Morgunblaðið - 09.02.2007, Síða 43

Morgunblaðið - 09.02.2007, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 43 framandi torgum og kveðum af raust, munum við finna fyrir henni í hjörtum okkar og heyra í henni í hlustum okkar og þar með tryggir hún það að allt verður rétt með farið. Okkur finnst því vel við hæfi að kveðja kæra mágkonu, þjóðhátta- fræðinginn og kvæðakonuna góðu með nokkrum vísum eftir Ólínu Andrésdóttur þar sem hún yrkir um hversdagsstörfin: Ég hef frammi í klettakór kindur sótt og rekið mjólkað kýr og mokað flór moð úr básum tekið. Tínt hef ber og títt í vind tölt um móabörðin hleypt í skyr og hellt á grind hirt og klofið svörðinn. Þó gæfist mér ei gull í mund og grátt mig léki þörfin ég hef marga yndisstund átt við hversdagsstörfin. Ingibjörg, Sigrún og Steinunn Hjartardætur. Langt er orðið síðan Hallgerður kom inn í fjölskyldu mína. Hún var fyrsta kærastan hans Árna bróður svo ég vissi. Þetta var stór og stæði- leg sveitakona austan af landi, frekar undirleit og feimin. Það kom í ljós að hún lumaði á ýmsu að austan, frá- sögnum, vísum og ljóðum, var greini- lega límheili á slíkt. Hún kom úr gró- inni sveitamenningu. Tungutakið var kjarngott og sýndi skarpan skilning og frumlega kímnigáfu. Hún sló samt ekkert í gegn strax og maður kynntist henni bara hægt og hægt. Halla og Árni voru ung og tóku að móta hvort annað. Mjög ólíkar manneskjur sem fengu þó smám saman líkt lífsviðhorf og smekk, og svipaðan húmor. Þau voru alltaf samlynd og æ því meir sem árin liðu eins og gerist í góðum hjónaböndum. Heppilegt var að bæði voru fé- lagslynd og þau eignuðust marga og afar trygga vini. Hús þeirra var allt- af opið og enginn hinna mörgu gesta virtist nokkru sinni trufla þau. Fyrir utan að reka heimilið og ala upp börnin gerðu þau æði margt saman: vinstripólitík, áhugaleiklist, söngur, rímnakveðandi. Ekki síður útivist og ferðalög um landið, gangandi og ak- andi, nutu sín þá vel, fræðandi hvort annað og aðra um sögu þjóðar og náttúru. Rugluðu m.a.s. saman fræðigreinum sínum þegar þau skrifuðu saman bók um manngerða hella. Þetta segir svo sem fátt enda mega orð sín lítils. Þau liðu svona ár- in, þrjátíu og rúmlega það, við leik og starf og súrt og sætt. Þá tók sig upp gamalt krabbamein og útlitið varð dökkt á læknamáli. En Halla æðr- aðist ekki og þau hjón ræddu ekki um dauðann. Þau tóku ákveðna stefnu á líf og héldu henni alla tíð. Með þrítugan hamarinn gapandi á aðra hlið hafa þau gengið áfram, samstiga sem aldrei fyrr, og tekið þátt í samfélaginu eins og kraftar hennar leyfðu. Þau fóru ótal ökuferð- ir, langar og stuttar, um landið. Halla sagði að sér liði vel í bílnum. Þau stunduðu stíft kvikmyndahús, leikhús, tónleika og annað það sem huganum lyftir. Það er til marks um þetta viðhorf að fram eftir janúar síðastliðnum stefndi hún að því að halda upp á áttræðisafmæli tengda- móður sinnar á Kanaríeyjum. Það tókst þá ekki. Að þessu loknu má þakka fyrir gjöfular samvistir og segja með Jónasi: Hvað er langlífi? Lífsnautnin frjóva, alefling