Morgunblaðið - 19.01.2007, Síða 22

Morgunblaðið - 19.01.2007, Síða 22
matur 22 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Strákarnir okkar Enginn má klikka á því að fylgjast með gengi okkar manna í handboltanum á HM í Þýskalandi um helgina. Ísland leikur á móti Ástralíu á morgun klukkan 15, á móti Úkra- ínu á sunnudag kl. 17 og á móti Frakklandi á mánudag kl. 19. Leikirnir verða allir sýndir beint í ríkissjónvarpinu. Nú ríður á að safn- ast saman fyrir framan imbakassann og senda stuðningsstrauma úr stofusófanum til Þýskalands. Nýtt í bíó Bíófólk hefur ástæðu til að kætast því í dag verða a.m.k. þrjár kvikmyndir frum- sýndar í bíóhúsunum. Laugarásbíó frum- sýnir Night at the Museum með leikaranum Ben Stiller í aðalhlutverki og Sambíóin taka kvikmyndirnar Babel og Foreldra til sýn- inga. Sú síðarnefnda er seinni tvíburinn í kvikmyndatvennu Ragnars Bragasonar leik- stjóra og Vesturports en fyrri myndin, Börn, er mörgum enn í fersku minni frá í haust. Kaffihúsaspjall með góðum vinum Helgarnar eru góður tími til að hitta vini á kaffihúsi og skrafa saman, taka púlsinn á samkvæmislífinu framundan og grípa með sér nýjasta slúðrið. Draugagangur í Tjarnarbíói Skottur og mórar verða í aðalhlutverki í Tjarnarbíó á laugardag þegar Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð setur upp Draugadans í Tjarnarbíói. Verkið er byggt á hugmyndum nemenda. Leikstjóri er Jón Gunnar Þórðarson en allir leikur er í hönd- um nemenda í MH. Djassaður Lúther Þeir sem vilja eiga notalega tónlistarstund á sunnudag geta sótt tónleika Listvinafélags Hallgrímskirkju þar sem Björn Thoroddsen mun flytja eigin útsetningar á gömlum sálm- um kirkjunnar úr fórum Marteins Lúther. Sálmana samdi Lúther á fyrri hluta 16. ald- ar en Björn hefur endursamið eitthvað af verkum hans og gert önnur að sínum. Tón- leikarnir verða klukkan 17 í Hallgríms- kirkju. Söfnin okkar stór og smá Helgar eru góður tími til safnaheimsókna, hvort heldur er til að skoða fallega myndlist eða safngripi af ólíkum toga. Hvers vegna ekki að skella sér á Kjarvalsstaði, Þjóð- minjasafnið, Sögusafnið í Perlunni, Nátt- úrufræðisafn Kópavogs, Ljósmyndasafn Reykjavíkur eða eitthvert annað af fjöl- mörgum söfnum landsins? mælt með... Morgunblaðið/Ómar Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/ÞÖK Ég og dóttir mín erum afar lukkuleg-ar með að hafa arkitekt í fjölskyld-unni og eru hæfileikar hans oftaren ekki nýttir fyrir afmæli þeirrar stuttu til að hanna og skera út ýmsar fígúrur í venjulega skúffuköku sem síðan er skreytt með lituðu kremi. Í stórmarkaði hér í borg fann ég litlar túpur með litageli, sem er þægi- legt að nota þegar þarf að setja eins og eitt andlit eða þvíumlíkt á kökuna. Þetta ætti að vera tiltölulega einfalt að gera ef höndin bregst manni ekki. Einnig er hægt að kaupa ýmsar tegundir af formum sem nota má til að gera hin skemmtilegustu fyrirbæri. Uppskriftin að ostakökunni er hins vegar e.t.v. meira fyrir fullorðnu fylgifiskana sem oft fylgja börnum sínum. Uppskrift sem kemur frá Suðurríkjum Bandaríkjanna og er búin að vera hernaðarleyndarmál. Þessi ostakaka er bökuð og tekur því dágóðan tíma í ofninum en er vel fyrirhafnarinnar virði. Best er að baka hana daginn áður en veislan er haldin, því að hún á að kólna í ofninum áður en hún er sett í kæli. Hún er alveg einstaklega létt og slær alltaf í gegn. Ég læt líka fylgja með uppskrift af sósu sem er sérstaklega góð með allri kæfu eða paté, þó einnig megi nota hana sem sósu ofan á snittu- brauð að ítölskum hætti. Ég mæli eindregið með því að hafa paté með þessari sósu í barna- afmælum, sérstaklega þar sem afmælin eru yf- irleitt haldin um miðjan dag og margir sem vilja því fá sér eitthvað staðfast