Morgunblaðið - 19.01.2007, Side 37

Morgunblaðið - 19.01.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 37 Við amma spjölluðum margoft um veiðiskap og gang náttúrunnar. Hún hafði einlæga aðdáun á náttúrunni og fann til með fuglunum og ekki síst rjúpunni. Það fór eitthvað minna fyrir stuðningi hennar við bæði mink og ref og hún fylgdist ná- ið með gangi mála á veiðum okkar bræðra á þessum fjórfætlingum. Mér er minnisstæð ferð okkar ömmu þegar ég var stráklingur til veiða í Hamarsá fyrir um 15 árum. Eitthvað var veiðin dræm snemm- sumars en ég gleymi því ekki þegar við amma óðum saman berfætt yfir kalda og vatnsmikla ána og fórum létt með það. Það er með miklu þakklæti sem ég kveð þig, amma mín, þakklæti fyrir að hafa kynnst þér og lært af þér að meta þetta líf sem var alltaf glaðlegt í kringum þig. Það var margt fólk sem sótti til þín, amma, og þú áttir marga vini og ekkert skipti þig eins miklu máli og fjöl- skyldan og að hafa hana sem næst þér. Ekki minnist ég þess að þú haf- ir hallmælt fólki, þú eyddir tímanum í annað og betra og frá þér fór mað- ur aldrei svangur eða illa klæddur. Takk fyrir þær fjölmörgu stundir sem við áttum saman. Þormóður Ingi Heimisson. Elsku amma mín, þá ertu haldin áfram ferð þinni í nýjan og betri heim. Ég vil þakka þér fyrir svo margt, fyrir að taka ávallt svo vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn til þín og hversu glöð þú varst alltaf þegar þú sást okkur. Ég man eftir þér sem svo góðhjartaðri konu, hversu nægjusöm þú varst og hvað þú hafðir sjálfstæðar og ákveðnar skoðanir á hlutunum. Þér fannst alltaf gaman að dunda þér með mér, spila við mig, láta mig teikna fallegar myndir fyrir þig svo þú gætir hengt þær upp á vegg hjá þér og láta mig syngja fyrir þig. Þú sem kenndir mér að fara með bæn- irnar áður en ég fór að sofa. Ég get ekki annað en brosað þeg- ar ég hugsa til þess að þú mundir alltaf hvað mér þótti „Tangabrauð“ gott, og þegar það var hætt að selja það í Kaupfélaginu fórstu meira að segja sérferð upp í bakaríið og lést búa til svoleiðis brauð, bara fyrir mig. Þú vildir gera allt fyrir mann og sýndir manni alltaf skilyrðislausa umhyggju. Minningar mínar um þig eru margar og hver og ein yndisleg. Í hjarta mínu áttu þér sérstakan stað þar sem ég mun muna eftir þér, og hvernig þú raulaðir ættjarðarlög með sjálfri þér. Með trega og söknuði í hjarta kveð ég þig, en ég veit það svo vel að þú munt ávallt vaka yfir okkur. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína, þakkarklökkva kveðjugjörð, kveð ég líf þitt, móðir jörð. Móðir bæði mild og hörð, mig þú tak í arma þína. Yndislega ættarjörð, ástarkveðju heyr þú mína. (Sigurður frá Arnarvatni) Harmið mig ekki með tárum, þótt ég sé látinn. Hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, en þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég tek þátt í gleði ykkar. (Kahlil Gibran) Tinna Björk Óskarsdóttir. Ég minnist Immu ömmu fyrir þær skemmtilegu stundir sem ég átti með henni. Amma og afi kenndu mér að veiða með veiðistöng og gáfu mér veiðidót, t.d. veiðitösku og háf. Þegar ég var 8 ára fór amma með mig í eftirminnilega veiðiferð í