andans og athöfn þörf... Þórarinn Hjartarson. Halla var konan sem kunni svo margt og mundi allt. Hún var vísna- og sagnasjóður. Hún kunni alla söngtexta utan að, gamla sem nýja, góða sem vonda. Öll erindin. Á gleði- stundum hætti það aldrei að vekja undrun. Alltaf mátti spyrja hana um fræðin og hún átti svörin: Hvenær fóru Íslendingar að drekka te? Hvað er döndull eiginlega? Halla menntaði sig vel, náði góð- um árangri í fræðum sínum og hlaut mikinn hljómgrunn meðal leikra sem lærðra. Hún var áhugasöm elju- manneskja og skilaði drjúgu verki. Þess njótum við öll um ókomna tíð þó sárt sé að hugsa til alls þess sem hún ætlaði sér en auðnaðist ekki að ljúka. Fráfall hennar á besta aldri er óbæt- anlegur skaði fyrir íslenska þjóð- menningu. Ljóðabókin hennar, Í ljós, kom út hjá Sölku 2004 og er óhikað ein af bestu ljóðabókum síðari ára á ís- lensku. Bók sem kom á óvart þeim sem ekki þekktu höfundinn og gaf fyrirheit um meira. Mest er þó eftirsjáin að Höllu sjálfri, heilindum hennar og hlýju, glaðværð og velvild. Fyrir því finna þeir nú sárast sem hún elskaði heit- ast og unnu henni mest: Árni mað- urinn hennar, besti vinur hennar og samherji í blíðu og stríðu, synirnir Guðlaugur og Eldjárn, móðir hennar Sigrún, systkini, frændfólk, tengda- fólk og vinir. Við sendum þeim öllum samúðar- kveðjur og hlýjar hugsanir. Unnur og Þórarinn. Í dag kveðjum við kæra sam- starfskonu, Hallgerði Gísladóttur, fagstjóra þjóðháttasafns Þjóðminja- safns Íslands. Hallgerður var mikils- metinn fræðimaður og liðsmaður Þjóðminjasafnsins, og bar hróður þess víða. Árið 1982 var Hallgerður fastráðin við Þjóðminjasafn Íslands og árið 1995 tók hún við stöðu deild- arstjóra þjóðháttadeildar og síðar fagstjóra þjóðháttasafns, sem hún gegndi til dauðadags. Hallgerður hóf fyrst störf fyrir Þjóðminjasafnið árið 1976 er hún tók þátt í söfnunarátaki þjóðfræða. Smám saman tók eitt svið öðrum fremur hug hennar fanginn, en það var matarmenning íslensku þjóðar- innar. Hún vann að viðamikilli söfn- un fróðleiks um forna matarhætti og var alla tíð í farsælu sambandi við heimildarmenn safnsins sem skiptu hundruðum. Þannig öðlaðist hún yf- irgripsmikla þekkingu á hinum mörgu sviðum þjóðháttanna um leið og hún styrkti tengsl Þjóðminja- safnsins við landsmenn. Fyrir störf sín á þessu sviði er Hallgerður þekkt langt út fyrir landsteinana. Hallgerður náði miklum árangri á sérsviði sínu og var jafnan reiðubúin að takast á við ný verkefni af fag- mennsku, dugnaði og frjórri hugsun. Hún miðlaði þekkingu sinni og ár- angri rannsókna á margvíslegan hátt. Hún flutti víða fyrirlestra, skrifaði fjölda greina og sá um út- varps- og sjónvarpsþætti um sérsvið sitt. Aðalrit Hallgerðar, Íslensk mat- arhefð, kom út árið 1999. Það var til- nefnt til íslensku bókmenntaverð- launanna og hlaut viðurkenningu Hagþenkis og Bókasafnssjóðs höf- unda. Samhliða starfi sínu við Þjóð- minjasafn Íslands var Hallgerður stundakennari á sínu sérsviði við Háskóla Íslands og átti þannig ríkan þátt í því að efla tengsl