Morgunblaðið - 19.01.2007, Síða 24
veitingastaður
24 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Sigurbjörgu Arnarsdóttur
sibba@mbl.is
FÖRÐUNIN hjá stjörnunum á Gol-
den Globe-verðlaunahátíðinni í ár
var einföld, stílhrein og glæsileg.
Það má segja að hún hafi skipst í
þrjá flokka. Mest áberandi var
rauði varaliturinn sem margar leik-
konur höfðu valið sér sem fók-
uspunkt í förðuninni. Hann var í
margskonar tónum og áferð, allt
frá því að vera ljós með bleikum
undirtón yfir í að vera mjög dökkur
og glansandi.
Með rauðu vörunum voru augun
máluð með frekar ljósum litum og
kinnar skyggðar með bleiktónuðum
kinnalit.
Ekki voru allar stjörnurnar með
rauðar varir og völdu sumar að
vera með dökka dramatíska augn-
förðun. Gerviaugnhárin voru
óspart notuð til að gera augun
kraftmikil og áberandi. Kinnbein
og varir voru yfirleitt höfð í sama
ljósa húðlitaða tóninum til að draga
ekki athyglina frá sterkri augn-
förðuninni.
Svo voru það hinar látlausu
stjörnur sem ekki vildu að förðunin
væri áberandi. Þær voru með hlut-
lausa augnförðun og mildan ljósan
varalit.
Nútímalegt Fyrirsætan og leik-
onan Milla Jovovich var með hálf-
gegnsæjan varalit með glossáferð.
Glæsileg Leikonan Helen Mirren
var með mildan bleikrauðan varalit
sem hæfði hennar aldri og húðlit vel.
Áberandi Leikonan Cameron Diaz
fór ekki fram hjá neinum með sinn
eldrauða varalit og gloss.
Dramatík „Eiginkonan“ Eva Lon-
goria var með dökka augnförðun og
með mikil og þykk gerviaugnhár.
Blandað Leikonan Courteney Cox
Arquette var mitt á milli þess að
vera náttúrulega og dramatísk.
Reuters
Einfalt Kate Winslet leikonan við-
kunnalega var með dökkrauðbleik-
an varlit og látlausa augnförðun.
Klassískt Söng og leikonan Jenni-
fer Lopez var með sína klassísku
JLo förðun, dökk augu, gervi-
augnhár og ljósan húðlitan varalit.
Einlitt Leikonan hæfileikaríka
Hillary Swank var förðuð á látlaus-
an hátt og svipaður litatónn not-
aður á augu, kinnbein og varir.
Látlaust Leikonan Rachel Weisz
var með gerviaugnhár og án þess
þó að vera mjög dramatísk.
Náttúrulegt Súperfyrirsætan og
þriggja barna móðirin Heidi Klum
var förðuð á einfaldan hátt.
Dramatísk augu
og rauðar varir
Hótel Borg, sem eitt sinnvar miðpunktur Reykja-víkur þar sem góðborg-arar komu saman á árum
áður til að skrafa og gera sér góðan
dag, hefur gengið í gegnum nokkur
niðurlægingartímabil á síðustu ára-
tugum í bland við tilraunir til að
hefja staðinn til vegs og virðingar á
nýjan leik.
Á síðasta ári lauk umfangsmiklum
umbótum á jafnt hóteli sem veitinga-
stað og eitt er víst, Borgin hefur
sjaldan verið glæsilegri en nú.
Breytingarnar á veitingasalnum
eru það umfangsmiklar og róttækar
að mörgum þykir eflaust nóg um.
Þeir eru vissulega til sem vilja halda
í „gömlu góðu Borgina“ og telja að
með breytingunum nú sé búið að
skemma hið gamla góða yfirbragð
hennar. Á móti má svo benda á að
Borgin var ekki orðin neitt sérstak-
lega glæsileg undir lokin og þótt
nostalgían sé vissulega til staðar hjá
mörgum verður því ekki á móti mælt
að nú iðar Borgin af lífi.
Hún verður kannski ekki eini mið-
punktur Reykjavíkur á nýjan leik.
Reykjavík hefur breyst það mikið frá
fyrri hluta síðustu aldar að enginn
einn staður getur státað af því. Borg-
in – eða Silfur eins og veitinga-
staðurinn sem þar er nú rekinn í
Pálmasalnum og Jóhannesarstofu
heitir – er hins vegar búin að koma
sér á kortið sem einn af heitustu og
bestu stöðum höfuðborgarinnar.
Poppaður staður
og djarfur í hönnun
Silfur er poppaður staður og um
margt djarfur í hönnun. Hvítir og
svartir stólar og sófar, nær engin tvö
borð í salnum eins. Sumir sitja á bar-
kollum, aðrir í sófa og hinir á bólstr-
uðum stólum. Dúkar eru á sumum
borðum, öðrum ekki. Silfurliturinn
kemur víða við sögu, í lofti, í vegg-
fóðri, á barnum og leikur við gráu
tónana í tjöldum og hrárri klæðning-
unni utan um súlurnar. Yfir öllu
gnæfa fyrirferðarmiklar ljósakrón-
urnar sem setja sterkan svip á sal-
inn. Allt er úthugsað og jafnvel á sal-
erninu má heyra róandi fuglakvak.
Maturinn er ekki síður nútíma-
legur en staðurinn, en í eldhúsinu er
Steinn Óskar Sigurðsson, mat-
reiðslumaður ársins 2006, sem áður
starfaði á Sjávarkjallaranum. Raun-
ar má segja að það megi oft finna
ákveðin samhljóm með stíl matar-
gerðarinnar í Sjávarkjallaranum og
þeirri sem nú er stunduð á Silfri. Ég
segi nú því að þótt staðurinn sé ekki
margra mánaða gamall hefur hann
þegar tekið út nokkrar breytingar
frá því sem var í upphafi.
Hugsanlega var lagt af stað með of
mikinn metnað í byrjun varðandi
matargerð, hráefni og þjónustu. Að
minnsta kosti er ljóst að á síðustu
vikum hefur allt verið tónað örlítið
niður.
Hvort sem er í hádeginu eða á
kvöldin er matreiðslan þó enn í mjög
háum gæðaflokki – frumleg, stund-
Borgin silfri slegin
Morgunblaðið/ÞÖK
Svart-hvítt umhverfi „Borgin hefur sjaldan verið glæsilegri en nú. Breytingarnar á veitingasalnum eru þó það umfangsmiklar og róttækar að mörgum
þykir eflaust nóg um,,“ segir Steingrímur Sigurgeirsson og kveður Borgina nú eftir breytingarnar iða af lífi.
tíska