Morgunblaðið - 19.01.2007, Page 38

Morgunblaðið - 19.01.2007, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Rafvirkjar Óskum eftir rafvirkjum í vinnu. Allar nánari upplýsingar í síma 896 4901. Afgreiðslufólk Óskum eftir afgreiðslufólki. Um er að ræða helgarvinnu og einnig virka daga. Upplýsingar í síma 699 3677. Umsóknum skal skila á netfangið: oddurbak@simnet.is Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Fundur í Norræna húsinu að tilhlutan gamalla félaga í Dansk-íslenska félaginu laugardaginn 20. janúar kl. 14:00 Fundarefni: 1. Ávarp. 2. Frá Dansk-íslenska viðskiptaráðinu: a) Helgi Ágústsson sendiherra b) Sverrir Sverrisson núv. form. 3. Dansk-íslenska félagið endurreist. 4. Bergþór Pálsson syngur. HLÉ 1. Kvikmynd. Þorláksblót í Biskupakjallaranum í Kaupmannahöfn 1952. 2. Umræður um myndina. Gamlir Hafnarstúdentar rifja upp stúdentsárin. 3. Almennur söngur. Eysteinn Pétursson. Fundarstjóri: Eysteinn Pétursson. Undirbúningsnefndin. Samgönguráð: Flugmálastjórn Íslands - Siglingastofnun Íslands - Vegagerðin. Samgönguráðuneytið. Stefnumótun í samgöngum Samgönguráð efnir til fundaraðar um samgöngumál. Fundirnir verða haldnir mánaðarlega næstu mánuði. Á fyrsta fundi verður fjallað um efnið: Ferðir, búseta og samgöngukerfi ● Áhrifasvið höfuðborgarsvæðisins og helstu þéttbýlisstaða. Kynning á niðurstöðum rannsókna Dr. Bjarni Reynarsson Land – ráði sf. ● Áhrif umbóta á samgöngukerfi á byggð Vífill Karlsson dósent við Háskólann á Bifröst. ● Breyting á umferð og búsetu 2000-2005 Dr. Hreinn Haraldsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar. ● Umræður og fyrirspurnir. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar 2007 kl. 15–17 á Grand Hótel Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og öllum er heimill aðgangur. Væntanlegir þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig á netfangið postur@sam.stjr.is eigi síðar en klukkan 12:00 þann 25. janúar nk. Næstu fundir í fundaröðinni: Öryggi vega, Fjármögnun samgöngu- mannvirkja og Umhverfislega sjálfbærar samgöngur. Ýmislegt Samkeppni og sérréttindi Almennt er samkeppni ráðandi hér í rekstri og hjá launafólki, innbyrðis og við erlenda aðila. Annað á við um fiskveiðar og álver. Fáum útgerðum eru, án endurgjalds, fengnir fiski- stofnar til veiða og útleigu, svo fast, að hrun þeirra blasir við. Þrátt fyrir jafnréttisákvæði stjórnarskrár hafa álver hér búið við sérákvæði um skatta, tolla, mengun og úrskurðun ágrein- ings. Og á nú að flytja milljarðaþjóðbraut? Geta leynd Alþingis um raforkuverð og áralangur leyniferill skýrslu Gríms Björnssonar, hjá mörgum opinberum aðilum, um jarðfræði Kárahnjúka, talist þjóðhollir stjórnarhættir. Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti. Félagslíf Í kvöld kl. 20.30 heldur Páll J. Einarsson erindi sem hann nefn- ir: ,,Newton og regnboginn” í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15- 17 er opið hús. Kl. 15.30 heldur Þórður Snæbjörnsson erindi um Tao og Rósakrossinn. Á fimmtudögum kl. 16.30-18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Starfsemi félagsins er öllum opin. http://www.gudspekifelagid.is I.O.O.F. 12  1871198172  I.O.O.F. 1  1871198  8½.O.* Raðauglýsingar sími 569 1100 Atvinnuauglýsingar • augl@mbl.is Það var svo gaman að koma til þín amma mín á Skipalón, alltaf líf og fjör á þeim bæ. Þvílík þolinmæði sem þú hafðir þeg- ar ég og Jói frændi píndum hvort annað, við grétum og hlógum á víxl. Þvílík læti. Svo allir sunnudagarnir ✝ Birna ÞuríðurJóhannesdóttir fæddist á Skaga- strönd 4. október 1921. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 31. des- ember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Keflavík- urkirkju 9. janúar. hjá þér. Öll stórfjöl- skyldan ef allir mættu, börnin þín, makar þeirra og börn. Öll í litla kotið Skipalón. Aldrei brást maturinn á sunnudögum, alltaf eitthvað gott, t.d. læri eða hryggur. Svo kom kaffitíminn, alltaf skúffukakan góða, það reyndu margir að gera eins góða köku og þú, en einhvern veginn var hún aldrei eins. Svo horfðum við á hug- vekju í sjónvarpinu og biðum eftir næsta þætti af „Húsið á sléttunni“ sem við horfðum öll á og grétum yf- ir. Þessi tími hjá þér er mér mjög dýrmætur. Barnabörnin voru þér mikils virði, þú gafst þér alltaf tíma til þess að sinna þeim. Þú varst allt- af til staðar, þessi öruggi punktur sem ég leitaði alltaf til sem barn í Höfnum. Þú varst mjög glysgjörn enda fannst þér ofsalega gaman að dressa þig upp, alltaf kát og glöð. Minningin um þig og Kollu horfa út um gluggann í eldhúsinu og raula eitthvað eða flauta lágt svo áhyggju- lausar er alveg yndisleg. Takk amma mín fyrir alla þína umhyggju og ást. Þín dótturdóttir Helga Birna. Elskulega amma mín. Ég kveð þig með söknuði og geymi minningarnar í huga og hjarta mínu. Þakka þér allt, allar yndislegu stundirnar með þér í gegnum árin. Ég veit þér líður vel núna, amma mín, og ert komin til afa, sem elskar þig svo heitt. Ég mun alltaf sakna þín, amma mín. