Morgunblaðið - 09.02.2007, Page 36

Morgunblaðið - 09.02.2007, Page 36
36 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ásgeir Ár-mannsson fæddist í Reykjavík 21. febrúar 1921. Ásgeir lést á Land- spítalanum í Foss- vogi 2. febrúar sl. Foreldrar hans voru hjónin Ár- mann Eyjólfur Jó- hannsson, f. á Litlu- Giljá í A-Húna- vatnssýslu 3. maí 1870 , d. 21. febr- úar 1950, og Guðný Jónsdóttir, f. á Mýrarholti í Reykjavík 16. júlí 1875, d. 25. febrúar 1972. Ásgeir var yngstur í sjö systkina hópi. Ásgeir kvæntist 9. september 1944 Láru Ingibjörgu Fanneyju Herbjörnsdóttur, f. á Hamri í Laxárdal 3. janúar 1922. For- eldrar hennar voru Herbjörn Guðbjörnsson, f. á Miklabæ í Fyrri kona Guðbjörns er Ólöf Brynja Garðarsdóttir. 4) Árný Sigríður, f. 11. maí 1956, gift Sig- urþór Jóhannessyni og eiga þau tvær dætur og einn dótturson. 5) Einar, f. 9. maí 1960, kvæntur Sú- sönnu Sigurbjargar Forberg. Þau eiga þrjú börn og tvö barna- börn. Ásgeir nam bókband við Iðn- skólann í Reykjavík og starfaði við þá iðn alla sína starfsævi. Hann var mjög virkur í fé- lagsstörfum alla tíð. Hann sat í stjórn Knattspyrnudeildar Vík- ings í Reykjavík um árabil og var gerður að heiðursfélaga þar. Auk þess starfaði hann lengi fyrir Knattspyrnusamband Íslands og KKR. Ásgeir var sæmdur gull- merki allra þessara íþrótta- samtaka svo og gullmerki ÍSÍ. Nú síðast fékk hann svo viðurkenn- ingu frá Knattspyrnusambandi Evrópu fyrir vel unnin störf í þágu knattspyrnunnar á Íslandi. Útför Ásgeirs verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Skagafirði 31. maí 1898, d. 12. febrúar 1984, og kona hans Guðbjörg Jóns- dóttir, f. á Sáms- stöðum í Laxárdal 9. september 1896, d. 30. október 1991. Börn Ásgeirs og Láru eru: 1) Áróra Sjöfn, f. 14. maí 1942, d. 5. febrúar 1989, giftist Sveini Kjartanssyni en þau skildu. Seinni maður Áróru var Helgi Grétar Kristinsson. Áróra eign- aðist fjögur börn og eru barna- börnin níu. 2) Ásgerður, f. 25. maí 1945, gift Magnúsi Bjarna- syni og eiga þau þrjú börn og átta barnabörn. 3) Guðbjörn, f. 31. desember 1950, kvæntur Nönnu A. Þórðardóttur og eiga þau sex börn og eitt barnabarn. Hann pabbi er dáinn. Lengi hefur það vofað yfir og oft höfum við búið okkur undir að endalokin væru komin en ávallt reis hann pabbi upp aftur. Margar minningar þjóta í gegnum hugann á þessum tímamótum í lífi okkar. Fyrst er að nefna þegar fjöl- skyldunni var úthlutað íbúð í Ásgarði 63 árið 1957. Næstu mánuði á eftir sást lítið til pabba því allur hans tími fór í að standsetja húsnæðið. Við minnumst þess líka þegar við systk- inin komum heim með tilvonandi maka okkar, hvað hann tók þeim með mikilli hlýju. Eitt var það sem átti hug hans all- an en það voru íþróttir, en þó sér í lagi knattspyrna, og var hans félag KR í byrjun að Vesturbæinga sið. Svo þeg- ar synirnir fóru að æfa með Víkingi, fyrst Bubbi og síðan Einar, fylgdi hann þeim eftir og hóf þá að starfa fyrir félagið. Hver man ekki eftir full- um snúrum af víkingstreyjum í Ás- garðinum og tók móðir okkar, Lára, fullan þátt í þessu öll árin. Pabbi starfaði fyrir Víking í ein 30 ár og eitt- hvað skemur fyrir KRR og KSÍ. Oft var glatt á hjalla í Ásgarðinum er sigur hafði unnist á fótboltavell- inum, en aldrei eins og þegar Víking- ur varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 57 ár árið 1981 og ljúfsárt var að tryggja sér titilinn með sigri á gamla félaginu sínu KR í síðasta leik. Við áföll innan fjölskyldunnar var pabbi sá klettur sem upp úr stóð og miðlaði hann okkur systkinum