Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 29

Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 29
bækur MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 29 Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Þetta er náttúrlega barabilun og ekkert nemarómantík að fara út ísvona verkefni,“ segir Gunnar Sverrisson ljósmyndari um ljósmyndabækurnar tvær sem hann gaf út á síðasta ári ásamt konu sinni, Höllu Báru Gests- dóttur, og vinkonu þeirra, Elsu Ævarsdóttur innanhússarkitekt. Bækurnar, Heimilis- bragur/Icelandic interior og Bú- staðir/Icelandic Cottages, eru eins konar tvíburabækur með skyldum efnum, önnur er með myndum af íslenskum heimilum en hin með myndum af íslenskum sum- arbústöðum. Þær eru bæði á ís- lensku og ensku. „Halla Bára og Elsa sáu um rit- stjórnina og ég um myndatök- urnar en við þrjú höfum unnið mikið saman að annarri útgáfu, meðal annars tímaritinu Vegg- fóðri, og við hjónin stofnuðum Lif- un á sínum tíma. Við erum svolítið ör og til í að prófa og breyta. Auk þess fannst okkur að tími væri kominn til að taka næsta skref frá dagblöðum og tímaritum og gefa ljósmyndir af íslenskum heimilum út á bók. Okkur fannst líka vanta svona bækur sem hafa gildi sem sagnfræðileg heimild fyrir fram- tíðina,“ segir Gunnar og bætir við að bækurnar nýtist fólki til að fá hugmyndir við að skapa eigin heimili og sumarbústaði. Eyðibýli gerð upp frá grunni Gunnar segir að þau hafi verið hissa á mikilli fjölbreytni íslenskra sumarhúsa. „Svo virðist sem fólk skapi sér algjörlega annað heimili þegar kemur að sumarhúsinu. Sumir gera upp heilu eyðibýlin og breyta þeim í sumarhús. Það er skemmtileg þróun að æ fleiri láta arkitekta um að hanna sum- arhúsin sín. Það er gaman að geta þess að eitt sumarhúsanna í bók- inni, sem stendur í Hrunamanna- hreppi og Valdimar Harðarson teiknaði, var nýlega tilnefnt til Mies van der Rohe-verðlaunanna 2007 fyrir evrópskan nútíma- arkitektúr. Mér finnst eins og arkitektar séu að skapa sérstakan íslenskan stíl á sumarhúsum, þar sem þeir taka mikið mið af lands- laginu og umhverfinu.“ Augnablikið réð ferðinni En hvernig gekk að hafa uppi á öllum þessum ólíku sumarhúsum og var ekkert mál að fá að fara inn til fólks og taka myndir? „Við fengum ábendingar frá fólki og við mundum líka eftir fal- legum bústöðum sem höfðu orðið á vegi okkar á ferðalögum, en margir þeirra eru vel faldir í landslaginu. Við þrjú fórum í marga og langa bíltúra til að leita uppi áhugaverða bústaði. Ef við þekktum ekki eigendurna þá þurftum við að hafa uppi á nöfn- um, en nánast allir tóku erindi okkar mjög vel,“ segir Gunnar sem var í þrjá mánuði við mynda- tökurnar. „Ég fór yfirleitt einn að mynda og lét mína upplifun á hverjum stað algerlega ráða því hvernig myndir ég tók. Ég kom ekki í tvígang á nokkurn stað og einmitt þess vegna er dumbungur og þoka á sumum myndum en sól og blíða á öðrum. Ég beið ekki eftir rétta veðrinu heldur fór á þeim degi sem mér var ætlað og lét augnablikið ráða ferðinni.“ Sælusumrin á Laugarvatni Á bernskuárunum varði Gunnar mörgum sumrum í sumarbústaða- hverfi prentara á Laugarvatni. „Ég á margar góðar minningar þaðan og vissulega er draumurinn að eignast sjálfur einn daginn svona athvarf sem sumarhús eru, hvort sem það verður í Toscana á Ítalíu eða í sveit á Íslandi,“ segir Gunnar sem nú býr í Mílanó á Ítalíu þar sem Halla Bára kona hans er í meistaranámi í innan- hússhönnun. „Hér eru heimili ekki mjög lík þeim sem ég hef verið að mynda á Íslandi, hér fer lítið fyrir þessum skandinavíska brag. En ég er búinn að skrá mig á góða um- boðsskrifstofu og vonast til að fá verkefni í framtíðinni sem tengj- ast því að ljósmynda heimili,“ seg- ir Gunnar sem er heillaður af ítalska matnum, menningunni, sögunni og umhverfinu öllu. Og lognið í Mílanó á einstaklega vel við hann. Rangárvellir Rómantískur bústaður frá árinu 1944.Þingvellir Bústaður byggður 1992-1996 sem fellur vel inn í landslagið. Á Ítalíu Gunnar og Halla Bára búa núna í Mílanó. Ó, þú sæla sveit Kjós Sumarhús endurgert 2003-2005. Ólafsfjörður Bústaður frá 1935 gerður upp. www.gunnarimage.com 13:00 Hádegisverður í Gullteig B, Grand Hótel Þorsteinn J. flytur erindi sitt: Frumkvæði! SKRÁNING 14:15 Skráning við Gullteig A, Grand Hótel FUNDARSETNING 14:30 Ræða formanns FÍS Pétur Björnsson RÆÐUMENN 14:50 Ávarp: Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra 15:00 Finn Mortensen aðalritstjóri viðskiptablaðs Berlingske Tidende „The Emperor's New Clothes?“ 15:20 Berglind Ásgeirsdóttir sendiherra Hvernig gagnast fríverslunarsamningar? Umræður og fyrirspurnir Kaffihlé 16:15 ALMENN AÐALFUNDARSTÖRF Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 588 8910 eða á netfang: linda@fis.is Aðalfundur Gullteigur, Grand Hótel, föstudaginn 16. febrúar 2007, kl. 13:00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.