Morgunblaðið - 09.02.2007, Page 42

Morgunblaðið - 09.02.2007, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ HallgerðurGísladóttir, cand. mag., fags- tjóri Þjóðháttasafns á Þjóðminjasafni Ís- lands, fæddist í Sel- dal í Norðfirði 28. september 1952 og ólst þar upp. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 1. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar eru Gísli Friðriksson bóndi í Seldal, f. 1909, d. 1998, og Sigrún Dagbjartsdóttir, f. 1918. Börn þeirra voru níu, Hall- gerður var miðjubarnið í hópnum. Guðríður var elst, f. 1940, d. 2006, Elsa Sæný, f. 1942, d. 1974, Páll, f. 1946, d. 1990, Ína Dagbjört, f. 1949, Friðrik, f. 1953, Jóhanna, f. 1956, Hulda, f. 1958, og yngst er Stefanía Guðbjörg, f. 1959. Eiginmaður Hallgerðar er Árni Hjartarson jarðfræðingur. Þau eignuðust þrjú börn; Sigríði, f. 1975, d. 1997, Guðlaug Jón, f. 1979, og Eldjárn, f. 1983. Eftir skyldunám og landspróf á Norðfirði hélt Hallgerður til Dan- merkur og sat í Silkeborg Hus- holdningsskole 1969–70. Síðan settist hún í MR og varð stúdent þaðan 1974. Þá hélt hún til Kan- ada og nam mannfræði og sögu við Manitóbaháskóla í Winnipeg síðar fagstjóri þjóðháttasafns. Hún kom að ýmsum sýningum safnsins s.s. Hvað er á seyði? Eld- húsið fram á okkar daga og brúð- kaupssýningunni Í eina sæng. Hún var ein af þeim sem byggðu upp hinar nýju og rómuðu sýningar Þjóðminjasafnsins, var þar rit- stjóri margmiðlunarefnis og einn af aðalhöfundum grunnsýning- artextans. Hún ritstýrði og skrif- aði, ásamt Sigrúnu Kristjáns- dóttur, bókina Í eina sæng; Íslenskir brúðkaupssiðir. Hallgerður kenndi sérgrein sína í stundakennslu við HÍ og víðar og flutti fyrirlestra innanlands sem utan. Hún stundaði einnig hella- rannsóknir ásamt manni sínum og Guðmundi J. Guðmundssyni sagn- fræðingi og gaf út bókina Mann- gerðir hellar á Íslandi í framhaldi af því. Hallgerður starfaði með rauð- sokkum og sá um skeið með fleir- um um rauðsokkusíðu Þjóðviljans, hún var formaður Félags ís- lenskra fræða, kjaradeildar 1999– 2001, sat í stjórn Umsjónarfélags einhverfra og var stjórnarmaður í Kvæðamannafélaginu Iðunni. Hallgerður var skáld, birti ljóð sín í tímaritum og hlaut við- urkenningar fyrir þau. Ljóðabók hennar, Í ljós, kom út 2004. Nokk- ur ljóða hennar birtust í þýska bókmenntatímaritinu Die Horen 2006 í þýðingu Franz Gíslasonar og Wolfgangs Schiffers. Hallgerður verður jarðsungin frá Neskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. 1974–75, tók síðan BA-próf í sagnfræði við HÍ árið 1981 og lauk þaðan cand. mag.-prófi 1991. Sér- grein Hallgerðar var saga íslenskrar mat- reiðslu og mat- arhátta og þróun eld- hússins. Árið 1999 kom út bók hennar Íslensk matarhefð en fyrir það verk fékk hún viðurkenningu Hagþenkis, var til- nefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og hlaut fleiri viðurkenningar. Hún hefur ritað fjölda fræðigreina í innlend og erlend tímarit og bækur sem of langt er upp að telja. Í samvinnu við Steinunni Ingimundardóttur gerði hún þáttaröð fyrir Sjón- varpið um matargerð í eldri tíð og aðra þáttaröð gerði