hugg- unarorðum af yfirvegun og hlýju á erfiðum stundum. Með þessum orðum, sem gætu jú orðið miklu fleiri, viljum við kveðja hann í bili. Hafi hann þökk fyrir allt og allt. Hvíl í friði. Hann tók þig í fang sér og himnarnir hófu í hjarta þér fagnandi söng. Og sólkerfi daganna svifu þar um sál þína í tónanna þröng. En þú varst sem barnið, er beygir kné til bænar í fyrsta sinn. Það á engin orð nógu auðmjúk til, en andvarpar: Faðir minn! (Tómas Guðmundsson.) Ásgerður, Guðbjörn, Árný og Einar. NÚ HEFUR hann afi Ásgeir kvatt þetta líf og langar okkur að minnast hans með nokkrum orðum. Þessi merkilegi maður var okkur miklu meira en afi þar sem hann ól okkur upp frá unga aldri í Ásgarð- inum ásamt ömmu Láru. Að því bú- um við alla ævi vegna þess að það voru forréttindi að fá að alast upp hjá þeim hjónum, því þar fór reynslumik- ið og hjartahlýtt fólk, ólíkt en mjög samheldið. Hjá því lærðum við öll helstu lífsins gildi sem við munum búa að um ókomna tíð. Við áttum að klára okkar verk af heiðarleika, vandvirkni og standa við það sem við sögðum. Þrátt fyrir að afi væri ekki heilsu- hraustur maður var hann ótrúlega atorkusamur og tók hann mikinn þátt í félagslífi okkar og þá sérstaklega íþróttum. Auk þess starfaði hann mikið innan Víkings og knattspyrnu- hreyfingarinnar. Í þessum fé- lagsstörfum sem veittu honum mikla gleði og ánægju eignaðist hann marga af sínum traustustu vinum og mótuðu þessi störf hans uppeldi okk- ar á mjög jákvæðan hátt. Á kveðjustund erum við þakklát fyrir allt það sem hann var okkur og minnumst þessa hjartastóra, duglega og fórnfúsa afa okkar og uppeldisföð- ur með stolti, hlýju og virðingu. Við þökkum af alhug afa Ásgeiri fyrir allt. Hvíl í friði. Elsku amma, minningarnar um afa munu ylja þér um ókomna tíð. Guð veri með þér. Kjartan, Ásgeir og Hanna Lára. Já hann afi okkar var yndislegur maður og tók ávallt á móti okkur opn- um örmum er við komum í heimsókn til hans og ömmu. Hann sýndi mikinn áhuga á öllu því sem við höfðum að segja og var gott að tala við hann. Alltaf svo blíður og góður, eins og t.d. þegar hann Óli kom heim frá Spáni og ekki búinn að sofa í 24 klst., þá bjuggu hann og amma um hann í rúminu sínu og komu með handklæði fyrir tattúið sem hann var nýbúinn að fá og útvarp svo hann gæti nú hlustað á sína skoð- un. Hann afi var afskaplega virðulegur maður mundum við segja … og ynd- islegur á allan hátt, hann lifði fyrir fjölskylduna og fótboltann. Hann mun lifa áfram í hjörtum okkar og munum við ætíð muna allar þær ynd- islegu stundir sem við áttum með honum. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Björn Axel, Stefán Þór, Ólafur Fannar, Laufey Björg, Ásdís Ósk, Ármann Örn. Afi Ásgeir eða afi Víkingur eins og hann var stundum kallaður hefur nú verið kallaður til æðri starfa í upp- hæðum. Afi var höfuð stórrar sam- heldinnar fjölskyldu eins og kom ber- sýnilega í ljós þegar við komum saman til að eiga bænastund með höfðingjanum morguninn sem hann kvaddi þennan heim. Fáa menn hef ég þekkt í gegnum tíðina sem eru blíðari og tilfinningaríkari en hann afi var. Hann tók ævinlega á móti manni með opinn faðminn og svo fékk mað- ur í kjölfarið stóran knús og þrjá kossa á kinnina. Þetta var sérkenni afa sem manni lærðist fljótt og þótti afar vænt um. Börnunum mínum fannst alltaf gott að koma í Ásgarðinn og fá afaknús. Afi og amma áttu líka alltaf sveskjur á ákveðnum stað í eld- húsinu þegar börnin mín komu í heimsókn og afa fannst óskaplega gaman að fara með þau að finna sveskjustampinn. Og öll