Morgunblaðið - 09.02.2007, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 09.02.2007, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 45 Elsku amma Veiga, í dag kveðjum við þig með söknuði en vitum samt svo vel hve þú varst farin að þrá hvíldina. Að eiga slíka ömmu sem þig voru forréttindi, svo hlý, glaðleg og góð. Alltaf var svo gott að leita til þín og allt- af varstu til staðar fyrir okkur. Þegar við Gústi bjuggum okkar fyrsta heimili hjá þér í litlu íbúðinni í kjallaranum. Það var svo notalegt að hafa þig hjá okkur, þú varst eins konar verndari yf- ir okkur og marrið í gólffjölunum vakti ákveðna öryggiskennd hjá unga parinu. Litlu skrefin upp stigann sem hann Rúnar Freyr tók til að kíkja á langömmu og alltaf rataði hann í eld- hússkúffuna í kandísinn og svo þegar þú sast með hann á læri þér og raulaðir fyrir hann. Þú kunnir svo mikið af vís- um og hafðir frá svo mörgu að segja. Síðan tókum við við Hvamminum þeg- ar þú fluttir inn á Höfða og áttum þar yndisleg ár. Allar okkar ómetanlegu stundir saman lifa með okkur í minn- ingunni. Jólin okkar saman í Hvamm- inum, spila „Manna“ í rafmagns- leysinu, sögustundirnar, svo fátt eitt sé til talið. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku amma og langamma, við þökkum þér fyrir allar stundirnar sem við áttum með þér, megi Guð varðveita þig og blessa minningu þína. Þín Guðríður, Ágúst, Rúnar Freyr og Ingimar Elfar. Okkur systurnar langar að minnast ömmu Veigu í nokkrum orðum. Þegar ég, Birna, var lítil var ég svo heppin að eiga ömmu sem bjó hinum megin við götuna. Ég skottaðist á milli og dvaldi mikið hjá ömmu í Hvammi og alla mína grunnskólagöngu var ég þar í pössun ásamt Bergþóru frænku. Við frænkurnar brölluðum ýmislegt og eft- irminnileg eru hádegishléin sem fóru ansi oft í að þræta um það hvor okkar fengi að sitja á kollinum í horninu og hvor fengi fleiri litlar kartöflur eða smælkið eins og amma kallaði það. Hvoru tveggja þótti mjög eftirsóknar- vert og amma þurfti að semja við okk- ur frænkur til að halda friðinn. Það var sko alltaf nóg að borða hjá ömmu og maður átti helst ekki að leifa, mat- vendni var heldur ekki mikils metin og ég lét mig hafa það að borða bæði svið og ábresti. Drekkutíminn var enn skemmtilegri en matartíminn, hann var uppá gamla mátann, fyrst brauð- sneið og svo sætindi sem voru bökuð eftir minni, engar uppskriftir fáanleg- ar. Sérstaklega eru pönnsurnar eft- irminnilegar, með svo miklum sykri að það brakaði undir tönn. Maður lærði margt af ömmu sem var með eindæmum jákvæð, yfirveg- uð og lítillát með skemmtilegan húm- or. Hún talaði alltaf sérstaklega vel um fólk og elskaði dýr. Margar stund- ir sat maður á dívaninum í borðstof- unni og hlustaði á RÚV og spilaði Manna, málaði dúka, „smyrnaði“ púða auk þess sem hún gerði heið- arlega tilraun til að kenna okkur að