Morgunblaðið - 09.02.2007, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
– f
yri
r öl
lu sem hugurinn girnist
Þú getur unnið!
Laust blaðberastarf
í þínu sveitarfélagi
Hringdu í umboðsmann Morgunblaðsins á þínu svæði
Borgarnes, Þorsteinn – 860 9008
Akranes, Ófeigur – 892 4383
Keflavík, Elínborg – 421 3463, 820 3463
Grindavík, Kolbrún – 847 9458
Sandgerði, Garður, Harpa Lind – 845 7894
Hveragerði, Úlfar – 893 4694
Selfoss, Sigdór – 846 4338
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Frá kr. 39.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn
saman í íbúð m. 1 svefnherbergi í 2 vikur, 6.
mars, á Oasis Dunas eða Oasis Royal. Gist-
ing á Oasis Tamarindo kr. 5.000 aukalega á
mann.
Frá kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í íbúð/her-
bergi í 2 vikur 6. mars, á Oasis Dunas eða
Oasis Royal. Gisting á Oasis Tamarindo
kr. 5.000 aukalega á mann.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Sólarveisla á
Fuerteventura
6. mars
frá kr. 39.990 í 2 vikur
Síðustu sætin - fyrstur kemur fyrstur fær
Bjóðum nú síðustu sætin
til Fuerteventura, sem
svo sannarlega hefur
slegið í gegn hjá Íslend-
ingum, á frábæru tilboði.
Njóttu lífsins á þessum
vinsæla áfangastað.
Ótrúlegt tilboð
- 2 vikur
ÍSLENDINGAR nota um fjórar
milljónir pizzukassa á ári og væri
þeim staflað myndu þeir ná 240 km
hæð,“ segir Gyða Björnsdóttir
fræðslufulltrúi SORPU. Í viku hverri
fara um 12 gámar af pappír, pappírs-
umbúðum og bylgjupappa til endur-
vinnslu í Svíþjóð. Á árinu 2005 tók
Sorpa á móti 196.000 tonnum af úr-
gangi, af því fóru 69 þúsund tonn í
endurvinnslu eða 34%. Urðun var aft-
ur á móti 127 þúsund tonn eða 66%.
Að sögn Gyðu er flokkun forsenda
þess að hægt sé að endurnýta úr-
gang.
Gyða hefur tekið þátt í tilraun 12
heimila í Hlíðunum til að mæla árs-
skammta af dagblaðs- og auglýsinga-
pósti. Magnið eykst ár frá ári, því
2003 bárust 133 kg af slíkum pósti inn
á hvert heimili en árið 2006 var magn-
ið 205 kg. Í Reykjavík reyndust dag-
blöð, tímarit og auglýsingapóstur árið
2006 vera 27% af heimilissorpinu.
Nota fjórar milljónir
pizzukassa á hverju ári
Við tökum þessu eins og hverju öðrunýju verkefni. Lífið hefur tekiðbeygju. Þetta er kannski önnur leiðen maður hafði upphaflega hugsað
sér, en það þarf í sjálfu sér ekki að vera slæmt.
Þetta verður öðruvísi líf fyrir Örnu, en það
þarf ekki að verða slæmt,“ segir Sigfríður
Hallgrímsdóttir, móðir Örnu Sigríðar sem 30.
desember sl. slasaðist alvarlega á skíðum í
Geilo í Noregi. Blaðakona heimsótti Örnu og
fjölskyldu hennar á Endurhæfingardeild
Landspítalans við Grensás í gær, en þar mun
Arna dveljast næstu 4-6 mánuði og er mark-
miðið að hún verði sjálfbjarga í hjólastól við út-
skrift.
Að sögn Alberts Óskarssonar, föður Örnu,
fékk hann fréttir af slysinu símleiðis að morgni
30. desember og keyrði samdægurs til Reykja-
víkur og var kominn út til Noregs daginn eftir.
Sigfríður varð eftir heima til þess að undirbúa
heimkonuna. Segir Albert það hafa verið
skelfilega reynslu að vera svo óralangt í burtu
frá slösuðu barni sínu. „Raunar vissum við
ekki fyrst hversu alvarlegt þetta var og vorum
að fá fréttirnar smám saman,“ segir Albert.