fengu þau að kynnast því hvað heyrðist ef þau studdu fingri á vörtuna hans afa. Afi var einstaklega barngóður maður og fylgdist mjög vel með gangi mála hjá öllum sínum barnahópi. Ég var ekki gömul þegar það var alveg orðið ljóst fyrir mér að Víking- ur var liðið. Það voru margar ferð- irnar farnar í Hæðargarðinn með honum afa, sem var oft kallað hans annað heimili, þar sem hann var að snúast í kringum Víkingsstrákana sína. Afi á því án nokkurs efa stærst- an þátt í því hversu stóran sess fót- bolti skipar í mínu lífi og minnar fjöl- skyldu. Það kom aldrei fyrir að boltinn væri ekki ræddur þegar mað- ur kíkti í Ásgarðinn og þá aðallega enski boltinn í seinni tíð. Eftir að son- ur minn fór svo að spila fótbolta spurði afi hann alltaf út í gang mála þegar þeir hittust. Verst þykir unga manninum að afi skyldi aldrei hafa komið á völlinn til að sjá hann spila en er þó alveg viss um að hann afi kemur til með að fylgjast með honum hér eftir þegar hann er að spila. Í janúar sl. kom hópurinn þeirra afa Ásgeirs og ömmu Láru síðast all- ur saman í Víkinni í tilefni af 85 ára afmælinu hennar ömmu. Þar brá ungviðið sér saman inn í sal og spilaði fótbolta. Það var stoltur maður, hann afi minn, sem stóð með bros á vör og horfði á efnilegan hópinn sinn í gegn- um gluggann. Hann hafði orð á því við ungu mennina að ef þeir héldu áfram að vera duglegir að æfa og borða þá væri klárt mál að þeir yrðu atvinnu- menn í fótbolta. Ég er illa svikin ef þessi orð koma ekki til með að hljóma í höfðum þessara ungu drengja um ókomna tíð, því að þeir báru sko mikla virðingu fyrir afa Ásgeiri. Elsku amma mín, ég bið góðan Guð um að gefa þér styrk í sorginni. Ég veit að afi kemur til með fylgja þér um ókomna tíð. Minningin um mikinn og góðan mann og yndislegan afa mun lifa. Elsku afi minn, það eru þung skref stigin í dag þegar við kveðjum þig hinstu kveðju. Ég bið góðan Guð að taka vel á móti þér og varðveita þig. Ég veit að þú kemur til með að fylgj- ast áfram með okkur öllum og vernda okkur af fremsta megni. Takk fyrir allt og allt. Hvíl þú í friði, elsku afi, Katrín og fjölskylda. Nú ertu farinn frá okkur, elsku afi minn. Ég man enn í dag eftir þeim degi þegar þið amma gáfuð mér Framara- búning í afmælisgjöf. Þó að þið væruð bæði gallharðir Víkingar og ekki beint hrifin af því að ég væri Framari, allir aðrir í ættinni Víkingar, þá stoppaði það ykkur ekki í að gefa mér þann búning. Í mínum huga lýsir þetta því hvernig persóna þú varst. Þó að þú værir ekki hrifin af því að ég væri Framari þá virtir þú það við mig og reyndir ekki að breyta því. Þú varst samt vanur að segja við mig að þetta myndi nú eldast af mér og með árunum yrði ég vitrari. Það má segja að þú hafir haft rétt fyrir þér að vissu leyti. Þegar ég kom í bæinn í skóla þá valdi ég Víking og held ég að þú hafir nú verið ánægður með það og í dag held ég að þó að ég sé enn Framari þá slái Víkings-hjartað inn við beinið. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn í Ásgarðinn og kíkja á enska boltann. Þá var sjaldan jafn mikið fjör og þegar Manchester Unit- ed og Arsenal mættust. Því eins og allir vita þá heldur amma með Arsen- al og þú með „Manstu eftir united“ eins og þú kallaðir þá. Alltaf þegar Arsenal keppir og mun keppa í fram- tíðinni þá mun ég hugsa til þín. Því þú kallaðir alltaf einn leikmann Arsenal „Stebba,“ þú veist hvern ég er að meina. Heyrði þig segja þegar leik- urinn stóð yfir og þessi ákveðni leik- maður var með boltann „Þarna er Stebbi“ því þér fannst við svo líkir, ekki