prjóna. Hún fitjaði upp, prjónaði stroff og mynstur og felldi af, úr urðu þessir fínu vettlingar sem maður stoltur taldi sig hafa prjónað sjálfur. Ömmuvettlingar og háleistar voru ómissandi á veturna og við systurnar höfum notið góðs af þeim í gegnum tíðina. Seinustu árin bjó amma á Dvalar- heimilinu Höfða. Henni leið vel þar, leiddist aldrei og fannst alltaf vera dekrað við sig. Við nutum þess að heimsækja hana, að vera hjá henni og alltaf var hún glöð að hitta mann. Sér- staklega fannst okkur systrunum gaman að fara bara tvær í heimsókn, þá var engin ættfræði rædd, bara spil- að og spjallað um strákamál og fleira skemmtilegt. Amma fylgdist alltaf vel með öllu og hafði gott minni þar til ný- lega. Það var gaman að hlusta á hana segja sögur frá því í gamla daga og maður getur varla ímyndað sér að nokkur kynslóð muni upplifa jafn- miklar breytingar og hennar kynslóð gerði. Við systurnar erum svo heppn- ar að hafa unnið í sumarvinnu á Höfða meðan amma bjó þar og á þeim tíma hitti maður hana nánast daglega. Eitt sinn fór brunakerfi heimilisins í gang og ég hljóp í snarhasti uppá herbergi ömmu þaðan sem brunaboðið kom. Þá sat amma sallaróleg í eldhúskróknum að baka pönnsur eins og hún gerði iðulega fyrstu árin á Höfða. Aðrar minningar sem eru ómetan- legar eru öll jólin sem við höfum feng- ið að hafa ömmu hjá okkur og laufa- brauðsbakstur í undirbúningi jólanna. Nú er komið að kveðjustund. Við erum þakklátar fyrir að hafa átt svona góða ömmu og fengið að hafa hana svona lengi hjá okkur. Við eigum eftir að sakna hennar sárlega, en ótal góð- ar minningar lifa. Birna og Hanna María. Elsku amma mín, mig langar að kveðja þig með fáeinum orðum. Ég minnist þín, amma, þegar ég hugsa til baka. Ég kom oft til þín á Suðurgötuna þegar ég var u.þ.b. 8 ára og gisti hjá þér á dívaninum í stofunni eins og þú kallaðir hann. Svo sauðstu fisk og kartöflur og stappaðir saman á diska handa mér, þú lést mig alltaf hafa bangsadisk og sagðir við mig að ég yrði að klára allt af disknum, annars myndu bangsarnir drukkna, ég trúði þér alltaf og kláraði allt af disknum mínum. Ég kom svo oft við með honum pabba mínum, þegar við komum úr Akraborginni og fengum kaffi hjá þér og ég mjólk. Þú sagðir mér að drekka mikla mjólk svo ég yrði stór og sterk því mjólkin væri svo holl. Ég saknaði þessa tíma mjög. Árið 1993 fluttist þú upp á Höfða, þá var svolítið öðruvísi að heimsækja þig en alltaf gott að koma til þín. Þá sastu iðulega í brúna stóln- um þínum þegar maður opnaði dyrnar hjá þér, með prjóna í hönd. Svo fór þér að hraka og varst flutt í herbergi með annarri konu, varst þá komin í hjóla- stól og ýttir þér áfram í honum. Þú vildir alltaf fylgja manni fram þegar maður var að fara. Ég heimsótti þig á milli jóla og ný- árs, þér hrakaði hratt eftir það. Mánu- daginn 29. janúar svafst þú bara á meðan ég var hjá þér, þekktir mig ekki. Ég stoppaði svolitla stund hjá þér en þegar ég ætlaði að kveðja þig opn- aðir þú augun og kysstir mig bless og sagðir eitthvað við mig sem ég ekki skildi. Daginn eftir hringdi mamma í mig um miðjan dag og sagði að það væri ekki langt eftir hjá þér. Ég fór svo um kvöldið til þín og var hjá þér, elsku amma mín, þegar þú kvaddir þennan heim. