Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 30

Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. STAÐA OG HLUTVERK KENNARA Það er kominn tími til að endur-meta þjóðfélagslegt mikilvægiýmissa starfa. Sú var tíðin, að varla var tekið eftir því fólki, sem starfaði við umönnun aldraðra á svo- nefndum elliheimilum. Nú þegar öldr- uðum hefur fjölgað mjög og fyrirsjá- anlegt að fólk lifir mun lengur en áður verður þörfin fyrir fólk, sem annast um hina öldruðu borgara, sífellt meiri. Og þegar það fólk er hvergi að fá m.a. vegna þess að launakjör í þessum störfum eru skammarlega lág vaknar fólk allt í einu til vitundar um mik- ilvægi þessara starfa. Einu sinni var það talið sjálfsagt starf fyrir unglingsstúlkur að vera barnapíur á sumrin, þegar enginn skóli var. Þá voru heldur engir leik- skólar. Nú er fólk búið að átta sig á að starf leikskólakennara er afar þýðing- armikið svo að ekki sé sterkar til orða tekið en á sama tíma er erfitt að fá fólk til þess að starfa á þessu sviði vegna þess að launakjörin fæla sérmenntað fólk frá. Fyrir rúmlega tveimur árum stóð yfir hörð vinnudeila meðal kennara. Henni lauk að lokum eins og öllum vinnudeilum en meðan á henni stóð gerðu margir sér grein fyrir því, að störf kennara höfðu ekki verið metin að verðleikum. Nú er ný kjaradeila að hefjast á þessum vettvangi. Í nútíma þjóðfélagi eru fá störf jafn mikilvæg og störf kennara. Hvort sem um er að ræða leikskólakennara, grunnskólakennara, framhaldsskóla- kennara eða háskólakennara er ljóst, að það fólk, sem tekur að sér þessi störf, getur haft úrslitaáhrif á velferð barna og unglinga og hvers konar fólk það er, sem kveður sér hljóðs eftir nokkur ár eða áratugi og setur mark sitt á samfélag okkar. Þetta blasir við þegar horft er til þeirra vandamála, sem uppvaxandi kynslóðir eiga við að etja. Vilji fólk fá góða kennara, á öllum skólastigum til þess að kenna börnum sínum, verða þeir hinir sömu að finna, að störf þeirra eru metin að verðleik- um. Það þarf einfaldlega að endur- meta mikilvægi kennarastarfsins. Og það endurmat þarf að endurspeglast í launakjörum kennara. Þeir þurfa að finna, að störf þeirra við að mennta hverja nýja kynslóð Íslendinga og leiða hana fram á veg eru ekki síður mikilvæg en störf þeirra, sem vinna við að ávaxta fé fólks. En auðvitað verða kennarar líka að vera reiðubún- ir að fara nýjar leiðir og breyta gömlu fyrirkomulagi, ef það getur stuðlað að því að sátt náist um að hækka laun þeirra verulega. Áður en farið er að semja um krónur og aura við kennara í þeirri nýju samningalotu, sem er að hefjast um kaup þeirra og kjör þarf þjóðfélagið sjálft að gera sér grein fyrir, viður- kenna og staðfesta mikilvægi þessara starfa. Þegar það endurmat hefur farið fram verður auðveldara að tala um krónur og aura og þá munu fulltrúar fólksins í landinu, sem eru að semja við kennarana sjá betur til lands. ÚTBLÁSTUR OG AÐGERÐIR Ekki er nema vika síðan skýrslavísindanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar kom út með spám um að yrði ekkert að gert mætti búast við það mikilli hlýnun að stórir hlutar jarðar yrðu óbyggilegir. Í skýrslunni sagði að nú væri svo komið að útilokað væri að bera brigður á það að mengun af mannavöldum hefði áhrif á breyting- ar á loftslagi á jörðunni. Enn gæti þó verið tími til þess að hægja á þróun- inni og snúa henni við áður en það yrði um seinan. Hversu líklegt er að það gerist? Fréttir frá Brussel í þessari viku gefa til kynna hvað er í vændum. Á miðvikudag kom í ljós að Evr- ópusambandið hefur ákveðið að láta undan kröfum bifreiðaframleiðenda um meðalútblástur koltvíildis bif- reiða. Í tillögum um nýjar reglur kemur fram að miðað er við að með- alútblástur koltvíildis verði 130 grömm á kílómetra árið 2012, en í fyrri tillögum hafði verið kveðið á um 120 grömm. Evrópskir bifreiða- framleiðendur börðust með oddi og egg gegn þessari tillögu og báru því við að hún myndi grafa undan tilveru þeirra í alþjóðlegri