Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 32

Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN S itt sýnist hverjum um þá ákvörðun Morgunblaðs- ins að birta myndir af hæstaréttardómurum á forsíðu blaðsins sl. föstudag. Tilefnið var vægur dóm- ur yfir manni, sem hafði svívirt fimm lítil stúlkubörn, hið yngsta þriggja ára. Reyndar var yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tjáðu sig um málið sammála uppsetningu blaðs- ins. Einhverjir urðu þó til að gagnrýna hana, meðal annars á þeirri forsendu að Morgunblaðið væri með þessu að móta viðhorf almennings, gefa tóninn um að refsingin væri allt of væg. Þetta þykir mér vægast sagt undarlegur málflutningur. Hefur almanna- rómur ekki lengi haldið því fram að refsingar fyrir þessi skelfilegu brot séu allt of vægar? Ég hef margoft tekið þátt í, eða orðið vitni að, heitum umræðum um hvernig standi á því að dómstól- arnir nýti ekki refsirammann, sem lögin setja, og dæmi níðinga af þessu tagi til þyngstu mögulegu refsingar. Morgunblaðið var því alls ekki að vekja slíkar hug- myndir hjá fólki. En kannski hnykkti fólki við þegar það sá svart á hvítu að dómar Hæsta- réttar koma frá mönnum, en ekki stofnun? Á föstudagskvöld var meðal annars rætt um þessa for- síðu Morgunblaðsins í Kastljósi Sjónvarpsins. Þar var mættur prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Hann var ekki par ánægður með forsíðuna, enda kvaðst hann vilja sitt blað trúverð- ugt og áreiðanlegt og gætið. Ekki skýrði hann þó nánar hvað hefði skort upp á trúverðugleikann og áreiðanleikann í frásögn Morg- unblaðsins, enda kórrétt sagt þar frá öllum efnisatriðum. Gætnin er annað mál og prófessornum að sjálfsögðu frjálst að óska eftir meiri gætni, telji hann hana æski- lega í þessu tilviki. Hannes vísaði svo til skoð- anabræðra sinna á vefsíðunni and- riki.is, sem teldu Morgunblaðið núna vera eins konar dagblaðs- útgáfu af Veru. Þá skoðun sína rökstyðja Andríkismenn með til- vísan í að Morgunblaðið hafi ann- ars vegar talið fréttnæmt að Hillary Clinton hafi hafið op- inberlega baráttu fyrir því að vera kjörin forseti Bandaríkjanna og hins vegar að Halla Gunn- arsdóttir, þingfréttaritari blaðs- ins, byði sig fram til formennsku í Knattspyrnusambandi Íslands, fyrst kvenna. Andríki þykir þar með sýnt að „kvennabarátta“ sé það sem skiptir Morgunblaðið mestu. Stjórnmálafræðiprófessorinn og álitsgjafinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson sér síðan sóma sinn í því að tengja „kvennabaráttu“ Morgunblaðsins við áhuga rit- stjórnar á að dómarar Hæsta- réttar nýti þann refsiramma sem löggjafarvaldið hefur leyft þegar dæmt er í níðingsmálum af þessu tagi. Slíkur er vilji löggjafans og slík er krafa íslensku þjóðarinnar. En nei, að mati prófessorsins ýtir umrædd forsíða Morgunblaðsins undir þá túlkun að blaðið sé dag- blaðsútgáfa af Veru, blaði Kvennalistans eins og hann orðaði það – og þar með hallærislegt og marklaust í samfélagi alvöru- manna, eða hvað? Hér er vert að rifja upp að Vera var tímarit um konur og kvenfrelsi. Það kom fyrst út árið 1982 og útgefandinn var þá Kvennaframboðið í Reykja- vík. Síðar tók Kvennalistinn við útgáfunni, en árið 2000 tók út- gáfufélag 63 ein-staklinga við Veru og gaf út þar til yfir lauk nokkrum árum síðar. Vera var tímarit um konur og kvenfrelsi, tímarit um femínisma, skrifað af femínistum. Og nú tekur prófessor við Há- skóla Íslands undir að Morg- unblaðið hafði breyst í dagblaðs- útgáfu af þessu femínistariti, með því að vekja athygli á linku dóm- ara við níðing. Hvað á