hún um jól á Íslandi fyrr og nú. Einnig kom hún að gerð heimildamyndar um manngerða hella á Íslandi með Árna Hjartarsyni og Guðmundi J. Guðmundssyni. Hún sá um fjöl- marga þætti í útvarpi um mat- arhætti og hefðir og oft leituðu fjölmiðlar til hennar um slíkan fróðleik, einkum á þorra og jóla- föstu. Hallgerður starfaði lengst af á Þjóðminjasafninu, varð deild- arstjóri þjóðháttadeildar 1995 og Það var í janúar á síðasta ári að ég kom í frí til Íslands ásamt Gavin og Sebastian. Við urðum þeirrar gleði aðnjótandi að vera stödd hjá Höllu þegar þær fréttir bárust að krabba- meinið væri horfið. Hún var þó enn mikið veik eftir langa og harkalega meðferð. Við kvöddum landið von- glöð. yfir spegilsléttum sjónum flögrar bláklæddur engill engin ógn sjáanleg en skjótt skipast veður í lofti Í júní berast þær hörmungarfrétt- ir að Gurra elsta systir okkar hafi greinst með ólæknandi krabbamein. Í kjölfarið, ekki miklu meira en viku seinna, greinist Halla með krabba- mein í þriðja sinn. Mánuði seinna er Gurra látin. Halla berst áfram fyrir lífi sínu. Halla var í miðjunni í níu barna hópi, sjö árum eldri en ég. Hún var alltaf stóra systir mín. Friðrik var næstur á eftir henni í systkinaröð- inni. Voru þau samrýnd og fylgdust mikið að bæði í Seldal og í gegnum menntaskólaárin í Reykjavík. Það var ekki lognmollan í kringum þau og saman settu þau á svið ýmsa skemmtan fyrir okkur yngri syst- urnar, svo sem að safna okkur saman á kvöldin í innstakróknum, en það var herbergi sem við þrjár yngstu systurnar sváfum í, og segja kynngi- magnaðar draugasögur sem voru spunnar upp jafnóðum og þær voru sagðar. Útbúnaði hafði verið komið fyrir í fataskápnum. Það var kippt í spotta á viðkvæmum stað í sögunni og sjálflýsandi glyrnur komu í ljós er skápurinn opnaðist. Hrollur fór um okkur. Daginn eftir þorði ég ekki ein á klósettið í dagsbirtu og hét því að taka ekki þátt næsta kvöld, en það fyrirheit varð að engu og inn fór ég aftur til að fá í mig meiri hroll. Ég minnist þess að þurfa á hár- klippingu að halda. Halla skellti skál á höfuðið á mér og klippti meðfram börmunum. Ég leit með skelfingu í spegilinn eftir á og lokaði mig inni á klósetti og brynnti þar músum, því ég vildi ekki láta Höllu sjá að ég væri óánægð með klippinguna. Nokkru seinna fékk ég að fara með Höllu út á Sæsilfur að salta síld. Í hádeginu fór- um við á hótelið í mat. Þar voru tvær stúlkur að framreiða og spurðu mig hvort ég væri stelpa eða strákur. Þegar ég svaraði að ég væri stelpa fóru þær að hlæja. Þetta vafamál tengdist allt klippingunni góðu og í dag finnst mér þetta bráðskemmti- leg endurminning og eitthvað svo Hölluleg. Hún lét hlutina aldrei vefj- ast fyrir sér og var ekkert að ragast yfir smámunum. Hún átti ráð við öllu. Ég flyst suður til Reykjavíkur 1977. Eftir nokkurn tíma í leiguher- bergi, sem mér þótti óhemju ein- manaleg vist, er ég tekin inn í komm- únuna í Skólastræti 5B þar sem Halla og Árni búa ásamt Siggu. Ég er þar í ár og fylgi svo Höllu og Árna næstu sjö árin, fyrst á Grundarstíg- inn og svo upp í Háagerði þar sem þau búa ásamt Imbu