samkeppni. Bíla- framleiðendur eru reyndar ekki ánægðir með málamiðlunina, sem var kynnt á miðvikudag. En um- hverfisverndarsinnar eru það ekki heldur og segja að enn einu sinni hafi ráðamenn sýnt að bílaiðnaður- inn skipti meira máli en að taka á loftslagsbreytingum. Þess má geta að fyrir níu árum setti ráðherraráð Evrópusambandsins útblásturhá- mark nýrra bíla við 140 grömm koltvíildis á kílómetra frá og með árinu 2008, en ljóst er að það tak- mark næst ekki. Í nýju tillögunum eiga mörkin að vera bindandi, en ekki hefur komið fram hvort viður- lög verði við því að ná þeim ekki. Víst er að þetta verður ekki eina dæmið um það að barist verði gegn aðgerðum til að draga úr breyting- um loftslags af mannavöldum. Það er auðvelt að gagnrýna aðra, en enginn vill láta draga úr sínum lífsgæðum. Þjóðverjar vilja ekki hraðatakmörk á hraðbrautum sínum. Kínverjar segjast hvorki hafa tæki til né efni á að hemja iðnaðarmengun og vilja að vestræn ríki taki forustuna í að draga úr útblæstri. Bandaríkjamenn vilja ekki setja mörk á útblástur. Hvað geta Íslendingar lagt af mörkum? Ákvæðu íslensk stjórnvöld að setja reglur um útblástursmörk myndi það engin áhrif hafa. Hins vegar væri hægt að hafa óbein áhrif með því til dæmis að umbuna þeim, sem kaupa bíla með lítinn útblástur koltvíildis, með einhverjum hætti. Hugsunarháttur bílaframleiðenda er hins vegar órökréttur. Krafan um minni mengun á eftir að verða há- værari og sá, sem verður fyrstur til að tileinka sér tækni í samræmi við þær kröfur er líklegastur til að lifa af, ekki sá sem þráast við. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Þetta er dánarvottorð bresksdrengs sem lést af völdum mis-taka í heilbrigðiskerfinu semhefði mátt koma í veg fyrir,“ sagði breski landlæknirinn Sir Liam Don- aldson á málþingi Landlæknisembættisins í gær um öryggi sjúklinga. Um leið brá hann upp á myndvarpaskjáinn dánarvottorðinu og hélt áfram: ,,Hann fékk ranga lyfjagjöf, lyfi sem var ætlað öðrum sjúklingi var dælt inn í mænugöng hans. Það olli dauða hans.“ Það hefur sennilega aldrei verið gefið út dánarvottorð þar sem dánarorsökin hefur verið tilgreind sem mistök í heilbrigðiskerf- inu. Það er hins vegar stundum staðreynd eins og vestræn samfélög eru að vakna til vitundar um. Sir Liam, sem er fram- kvæmdastjóri World Alliance on Patient Safety hjá Alþjóða-heilbrigðisstofnuninni, hefur hvatt til umræðu um mistök í heil- brigðiskerfinu sem hægt sé að koma í veg fyrir og þá hvernig það sé hægt. Næst varpaði hann á skjáinn sorg- mæddri konu sem reyndist vera móðir drengsins. ,,Drengurinn minn var greindur með hvítblæði en hann kvartaði aldrei alla lyfjameðferðina. Ég vona að hans sorglegi dauðdagi verði sá síðasti af þessu tagi og þá til þess að öryggi sjúklinganna verði sett í brennidepil fyrr en seinna.“ Koma má í veg fyrir mörg mistök Breski landlæknirinn sagði þetta dæmi hvorki það fyrsta né hið eina þar sem fólk lætur lífið af völdum mistaka í heilbrigð- iskerfinu. Mistök hafi ekki alltaf svo hræði- legar afleiðingar en geti í besta falli valdið óþægindum og aukaverkunum en í versta falli fötlun og dauða. Hann sagði að mistök væru mannleg en það væri margt sem hægt væri og þyrfti að gera kerfisbundið til þess að koma í veg fyrir flest þeirra. Sir Liam sýndi málþingsgestum, í tengslum við ofangreint dæmi, mynd af sprautum. Í fljótu bragði virtust þær nán- ast alveg eins í útliti, ef frá var talið að önn- ur sprautan var með blárri hettu en hin appelsínugulri. Þær voru jafnlangar, jafn- breiðar og tóku jafnmikið magn af vökva. Á báðar var límdur hvítur miði með einhverj- um tölum og strikamerki. Báðar innihéldu líka glæran vökva. Á annarri sprautunni stóð hins vegar litlum stöfum á fleti sem var um 3 sm að lengd: Má ekki sprauta í mænu- göng. Það var hins vegar erfitt að sjá það nema að rýna í sprautuna. Það var sem sagt ekkert sem greindi í fljótu bragði á milli þessara tveggja sprautna en röng notkun lyfsins sem í þeim var hefði getað haft