Morgunblaðið - 19.01.2007, Page 21

Morgunblaðið - 19.01.2007, Page 21
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 21 20% vi›bót arafsl áttur af allri út söluvöru . Reikna st af við kassann. 990 kr. 1.990 kr. 2.990 kr. 4.990 kr. 6.990 kr. S M Á R A L I N D bláa bomban 495 kr. 995 kr. 1.495 kr. 2.495 kr. 3.495 kr. -50% -50% -50% -50% -50% -20% -20% -20% -20% -20% 396 kr. 796 kr. 1.196 kr. 1.996 kr. 2.796 kr. Upprunalegt verð: 50% afsláttur af allri útsöluvöru: 20% viðbótarafsláttur á Bláu bombunni Nýtt kor ta- tíma bil ÍS L E N S K A /S IA .I S /D E B 3 57 48 0 1/ 07 STÆRÐIN skiptir máli fyrir fugla – sérstaklega þegar heilinn er annars vegar. Því stærri sem heili þeirra er hlutfallslega miðað við líkamsstærð, því meiri mögu- leika eiga þeir á að lifa af úti í náttúrunni. Forskning.no greinir frá breskri rannsókn þar sem hugmyndin um að hægt sé að tengja stóra heila lágri dánartíðni er í fyrsta sinn prófuð á vísindalegan hátt. Meðal niðurstaðna rannsóknarinnar er að stórir heilar geri dýrum kleift að þróa með sér sveigjanlegra at- ferlismynstur en ella. Það geri þau aftur hæfari til að takast á við óvæntar áskoranir í lífinu. 200 fuglategundir í ólíku loftslagi skoðaðar Dæmi um slíkar áskoranir má taka af rándýrum ofarlega í fæðu- keðjunni. Þau eiga ekki í nokkrum vandræðum með að næla sér í fugl sem situr neðar í keðjunni – svo fremi sem hann hafi ekki gáf- ur til að forða sér áður. Sem dæmi um aðra áskorun má nefna þegar náttúruleg heimkynni fuglanna verða fyrir eyðileggingu eða þegar loftslagsbreytingar verða. Vísindamennirnir við Bath- háskólann á Englandi báru saman heilastærð, líkamsstærð og dán- artíðni fjölda fuglategunda. Alls tóku þeir fyrir 200 tegundir sem lifa í köldu loftslagi, meðalheitu loftslagi og frumskógaloftslagi. Áður hefur verið sýnt fram á að rándýr á borð við púmur og hlé- barða taki dýr með smáa heila fram yfir önnur þegar þau velja sér bráð, einmitt vegna þess að heilastærðin hefur áhrif á hæfni dýra til að flýja frá þeim sem ráð- ast á þau. Hentugra að vera heilastór fugl Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sveigjanleiki Stórir heilar gera dýrum kleift að þróa með sér sveigjanlegra atferlismynstur og hæfni til að takast á við óvæntar áskoranir. Pétur Urbancic hringdi vegnafyrirspurnar umsjónarmanns um dæmi þar sem stuðlað væri saman sl og st eða sn og st. Hann sagði sl með tannhljóði alþekkt framburðarafbrigði í byggðunum í kringum Breiðafjörð. Og nefndi dæmi um slíkt í vísu, þó að hann þekkti hana ekki alla: Slys að útför steðja hans, slitna hanskasilar. Einnig nefndi Pétur dæmi um að sn og st væri látið stuðla saman með broti úr þriðja kafla kvæðis Matthíasar Jochumssonar Til Vestur-Íslendinga, sem ber yfirskriftina Bragar-bót og byrjar svo: „Sé ég hendur manna mynda/ megin-þráð yfir höfin bráðu.“ Ljóðið er meðal hans bestu kvæða og sjötta erindi hefst svo: Sturla kvað yfir styrjahjarli Snorri sjálfur á feigðarþorra. Lárus Blöndal bókavörður, afi umsjónarmanns, kenndi að stuðla mætti sl og st saman. Og dæmi um það eru ófá, til að mynda úr Skúla fógeta eftir Grím Thomsen: Rifna þá voðir og slitna þá stög, stengur og viðir molast, fyllir knör og í freyðanda lög fjórir af hásetum skolast. Þess finnast einnig dæmi hjá Kristjáni Karlssyni í kvæðinu Hedvige á 79th Street og í Rúnaslag Gríms Thomsens. Einnig er algengt að sn stuðli við st, svo sem í Íslandi Jónasar Hallgrímssonar: Nú er hún Snorrabúð stekkur og lyngið á lögbergi helga blánar af berjum hvurt ár, börnum og hröfnum að leik. Dæmi um slíka stuðlun má einnig finna í ljóðaflokki Guðmundar Guðmundssonar skólaskálds, Hafsins börnum, og í Rakka segir Grímur Thomsen: Ef nokkur líkið snertir, styggur stinna sýnir hann jaxla þá, og fram á sínar lappir liggur líki bóndans hjá. VÍSNAHORNIÐ Af stuðla- setningu pebl@mbl.is Fullkomnaðu verkið með Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar Þ A K R E N N U K E R FI á öllhús – allsstaðar BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 Sími 515 8700

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.