Morgunblaðið - 09.02.2007, Blaðsíða 25
mælt með …
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 25
www.leikhusid.is sími 551 1200
Þjóðleikhúsið fyrir alla!
STÓRFENGLEG!
SÆLUEYJAN
PATREKUR 1,5
SITJI GUÐS ENGLAR
Áleitnar spurningar um lífið og tilveruna
Takmarkaður sýningarfjöldi!
Ást og fordómar í spaugilegu ljósi!
Ólafía Hrönn í ham!
Föstudag uppselt.
Aukasýning 23/2.
LEG
Frábær fjölskyldusýning!
Forsýningar 1. 2.
og 3. mars.
eftir Hugleik Dagsson
Hvað er að gerast? Er allt að verða vitlaust?
Frumsýnt 8. mars. Fo
rsala hafin!
Sýningar laugardag og sunnudag.
PÉTUR OG ÚLFURINN
Sýningar hefjast 17. febrúar. Forsala hafin!
GÓÐ
HEILSA
GULLI
BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
H
á
g
æ
ð
a
fr
a
m
le
ið
sl
a
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
NNFA QUALITY
Ronja og pabbinn
Það eru margar áhugaverðar
sýningar í leikhúsunum núna
og ef hægt er að fá miða með
svona skömmum fyrirvara er
um að gera að skella sér á Mi-
sery sem sýnt er á Nasa nú eða
á Pabbann í Iðnó. Börnin
kunna eflaust vel að meta boð á
Ronju í Borgarleikhúsinu en
það fer hver að verða síðastur
ef hann ætlar að bjóða börn-
unum á þá sýningu.
Tónleikar í Hlégarði
Hvernig væri nú að eiga notalega stund í kvöld og
skella sér á tónleika sem Tónlistarfélag Mosfellsbæjar
stendur fyrir. Þeir hefjast klukkan 21 og söngkonan
Andrea Gylfadóttir ætlar að troða upp ásamt Kjartani
Valdimarssyni píanóleikara, Valdimari Kolbeini á
kontrabassa og Pétri Grétarssyni á trommur. Þetta
verður virkilega ljúft því meiningin er að flytja þekkt lög
sem allir kannast við.
Vinátta fyrir börnin
Mörg börn elska leikbrúður og nú er lag fyrir foreldra
að drífa sig í Gerðuberg um helgina. Þar frumsýnir Leik-
brúðuland brúðuleikritið Vináttu.
Þetta eru nokkur ævintýri sem öll fjalla um vináttu.
Fjöldinn allur af brúðum kemur fram. Verur sem búa
ýmist í lofti, í sjó eða á jörðinni.
Það mætti taka með útigallann í bílinn og bruna beint í
Elliðaárdalinn eftir sýninguna og viðra krakkana ef veð-
ur leyfir. Það er svo skemmtilegt að vera úti ef veður er
bjart.
Sjallinn og Jet Black Joe
Það verður örugglega góð stemning í Sjallanum um
helgina.
Í kvöld er þar dansleikur með hljómsveit hússins
ásamt Helenu Eyjólfs og Þorvaldi Halldórsyni. En ann-
að kvöld er það Jet Black Joe sem treður upp í Sjall-
anum; Páll Rósinkrans og Gunnar Bjarni.
Forsala er hafin í Pennanum Glerártorgi og á Café
Amor við Ráðhústorgið.
Útivist
Það er gott að nota helgarnar til útivistar og það þarf
ekki að fara langt til að finna skemmtilegar gönguleiðir.
Hvernig væri að hringja í góða vini og bjóða þeim í lang-
an göngutúr um helgina. Taka daginn snemma, hittast á
laugardagsmorgni og ganga um bæjarhluta sem einhver
í hópnum þekkir vel. Enda svo göngutúrinn á góðu kaffi-
húsi eða heima hjá þeim sem nennir að bjóða í súpu og
brauð.
Frelsun litarins
Á sunnudaginn
klukkan 14 ætlar Elísa
B. Þorsteinsdóttir list-
fræðingur að veita
gestum Listasafns Ís-
lands leiðsögn um sýn-
ingarnar Frelsun lit-
arins og Jón Stefáns-
son – nemandi Matisse
og klassísk myndhefð.
Elísa fjallar um sýn-
ingarnar og tengir þær
saman. Þetta er
skemmtilegt tækifæri
til að fræðast um fau-
vistana frönsku og
áhrif þeirra á íslenska myndlist.
Heima er best
Svo er náttúrlega eitt eftir sem margir elska við
helgarnar. Það er að vera bara heima heilan dag. Það
má undirbúa svoleiðis dásemdardag. Fara á bókasafn-
ið og ná í góðar bækur og þá líka fyrir börn ef þau eru
á heimilinu. Kaupa svo hráefni í virkilega góðan mat.
Vera svo bara á náttfötunum og dekra við sig og auð-
vitað annað heimilisfólk ef viðkomandi býr ekki einn.
Byrja daginn á að lesa blöðin, drekka gott te, kveikja á
kertum, leika svo við börnin, horfa á góða mynd, skella
kannski í eina þvottavél ef þarf, borða góðan mat og
umfram allt – njóta samverunnar og reyna að slaka á.
Grétar Hallur Þórisson ermeðlimur í
hestaferðafélaginu Fjórum
hjörtum, sem hefur að hans sögn
„gert góða og hjartnæma hluti og
stefnir hærra“. Hann yrkir til
félaga sinna:
Hestar, söngur, gleði, grín,
gamansöngur, rímur.
Hani, krummi, hundur, svín,
Halldór, Alfa, Grímur.
Og Grétar Hallur lætur ekki þar
við sitja:
Ríða um vinir veitandi
vínið hjartastyrkjandi.
Sumir þykja þreytandi
þeir eru alltaf yrkjandi.
Jóna Guðmundsdóttir hefur ort
að minnsta kosti limru á dag á
bloggsíðu sinni
www.jona-g.blog.is. Í gær var
yrkisefnið glansmynd geimfara
sem brotnaði í mola „þegar tveir
kvenkyns geimfarar börðust upp á
líf og dauða um þriðja geimfarann
af gagnstæðu kyni“.
Jóna rifjar upp að aðalleikarann
í þessu ameríska drama, Lísa
María, hafi ákveðið að gera upp
sakir við keppinautinn, ekið 1.500
kílómetra án þess að stoppa og
„samkvæmt fréttum gerði hún
þarfir sínar í bleiu á leiðinni til að
tapa ekki tíma“. Og Jóna yrkir:
Í geimnum er gegndarlaust fjör
og girndin er oft með í för.
En fátt er þó kosta
fólk kvelst þar af losta
en kemst ekki’ úr nokkurri spjör.
Því var það að Lísa hún lagði
í langferð og eins og hún sagði:
„Með bleiu í bíl
nú bruna með stíl
og bana skal kerlingarflagði.“
Jóna hlýddi á Gunnar
Stefánsson lesa Passíusálmana í
útvarpinu og dró þá ályktun að
fastan væri hafin:
Hollt er sem fyrrum að fasta
og feta’ ekki veginn lasta
en læra að meta,
lesa og éta
Passíusálma og pasta.
VÍSNAHORNIÐ
Af hjörtum og hestum
pebl@mbl.is