Hafstað og Þór- unni dóttur hennar. Gulli hefur einn- ig bæst í hópinn. Eldjárn fæðist eftir að ég flyt frá þeim. Ég verð ein af fjölskyldunni. Þessi ár voru einstak- lega skemmtileg og ómetanlegur kafli í minningasjóðnum. Halla var mikil baráttukona. Hún fór í gegnum menntaskólann og há- skólann af þeim krafti sem einkennir þá sem vita hvert þeir ætla og láta ekkert eyða fasthyglinni þrátt fyrir oft á tíðum bágan efnahag. Hún var mikil og góð fræðimanneskja og ljóð- skáld og hafði undravert vald á ís- lenskri tungu. Ég sagði stundum við hana að hún hefði röntgensjón á ís- lenskt mál. Hún fór alltaf yfir ljóðin mín. Mér fannst ekkert ljóð vera fullbúið fyrr en Halla var búin að lesa það yfir. Hennar næmi kenndi mér margt og bý ég að því í framtíð- inni. Ég hugsa til þess með sárum söknuði að geta ekki lengur leitað til hennar. Hún var stóra systir mín í því sem fleiru. Ég trúi því að framlag Höllu til safna og ritstarfa skili komandi kyn- slóðum ríkum arfi. Hún hafði bara svo mikið eftir að gefa á þeim sviðum sem öðrum. Óskiljanlegt að hún skyldi ekki fá að vera hjá okkur leng- ur. Ef ég ætti að lýsa Höllu í fáeinum orðum kemur fyrst upp í hugann hvað hún var góð og notaleg mann- eskja og náði sambandi við fólk af öllum gerðum. Hún var alin upp í sveitasamfélagi og hennar fræði- mannavinna tengdist mikið þeim bakgrunni. Þar átti hún heima. Hún var allstaðar aufúsugestur, enda skildi hún þennan arf frá fyrstu hendi. Halla var hógvær manneskja. Hún tranaði sér ekki fram, þó að ým- islegt væri sótt til hennar vegna hæfileika og fróðleiks sem hún bjó yfir. Hún hafði yndislegan húmor. Upp úr henni ultu gullkornin stund- um án afláts og þann eiginleika varð- veitti hún til hins síðasta. Hún kom okkur ósjaldan til að hlæja þar sem við sátum við sjúkrabeð hennar eða töluðum við hana í síma, þó að allt annað en hlátur væri upp á teningn- um. Hún var trygg og trú sinni fjöl- skyldu fyrir austan, sínum arfi, þótt hún flytti burtu ung og alla tíð var gott og náið samband heim. Þessi tengsl voru gagnkvæm. Uppruni fólks og sameiginleg reynsla upp- vaxtaráranna skapa órjúfanleg tengsl sem ekki báru skaða þó að í kringum hana skapaðist stór nýr vinahópur og tengdafjölskylda. Börnin hennar og Árni áttu þó hjarta hennar öðrum fremur. Halla hafði eðlislæga réttlætiskennd sem kom jafnt fram í daglegu lífi hennar og pólitískum skoðunum. Hún var heil og kom til dyranna eins og hún var klædd. Fjölskyldan í Sörlaskjóli hefur fengið meira en lítinn skerf af áföll- um lífsins. Halla greindist með krabbamein í fyrsta sinn í kringum ’92, en komst yfir það á rúmu ári. Sameiginlegt verkefni fjölskyldunn- ar að ala upp fatlað barn var leyst af hendi með umburðarlyndi og þolin- mæði. Í lok árs ’97 er Sigga hrifin í burtu öllum að óvörum. Hvað er sos- um hægt að gera annað en að bíta á jaxlinn og halda áfram. Fyrir tæplega tveimur árum greindist Halla svo með krabbamein í annað sinn. Hennar barátta fyrir lífinu hefur verið óslitin síðan. Hún sýndi sem fyrr hvaða styrk hún hafði yfir að búa. Það var aldrei á döfinni að gefast upp, hversu