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái að spilla. Það ætíð sé mín iðja að elska þig og biðja, þín lífsins orð að læra og lofgjörð þér að færa. (Páll Jónsson.) Ég kveð þig, amma mín, hvíldu í friði, Rannveig Heiðarsdóttir. Þá er komið að kveðjustund amma Veiga, það eru margar dásamlegar minningar sem ég á frá gömlu góðu dögunum í Hvammi hjá þér og afa. Ég var svo heppin að þú varst heimavinnandi á meðan mamma og pabbi voru að vinna þannig að ég fór bara til þín eftir skóla og var þar fram eftir degi. Ég var ekki ein um að koma í Hvamminn, því Birna frænka jafn- aldra mín var þar einnig eftir skóladag og brölluðum við nú ansi mikið á þess- um tíma. Það er ótrúlegt, nú þegar ég hugsa til baka, hvað þú gast þolað öskrin og lætin í okkur stelpunum, svo ekki sé nú minnst á allt vesenið sem gat fylgt okkur – en svo gátum við nú verið hjálplegar líka. Það var ýmislegt sem þú og afi kennduð okkur í Hvammi, m.a. kenndi afi mér að reima skó, þú kenndir mér að spila „Manna“ og fleiri spil. Þú varst mikil handa- vinnukona, prjónaðir, málaðir á ker- amik og dúka og það eru ófáar stund- irnar sem ég átti með þér við borðstofuborðið annað hvort að mála með þér eða horfa á þig við iðju þína. Það er ekki annað hægt en að minnast á allan góða matinn sem við fengum hjá þér, m.a. slátur með rúsínum, steiktan fisk með lauk – þetta var eini fiskurinn sem ég gat borðað, því ég er mjög matvönd á fisk eins og þú veist. Það má ekki gleyma góðu pönnukök- unum sem þú gerðir, já þér var sko margt til lista lagt. Margar af mínum bestu bernskuminningum gerðust í Hvammi. Eftir að þú fluttir inn á Höfða þá hélst þú áfram með handa- vinnuna og þeir eru ófáir púðarnir sem ég á eftir þig og ekki má gleyma „ömmu“-teppinu sem þú heklaðir og er mikið notað á mínu heimili. Elsku amma, ég kveð þig í dag og er stolt af því að eiga þig sem ömmu – nú sem engil á himni, ég veit að þú vakir yfir okkur og þú verður alltaf í hjarta mínu. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Takk fyrir allt, elsku amma mín, þín Bergþóra. V i n n i n g a s k r á 41. útdráttur 8. febrúar 2007 Hummer H3 + 5.000.000 kr. (tvöfaldur) 3 8 3 2 1 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 3 3 9 3 1 4 3 4 5 3 5 0 1 2 5 7 1 3 9 5 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 5963 13877 36360 58988 63025 65406 7242 29461 56140 62472 64777 78185 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 9 4 6 9 1 0 0 1 9 5 9 6 3 7 5 6 0 4 