Þjóðminja- safnsins og Háskólans. Auk árangurs hennar á sviði rann- sókna, safnastarfs og ritstarfa var framlag hennar við gerð hvers kyns sýninga á vegum Þjóðminjasafnsins ómetanlegt. Hæst ber þar þátt henn- ar við undirbúning opnunar Þjóð- minjasafns Íslands á ný árið 2004. Þar gegndi hún afar ábyrgðarmiklu hlutverki við mótun nýrrar grunn- sýningar safnsins. Hún ritstýrði margmiðlunarefni sýningarinnar og var einn aðalhöfundur grunnsýning- artextans. Þáttur hennar í því krefj- andi verkefni verður seint fullþakk- aður. Jafnframt ritaði Hallgerður vandaða grein í grunnrit Þjóðminja- safnsins, Hlutavelta tímans. Menn- ingararfur á Þjóðminjasafni, sem kom út við opnun grunnsýningarinn- ar. Auk þess ritstýrði og ritaði hún í bókina Í eina sæng. Íslenskir brúð- kaupssiðir, sem út kom árið 2004 með sérsýningu safnsins í Bogasal sama ár. Hallgerður var mikilsmetinn safn- amaður og fræðimaður. Auk þess sem áður er nefnt kom hún að rann- sóknum á manngerðum hellum, tók þátt í leiklistarstarfi, var ljóðskáld og lagði sitt af mörkum í varðveislu á kveðskap og rímum. Þannig kom Hallgerður víða við á sínum ferli, sem brautryðjandi og fagmaður með góða yfirsýn og þekkingu. Fyrir hönd Þjóðminjasafns Ís- lands þakka ég Hallgerði Gísladótt- ur fyrir hennar merka og framúr- skarandi framlag til þjóðminjavörslu og þjóðháttafræða á Íslandi. Ævi- starf hennar er umfangsmikið og sýnilegt. Einnig vil ég þakka fyrir gefandi samstarf og vináttu. Fyrir hönd samstarfsmanna votta ég eig- inmanni hennar, Árna Hjartarsyni, og sonum þeirra, Eldjárni og Guð- laugi Jóni, mína dýpstu samúð. Heiðruð sé minning Hallgerðar Gísladóttur. Fyrir hönd Þjóðminjasafns Ís- lands, Margrét Hallgrímsdóttir. Við andlát Hallgerðar Gísladóttur er þungur harmur kveðinn að fjöl- skyldu hennar og vinum. Hún var mannkostum búin, glæsileg kona að allri gerð, sem stóð djúpum rótum í íslensku umhverfi og menningu. Ung að árum lagði hún rækt við ís- lenskar fornbókmenntir og las af kappi um þær Brynhildi Buðladóttur og Guðrúnu Ósvífursdóttur, for- mæður sínar, og gott þótti henni á þeirri tíð að ræða um Egils sögu og Njáls sögu. Var þá viðbúið að hún legði stund á íslensk fræði. Í fyllingu tímans skipaði Hallgerð- ur sér í fremstu röð íslenskra þjóð- háttafræðinga, gerðist mikilvirkur rannsakandi og kynnti niðurstöður sínar í vönduðum bókum og fjölda ritgerða sem birtust í blöðum og tímaritum, bæði heima og erlendis. Þættir hennar í ljósvakamiðlum um þjóðháttafræði vöktu athygli og nutu vinsælda. Höfuðeinkenni á vísinda- ritum Hallgerðar eru meðal annars þau að í stað þess að vera tyrfin eru þau bráðskemmtileg aflestrar. Þar fellir höfundur sinn eigin húmor jafnvel í fyrirsagnir ritgerða. Árið 1999 var bók hennar Íslensk matar- hefð, sem er vísindarit, útnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Segir það sína sögu. Freistandi væri að ætla að hér gæti áhrifa frá forn- íslenskum bókmenntum, þar sem jafnræði vísinda og frásagnarlistar var til prýði. Hitt er þó sennilegra að samræmi þessara þátta