prófessorinn við? Eru kynferðisbrot sérstakt áhugamál kvenna? Eða kannski eingöngu þeirra kvenna sem skilgreina sig femínista? Koma þessi brot ekki körlum við? Af hverju ekki? Af því að þeir eru ekki fórnarlömbin? Þeir eru það reyndar sumir, á unga aldri. Og brotamennirnir eru karlkyns. Er það einhver sér- stakur femínismi að benda á það? Kynferðisbrot gegn börnum eru viðurstyggileg, um það er allt sómakært fólk sammála. Að morði frátöldu er var hægt að ímynda sér stærri glæp en þann að svipta börn æskunni og setja um leið óafmáanleg ör á sál þeirra. Ekki er langt síðan óhugsandi var að kynferðisbrot gegn börnum væru rædd opinberlega. Þau voru leyndarmál, sem fórnarlömbin burðuðust með alla ævi. Og glæpamennirnir komust upp með hegðun sína óáreittir. Á allra síðustu árum hefur við- horfið til ljótu leyndarmálanna gjörbreyst. Í fyrstu snerist um- ræðan um ofbeldi gegn konum. Stígamót lyftu Grettistaki, en þá, eins og oft síðar, örlaði á því við- horfi að þar færu róttækir femín- istar offari og margur góður drengurinn liði að ósekju fyrir. Þegar fæstir gátu lengur lokað augunum fyrir nauðgunum og of- beldi gegn konum á heimilum var athyglinni beint að börnunum. Einstaklingar, sem höfðu sem börn orðið fyrir grófri misnotkun, stigu fram í dagsljósið og sögðu sögu sína, þrátt fyrir að slíkt hljóti að hafa kostað nær ofur- mannlegt átak. Það átak var sann- arlega í þágu þjóðarinnar allrar. Frásagnir þessara einstaklinga voru trúverðugar og áreiðanlegar, en gætnin var látin lönd og leið. Til allrar hamingju, því við getum ekki lengur lokað augunum fyrir því að misnotkun á börnum er staðreynd. Við viljum að sam- félagið taki á þessum vanda og sjái til þess að níðingarnir fái makleg málagjöld. Og aftur spyr ég: Er það ein- hver sérstakur femínismi að benda á það? Femínistar og annað fólk »Eru kynferðisbrot sérstakt áhugamál kvenna?Eða kannski eingöngu þeirra kvenna sem skil- greina sig femínista? Koma þessi brot ekki körlum við? Af hverju ekki? Af því að þeir eru ekki fórn- arlömbin? Þeir eru það reyndar sumir, á unga aldri. Og brotamennirnir eru karlkyns. Er það ein- hver sérstakur femínismi að benda á það? rsv@mbl.is VIÐHORF Ragnhildur Sverrisdóttir NÚ ERU aðeins nokkrir mán- uðir þar til þjóðin gengur til kosn- inga. Það virðist liggja í loftinu, að nú standi þjóðin á mjög örlagarík- um tímamótum. Lýðræði og friður hefir verið Íslendingum í blóð bor- ið og þjóðin hefir aldrei haft eigin her. En lýðræðið er vandmeðfarið, og ég veit ekki hvort nokkur ein- ræðisherra hefir við- urkennt það að þjóð hans búi við einræði. Þó að við játum því að við búum við lýðræði, þá virðist þó víða pottur brotinn í þeim efnum. Valdamenn hafa tekið afdrifaríkar ákvarðanir án þess að spyrja þing eða þjóð. Þar hafa þeir farið al- varlega út af sporinu. Hitt hefir svo lík- lega viðgengist hér alla tíð í stjórnmálum, að naumur meirihluti fer öllu sínu fram án þess að taka nokkurt tillit til stjórnarandstæðinga, sem er kannski helmingur þjóðarinnar og stundum meira en það. Stjórn- arherrarnir þurfa að hugleiða það, að þeir eru ekki bara að stjórna fyrir sína kjósendur heldur fyrir alla þjóðina. Þetta mætti nú eflaust færa í betra horf með meiri tillits- semi og minna yfirlæti. Þetta þarf næsta ríkisstjórn að hafa í huga, hvort sem það verður hægri eða vinstristjórn. Annars er helmingur þjóðarinnar alltaf í einhverskonar herfjötrum valdhafanna. Taumlaus fjáraustur og allskonar bak- tjaldamakk í sambandi við kosn- ingabaráttu eru úr hófi fram og er helst til þess fallinn að brengla lýð- ræðishugsjónina. Ungur nemi í Verslunarskóla Ís- lands skrifaði nýlega grein í Morg- unblaðið með fyrirsögninni: „Að kaupa atkvæði“. Neminn, sem heit- ir því ágæta nafni Laufey Rún Ketilsdóttir, hefir gefið mér leyfi til að birta hér kafla úr athygl- isverðri grein hennar um þetta efni. Eftirfarandi kaflar eru úr grein hennar: „Hringt er í unga kjósendur hvað eftir annað og þeim boðið í stórar veislur þar sem áfengi drýpur af hverju strái og þekktar hljóm- sveitir leika fyrir dansi.