Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 19

Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 19 Fyrrverandi liðsmaður uppreisnar- manna í Aceh í Indónesíu, Irwandi Yusef, sór í gær eið sem héraðs- stjóri. 30 ára löngu stríði í héraðinu lauk með friðarsamningum í fyrra. Skæruliði sver eið Aðstoðarheilbrigðismálaráðherra Íraks, Hakim al-Zamili, var hand- tekinn í gær. Er honum gefið að sök að hafa átt samstarf við dauðasveit- ir sjíta í Bagdad. Ráðherra í haldi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hvatti í gær til þess að um 400 Afríkumenn, sem hírast nú um borð í báti við vesturströnd álf- unnar, fengju að fara í land. Bátafólk í vanda Hvar? Flóttafólk við Kanaríeyjar. BANDARÍSKA geimferðastofn- unin, NASA, ætlar nú að endur- skoða sálfræðimat það sem verð- andi geimfarar þurfa að gangast undir. Var þetta ákveðið í kjölfar þess að geimfarinn Lisa Nowak var handtekin fyrir að reyna að myrða konu sem hún hélt vera keppinaut sinn um ástir annars geimfara, Williams Oefelein. Shana Dale, aðstoðaryfirmaður NASA, sagði að innan stofnunar- innar yrði farið yfir ferlið til að „meta hvort endurbóta sé þörf“. Nýtt sálfræðimat? SNJÓNUM kyngdi niður í London í gær og þessi mynd var tekin af fólki í snjóboltakasti í miðborginni, nálægt þinghúsinu í Westminster. Það snjóaði reyndar víða mikið í Bretlandi, í Wales og á Norður-Írlandi í gær og flestir voru viðbúnir því að það hefði áhrif á umferð inn og út úr borgum og á al- menningssamgöngur í landinu, með tilheyrandi seink- unum. AP Mikil snjókoma á Bretlandi Washington. AP. | Tim Russert, þekktur fréttaþáttarstjórnandi í Bandaríkjunum, neitaði því fyrir rétti á miðvikudag að hann hefði sagt Lewis „Scooter“ Libby, fyrr- verandi skrifstofustjóra Dicks Cheney varaforseta, frá því að fyrra bragði að eiginkona Josephs Wilsons sendiherra ynni fyrir bandarísku leyniþjónustuna, CIA. „Það hefði verið útilokað,“ sagði Russert. „Ég vissi ekki hver sú manneskja var fyrr en nokkrum dögum síðar.“ Vitnisburður Russerts, ef kvið- dómur tekur hann trúanlegan, væri mjög skaðlegur fyrir Libby, enda hefur hann sagt eiðsvarinn að það hafi verið Russert sem sagði honum frá því í símtali sumarið 2003 að eiginkona Wilsons, sem gagnrýndi réttlætingu stjórnvalda á innrás í Írak í grein í New York Times, væri starfsmaður CIA. Mál þetta snýst m.a. um fullyrð- ingar þess efnis að ráðamönnum í Hvíta húsinu hafi verið svo umhug- að um að skaða Wilsons vegna greinarskrifa hans og gagnrýni að þeir hafi lekið þeim tíðindum að Valerie Plame, kona hans, ynni hjá CIA og að það hefði jafnvel verið hún sem hefði haft frumkvæði að því að hann var sendur til Níger til að rannsaka hvort þarlendir menn hefðu selt Írökum efni til kjarn- orkuvopnaframleiðslu. Það telst lögbrot í Bandaríkj- unum að fletta ofan af útsendara CIA. Libby er þó ekki ákærður fyrir að hafa verið sá sem lak upp- lýsingunum um Plame í fjölmiðla heldur fyrir að hafa gerst sekur um meinsæri og fyrir að hafa reynt að leggja stein í götu réttvís- innar. Vitnisburður Russerts skað- legur fyrir Libby „Scooter“ Libby Tim Russert Einbýlishús óskast Óska eftir stóru einbýlishúsi til leigu á höfuðborgarsvæðinu fyrir fjársterkan aðila. Upplýsingar í síma 862 0700 eða atli@ijtrading.is Kuala Lumpur. AP. | Það er aldrei of seint að gera hreint á salerninu. Það er að minnsta kosti skoðun stjórnvalda í Malasíu en þar er ætl- unin að láta háskóla bjóða upp á námskeið í salernishreinsun. Al- menningsklósett landsins eru sögð vera alræmd fyrir óþrifnað og slæman aðbúnað, þar skorti oft botnþerrur og sápu og stundum sé jafnvel engin seta. Vitnað var í aðstoðarráðherra húsnæðis- og sveitarstjórnarmála, Robert Lau, sem sagði að mark- miðið væri að koma klósettmál- unum á jafn hátt stig og í Bretlandi eða Singapúr. „Það er ekki ein- vörðungu hægt að dæma snyrti- mennsku á salernum með augunum einum,“ sagði Lau. „Það þarf líka að huga að hreinlætisbúnaði, sápu, ilmefnum og pappírsþurrkum.“ Ríkisstjórnin lýsti því nýlega yfir að hún vildi efna til „klósettbylt- ingar“ og verður m.a. gripið til þess ráðs að fella úr gildi veit- ingaleyfi staða sem ekki standa sig. Morgunblaðið/Ásdís Í lagi Nýtísku hreinlætistæki í verslun á Íslandi. Klósettbylting sögð í aðsigi Mekka. London. AFP, AP. | Helstu stjórnmálahreyfingar Palestínu- manna, Fatah og Hamas, náðu í gær samkomulagi um að binda enda á blóðug átök milli fylkinganna og mynda samsteypustjórn um þjóðar- einingu. Verða óháðir sérfræðingar látnir veita forystu mikilvægum ráðuneytum utanríkis- og fjármála, talið er að ráðherra innanríkismála og þar með lögreglunnar verði einn- ig óháður. Hamas-liðinn Ismail Han- iyeh verður áfram forsætisráðherra. Hátt í hundrað manns hafa fallið í átökunum síðustu vikurnar á Gaza og Vesturbakkanum og var sam- komulaginu ákaft fagnað víða á her- numdu svæðunum í gærkvöld. Óljóst er hvernig fundin var lausn á deilunum um tilvistarrétt Ísraels. Hamas hefur ávallt neitað að viður- kenna Ísrael og fordæma hryðju- verk. Þessi afstaða samtakanna varð í fyrra til þess að Vesturveldin hættu að veita Palestínustjórn, sem Hamas hefur farið fyrir, fullan fjárstuðning. Deilan um tilvistarrétt Ísraels óleyst? Mahmoud Abbas, forseti Palest- ínu og leiðtogi Fatah, og Khaled Meshaal, útlægur leiðtogi Hamas, undirrituðu samkomulagið. Hvatti Abbas væntanlega stjórn til að „virða alþjóðalög og samninga sem Frelsishreyfing Palestínu, PLO, hef- ur gert“ við Ísraela. Hamas-menn hafa sagt að með slíkri viðurkenn- ingu væru þeir um leið að viður- kenna tilvist Ísraelsríkis sem þeir heimta að verði lagt niður. Ráðamenn í Bretlandi fögnuðu samkomulaginu en tóku fram að fara yrði vandlega yfir ákvæði þess og ljóst að átt var við deilurnar um við- urkenningu á Ísrael. Talsmenn Bandaríkjastjórnar tóku í sama streng í gærkvöld. Sömdu um þjóð- stjórn í Palestínu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.