Morgunblaðið - 09.02.2007, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
NÚ SÉR brátt fyrir endann á mikl-
um framkvæmdum sem hófust á
Laugardalsvelli fyrir rúmu ári að
frumkvæði Knattspyrnusambands
Íslands, en KSÍ samdi við Ístak um
framkvæmdirnar. Eldri stúkan hef-
ur verið stækkuð og endurbætt og
rúmar nú um 6.500 manns í sæti.
Verið er að ganga frá nýrri bygg-
ingu fyrir skrifstofu KSÍ og fræðslu-
setur sem Tark Teiknistofan teikn-
aði.
Nýja skrifstofubyggingin er aftan
við breyttu stúkuna og þar verður
auk þess miðasala og inngangar fyr-
ir starfsfólk og áhorfendur.
Nýja byggingin er tæplega 6.000
fermetrar á fjórum hæðum. Í kjall-
ara eru geymslur. Inngangar, sal-
erni og fleira er á jarðhæð, skrif-
stofur á 2. hæð, fræðslusetur og
herbergi sem notuð verða meðal
annars fyrir sérstaka hópa á lands-
leikjum á 3. hæð og aðstaða fyrir
fréttamenn á 4. hæð. Í hólfunum á
jarðhæð undir stúkunni verða meðal
annars veitingasölur og sjúkra-
herbergi. Á skrifstofuhæðinni verð-
ur eldhús, kaffistofa, fundarsalur,
geymslur og rúmgóð vinnuherbergi.
Á 3. hæðinni verður góð aðstaða fyr-
ir sjónvarpsmenn og eftirlitsfólk auk
tveggja stórra herbergja sem fyr-
irtæki leigja á leikjum en verða ann-
ars notuð fyrir starfsemi fræðsluset-
ursins.
Glæsileg aðstaða í Laugardalnum
Morgunblaðið/RAX
Eftirlitsherbergið Jóhann G. Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, í nýja eftirlitsherberginu þar sem hann verður ásamt fulltrúum lögreglu og ör-
yggisgæslu á heimalandsleikjum Íslands í knattspyrnu. Aðstaðan er fyrsta flokks og getur vart verið betri, segir Jóhann, en ekkert skyggir á völlinn.
Framkvæmdum á
Laugardalsvelli lýkur á
næstu vikum og þá fær
KSÍ glæsilega aðstöðu
fyrir starfsemi sína auk
þess sem mun betur
verður búið að áhorf-
endum og fjölmiðlum
en áður.
Morgunblaðið/RAX
Salir Hornherbergin í fræðasetrinu eru nánast tilbúin en þau verða leigð fyrirtækjum á landsleikjum.
Í HNOTSKURN
» Fyrsti landsleikurinn varleikinn á Laugardalsvelli
9. júní 1957.
» Laugardalsvöllur varvígður 17. júní 1959.
» KSÍ flutti skrifstofur sínarí húsnæði undir hinni
gömlu stúku Laugardalsvallar
1997. Sama ár var ný stúka
byggð að austanverðu.
» Vinna við endurbætur ogstækkun á vesturstúku og
byggingu nýrrar skrifstofuað-
stöðu KSÍ hófst 2005.
» Í stúkunum eru nú um10.000 númeruð sæti.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„VINAFÉLAGIÐ breytir öllum for-
sendum við starfið,“ segir Guðrún
Margrét Pálsdóttir, formaður ABC-
barnahjálpar, um stofnun Vinafélags
ABC-barnahjálpar. Félagið var
stofnað í gær og er hugsað sem stuðn-
ingsfélag við rekstur og útrás ABC-
barnahjálpar. Íslenska hjálparstarfið
ABC-barnahjálp hefur verið starf-
rækt frá 1988. Guðrún Margrét Páls-
dóttir er einn af stofnfélögunum og
hefur starfað sem sjálfboðaliði fyrir
félagið frá byrjun, en hún var lengst
af framkvæmdastjóri.
„Ég fékk hugmyndina um stofnun
ABC-barnahjálpar í hnattferð fyrir
20 árum og hef síðan reynt að gera
mitt besta í þessu efni,“ segir hún.