Hamarsá þar sem hún óð tvisvar berfætt út í ána fyrir mig til að losa öngulinn og í seinna skiptið sagðist hún einmitt hafa verið að verða þurr. Það var alltaf gaman að koma til ömmu í Kampholt, þar hittust oft barnabörnin og var þá leikið, spilað og skemmt sér. Seinna, þegar ég fékk að búa hjá henni þar, hafði hún oftast það sem mér fannst best í matinn og hugsaði um að ég hefði það gott. Amma hafði gaman af því að segja sögur og segja frá því hvernig lífið var þegar hún var ung og seinna höfðu barnabörnin mjög gaman af því þegar hún söng og trallaði með þeim. Baldur. Það er vorkaldur morgunn þegar ég vakna í rúminu í suðurherberg- inu á loftinu í gamla bænum á Sauðadalsá. Tommi afi og Imma amma eru farin niður, ég heyri í þeim vera að bauka eitthvað en kúri mig undir dúnsænginni því bærinn er kaldur og ég bíð eftir því að það hitni aðeins út frá eldavélinni. Fer þá niður og fæ sjóðandi heitt kaffi sem ég drekk af undirskál eins og afi þó ég sé aðeins smá putti. Amma klæðir sig í sloppinn og við förum öll í fjósið að mjólka kýrnar. Húna- flóinn er lognkyrr og fagur, það slær gullnum bjarma á Strandafjöll- in, veturinn er á undanhaldi og það mun kula þegar líður á daginn. Fyr- ir hádegið fæ ég að fljóta með þegar afi fer að vitja um rauðmaganetin. Ég er sérstaklega ánægður með að sjá selinn sem lónar með ströndinni. Afi segir að þetta sé selurinn minn, sá sami og hann gaf mér í fyrrasum- ar og aðeins við tveir vitum um. Fló- inn, Hamarinn, ósinn, skerin, Vatns- nesfjallið! Öll sveitin okkar er í sjónhendingu þegar við róum að netunum. Það eru hreyknir veiði- menn sem koma að landi með góðan afla og amma fagnar okkur sérstak- lega með brauði og kaffi þegar við komum heim. Þetta er ein af fjölmörgum ómet- anlegum minningum sem ég á frá langri dvöl með móðurforeldrum mínum, Tomma afa og Immu ömmu á Sauðadalsá á Vatnsnesi. Imma amma, sem borin er til grafar í dag, var af þeirri kynslóð sem gekk í gegnum mestu umbreyt- ingar 20. aldarinnar í íslensku þjóð- lífi. Hún upplifði erfiðleika af ýmsu tagi en miklu fremur ómælda gleði og lífshamingju sem fylgdi farsælu hjónabandi, barnaláni og stórri fjöl- skyldu. Veikindi og andlát afa árið 1981 var ömmu mikið áfall en ég tel að það sem öðru fremur hafi hjálpað henni við þær aðstæður hafi verið meðfædd jákvæðni, og einlæg trú á framtíðina. Eftir að amma stóð ein tókst henni með eljusemi og dugnaði að búa sér þá stöðu að geta notið lífsins áfram og það gerði hún svo sann- arlega. Imma amma lagðist í ferða- lög um Norðurlöndin og víða um Evrópu. Hún bjó sér falleg heimili þar sem hún tók á móti gestum og sínum nánustu. Fjölskyldan var ávallt í öndvegi og ég veit að hún lagði allt sitt af mörkum til að henn- ar fólki gæti liðið sem best. Að fjöl- skyldunni frátalinni hafði Imma amma mikinn áhuga á félagsmálum, hún var sjálfstæð kona með ríka réttlætiskennd og hún lét víða til sín taka. Þátttaka hennar í Kvenfélag- inu Sigurósk á Vatnsnesi, í bygging- arnefnd Félagsheimilisins á Hvammstanga, formennska í Félagi eldri borgara í Vestur-Húnavatns- sýslu o.fl. var bæði henni og sam- ferðafólki dýrmæt. Félagsmálaþátt- taka hennar auk