veit ég hvort það var á velli eða í útliti. Það skiptir ekki máli, hvort sem var þótti mér þetta mikið hrós og hafði gaman að því að vera líkt við slíkan gæðaleikmann. Það var eitt sem ég lærði af þér og komst á lagið með en það var að tippa í getraunum. Það var gaman að keppa við þig um hver væri nú með fleiri rétta þessa helgina og oftar en ekki hafðir þú betur. Þá fylgdist mað- ur alltaf með því hvernig Monsunni gekk þessa helgina og vonandi að Einar verði duglegur og haldi hópn- um þínum við í þínu nafni. Ég mun sakna þín, kæri afi minn, en ég veit að þú munt alltaf vaka yfir okkur og kæmi mér það ekki á óvart ef maður skyldi rekast á þig á vellinum. Stefán Þór. Fyrsta minningargreinin, og ekki að ástæðulausu að sú grein sé um afa Ásgeir. Hann átti alltaf sérstakan stað í hjarta mínu og mun alltaf eiga. Hans mikla ástúð á öllu sínu fólki var einstök og það voru sérstök forrétt- indi að eiga afa eins og hann. Um- hyggjan og kærleikurinn í garð okkar allra voru meiri en orð fá lýst og eitt- hvað sem hann kom vel til skila. Afi smitaði mig eins og fleiri af fótbolta- áhuganum. Ég fékk strax að vita að Víkingur var „félagið“ og það eru margar minningarnar sem koma upp í hugann á þessari stundu. Fjölmarg- ar ferðir á gömlu „Fífíunum“, þar sem maður skottaðist með honum niður í Hæðargarð eða á Laugardals- völlinn til að gera klárt fyrir leiki hjá strákunum hans. Þar fékk maður að ganga í það „stóra starf“ að hengja upp búningana. Ég man hvað ég öf- undaði afa að þekkja alla þessa fót- boltakarla og fannst að ég ætti senni- lega vinsælasta afa í heimi. Seinna breyttist þetta í það að ég átti þann afa sem átti sennilega flest afabörn af öllum. Það eru örugglega fáir Víking- arnir sem ekki kölluðu hann „afa“ eða „afa Víking“. En jafn mikið og maður leit upp til „gamla“, þá náði hann aldrei að snúa enska hjartanu í mér, en mátti þó eiga það að hann gafst fljótt upp á að reyna það og leyfði mér að hafa mínar skoðanir á þessum mál- um. Hann vorkenndi mér bara vegna fárra titla hjá mínum mönnum. Ég minnist þess að ég var staddur í sölu- ferð úti á landi síðastliðið haust þegar síminn hringdi. Á skjánum blikkaði „Afi Ásgeir hringir“. Erindið var lýs- andi dæmi um samskipti okkar. Þarna var hann bara að hringja í mig til að óska mér til hamingju með púll- arana mína. Hann vissi af því að ég hefði ekki tök á að sjá leikinn, sem var spilaður snemma morguns í miðri viku og fannst það vera skylda sín að bera mér fréttir af gangi mála. Við gátum oft setið tímunum saman og rætt fótbolta. Hin seinni ár fékk amma að taka þátt í samræðunum og stóð þá frekar með nafna sínum en afa. Börnin mín öll fengu að kynnast hlýju hans og greinilega meðtóku hana eins og ég sjálfur. Elsti sonur minn sem býr erlendis vildi alltaf koma við í Ásgarðinum þegar hann kom heim og stjúpsonur minn hljóp alltaf beint upp í fangið á ömmu og afa þegar hann kom til þeirra. Verst þykir mér að „Molinn“ hans afa fékk ekki langan tíma til að kynnast hon- um, en hann á eftir að gera það í gegnum minningu okkar hinna. Það verður skrítið að koma í Ásgarðinn og fá ekki faðmlagið og kossana þrjá frá honum, en amma fær bara fleiri í staðinn. Ég kveð afa með sorg í hjarta en góðum minningum og veit að hann verður hjá mér yfir enska boltanum og öðru í mínu lífi um ókomna tíð. Eigðu hjartans þökk fyrir allt og allt, elsku afi minn. Elsku amma Lára. Ég bið góðan guð að styrkja þig í þinni miklu sorg. Minningin lifir um besta afa í heimi. Lárus Ingi Magnússon. Við systurnar munum