að borða áður en kökuátið hefst. Skúffukaka með bleiku smjörkremi 1,050 ml hveiti 750 ml sykur 1 tsk. salt 1 tsk. vanilla 1 tsk. matarsódi 250 ml kakóduft 2 egg 100 g smjörlíki/smjör 396 ml mjólk Blandið fyrst saman þurrefnunum og því næst mjólk og smjöri og blandið svo öllu sam- an. Setjið í smurða og hveitistráða djúpa ofn- skúffu og bakið við 180°C í ca. 30 mínútur eða þar til prjónn sem stungið er í miðja kökuna kemur út hreinn. Bleikt smjörkrem 300 g flórsykur 300 g smjör 1 eggjarauða 1 tsk vanilla Þeytið allt saman og skiptið í þrjá hluta ef nota á þrjár tegundir af lit. Blandið síðan mat- arlit út í eftir hentugleika. Í andlitið notaði ég örlítið brætt súkkulaði til að búa til brúna lit- inn og í bleika litinn notaði ég rauðan matarlit. Til að teikna útlínur notaði ég sérstakar mat- arlitatúpur sem hægt er að kaupa í stórmörk- uðum. Létt ostakaka frá Suðurríkjunum eða Jojo’s special cheesecake 1 kg rjómaostur, við stofuhita 4 egg, við stofuhita 1½ bolli sykur 6 dl sýrður rjómi, við stofuhita 3 msk. maíssterkja 1 msk. nýkreistur sítrónusafi 1 msk. vanillusykur, eða 2 vanillustangir 250 g smjör Botn: 1 kassi Graham Crackers kex ½ bolli pekan hnetur, fínt saxaðar (einnig er hægt að nota valhnetur eða aðrar hnetur, jafn- vel hnetublöndu) 250 g smjör Notið 20 cm smelluform. Smyrjið formið með grænmetisolíu, annarri bragðlítilli olíu eða smjöri. Blandið hráefninu í botninn saman í skál, blandan á að vera rök svo að hún klístrist en ekki þannig að hún sé blaut. Þrýstið 2⁄3 af blöndunni í botninn og hliðarnar á forminu, geymið afganginn til að setja ofan á kökuna. Í annarri skál er blandað saman rjómaosti og sykri. Hrærið þar til blandan er orðin eins og silki. Brjótið eitt egg í einu og hrærið saman við blönduna og hrærið vel í á milli. Bætið þá sýrða rjómanum saman við ásamt restinni af þurrefnunum og blandið öllu vel saman. Bætið þá sítrónunni og smjörinu saman við og hrærið vel. Blandan ætti að vera mjög mjúk og falleg. Þeytið nú létt blönduna í ca. 5 mínútur með þeytara, en ef notuð er hrærivél skal aðeins hræra í eina mínútu. Hellið blöndunni í formið og dreifið restinni af blöndunni í botninn yfir. Setjið kökuformið á bökunarpappír í óhit- aðan ofn og bakið við 160°C. Bakið í ca 1½ klst. eða þar til toppurinn á kökunni byrjar að brotna. Slökkvið þá á ofninum, opnið örlítið og látið kökuna sitja í ofninum þar til hún er næstum orðin köld, ca. 2 tíma. Takið þá kök- una úr ofninum og kælið í forminu í ísskáp yfir nótt. Næsta dag er hún tekin úr ískápnum og svo úr forminu rétt áður en hún er borin fram. Vinaigrette úr grilluðum paprikum og balsamicosýrópi 4 rauðar paprikur 200 ml balsamik edik 70 ml sykur salt og nýmalaður pipar Paprikurnar eru grillaðar þar til þær svert- ast, þá eru þær teknar úr ofninum, settar í skál, álpappír yfir og látnar bíða í 10 mínútur áður en hýðið tekið af. Á meðan er balsamik edikið sett í pott ásamt sykrinum og látið sjóða vel þar til þykknar, ca. 10 mínútur. Þá eru paprikurnar settar í matvinnsluvél og mauk- aðar saman, sýrópinu er síðan bætt smátt og smátt saman við þar til bragðið er sætt og ör- lítið súrt. Saltað og piprað eftir smekk. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ĺífið er leikur Þó sætindin sem á borð eru borin í barnaafmælum séu góð er líka gaman að hitta aðra krakka og leika sér. Solla stirða og sælir krakkar Barnaafmæli finnst Sigurrósu Pálsdóttur alltaf jafn skemmti- leg. Þau gefa líka tilefni til að kalla saman fjölskyldu og vini þegar hversdagslegt amstur gef- ur ekki tíma fyrir heimsóknir. Solla stirða Litrík skúffukaka í formi stelpunnar kraftmiklu Sollu stirðu. Lostæti Ostakaka að hætti Jojo.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.