áhuga á kvenfrelsisbaráttu og stjórnmálum á síðari árum var oft vettvangur líf- legrar umræðu okkar í milli um þjóðfélagsmál. Oft var henni heitt í hamsi yfir gangi lands- og heims- mála og þá var sama hvort hún ræddi við mig, Sigurbjörgu konu mína eða Fanneyju og Júlíu dætur mínar. Hugsjónin um jafnrétti, frið og hamingju öllum til handa var ofar öllu og undir það tókum við að sjálf- sögðu. Eftir að fjölskylda mín flutti til Hvammstanga var það okkur öll- um ómetanlegt að fá að vera svo nærri Immu ömmu og fyrir það skal þakkað. Það er mér sérstaklega dýrmætt að hafa á síðustu árum átt fjölmarg- ar stundir með Immu ömmu þar sem við sátum tvö með kaffibollana, spjölluðum um liðna tíð og fórum svo fram og horfðum út um gluggann norður fjörðinn, út Hú- naflóann, á Heggstaðanesið, Ennis- stigann, Bæjarfellið, Balafjöllin og ekki síst Vatnsnesið sem geymir ótal sameiginlegar vonir okkar um framtíðarlandið. Minningu um elskulega Immu ömmu mun ég ávallt varðveita. Skúli. Elsku Imma langamma. Ég vil þakka fyrir allar þær yndislegu stundir sem við áttum saman. Það var alltaf gaman að koma í heim- sókn til þín og hjá þér leið mér alltaf vel. Bjartsýnin, jákvæðnin, lífsgleð- in og hamingjan ljómaði af þér hve- nær sem var. Hjá þér var fjölskyld- an í forgangi, þú hugsaðir alltaf svo vel um alla og vildir að öllum liði vel. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst þér því þú kenndir mér svo margt sem ég hefði ekki endilega lært hjá öðrum. Það mun ekki líða dagur án þess að ég hugsi um þig, því ynd- islegri konu með jafn stórt og hlýtt hjarta er erfitt að finna. Mér þótti alltaf svo vænt um þig, elsku Imma amma. Ég kveð þig með söknuði en nú veit ég að þú ert kom- in á góðan stað þar sem þér líður vel. Fanney Skúladóttir. Þegar komið er að kveðjustund ættingja og vina sækir jafnan margt á hugann. Svo er fyrir mér þegar ég sest niður og langar í örfáum orðum að minnast Ingibjargar frænku minnar frá Sauðadalsá. Hugur minn reikar aftur í tímann. Ég er smástúlka að skoða jólakortin mín. Á einu þeirra stendur undir fal- legri jólakveðju: „Frá frænkum þín- um á Stöpum.“ Þessar frænkur mín- ar hafði ég aldrei séð og Stapar voru langt úti á Vatnsnesi. Svo þegar ég var átta ára gömul kom ég fyrst að Stöpum. Þar var gaman að koma, glaðvært heimili. Þar voru systurnar fjórar, foreldrar þeirra og fleira fólk. Elsta systirin Ingibjörg eða Imma eins og ég kall- aði hana alltaf var þá 16 ára gömul, sérlega falleg stúlka og falleg var hún alla ævi. Einnig er mér mjög minnisstæður gamli maðurinn Þor- lákur sem var afabróðir okkar Immu beggja. Seinna eftir að Imma fór að búa á Sauðadalsá urðu kynni okkar smátt og smátt meiri, meðal annars vegna starfa okkar í kvenfélaginu Sigur- ósk. Þar var hún mikil driffjöður til margra ára. Seinna fluttu þau Þor- móður maður hennar og hún til Hvammstanga. Heilsa hans var þá orðin svo að þau treystu sér ekki til að vera við búskap lengur. Eftir að þangað kom vann hún meðal annars á sjúkrahúsinu. Sjúklingarnir töluðu um hve gott hefði verið að hafa hana í návist sinni. Hún var öllum góð, ungum sem öldnum. Eftir að við Ólafur fluttum suður til