“ Og svo síðar: „Dæmi eru um að allt að 10 frambjóðendur hringi í sama ein- staklinginn með gylli- boð um að skrá við- komandi í flokk fyrir kosningar og úr hon- um að þeim loknum.“ Hvernig lýst ykkur á? Hvar er virðingin fyrir lýðræðinu, kjósandanum og sjálf- um sér? Já, nú eru tímamót. Við megum vara okkur á því, að skerða ekki lýðræðið smátt og smátt þar til við brjótum fjöreggið, sjálft lýð- ræðið. Ég get svo ekki látið hjá líða, að minnast á það sem nú brennur heitast á þjóð vorri; stóriðjan. Þar er mikið glæfraspil í gangi og verð- ur aldrei við það unað af íslenskri þjóð að gera Ísland að einskonar Jamaíka. Fyrir utan loftmengunina og landspjöllin, þá hlaðast upp baneitraðir ruslahaugar með ófyr- irsjáanlegum afleiðingum. Og enn er ótalið að þetta getur kostað okk- ur að Ísland verði ekki lengur sjálfstæð þjóð. Þegar við erum orð- in háð stóriðjufurstunum þá eiga þeir hægt með að kúga okkur, þeir hóta að loka ef þeir fá ekki að stækka og þetta hefir þegar gerst hér hjá einu álveri og getur orðið stórhættulegur vítahringur. Þannig getum við orðið ánauðugir þrælar og Ísland verður ekki lengur gott land, fagurt land, heldur ánauðug þjóð í eiturbrasi álkónganna. Eng- inn Íslendingur vill slíka framtíð. Það tókst að stöðva það að jök- ulvatni væri hleypt í gegn um Mý- vatn en það hefur ekki tekist með Lagarfljót. Að virkja jökulleðju og skila komandi kynslóðum aur og drullu að flatarmáli á borð við Hvalfjörð er ótrúleg skammsýni, maður getur varla trúað þessu. Við ættum ekki að þurfa að standa í stríði til að vernda landið okkar. Við viljum hreint land, fagurt land og frjálsborna þjóð, en ekki þjóð í eiturbrasi og sorphaugum, eigandi það á hættu að missa bæði sjálfsstæðið, andrúmsloftið og landið. Ísland í framtíð Gunnþór Guðmundsson fjallar um þjóðmál » Við viljum hreintland, fagurt land og frjálsborna þjóð, en ekki þjóð í eiturbrasi og sorphaugum, eigandi það á hættu að missa bæði sjálfsstæðið, and- rúmsloftið og landið. Gunnþór Guðmundsson Höfundur er rithöfundur og fyrrum bóndi. Á SÍÐUSTU tveim mánuðum höfum við í fimm vikur mátt búa við takmarkanir á öxulþunga á öllum helstu þjóðvegum landsins. Merki- legt er hvað þetta hefur gengið yfir umræðulítið í samfélaginu þrátt fyrir að vera mikið hagsmunamál atvinnulífs um land allt, og raunar alls almennings einnig. Það þykir meiri frétt ef smá tafir verða á millilandaflugi en að allir flutningar innanlands séu í upp- námi vikum saman. Ekki heyrist einu sinni bofs í sjálfskipuðum varðmönnum vorum, þeim Jóni Bjarnasyni og Kristjáni Möller. Einhvern tíma hafa þeir þó opnað munn fyrir minna. Það er vitað að vegakerfi okkar er vanburðugt fyrir verk- efni sitt. Við því verður þó ekki lengur brugðist með því að tak- marka öxulþunga vikum og mán- uðum saman. Búseta á Íslandi á allt undir góðum og öruggum flutn- ingum, bæði til og frá landinu en einnig innanlands. Það er full- komlega sanngjörn og eðlileg krafa að þeir megi ganga eðlilega fyrir sig árið um kring nú þegar til- tölulega fátítt er orðið að veður og færð hamli. Stjórnvöld verða