Morgunblaðið - 09.02.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 15
ÚR VERINU
FISKNEYZLA á Bretlandseyjum
jókst um 4% á síðasta ári, mælt í
smásölu. Alls vörðu Bretar 2,3 millj-
örðum punda, 311
milljörðum ís-
lenzkra króna, til
fiskkaupa, en
heildarmagn í
tonnum talið
dróst saman um
1% samkvæmt
upplýsingum frá
Seafish Industry Authority.
Mest var aukningin í sölu á kæld-
um sjávarafurðum, eða 7%. Seldar
voru kældar afurðir fyrir 162 millj-
arða íslenzkra króna. Sala á frystum
sjávarafurðum jókst um 3% en sala á
niðursoðnu fiskmeti minnkaði um
1% mælt í verðmætum. Sé litið á
magnið var samdráttur í öllum af-
urðaflokkum, en mestur í niðursuð-
unni, 3%. Brezkir neytendur vörðu
11% meiri fjármunum til kaupa á
náttúrulegum, kældum afurðum, en
eini flokkur kældra afurða, sem
minna var keypt af, var fiskur í
brauði og deigi.
Vinsælasti fiskrétturinn á Bret-
landi er fiskur og franskar. Þar eru
yfir 11.500 veitingahús sem selja
þennan vinsæla rétt og eru skammt-
arnir ríflega 225 milljónir á ári. Velt-
an er hvorki meira né minna en 162
milljarðar króna. Þorskur er algeng-
asta tegundin, 61,5%, en ýsan kemur
næst með 25%. Megnið af fiskinum
er flutt inn, meðal annars frá Íslandi,
sem er stærsti einstaki seljandi á
þorski til Bretlandseyja.
Bretar
borða fisk
fyrir 311
milljarða
GENGIÐ hefur verið frá sölu Ála-
borgar ÁR 25 með öllum aflaheim-
ildum til Bergs-Hugins í Vest-
mannaeyjum. Kaupverð er á bilinu
600 til 700 milljónir og er miðað við
verð á varanlegum þorskheim-
ildum, um 2.400 krónur kílóið.
Veiðiheimildir Álaborgar sam-
kvæmt úthlutun í haust eru 364
þorskígildistonn, en þar af er
þorskur um 121 tonn. Óljóst er
hvort Álaborgin verður gerð út
áfram en hún er tog- og netabátur
smíðaður 1974 og yfirbyggður 183.
Útgerðarfélagið Bergur-Huginn
hefur á tveimur árum varið 2,8
milljörðum króna til skipa- og
kvótakaupa. Veiðiheimildir félags-
ins eru orðnar ígildi 6.500 þorsk-
tonna og nema 1,6% af öllum út-
hlutuðum veiðiheimildum á
landinu. Í síðustu viku var tveimur
nýjum skipum, sem sérstaklega eru
byggð fyrir Berg-Hugin, gefið
nafn í Póllandi. Kemur annað skip-
ið í stað vinnsluskipsins Vest-
mannaeyjar, en hitt verður viðbót
við útgerðina.
Mikil eftirspurn
Mikil eftirspurn er nú eftir afla-
hlutdeild og verðið hefur ekki ver-
ið hærra áður. Það var Skipamiðl-
unin Bátar og kvóti, sem hafði
milligöngu um þessi viðskipti.
Verð á aflahlutdeild hefur nú tvö-
faldazt á um tveimur árum og
meira en tífaldazt síðan 1992 þeg-
ar sala varanlegra aflaheimilda
hófst að ráði. Síðustu samningar
um kaup, sem kunnugt er um, eru
upp á 2.400 krónur á kílóið af
þorski, en fyrirliggjandi eru sölu-
tilboð upp á 2.700 krónur. Þorsk-
kíló seldist á um 200 krónur árið
1992.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Bergur-Huginn kaupir
Álaborg frá Eyrarbakka
Á SÍÐASTA ári seldi Þorbjörn hf.
fiskafurðir fyrir tæpa 4,5 milljarða
króna (fob). Um borð í frystiskip-
um félagsins voru framleiddar af-
urðir fyrir um 2,1 milljarð og í
fiskvinnslu félagsins í landi voru
framleiddar afurðir fyrir 2,4 millj-
arða króna.
Í landvinnslu félagsins var unnið
úr 9.200 tonnum af ferskum fiski
og er það 13% aukning frá árinu
2005. Af einstökum afurðaflokkum
voru verðmæti frystra afurða 2,2
milljarðar króna, saltfiskafurða
liðlega 1.880 milljónir króna, verð-
mæti ferskra afurða var tæplega
400 milljónir króna og ýmissa ann-
arra afurða um 100 milljónir
króna.
Þorskafurðir verðmætastar
Þorskafurðir voru verðmætastar
ef litið er á einstakar tegundir,
bæði frystar, ferskar og saltaðar,
eða rúmur 2,1 milljarður króna.
Mikilvægustu markaðslönd fyrir-
tækisins eru Bretland, Bandaríkin,
Spánn og Japan. Verð á erlendum
mörkuðum hélt áfram að hækka á
árinu í erlendri mynt í einstaka af-
urðaflokkum. Íslenska krónan
veiktist nokkuð á árinu og hækk-
aði meðalgengi þeirra gjaldmiðla,
sem fyrirtækið selur sínar afurðir
í, um að meðaltali 10% í krónum
talið á árinu.