í ritverkum Hallgerðar beri öðru fremur með sér eiginleika og upplag sjálfs höfund- arins. Hallgerður var ljóðskáld, eins og bók hennar Í ljós frá árinu 2004 er til vitnis um. Ekki má heldur gleyma ljóðum, rímuðum eða órímuðum eftir atvikum, sem hún færði ekki til bók- ar en orti þó inn í hug samferðafólks síns sem varðveitir þau í minning- unni. Við Margrét minnumst Hallgerð- ar með þakklæti. Hér í Kanada dvaldist hún um skeið sjálfri sér og íslenskri þjóð til sóma. Við sendum fjölskyldu hennar samúðarkveðjur. Gott verður að minnast hennar. Haraldur Bessason. Við andlát Hallgerðar vinkonu minnar verða öll orð fátækleg. Við kynntumst sumarið 1971 í sumarvinnu í Hótel Reynihlíð við Mývatn, þar sem við vorum herberg- issystur. Mér leist strax vel á Höllu, eins og hún var alltaf kölluð. Hún var stór og myndarleg stúlka, hafði fal- legt ljóst hár og hreinan og einarðan svip. Við vorum jafnaldra, 19 ára gamlar, og áttum margt sameigin- legt. Okkur dreymdi um betri heim og vorum innilega hneykslaðar á auðhyggju og óréttlæti í samfélag- inu. Leiðir okkar lágu áfram saman. Halla kynntist raunar manninum sínum, honum Árna, í gegnum mig, og tel ég mér það hiklaust til tekna og ætla að tíunda við Gullna hliðið ef ég næ þangað. Á seinni árum vorum við vinkonurnar svo gæfusamar að deila ýmsum áhugamálum. Við stunduðum útivist, oft tvær saman, eins mikið og við gátum og höfðum jafnan miklar áætlanir í gangi á því sviði. Halla var sagnfræðingur að mennt, eins og aðrir munu vafalaust gera betri grein fyrir. Starf hennar varð til að glæða áhuga minn á sagn- fræði, einkum sögu íslenskrar þjóð- ar. Eitt sumar vann ég hjá henni við spurningasöfnun á vegum þjóðhátta- deildar. Löngu síðar skemmtum við okkur vel saman þegar hún aðstoð- aði mig við öflun heimilda í grein sem ég skrifaði um sögulegt efni af held- ur óhugnanlegum toga: morðmál, af- tökur og beinauppgröft í Húnavatns- sýslum norður. Við stallsystur fórum skemmtilega „rannsóknarferð“ þangað. Við heimsóttum fólk á Vatnsnesi og í Sveinsstaðahreppi, stóðum í kirkjugarði í haustslagveðri og á Þrístöpum í draugalegu rökkri. Margt fleira höfðum við áætlanir um að bralla saman. Bók um útivist var þar efst á blaði, það veitti okkur kær- komna afsökun til að stinga af frá hversdagsskyldum út í náttúruna: nú hét slíkt athæfi vinnuferð. Sömu- leiðis hafði starfssvið mitt í öldrunar- hjúkrun þróast á þann veg að við sáum fram á ýmis samstarfstækifæri tengt því. En veikindin komu, snöggt og óvægin. Halla barðist hetjulega við krabbameinið. Markmið hennar var auðvitað að ná bata, en ekki síður að lifa með þeirri reisn sem sjúkdóms- ástandið frekast leyfði. Og þeim ár- angri náði hún, oft svo að allir við- staddir undruðust. Árni stóð þétt við hlið konu sinnar í þessari baráttu og virtist hafa fleiri stundir í sólarhringnum en aðrir menn. Í miðjum veikindunum gaf hann út vandaðan hljómdisk með lögum og ljóðum eftir sjálfan sig. Það var glæsileg yfirlýsing and- spænis veikindum og yfirvofandi dauða. Ógleymanlegir verða