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, – hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við Guð um þúsund ár. Hvað jafnast á við andardráttinn þinn? Hve öll sú gleði’ er fyrr naut hugur minn er orðin hljómlaus utangátta’ og tóm hjá undrinu að heyra þennan róm, hjá undri því, að líta lítinn fót í litlum skóm, og vita’ að heimsins grjót svo hart og sárt er honum fjarri enn, og heimsins ráð sem brugga vondir menn, já vita eitthvað anda hér á jörð er ofar standi minni þakkargjörð í stundareilífð eina sumarnótt. Ó, alheimsljós, ó, mynd sem hverfur skjótt. (Halldór Kiljan Laxness) Kveðja. Þinn Guðjón Þorberg. Birna Þuríður Jóhannesdóttir MINNINGAR Mig langar með fáum orðum að minn- ast æskuvinkonu minnar Addíar og þakka henni yndislegar samveru- stundir í gegnum árin. Allt frá bernskudögum höfðum við samband Árný Guðmundsdóttir ✝ Árný Guð-mundsdóttir fæddist á Sæbóli á Ingjaldssandi 31. desember 1924. Hún lést á Landspít- alanum – háskóla- sjúkrahúsi í Foss- vogi 11. desember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Neskirkju 22. desember. og órofa vináttu. Ég krýp og faðma fótskör þína, frelsari minn, á bænastund. Ég legg sem barnið bresti mína bróðir, í þína líknarmund. Ég hafna auðs- og hefð- arvöldum, hyl mig í þínum kærleiks- öldum. (Guðmundur Geirdal.) Með þessu fallega erindi vil ég kveðja hana og bið manni hennar, börnum og þeirra fjölskyld- um og henni, blessunar í dýrðarf- aðmi guðs. Ólöf Ragnheiður Jónsdóttir. Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 2007 Reykjavíkurmótið í sveitakeppni er nú í fullum gangi og eru búnar 11 umferðir af 17. Mótinu lýkur næstu helgi, 20.–21. janúar. Grant Thorn- ton hefur sýnt mikinn stöðugleika og hefur tekið góða forystu en núver- andi Reykjavíkurmeistarar og Ís- landsmeistarar í sveit Eyktar eygja enn von um að verja titilinn. Mikil barátta er hjá nokkrum sveitum um að halda sér meðal 13 efstu því það er kvóti Reykjavíkur á Íslandsmót. Sjá nánar á bridge.is. Staðan: Grant Thornton 232 Eykt 212 Málning 199 Karl Sigurhjartarson 198 Björn Eysteinsson 187 Sölufél. garðyrkjumanna 185 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 12. jan. Var spilað á 12 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S Friðrik Hermannss.– Eyjólfur Ólafss. 246 Jóhann Benediktss. – Pétur Antonss. 245 Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 234 Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófersson 220 A/V Haukur Guðm.s. – Bragi Björnsson 281 Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónsson 255 Jón Hallgrímss.– Jón Lárusson 241 Óli Gíslason – Helgi Sigurðsson 236 Bridsfélag Kópavogs Sl. fimmtudag var spilaður eins kvölds Howell tvímenningur með þátttöku 14 para, en næsta fimmtu- dag, 18. janúar, hefst Barómeterinn og er spilafólk hvatt til að fjölmenna í þetta skemmtilega mót sem verður þriggja kvölda. Röð efstu para: Árni M.Björnss. – Heimir Tryggvason 184 Hrund Einarsd. – Vilhjálmur Sigurðsson 182 Ármann J. Láruss. – Hermann Lárusson 179 Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 175 Reykjanesnót í sveitakeppni Reykjanesmót í sveitakeppni verður haldið helgina 27. og 28. jan- úar nk. í Hamraborg 11, Kópavogi, 3. hæð. Spilamennska hefst kl. 11 á laugardeginum. Fimm efstu sveitir vinna sér rétt til þátttöku í undan- úrslitum Íslandsmótsins í sveita- keppni. Þátttöku skal tilkynna eigi síðar en 23. janúar til Kjartans í síma 421 2287, Lofts í síma 897 0881 eða á skrifstofu BSÍ. Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilaði tvímenning á 13 borðum mánudaginn 15. janúar. Miðlungur 264. Beztum árangri náðu í NS Sigurður Guðjónss. - Sigurpáll Árnason 306 Halldór Jónss. - Valdimar Hjartarson 298 Heiður Gestsd. - Jón Páll Ingibergsson 292 Karl Gunnarss. - Gunnar Sigurbjörnss. 284 AV Jón Stefánsson - Eysteinn Einarsson 350 Sigtr. Ellertss. - Þorsteinn Laufdal 346 Haukur Guðm.s. - Björn Björnsson 308 Þorgerður Sigurgeirsd.- Stefán Friðbjss.306 Spilað alla mánu- og fimmtudaga. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, mánud. 15.01. Spilað var á 12 borðum. Árangur N-S Björn E. Pétursson - Gísli Hafliðason 314 Sigurður Pálsson - Guðni Sörensen 248 Jóhannes Guðmannss. - Unnar Guðm.s. 244 Árangur A-V Ragnar Björnsson - Guðjón Kristjánss. 274 Þröstur Sveinsson - Bjarni Ásmunds 260 Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 252 Meðalskor 216 stig. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.