3 1 0 1 5 3 1 0 8 6 1 7 3 7 7 1 3 5 9 1 7 7 2 9 7 5 5 2 2 1 3 6 3 7 5 7 9 4 4 6 7 1 5 3 1 9 3 6 1 9 1 2 7 2 7 2 7 3 0 9 5 1 0 3 3 0 2 2 3 9 8 3 8 4 6 1 4 4 9 9 3 5 3 6 5 7 6 2 0 6 5 7 3 2 9 7 3 1 8 7 1 0 8 0 9 2 4 2 9 8 3 8 4 6 7 4 6 6 1 8 5 5 1 8 8 6 2 2 5 2 7 3 9 8 8 3 7 7 2 1 1 4 8 8 2 4 6 7 4 3 8 5 5 2 4 6 9 8 5 5 5 4 0 9 6 2 5 0 2 7 5 2 8 1 4 2 8 9 1 1 8 4 8 2 6 3 1 9 3 9 0 1 4 4 7 6 3 1 5 6 1 1 2 6 2 5 1 8 7 7 2 4 9 4 4 4 9 1 2 6 6 6 2 7 8 7 2 3 9 1 4 0 4 7 9 6 6 5 6 1 2 7 6 2 6 8 3 7 7 5 4 6 6 4 6 8 1 3 4 2 5 2 9 4 3 6 4 0 5 1 8 4 9 6 6 4 5 7 0 7 2 6 2 8 3 0 7 8 5 6 3 6 6 1 2 1 3 4 5 8 2 9 7 2 5 4 0 7 1 0 4 9 7 9 3 5 8 0 2 4 6 5 6 9 4 7 9 9 5 2 6 7 1 4 1 4 8 2 7 3 0 5 6 3 4 1 6 3 5 5 0 2 6 1 5 9 2 2 3 6 7 2 0 9 7 4 3 4 1 5 2 8 3 3 1 6 6 4 4 1 8 9 4 5 1 5 8 3 5 9 4 6 6 6 7 6 3 1 8 2 4 3 1 5 7 9 2 3 2 0 5 8 4 2 2 1 1 5 2 1 3 7 6 0 4 5 8 6 9 3 5 6 8 4 8 7 1 9 0 6 4 3 5 8 1 2 4 2 8 1 2 5 2 6 6 6 6 0 6 1 3 6 9 6 6 0 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 8 2 6 9 4 7 3 2 0 5 0 1 2 9 8 2 9 4 0 7 6 4 5 2 4 6 3 6 1 6 3 2 7 3 0 3 5 1 2 0 5 9 8 8 9 2 1 3 8 9 3 0 1 0 2 4 0 9 7 9 5 2 5 1 7 6 1 8 2 5 7 3 2 5 3 1 5 0 3 9 9 1 2 2 1 5 0 2 3 0 6 8 5 4 1 0 5 9 5 2 5 6 6 6 1 9 7 5 7 3 7 1 6 1 5 8 0 1 0 4 1 6 2 1 5 1 7 3 1 4 4 5 4 1 4 4 1 5 2 5 9 4 6 2 1 0 8 7 4 3 5 6 1 6 8 2 1 0 4 1 8 2 1 9 7 7 3 1 5 8 4 4 1 9 7 0 5 3 3 0 3 6 2 3 4 2 7 4 3 7 4 1 7 8 7 1 0 9 5 5 2 2 1 3 7 3 2 0 4 5 4 2 5 3 3 5 3 7 8 0 6 2 4 9 9 7 4 5 0 6 1 8 9 5 1 1 8 0 8 2 2 3 0 8 3 2 4 2 8 4 2 6 3 7 5 4 4 9 3 6 3 4 2 3 7 5 1 5 2 1 9 2 9 1 1 8 2 0 2 2 5 8 9 3 2 5 0 8 4 2 9 4 7 5 4 6 4 6 6 4 6 4 7 7 5 3 7 7 2 2 4 5 1 1 9 0 9 2 2 7 9 6 3 2 5 6 1 4 3 1 9 6 5 4 9 3 9 6 5 2 1 6 7 5 5 9 8 2 2 5 0 1 2 0 7 4 2 2 9 3 5 3 2 7 5 5 4 3 4 9 0 5 4 9 9 5 6 5 3 9 2 7 6 4 6 1 2 7 6 1 1 2 4 2 3 2 3 3 7 3 3 3 8 3 0 4 3 9 5 5 5 5 2 4 6 6 6 0 8 7 7 6 6 0 9 3 0 3 2 1 2 8 1 5 2 3 3 8 8 3 4 5 9 9 4 4 1 0 7 5 5 2 5 4 6 6 6 8 9 7 6 6 6 3 3 4 2 3 1 3 2 1 8 2 3 4 7 6 3 5 4 4 7 4 4 6 7 8 5 6 7 5 5 6 7 1 9 9 7 6 9 9 5 3 9 8 3 1 3 5 3 3 2 3 8 7 2 3 5 7 1 8 4 4 7 9 1 5 6 9 5 4 6 7 7 0 9 7 7 7 1 0 4 0 7 9 1 3 8 9 2 2 4 4 7 0 3 5 7 2 1 4 5 5 3 4 5 7 7 5 0 6 7 9 1 5 7 8 2 7 2 4 4 1 8 1 4 0 9 5 2 4 9 5 3 3 5 9 2 4 4 5 8 1 2 5 7 8 5 5 6 8 1 0 3 7 8 3 5 0 4 6 6 8 1 4 1 9 6 2 5 1 7 1 3 6 5 7 0 4 6 1 7 3 5 8 1 1 9 6 8 2 0 9 7 8 4 8 6 4 7 0 2 1 4 2 4 5 2 6 1 5 5 3 6 5 9 8 4 6 9 6 8 5 8 2 2 8 6 8 5 3 1 7 8 6 9 7 4 8 0 8 1 5 3 9 5 2 6 3 2 9 3 7 0 0 2 4 7 3 6 4 5 8 9 4 2 6 8 9 4 7 7 8 7 4 1 4 9 8 6 1 5 6 8 1 2 6 4 3 5 3 7 0 5 7 4 7 7 8 9 5 9 2 9 6 6 9 3 1 4 7 8 7 8 5 5 1 0 1 1 5 8 1 6 2 6 7 7 3 3 7 0 8 2 4 7 8 6 6 5 9 3 0 9 6 9 4 1 8 7 8 9 8 7 5 8 8 0 1 6 6 7 2 2 7 5 8 2 3 7 1 5 0 4 7 9 1 4 5 9 3 7 5 6 9 4 5 8 7 9 6 2 8 6 0 4 3 1 7 0 3 0 2 7 6 0 5 3 7 2 9 1 4 8 1 9 0 5 9 5 5 1 6 9 5 4 4 7 9 6 7 2 6 2 9 1 1 7 2 4 3 2 7 8 0 0 3 7 4 2 3 4 8 4 