útgáfu- tónleikarnir hans sem Halla sat, þó þróttur og heilsa leyfði það varla. Að Höllu stendur fjölmenn fjöl- skylda og tengdafjölskylda og auk þess stór vinahópur. Allir syrgja nú vin í stað. Nú eru aðeins minning- arnar eftir og söknuðurinn er sár. Innilega samúð votta ég Árna vini mínum og sonum þeirra Höllu, Gulla og Eldjárni ásamt unnustum þeirra. Sömuleiðis Sigrúnu móður hennar sem nú sér eftir fjórða barni sínu, systkinum hennar, fjölskyldu allri og tengdafjölskyldu. Sigrún Huld Þorgrímsdóttir. Hallgerður Gísladóttir var einn af mörgum traustum starfsmönnum, sem Þjóðminjasafnið hefur haft þá gæfu að hljóta. Hún starfaði þar um langt árabil, nánast alla starfsævi sína, fyrst sem lausráðinn starfs- maður við þjóðháttasöfnun í þjóð- háttadeild safnsins, síðan varð hún fastur starfsmaður deildarinnar og loks veitti hún henni forstöðu frá árinu 1995. Hallgerður var búin þeim kostum, sem góður safnmaður og starfsmað- ur þarf að hafa. Hún var sérfróð um mörg svið íslenzkrar þjóðmenning- ar, hafði hlotið háskólamenntun bæði vestan hafs og hér heima, hún var samvizkusöm og starfsöm, stofn- unarholl og átti góðmannleg sam- skipti, sem er mikilvægur eiginleiki í því starfi sem hún gegndi, þar sem þarf að eiga samskipti við fjölda manns víðs vegar. Sérþekking Hallgerðar var matar- gerð Íslendinga fyrr á tíðum. Þar þekkti hún betur til en aðrir. Hún var alin upp í sveit og hafði þar kynnzt að marki gamla sveitalífinu og lífskjörum fólks fyrrum, þótt meginstoðir þjóðfélagsins væru að vísu orðnar aðrar þá en áður. Enn eimdi eftir af gömlum starfsháttum og hugsunarhætti fólks, ekki sízt hvað lífsbjörgina snerti. Hún var víð- lesin í þjóðháttafræðum og hafði rannsakað og safnað margvíslegum heimildum um þjóðlíf og þjóðhætti hvarvetna, einkum þó á sérsviði sínu, og því varð hún okkar helsti sérfræð- ingur þar. Þessi sérhæfing Hallgerð- ar birtist síðan í rannsóknum henn- ar. Hún skrifaði bókina Íslensk matarhefð, er kom út árið 1999, um matargerð Íslendinga fyrrum, geymslu matvæla og matarsiði. Þá sá hún um gerð sýningar um eldhús- ið og eldhússtörf, Hvað er á seyði, í Þjóðminjasafninu árið 1987, og hún var annar af tveimur höfundum og ritstjórum bókarinnar Íslenskir brúðkaupssiðir, sem út kom árið 2004. Þekking hennar og áhugi náði langt út fyrir veggi búrs og eldhúss. Hún samdi ásamt öðrum bókina Manngerðir hellar á Íslandi, og fór margar rannsóknar- og könnunar- ferðir í því skyni um landið. Sjálfur reyndi ég það margsinnis, að þekk- ing hennar og áhugasvið var víð- feðmt og stundum leitaði ég í smiðju til hennar. Hallgerður var vinsæl og vel látin í starfi. Hún vann traust og vináttu samstarfsfólks og annarra þeirra, sem hún átti samskipti við. Hún var glaðlynd, mannblendin og gerði að gamni sínu með smákímni. Allir verða að hlíta örlögum sín- um. Sárast er að verða að sjá á bak fólki í blóma lífsins, sem hefði átt svo mörgu enn óskilað af æviverki. Við gamlir samstarfsmenn Hallgerðar innan þjóðminjavörzlunnar geymum góðar minningar um hana og þökk- um