Reykjavíkur leið lengra á milli samfunda okkar Immu en oft töl- uðum við saman í síma. Og þegar hún skrapp suður kom hún yfirleitt í heimsókn til okkar. Eitt er það sem aldrei gleymist. Þegar við urðum fyrir því áfalli að missa syni okkar kom hún til okkar án þess að nokk- uð væri umtalað, dvaldi hjá okkur í bæði skipti í nokkra daga og um- vafði okkur hlýju með nærveru sinni. Það var ekki alltaf mikið talað en stundum er ekki þörf á mörgum orðum. Fyrir þetta erum við henni alltaf þakklát, umfram allt annað í okkar viðkynningu. Lengi átti hún heimili sitt í Nest- úni, húsi aldraðra á Hvammstanga. Þar var hún sem áður drífandi í fé- lagsskapnum, nú var það starfið meðal eldra fólksins. Þegar heilsu hennar fór að hraka fyrir alvöru fór hún á sjúkrahúsið og fékk þar alla umönnun sem hægt var að veita henni. Hún kvaddi fólkið sitt allt og gamla árið. Hélt á nýársnótt inn í þá veröld sem bíður okkar allra að lok- um. Við Ólafur þökkum þessari mætu konu fyrir alla góða samveru og biðjum henni blessunar Guðs. Send- um ættingjum hennar og öllum sem þótti vænt um hana innilegar sam- úðarkveðjur. Halldóra Kristinsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORSTEINS M. ÁRNASONAR frá Miðfjarðarnesi, Skeggjastaðahreppi. Kristín Þorsteinsdóttir, Kristján Jónsson, Hugrún Þorsteinsdóttir, Rafn Gunnarsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Elsku eiginmaður minn, faðir okkar, afi og bróðir, LÁRUS ARNAR PÉTURSSON tannlæknir, Heiðarbraut 61, Akranesi, lést þriðjudaginn 16. janúar. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 26. janúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Svanhildur Thorstensen, Pétur Atli Lárusson, Lilja Björk Lárusdóttir, Hulda Klara Lárusdóttir, Lára Björk, Sólrún Pétursdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við fráfall og útför elsku- legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóð- ur, ömmu og langömmu, UNNAR FRIÐRIKSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfræðinganna Helgu Erlingsdóttur og Bryndísar Þórhallsdóttur, Heima- hlynningar á Akureyri, starfsfólks á hjúkrunarheim- ilinu Seli, Akureyri og starfsfólks lyfjadeildar FSA. Þórður Á. Björgúlfsson, Björg Þórðardóttir, Björgúlfur Þórðarson, Friðrik Þórðarson, Kristín Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, tengdasonur og bróðir, JÓHANN PÁLMASON, lést miðvikudaginn 17. janúar sl. Útförin verður auglýst síðar. Ragnheiður Gísladóttir, Hlynur Jóhannsson, Egill Þór Jóhannsson, Askur Jóhannsson, Alfa Jóhannsdóttir, Alfa Malmquist, Pálmi Sveinsson, Sveinbjörg Pálmadóttir, Kristrún Pálmadóttir, Jóna Birta Óskarsdóttir, Gísli Jónsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, JÓHANNA H. STEFÁNSDÓTTIR, Hrafnistu Reykjavík, áður til heimilis á Hólagötu 3, Ytri-Njarðvík, lést á Landspítala Hringbraut miðvikudaginn 17. janúar Jarðsungið verður frá Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtu- daginn 25. janúar kl. 14.00. Ólína H. Guðmundsdóttir, Kristófer Valdimarsson, Júlíana Guðmundsdóttir, Hulda Guðmundsdóttir, Þór Magnússon, Páll G. Guðmundsson og ömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.