veik sem hún var, og oftast var stutt í húmorinn. Löngunin til að lifa var gífurleg. Hún hafði svo mikið að lifa fyrir, fannst svo gaman að lifa. Hennar barátta og allra sem í kringum hana voru dugði ekki til að bjarga henni frá þeim ör- lögum sem voru henni ætluð. Hversu smá og vanmegnug við erum þegar hinn slyngi sláttumaður hefur gert upp hug sinn. Það er erfitt að hugsa sér Höllu og Árna aðskilin. Þau voru sem eitt, hjón og vinir, áttu sálufélag í flestu sem þau tóku sér fyrir hendur. Áhugaefni annars var oftast áhuga- efni beggja. Gulli og Eldjárn mæta nú öðru stóráfallinu í lífinu þótt þeir séu ungir að árum. Þeir horfa á bak kærri móður sem bar hag þeirra æv- inlega fyrir brjósti. Hugur minn er heima á þessari stundu hjá öllum þeim sem syrgja Höllu og hafa lagt henni og fjöl- skyldu hennar lið í langvarandi veik- indum. Hjá mömmu sem nú fylgir fjórða barninu sínu til grafar, Nonna sem hefur verið okkur sem faðir, systkinum mínum, mökum þeirra og börnum, hjá fjölskyldu Árna, fjar- skyldari ættingjum okkar og öllum þeim góðu vinum sem Halla átti. Ég hugsa einnig til Obbu og Bjarndísar sem eru að festa sig í sessi í fjöl- skyldunni. En þrátt fyrir að sorg okkar risti djúpt eru það Árni, Gulli og Eldjárn sem eiga um sárast að binda. Ég leita að huggunarorðum, en finn engin. Bið þess eins að þið finnið ljósið milda sem lýsir í sorg- inni. Allt lífið erum við að velja. Mitt val að setjast að í fjarlægri heimsálfu hefur orðið þess valdandi að ég hef mestmegnis verið áhorfandi þótt ég hafi ekkert þráð frekar en að geta rétt hjálparhönd, að fá að sitja við rúmið og halda í höndina á henni síð- ustu dagana, að vera með henni og ykkur öllum, að fylgja henni síðasta spölinn. Ég er þó ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að sækja hana heim tvisvar á síðasta ári. Meira get ég ekki farið fram á. Þegar ég talaði við hana síðastlið- inn aðfangadag sagði hún við mig: Það er búið að spila næstum öll ís- lensk jólalög sem til eru í útvarpinu í morgun nema uppáhaldslagið mitt Jólahjól. Ég fékk kökk í hálsinn. Fannst þetta svo táknrænt fyrir hennar stöðu. Ekki hægt að gefa henni það eina sem hún þráði, bata. Þegar Zoe dóttir mín fór heim núna í janúar sendi ég hana með geisladisk til Höllu með laginu Jólahjól á. Zoe varð þeirrar gæfu aðnjótandi að vera nálægt henni í lokakaflanum og hitta hana heima síðustu klukkustundirn- ar áður en hún fór í sína hinstu spít- alalegu. Hún var þá orðin fárveik af lugnabólgu. Ég efast um að hún hafi hlustað á uppáhaldsjólalagið sitt, enda ekki á mínu færi frekar en ann- arra að uppfylla það sem sem hún og við öll þráðum mest. Af veikum mætti hef ég reynt að vera henni einhver styrkur úr fjar- lægð, en eins og alltaf er það hún sem hefur verið mér andagift. Hún er hetjan mín. Ég hef aldrei þakkað henni né endurgoldið sem vert væri árin sem þau Árni fóstruðu mig og of seint að fást um það núna. Hluti af mér fagnar því að hún skuli vera frjáls úr viðjum síns veika og hrjáða líkama. Ég sé dyrnar opn- ast. Þar bíða ótal ættingjar endur- fundanna. Hönd í hönd ganga þær