Bendir hann á að norsku læknarnir hafi eftir
bakaðgerðina sagt að Arna myndi ekki ganga
aftur, en íslensku læknarnir útiloki það ekki þó
að þeir segi að líkurnar á því að hún komist á
fætur séu minni en meiri. Endanleg niðurstaða
ætti að liggja fyrir um næstu mánaðamót.
Arna flaug heim til Íslands í sjúkraflugi 5.
janúar og dvaldi fyrstu dagana í einangrun á
Landspítalanum í Fossvogi áður en hún var
send á Endurhæfingardeildina við Grensás.
Þar hafði hún dvalið í tíu daga þegar bólgur
tóku sig upp í brisinu sem gerði það að verkum
meltingin stöðvaðist og því varð að flytja hana
á Barnaspítala Hringsins þar sem hún dvaldi í
þrjár vikur og kom fyrst aftur á Grensás í
fyrradag og getur nú haldið endurhæfingu
sinni áfram.
Skíðafélagarnir söfnuðu fyrir fartölvu
Aðspurð hvað taki við segist Arna munu
verða í sjúkraþjálfun tvisvar á dag næstu vik-
urnar, auk þess sem hún fær sálfræðiaðstoð til
þess að takast á við andlega áfallið sem fylgir
slysinu. Segist hún stefna að því að taka tvo
áfanga utanskóla við Menntaskólann á Ísafirði,
en Arna er á fyrsta ári á náttúrufræðibraut.
Að sögn Örnu hafa bæði vinirnir að vestan og
fjölskyldan verið afar dugleg að heimsækja
hana. Skíðafélagar Örnu færðu henni nýverið
fartölvu sem þeir höfðu safnað fyrir. Tölvuna
getur Arna notað til að stunda fjarnámið, en
einnig til að blogga, því Arna heldur úti bloggi
á vefslóðinni: http://arnaokkar.bloggar.is. Að
sögn Óskars, stórabróður Örnu, hélt fjöl-
skyldan úti blogginu fyrir hönd Örnu fyrst eft-
ir slysið, en bloggið var góð leið til þess að
veita ættingjum og vinum upplýsingar um
stöðu mála, auk þess sem dýrmætt var fyrir
Örnu að fá kveðjur og hvatningu í at-
hugasemdakerfinu á blogginu. Núna er Arna
sjálf tekin við skrifunum. Við lestur bloggsins
verður ljóst að Arna nálgast slysið og afleið-
ingar þess með gálgahúmorinn að vopni og
vilja foreldrar hennar meina að það sé ein
besta leiðin til að takast á við aðstæðurnar.
Spurð hvernig hún haldi bjartsýni sinni og
lífsgleði við þessar erfiðu aðstæður segist
Arna eiga sér mikilvæga fyrirmynd hjá Guð-
björtu Lóu, eldri systur vinkonu sinnar, sem á
síðustu árum hefur þurft að glíma við þrálátt
krabbamein, en hún er þremur árum eldri en
Arna. „Hún heimsótti mig eftir slysið og það
veitti mér mikinn innblástur, því hún er svo
bjartsýn þrátt fyrir erfið veikindi. Mér finnst
hún glíma við miklu erfiðari veikindi en ég.
Þrátt fyrir það er hún svo bjartsýn og glöð,“
segir Arna.
Aðspurð segist Arna auðvitað hafa það sem
meginmarkmið að geta gengið á ný einn góðan
veðurdag. Spurð hver helstu verkefni séu í ná-
lægri framtíð segist Arna stefna að því að
komast í útskrift frænku sinnar undir lok mán-
aðarins. „Síðan langar mig að komast heim til
Ísafjarðar í heimsókn um páskana,“ segir
Arna og upplýsir að helsta aðdráttaraflið séu
tónleikarnir Aldrei fór ég suður sem þá verða
haldnir. Auk þess segist Arna stefna að því að
taka bílpróf meðan hún dvelst á Grensási, en
hún verður 17 ára um mitt næsta sumar.
Lífið hefur
tekið beygju
Arna Sigríður Albertsdóttir lenti í skíðaslysi 30. desember sl.
með þeim afleiðingum að hún er lömuð fyrir neðan brjóst-
kassa. Silja Björk Huldudóttir ræddi við Örnu og fjölskyldu.
Morgunblaðið/Kristinn
Afdrifarík skíðaferð Arna Sigríður Albertsdóttir bloggar um reynslu sína síðustu vikur.