henni samfylgdina og það sem hún gaf þjóðinni í verkum sínum. Þór Magnússon. Við hjónin viljum minnast í örfá- um orðum Hallgerðar Gísladóttur og þakka fyrir þau ríflega 30 ár sem við þekktum hana. Halla var stór persónuleiki og lit- rík manneskja, bæði hið innra og ytra. Hún var í senn vitur og hlý og alltaf áhugasöm og gefandi í sam- ræðum og athöfnum. Tilgerð og yf- irborðsmennsku var ekki að finna í hennar persónugerð. Hún hafði ást á ljóðum og söng og kunni ógrynni af kveðskap, allt frá dróttkvæðum til dægurlagatexta. Hún var í senn skáld og fræðimaður, rammíslensk og víðlesin. Með Höllu er fallin valkyrja. Hún háði langa baráttu við mein sitt af einstöku æðruleysi og veitti okkur um leið von og trú á að hægt væri að sigrast á þeim vágesti. Hennar verð- ur lengi saknað meðal þeirra sem nutu þeirrar gæfu að þekkja hana. Við vottum öllum hennar nánustu okkar dýpstu samúð í sorginni. Íris og Hjörleifur. Við Hallgerður störfuðum hlið við hlið í næstum aldarfjórðung. Fyrstu tengsl hennar við þjóðháttadeildina voru þegar hún tók þátt í heimilda- söfnun stúdenta sumarið 1976. Næstu ár vann hún í hlutastarfi við úrvinnslu á öllum þeim afrakstri og ýmis önnur verkefni þar til hún var fastráðin starfsmaður og tók að lok- um við sem deildarstjóri. Það lá við að samvinna okkar þróaðist í eins- konar systkinasamband. Hallgerður komst brátt í mjög ná- ið og lifandi samband við heimildar- menn deildarinnar sem skiptu hundruðum og reyndi að heimsækja þá eftir því sem tíminn leyfði og afla nýrra. Hún gat talað við gamlar kon- ur af annarskonar innsæi en við karl- arnir, og á hinn bóginn lifnuðu gaml- ir skröggar allir við að fá þessa föngulegu konu í heimsókn og þó ekki væri nema eiga við hana símtal eða bréfaskipti. Hún öðlaðist mjög yfirgripsmikla þekkingu á hinum mörgu sviðum þjóðháttanna. Hún sá öðrum fremur um að skipuleggja starf stúdenta á dvalarheimilum aldraðra þau fimm ár sem heilbrigð- isráðuneytið veitti styrk til að spyrja vistmenn um daglegt líf í æsku þeirra. Smám saman tók þó eitt svið öðru fremur hug hennar fanginn, en það var matarmenning íslensku þjóðar- innar. Þessum sjálfsagðasta þætti daglegs lífs hafði hingað til lítt verið sinnt skipulega. Það var nokkur lífs- reynsla að bragða á þeim réttum sem hún prófaði úr hinni gömlu mat- arhefð. Hún sat árum saman í Mat- ráði Kvenfélagasambandsins, Klúbbs matreiðslumanna og Ríkis- útvarpsins sem vann að söfnun gam- alla mataruppskrifta og öðrum fróð- leik um matarhætti. Hún sá um þætti í hljóðvarpi og sjónvarpi í tengslum við þessa söfnun upplýs- inga. Í því skyni heimsótti hún öðru hverju ákveðin svæði út um landið. Einnig sótti hún margar alþjóðlegar ráðstefnur á þessu sviði. Þeim sem kynntust þessari gal- vösku konu á ráðstefnum, fyrirlestr- um eða í fjölmiðlum, kemur kannski á óvart, að hún var lengi vel treg til að taka slíkt að sér þrátt fyrir nokk- urn þrýsting. Því olli fræðileg var- kárni hennar og efi um að hún væri SJÁ SÍÐU 44

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.