al- varlegar afleiðingar fyrir sjúkling – og það hefur gerst eins og dæmin sýna. Sir Liam benti á að til dæmis með því að merkja lyf betur og greina í sundur mætti fækka óhappatilvikum í heilbrigðiskerfinu. Vantar fé til rannsókna Eins og fram kom í umfjöllun Morgun- blaðsins í fyrradag sýna niðurstöður rann- sókna í Englandi, Danmörku, Kanada og Nýja-Sjálandi að fjöldi sjúklinga verður fyrir tjóni í heilbrigðiskerfum þessara landa. Það væri óvarlegt að álykta að Ísland skæri sig mikið úr þessum þjóðum hvað þetta varðar. Ef tölur úr þessum rannsókn- um eru yfirfærðar má ætla að meira en á annað hundrað íslenskra sjúklinga verði fyrir tjóni og jafnvel að einhverjir týni lífi eftir að hafa verið meðhöndlaðir í íslenska heilbrigðiskerfinu – af ástæðum sem ekki má rekja til sjúkdómseinkenna þeirra held- ur óhappatilvika. En þegar spurt er hvort eða hversu hættulegt íslenska heilbrigðiskerfið sé er svarið einfaldlega: Við vitum það ekki. Það hafa ekki verið gerðar neinar rannsóknir á því og munu væntanlega ekki verða gerðar nema með fjárstuðningi stjórnvalda. Land- læknisembættið hefur undirbúið og vill gera sambærilega rannsókn á íslensku heil- brigðiskerfi og gert hefur verið í ofantöld- um löndum um styrk stöðvar Ís sóknin öll fremst ve rannsókn ættið vill króna. Re sjúkrahús Öryggið Matthía aðspurður yggi sjúkl ræðna í ö verið mjög segja að v eftirlits í jafnhratt e Dánarorsök: Mistö Áhætta Það er opinberlega viðurkennt, t.d. með lögum u ferð í heilbrigðiskerfinu. Opin og sanngjörn umræða um tök“, hefur hins vegar verið lítil og bitnar það bæði á sjú Í HNOTSKURN »Nýjasta vitneskja á sviði örygg-ismála á heilbrigðissviði verður höfð til hliðsjónar við hönnun nýja sjúkrahússins. »Rafræn skráning óhappatilvikahófst fyrir fjórum árum á Land- spítalanum. Efla þarf skráningu óhappatilvika til þess að fá ná- kvæmari mynd af ástandinu sem og að hægt sé að nota gögnin til vís- indalegra rannsókna. »Leggja verður meiri áherslu áað styðja þá sem verða fyrir mistökum í heilbrigðiskerfinu og fjölskyldur þeirra, því eins og Sir Liam Donaldson benti á lifir fólk með þessum mistökum, bók- staflega. En hann lagði líka áherslu á stuðning við starfsfólk heilbrigð- iskerfisins og eflingu öryggismenn- ingar. Öryggi sjúklinga er vandi sem á eftir og þarf að kort- leggja í íslensku heilbrigðiskerfi Eftir Unni H. Jóhannsdóttur uhj@mbl.is Óhefðbun iskerfinu „Ég hvet alla til að þvo sér um hendurnar,“ sagði Siv Friðleifsdóttir heil- brigðisráðherra glaðbeitt en tilefni ummælanna var undirritun sam- komulags um þátttöku Íslands í verkefninu „Hreinlæti og örugg heilbrigð- isþjónusta haldast í hendur“. Verkefnið er á vegum Alþjóða-heilbrigðismálastofnunarinnar og er ætlað að sporna við sýkingum sem eiga upptök sín í heilbrigð- iskerfinu. Það er eitt af öryggismálunum sem stofnunin setur á oddinn í herferð sinni gegn óhappatilvikum sem má fækka. Ástæðan? Handþvottur er ein einföld og ódýr aðgerð í heilbrigðiskerfinu sem kemur t.d. í veg fyrir út- breiðslu sýkinga á milli sjúklinga. Einföld aðgerð eins og handþvottur getur því haft margfeldisáhrif eins og að koma í veg fyrir þjáningar og fjárútlát, bæði innan heil- brigðiskerfisins og utan. Siv var 50. ráðherrann sem und- irritar samkomulag af þessu tagi. „Í því felst að við þurf- um að efla fagleg vinnubrögð, hvetja til frekari rannsókna og styðja lykilstarfsfólk við að innleiða aðferðir til þess að sporna við sýkingum og vera til fyrirmyndar hvað þær varðar. Ég tel að það sé verkefni að vinna og að við séum í stakk búin til þess að takast á við það. Ég tel að við getum bætt okkur enn frekar.“ Handþvottur heilbrigðisráðherra Siv Friðleifsdóttir ,,Fyrstu viðbrögð ker að þetta hafi verið óha ekki verið neinum að Pál arl ske má haf tak No fyr ling leit þei né finnst starfsfólk forða sé hreinlega verið að það gerðist eitthvað s ábyrgð á og ræða. Þei úrræði eins og lög um ,,Ekki okk Dögg Pálsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.