4 5 5 9 6 6 3 7 0 3 7 3 7 9 7 8 2 6 3 8 9 1 7 3 5 2 2 7 9 8 1 3 8 6 0 5 4 8 9 7 7 6 0 3 6 0 7 0 4 3 0 7 9 9 4 0 7 1 6 3 1 7 8 7 5 2 8 2 3 2 3 8 8 9 9 4 9 5 8 1 6 0 7 0 9 7 0 4 6 4 7 9 9 6 4 7 3 3 0 1 7 9 5 7 2 8 4 7 3 3 8 9 1 7 5 0 0 6 6 6 0 8 2 6 7 0 7 3 2 7 4 2 1 1 8 0 4 6 2 8 8 5 9 3 9 2 4 7 5 0 9 1 4 6 1 2 9 8 7 0 8 1 1 8 5 9 3 1 8 7 3 8 2 8 8 9 9 3 9 2 8 8 5 0 9 1 7 6 1 3 1 5 7 1 1 5 3 8 6 8 5 1 9 2 1 7 2 8 9 7 2 3 9 4 7 6 5 1 8 7 1 6 1 3 1 6 7 2 4 2 4 9 0 1 5 1 9 7 4 6 2 9 2 5 6 3 9 4 7 8 5 2 0 1 8 6 1 3 2 2 7 2 8 7 5 9 3 7 3 1 9 8 1 3 2 9 5 9 7 4 0 3 1 4 5 2 0 6 9 6 1 6 3 1 7 2 9 2 3 Næstu útdrættir fara fram 15. feb, 22. febrúar & 1. mars 2007 Heimasíða á Interneti: www.das.is „Konan sem kyndir ofninn“ eru orð sem koma upp í huga mér er ég hugsa til þessarar gömlu vin- konu minnar. Það var ekki einungis að hún kynti ofninn, heldur hélt hún honum heitum alla tíð. Ég kynntist Laugu fyrst sumarið 1970. Þá unn- um við saman á Hótel Loftleiðum á Keflavíkurflugvelli. Ekki leist henni á blikuna þegar þessi skólastelpa fór að fara á böll með syni hennar en það átti eftir að breytast því hún var ætíð mín besta vinkona. Lauga var sam- ferðamaður minn í rúm þrjátíu ár og þeirri samfylgd er ég afar þakklát og hefði ekki viljað vera án. Ég sit nú og fletti myndaalbúmum og þá rifjast margt skemmtilegt upp. Ferðalög, afmæli, skírnir að ógleymdum jóla- boðunum. Ég hlakkaði alltaf til þeirra. Á hverju ári voru komnir nýir einstaklingar í hópinn, annaðhvort ný tengdadóttir og eða litlir hvítvoð- ungar. Þetta voru annasamir tímar, en ætíð ríkti kátína á heimilinu. Sig- urbjörn og Viggó flugust á í stofunni Sigurlaug Gísladóttir ✝ SigurlaugGísladóttir fæddist 25. sept- ember 1920. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Garðvangi í Garði sunnudaginn 14. janúar síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Keflavík- urkirkju 19. janúar. svo best var að vera ekki fyrir. Lauga mín horfði á og sagði ,,já, drengirnir mínir eru bestir“. Þrisvar sinn- um fórum við saman til Spánar. Þær ferðir geyma aðeins ljúfar minningar. Alltaf var Lauga með þeim fyrstu í sólbað og naut þess að vera í sólinni þó að allir aðrir væru búnir að gefast upp. Hún var sólskinsbarn. Alla tíð trúði hún því að hún myndi hitta eiginmann sinn aftur á himnum. Nú hefur það ræst. Elsku Lauga mín, þakka þér allt og megi góður guð geyma þig og ástvini þína. (Frumort) Nú sólin bræðir klaka og sefar brostið hjarta, hann tók hana í faðminn og flutti heim með sér. Nú mun hún ætíð vaka með honum daga bjarta, þau aldrei munu skilja, sá draumur rætist hér. Bryndís Ósk Haraldsdóttir. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Elsku Lauga mín, hjartans þakkir fyrir allt og allt. Blessuð sé minning þín. Ísleifur, Ingigerður og Hafsteinn Björn. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.