aldrei aftur trítla upp stigann í Ásgarðinum til þess að smella kossi á afa Ásgeir þar sem hann situr í stóra herberginu og fá um leið létt kitl af skegginu hans. En frábærar og ljúfar minningar munu lifa áfram í hjörtum okkar um ókomna tíð um þann hjartahlýja mann sem afi hafði að geyma. Þegar við vorum yngri lumaði afi á ótal mörgum brögðum til að fanga at- hygli okkar. Eitt þeirra var að smella tungunni í góminn og mynda þannig undarlegt hljóð sem gerði okkur for- viða enda hulin ráðgáta þá hvernig hann fór að þessu. Annað bragð sem afi notaði óspart var að biðja okkur að ýta á fæðingarblett sem hann hafði á kinninni. Um leið og við ýttum kom upp úr afa hljóð líkt og í dyrabjöllu sem orsakaði mörg hlátrasköll. Þegar Erla var 8 ára gaf hún afa það loforð að hún skyldi leika hand- bolta með meistaradeild Víkings enda var afi mikill Víkingur og heiðurs- félagi félagsins. Það loforð efndi hún og fylgdist afi vel með framvindu mála. Barnabörn og barnabarnabörn afa voru honum mikils virði og fundum við systurnar fyrir því að fjölskyldan skipti hann miklu máli. Það var alltaf gott að koma í Ásgarðinn enda afi og amma mikið sómafólk, sem engu lík- ara en hafi verið sniðin fyrir hvort annað, sem við afkomendurnir getum stolt tekið okkur til fyrirmyndar. Helsta áhugamál afa var knatt- spyrna sem hann fylgdist vel með og starfaði mikið fyrir knattspyrnu- hreyfinguna. Árið 2004 var hann heiðraður á Laugardalsvelli fyrir vin- áttulandsleik Íslands og Ítalíu. Þar fékk hann sérstaka viðurkenningu fyrir ómetanlegt sjálfboðaliðastarf í þágu knattspyrnu á Íslandi að tilefni 50 ára afmæli UEFA. Sú stund var afa mikils virði og við systurnar vor- um verulega stoltar fyrir afa hönd enda er hann okkur mikil fyrirmynd. Jóhannes Bjarki barnabarnabarn afa og sonur Erlu trúir því að þeir sem falla frá fái sína stjörnu á himni og hann fylgist vel með stjörnunum. Eftir kistulagninguna fann Jóhannes Bjarki afa stjörnu á himninum og er þess fullviss að nú sé afi að leika við Brúnó hundinn okkar og hafi nóg að fást við. Amma hefur staðið sig eins og sú hetja sem við þekkjum eftir fráfall afa. Hún veit líkt og við að nú er hann kominn á góðan stað meðal annarra stjarna. Við biðjum góðan guð að passa vel upp á ömmu á þessum erf- iðu tímum enda hefur hún misst mik- ið í þeim góða lífsförunaut sem afi Ás- geir var. Elsku afi takk fyrir samfylgdina í gegnum árin og megi minning þín lifa í hjörtum okkar sem vorum svo lán- söm að þekkja þig um alla framtíð. Unnur og Erla Sigurþórsdætur. Árið 1921 fæddist drengur á Bakk- astíg í vesturbæ Reykjavíkur, á áhrifasvæði KR. Umhverfið var báru- járnsklædd timburhús í ýmsum lit- um, litlir blettir umluktu húsin og á lóðamörkum voru spýtugirðingar; ennfremur þvottasnúrur og aðeins fjær siglur á bátum, bryggjur og slor sem fylgir fiskimönnum: Þorp. Drengurinn gekk að sjálfsögðu í KR. Hefði örugglega viljað vera einn af drengjunum á vellinum og skora mark og annað. Nógur var áhuginn. En það átti ekki að verða. Ásgeir fékk á unga aldri berkla í annan fótinn og bjó við afleiðingar þess alla ævi, stundum kvalinn. En hann unni knattspyrnunni og þótt hann skoraði ekki á velli skoraði hann í störfum fyrir KR og knattspyrnuna. Ég kynntist Ásgeiri sumarið 1950 er ég og Guðbjörg, systir Láru, eiginkonu Ásgeir Ármannsson Við munum ávallt minnast Ásgeirs Ármannssonar, þeg- ar við heyrum góðs manns getið. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Guðrún og Sigurður Óli. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.