn í Írak segja meiri þörf á betri vopnum og tækjabúnaði en fleiri
bandarískum hermönnum til að binda enda á óöldina
MIKIÐ hvassviðri með ausandi
rigningu gekk yfir norðvest-
anverða Evrópu í gær og olli mann-
in, þar týndu tíu manns lífi, þ.á m.
tveggja ára drengur sem varð und-
ir vegg er hrundi í London.
skaða og eignatjóni. Víða rifnuðu
tré upp með rótum. Mest gekk á í
Bretlandi, þar sem myndin var tek-
Reuters
Mannskætt óveður í NV- Evrópu
TALSMENN
símafyrirtækisins
The Carphone
Warehouse til-
kynntu í gær, að
það hefði hætt að
taka þátt í kostun
raunveruleika-
sjónvarpsþátt-
anna Stóra-
Bróður, í kjölfar kvartana þúsunda
reiðra viðskiptavina vegna meints
kynþáttahaturs í þáttunum.
Var bresku sjónvarpsstöðinni
Channel 4 skipað að fjarlægja allt
sem tengdi nafn fyrirtækisins við
þættina, sem notið hafa vaxandi vin-
sælda síðustu daga, eftir að einn
þátttakandinn, indverska kvik-
myndastjarnan Shilpa Shetty, sak-
aði félaga sína um niðrandi ummæli
vegna kynþáttar hennar.
Ásakanirnar hafa vakið gríðarlega
athygli í Bretlandi og í gær var sagt
frá málavöxtum á forsíðum út-
breiddustu dagblaða landsins. At-
hyglin hefur ekki verið minni á Ind-
landi, þar sem þúsundir manna hafa
mótmælt meintri kynþáttahyggju
þátttakendanna, sem þeir telja
móðgun við land sitt og menningu.
Margir brenna myndir af þeim og
sumir krefjast hefndaraðgerða.
Indverska stjórnin kvartar
Tony Blair, forsætisráðherra, og
væntanlegur arftaki hans, Gordon
Brown, sem fer nú fyrir breskri við-
skiptasendinefnd í opinberri heim-
sókn til Indlands, hafa séð ástæðu til
að blanda sér í umræðuna og for-
dæma hegðun þátttakendanna,
fimm „hvítra“ Breta.
Blair sagði Breta ekki umbera
kynþáttahyggju en Anand Sharma,
ráðherra í Indlandsstjórn, lagði
engu að síður fram kvörtun vegna
framkomunnar gagnvart einni skær-
ustu kvikmyndastjörnu Bollywood.
Alls bárust Channel 4 yfir 30.000
kvartanir en atburðarásin hófst með
því að félagar Shettys settu út á
matarsmekk hennar, indverskan
hreim og framandi framkomu. Hún
var kallaður „hundur“ og spurt
hvort hún byggi í hreysi á Indlandi.
Kveðja
Stóra-
Bróður
Shilpa Shetty
London. AFP. | Íranar buðust til að
hætta að styðja Hizbollah, herskáa
hreyfingu sjíta í Líbanon, og Hamas-
samtökin í Palestínu í leynilegu bréfi
til Bandaríkjastjórnar skömmu eftir
innrásina í Írak árið 2003. Jafnframt
var stjórnvöldum í Washington heitið
fullri samvinnu vegna kjarnorkuáætl-
unar landsins, að því er kemur fram í
frétt breska ríkisútvarpsins, BBC,
um málið í gær.
Samkvæmt fréttinni var bréfið
óundirritað en bandaríska utanríkis-
ráðuneytið hafi engu að síður litið svo
á að það hefði verið samþykkt af
írönskum yfirvöldum.
Þar kom einnig fram að Íranar byð-
ust til að leggja sín lóð á vogarskál-
arnar til að koma á stöðugleika í Írak,
í skiptum fyrir að Bandaríkjastjórn
léti af „óvinveittum aðgerðum“, við-
skiptaþvinganir yrðu afnumdar og
leitin hert að meðlimum Mujahedeen
Khalq-samtakanna, MKO, sem berj-
ast gegn írönsku klerkastjórninni.
Upphaflega tók utanríkisráðuneyt-
ið vel í hugmyndina, að sögn Law-
rence Wilkerson, fyrrum skrifstofu-
stjóra Colins Powells, fyrrverandi
utanríkisráðherra.
Wilkerson segir einnig í samtali við
BBC að Dick Cheney varaforseti hafi
tekið illa í tilboðið og að Íranar hefðu
áður boðist til að framselja háttsetta
meðlimi al-Qaeda-hryðjuverkanets-
ins eftir innrásina í Afganistan haust-
ið 2001, í skiptum fyrir aðstoð við að
hafa uppi á liðsmönnum MKO.
Íranar sagðir hafa
rétt fram sáttahönd
Washington. AP, AFP. | Bandaríski
dálkahöfundurinn Art Buchwald,
sem gladdi lesendur dagblaða víða
um heim með hnyttni sinni í rúma
fimm áratugi, lést í Washington í
fyrradag, 81 árs að aldri.
Buchwald var lagður inn á
sjúkrahús í Washington í febrúar.
Hann neitaði að halda áfram í
himnuskiljunarmeðferð vegna
nýrnasjúkdóms þótt læknar hefðu
varað hann við því að hann myndi
deyja innan þriggja vikna ef með-
ferðinni yrði hætt. Hann hélt áfram
að skrifa í blöðin og gerði óspart
grín að dauðanum og væntanlegri
himnaferð sinni.
Buchwald fæddist 20. október
1925 í Mount Vernon í New York-
ríki. Um tíma voru skrif hans birt í
yfir 500 blöðum víða um heim, með-
al annars blöðum hér á landi, og
hann fékk Pulitzer-verðlaunin árið
1982.
Art Buchwald látinn
Phnom Penh. AFP. | Kambódísk kona,
sem týndist í afskekktum frumskóg-
um landsins fyrir nítján árum, hefur
loksins komið í leitirnar, að því er
lögregluyfirvöld skýrðu frá í gær.
Lögregluþjónninn Prey Chhlam
segir að stúlkan, sem nær öruggt er
talið að sé hin 27 ára gamla Rochom
P’ngieng, hafi verið á ferli í skóg-
lendi Rattanakiri-héraðsins þegar
þorpsbúi kom auga á hana.
„Hún er skrítin. Hún lítur út fyrir
að vera að hálfu mennsk og að hálfu
dýr. Hún er eins og villimaður,“
sagði Chhlam um konuna, sem getur
ekki gert sig skiljanlega á neinni
mállýsku.
P’ngieng týndist einn góðan veð-
urdag er hún var að gæta vatnavís-
unds í frumskóginum, um 610 km
norðaustur af höfuðborginni Phnom
Penh. Grunsemdir vöknuðu hjá fyrr-
nefndum þorpsbúa eftir að matvæli
tóku að hverfa á dularfullan hátt.
Hann ákvað því að vakta svæðið og
sá þá nakta konu koma hlaupandi úr
frumskóginum í leit að fæðu.
Í leitirnar
eftir 19 ár í
frumskógi