Sigga á vit nýrra ævintýra. Hún er komin þangað sem leið okkar allra liggur. Hún er komin heim. Vertu sæl systir þar til við hittumst aftur. sé þig gráföla í hvítu sjúkrarúmi fólkið í kring áhorfendur að sjónleik dauðans þitt stríð þitt bara þitt ekki hægt að taka hendi og segja: ég fylgi þér á leiðarenda við dyrnar kveðjumst við dyrnar sem eru þér einni opnaðar ég bið þess í hljóði að þú hrasir ekki um þröskuldinn að þú svífir létt og óttalaust inn í stjörnubjarta nóttina. Stefanía Gísladóttir. Við systur höfum þekkt Höllu all- ar götur frá því að hún kynnntist Árna bróður okkar. Upp í hugann kemur mynd af glæsilegri ungri konu með mikið ljóst hár. Hún var að austan. Það hefur sennilega ekki verið auðvelt fyrir Höllu að blandast inn í fjölskyldu okkar í byrjun, þessa stóru fjölskyldu þar sem samkeppn- in um athyglina var oft mikil. En Halla var fljót að aðlagast og öðlast sinn sess í hópnum – með visku val- kyrjunnar í farteskinu. Það var alltaf mikill gleðskapur í kring um Árna og Höllu. Eftirminnilegar eru allar mat- arveislurnar í gegnum árin. Á ein- hvern undraverðan hátt tókst Höllu alltaf að töfra fram dýrindis veislu- borð, oft með engum fyrirvara. Mátti þá gjarnan sjá þjóðlegar kræsingar á borðum, stundum með ítölsku anti- pasta eða spænskum tapasréttum í bland. Þessum veisluhöldum fylgdu alltaf söngur og gleði og Halla kunni alla textana og lögin, hvort sem um var að ræða rokk eða rímnakveð- skap. Um það leytið sem Halla veikt- ist vorum við systur ásamt nokkrum öðrum völdum konum að planleggja ferðalag um Evrópu með rímnapróg- ramm. Kvæðakonan góða, kölluðum við okkur. Var Halla foringi hópsins. Ætluðum við að kveða rímur á götu- hornum helstu borga Evrópu og um leið og við kynntum þannig þjóðararf okkar sáum við fram á hina bestu skemmtiferð. Við höfðum farið á námskeið í rímnakveðskap, lagst í rannsóknarvinnu og safnað saman dágóðu rímnasafni eftir íslenskar kvæðakonur um ástir og daglegt amstur. Við vorum byrjaðar að velja vísurnar og finna við þær réttu lag- boðana. Við sáum fyrir okkur svið- setninguna; við skyldum vera í þjóð- legum búningum og halda uppi spjaldi með skýringum um kvæðin og höfunda. Við höfðum engar áhyggjur af fjármögnun ferðarinnar því við vorum vissar um að við mynd- um fylla peysufatahúfurnar af skot- silfri frá þakklátum vegfarendum á hverju götuhorni. Þó svo foringinn sé fallin látum við ekki deigan síga. Í minningu Höllu verður þessi ferð farin. Þó svo við sjáum hana ekki á meðal okkar, þar sem við stöndum á Hallgerður Gísladóttir ✝ Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÁRMANNS HALLDÓRS ÁRMANNSSONAR rafvirkjameistara, Sóleyjargötu 10, Akranesi. Ingella Þórðardóttir, Margrét Ármannsdóttir, Þorvaldur Jónasson, Ármann Ármannsson, Sigurbjörg Ragnarsdóttir, Þóra Emilía Ármannsdóttir, Ásmundur Ármannsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, ARNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 7. febrúar. Örn Sævar Rósinkransson, Helga Gunnarsdóttir, Huginn Arnarson, Hugrún Lind Arnardóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.