Allir togarar Þorbjörns eru
komnir úr fyrsta túr á nýju ári og
er aflaverðmæti þeirra eftirfar-
andi: Hrafn Sveinbjarnarson: um
58 milljónir eftir 21 dag, Gnúpur:
71 milljón eftir 22 daga, og Hrafn:
62 milljónir eftir 26 daga.
Betri aflabrögð í janúar
Þrátt fyrir leiðinlegt tíðarfar
urðu aflabrögð í janúarmánuði frá
Grindavík talsvert betri en á sama
tíma í fyrra. Afli stóru línuskip-
anna hefur verið á bilinu 50–70
tonn í hverri veiðiferð, oftast eftir
5 lagnir. Af þeim hefur Kristín
borið mestan afla á land, tæplega
400 tonn í 5 veiðiferðum.
Smærri línubátar fengu ágætan
afla þegar gaf á sjó og komust þeir
uppí 11–12 tonn í róðri. Mestan
afla í mánuðinum fékk Gísli Súrs-
son, 65 tonn í 9 róðrum Tregur afli
var hjá netabátum í mánuðinum,
þó virtist sem heldur væri að
glæðast á dýpri slóð síðustu daga
mánaðarins, en þá gekk í brælu og
um mánaðamótin voru allir neta-
bátar með netin um borð.
13% aukning í land-
vinnslu Þorbjarnar
Í HNOTSKURN
»Í landvinnslu félagsins varunnið úr 9.200 tonnum af
ferskum fiski og er það 13%
aukning frá árinu 2005.
»Þorskafurðir voru verðmæt-astar ef litið er á einstakar
tegundir, bæði frystar, ferskar
og saltaðar. Verðmæti þeirra var
rúmur 2,1 milljarður króna
»Gengi krónunnar lækkaði ásíðasta ári og hækkaði það
meðalverð afurða um 10% í kr..
Fiskafurðir fyrir
4,5 milljarða seld-
ar á síðasta ári
FISKMARKAÐIRNIR á landinu
seldu fyrir 1.481 milljón í janúar sl.
sem er það langmesta sem selst hef-
ur fyrir í mánuðinum frá upphafi.
Janúar 2002 kemur næstur en þá
seldist fyrir 1.245 milljónir.
Í janúar voru seld 8.404 tonn,
sem er meira en janúar 2006, en þá
voru seld 8.166 tonn, örlítið minna
en 2005 þegar 8.419 tonn voru seld.
Meðalverðið í janúar var 176,21
krónur sem er yfir 37% hærra en í
janúar 2006. Þetta er hæsta með-
alverð sem sést hefur í einum mán-
uði síðan í febrúar 2002, en þá var
það 186,94 krónur á kíló.
Selt á mörkuðum fyrir
tæpa 1,5 milljarða í janúar
! ! " # $
%&&'('))*
& & &
&
' ' ' ' ' ' ' ' FYRIRTÆKIN Héðinn hf., Intelsc-
an örbylgjutækni ehf. og Elrún ehf.
hafa ákveðið að vinna saman að
markaðssetningu á lausnum Intelsc-
an ehf. fyrir fiskimjölsiðnaðinn. Fyr-
irtækið Intelscan hefur þróað búnað
sem mælir vatnsinnihald í ýmsum
efnum á svipstundu.
Intelscan hefur fengið samþykkt
einkaleyfi fyrir búnað sinn víða um
heim, svo sem í Evrópu, Bandaríkj-
unum, Kína og Rússlandi.
Markmiðið með samstarfi fyrir-
tækjanna þriggja er að bjóða fiski-
mjölsframleiðendum búnað sem auð-
velt er að koma fyrir í
framleiðsluferlinu og veitir raun-
tímaupplýsingar um rakastig í mjöl-
inu meðan á framleiðslu stendur.
Niðurstaða mælinga birtist sam-
stundis í stjórnstöð og bætir þannig
þurrkunarferlið svo afraksturinn er
minni sveiflur í vatnsinnihaldi mjöls-
ins og aukin nýting á mjölinu, auk
orkusparnaðar.
Héðinn hf. hefur hannað hentugan
sýnatökubúnað sem sækir mjöl úr
vinnsluferlinu til mælinga og skilar
því svo aftur í vinnsluna.
Elrún ehf. mun sjá um tengingar
við stjórnherbergi fiskimjölsverk-
smiðjanna.
Nýr búnaður til mælinga
á fiskimjöli á markaðinn
aðalfundur össurar hf.
á dagskrá fundarins verða:
Reykjavík 9. febrúar 2007
Stjórn Össurar hf.
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.02 í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjórnar til að auka hlutafé félagsins um allt að 200.000.000 hluti, án
forgangsréttar hlutahafa.
3. Tillaga um að heimila stjórn að kaupa eigin bréf félagsins.
4. Tillaga að starfskjarastefnu skv. 79.gr.a. hlutafélagalaga.
5. Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, mun vera
hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins að Grjóthálsi 5, Reykjavík, viku fyrir aðalfund. Reikningar og
önnur gögn verða einnig birt á heimasíðu félagsins sem er www.ossur.com.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 8:15. Hluthafar
eru hvattir til að mæta tímanlega til að taka við fundargögnum. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8:30.
Aðalfundur Össurar hf. verður haldinn á Grand Hótel við Sigtún, Reykjavík,
föstudaginn 23. febrúar 2007 og hefst hann kl. 8:30.
Vi› hjálpum fólki a› njóta sín til fulls