ein- faldlega að veita þeim fjármunum sem þarf til að halda vegum í við- unandi ástandi. Flutningarnir þurfa að komast og álitamál hvort betra er að fjölga ferðum umtalsvert til að minnka heildarþyngd hverrar ferðar smávegis. Það er kominn tími til að við för- um að líta á landið sem heild og skipuleggja vegakerfið í takt við þær þarfir sem það þjónar. Í gróf- um dráttum má skipta vegum í þrennt. Flutningaleiðir, byggðavegi og ferðaleiðir. Sumir vegir gegna öllum þremur hlutverkum í einu, aðrir einu eða tveimur þeirra. Við skipulagsvinnu verðum við einnig að horfa til framtíðar. Ef farið verð- ur í hálendisveg milli Norður- og Suðurlands á næstunni má t.d. álykta að það minnki verulega þörf fyrir ný Hvalfjarðargöng. Því miður hefur skort á samhengi í vegagerð. Bæði forgangsröð og val leiða vill frekar ráðast af reip- togi þingmanna en skipulagslegum rökum. Nú er vaxandi áhugi fyrir byggingu samgöngumannvirkja í einkaframkvæmd. Hvalfjarðargöng eru dæmi um vel heppnaða einkaframkvæmd. Bygging vega um lengri leiðir er öllu flóknara mál og þarf að huga vel að spurn- ingum sem er ósvarað við slíka einka- framkvæmd. Hvernig yrði háttað greiðslu/ leigu fyrir land undir einkaveg? Reikna má með að rekstraraðili beri viðhaldskostnað en hvað með snjómokstur? Myndu snjóþungir vetur leiða til hækkunar á vegatolli eða á ríkið að koma að málum? Stærsta spurningin snýr þó að skattlagningu bifreiða. Flutn- ingabílar sem færu um Kjalveg hinn nýja milli Akureyrar og Reykjavíkur myndu líklega aka að hálfu á einkavegi og hálfu á rík- isvegi. Myndu eigendur þeirra sætta sig við að greiða að fullu skatta sem eru eyrnamerktir til vegamála vegna slíks aksturs? Það má því sjá að ef vegakerfi landsins fer að skiptast upp í einka- vegi og ríkisvegi er að mörgu að hyggja. Kannski er því heppilegra að við höfum forræði samgöngu- mála almennt áfram hjá ríkinu. Hins vegar má benda á leið til að fjármagna stórfellda uppbyggingu stofnvega á örfáum árum og jafnvel nokkurra jarðganga í leiðinni. Á sínum tíma gaf ríkið út með góðum árangri skuldabréf til að fjármagna vegagerð á Skeiðarársandi. Núna væri einfalt mál fyrir ríkið að gefa út skuldabréf til fjármögnunar vegaframkvæmda. Fjármagnið er til hjá lífeyrissjóðunum sem hrein- lega vantar ávöxtunarleiðir. Ætla má að eigandi þessara fjármuna, þ.e. almenningur í landinu, myndi ekki síður vilja njóta arðs af vega- framkvæmdum en allra handa fjár- festingum erlendis, enda kæmu þær framkvæmdir öllum almenn- ingi beint til góða. Það er síðan pólitísk ákvörðun hvort endur- greiðsla lánanna kæmi af vegatoll- um að hluta, eða af almennum skatttekjum. Tíminn til fram- kvæmda er hentugur nú þegar hægja fer á stórframkvæmdum við virkjanir. Það má heita undarlegt þegar líð- ur að alþingiskosningum að fram- bjóðendur séu ekki í hópum að tala fyrir ofangreindri lausn í vega- málum, svo augljós sem hún er og auðframkvæmanleg. Því skora ég á stjórnvöld, sem og væntanlega ráðamenn, hvar í flokki sem þeir standa, að einhenda sér í stórátak í samgöngubótum án frekari tafar, virkja fjármuni lífeyrissjóða og vinna málið út frá skipulagslegum forsendum og þörfum. Þannig er búseta best tryggð á Íslandi til framtíðar. Um vegamál Þröstur Friðfinnsson fjallar um vegamál »Núna væri einfaltmál fyrir ríkið að gefa út skuldabréf til fjármögnunar vega- framkvæmda. Fjár- magnið er til hjá lífeyr- issjóðunum sem hreinlega vantar ávöxt- unarleiðir. Þröstur Friðfinnsson Höfundur er framkvæmdastjóri Dög- unar ehf. á Sauðárkróki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.