Hugsjónastarf
Að sögn Guðrúnar Margrétar hef-
ur starfið verið knúið áfram af hug-
sjón og þrautseigju, mestmegnis af
sjálfboðaliðum með lágmarksfé til
reksturs. Stefnan hafi alltaf verið sú
að söfnunarfé og framlög vegna
styrktarbarna og verkefna renni
óskert til hjálpar. Hugsjónin sé að
hjálpa eins mörgum börnum og hægt
sé með menntun, fæði, klæði, lækn-
ishjálp og heimili þar sem þörf sé á.
Hún leggur áherslu á að um ís-
lenskt starf sé að ræða og það verði
sérstaklega kynnt í ABC-vikunni 12.
til 18. febrúar. Árlega söfnunin Börn
hjálpa börnum verði síðan í samstarfi
við grunnskólana 15. febrúar til 2.
mars.
Hjá ABC eru tvö og hálft launað
stöðugildi og auk þess er íslenskur
starfsmaður ABC í Kenýa. Félagið
sér fyrir um 7.000 styrktarbörnum og
þar af um 2.700 börnum í heimavist
með fullri framfærslu. Á síðasta ári
voru sendar um 135 milljónir króna til
hjálparstarfs erlendis og frá byrjun
hefur félagið sent út um 835 milljónir
króna án verðbóta. Á sl. ári var fjár-
mununum varið til að kosta menntun
og framfærslu 6.500 barna, byggja
þrjá skóla í Pakistan og heimavist á
Indlandi, auk þess sem lokið var við
byggingu skóla í Úganda og korna-
barnahús á Indlandi. Nú stendur yfir
bygging heimavista fyrir stúlkur í
Norður-Úganda og bygging fjórða
skólans í Pakistan auk þess sem haf-
ist verður handa við byggingu heima-
vista og skóla í Kenýa, Pakistan og
Líberíu.
Vinafélagið öllum opið
Stofnuð hafa verið tvö félög til að
auðvelda ABC-barnahjálp að ná
markmiðum sínum. Annars vegar
ABC Children’s Aid International
sem var stofnað 1. febrúar. Í öðru
lagi er um að ræða Vinafélag ABC-
barnahjálpar sem var stofnað í gær.
Það er hugsað sem stuðningsfélag
við rekstur og útrás ABC-barna-
hjálpar. ABC-vinir eru þeir sem
skuldbinda sig til að leggja árlega
100.000 kr. eða meira til reksturs
ABC.
Stofnfélagar eru meira en 30 og á
meðal þeirra Spron, Netbankinn,
Glitnir, Össur, Icelandair, Hampiðj-
an, Skeljungur, Sjóvá, Rúmfatalag-
erinn, 66°Norður, Lyfja, Hans Pet-
ersen, 10-11, Gunnar Eggertsson hf.,
Fasteignasalan Fold ehf., Fríkirkj-
an, Vegurinn, Dýraland, Blikksmið-
urinn og Inn-X Innréttingar.
Í stjórn voru kjörin Þór Sigfússon
formaður, Gunnar Karl Guðmunds-
son, Hannes Lenz, Einar Gautur
Steingrímsson, Soffía Sigurgeirs-
dóttir, Ólafur Steinarsson og Aðal-
heiður Pálmadóttir. Varamenn eru
Guðmundur Ásgeirsson, Kristján
Gunnarsson og Geir Þórðarson.
Endurskoðandi er Haukur Gunnars-
son.
Starfið byggist fyrst og fremst á
sjálfboðaliðum, ABC-kreditkorti og
debetkorti og nú Vinafélaginu, en
vonast er til að félagið geti alfarið
kostað reksturinn þegar fram líða
stundir. Þór Sigfússon segir að ABC-
barnahjálp hafi alltaf notið velvildar
vegna þess að peningarnir hafa runn-
ið beint til barna erlendis. Vinafélag-
ið sé öllum opið og ástæða sé til að
hvetja fleiri einstaklinga og fyrirtæki
til að leggja þessu góða máli lið.
Vinafélag ABC-barnahjálpar breytir öllu
ABC-barnahjálp styrkir um 7.000 börn og hefur sent um 835 milljónir króna til hjálparstarfs erlendis
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hugsjónakonur Guðrún Margrét Pálsdóttir, formaður ABC-barnahjálpar, og Soffía Sigurgeirsdóttir, stjórn-
arkona í Vinafélagi ABC-barnahjálpar, við stofnun félagsins í gær, en fjölmargir voru á stofnfundinum.