Morgunblaðið - 09.02.2007, Síða 48

Morgunblaðið - 09.02.2007, Síða 48
|föstudagur|9. 2. 2007| mbl.is staðurstund Arnar Eggert Thoroddsen fjallar um hinn magnaða ástr- alska tónlistarmann og Íslands- vin, Nick Cave. » 49 tónlist Will Smith og Jaden Smith leika feðga í The Pursuit of Happy- ness, en þeir eru einnig feðgar í raun og veru. » 52 kvikmyndir Dr. Gunni er höfundur söng- leiksins Abbababb sem verður frumsýndur í Hafnarfirði á sunnudaginn. » 57 leikhús Keira Knightley ætlar að taka sér frí frá leiklistinni í svolítinn tíma, þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gömul. » 50 fólk Magnús Scheving hefur verið tilnefndur til Emmy-verðlauna fyrir leikstjórn sína við Lata- bæjarþættina. » 50 sjónvarp S triginn á veggjunum var orðinn 35 ára gamall og þreyttur,“ segir Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, um ástæður þess að Kjarvalsstaðir hafa verið lokaðir sl. tvo mánuði. „Það var því orðið tímabært að endurnýja veggi salanna – sem er mikið mál en skiptir öllu fyrir sýningar, sér- staklega á málverkum. Það er nú einu sinni þannig að fólk verður að geta einbeitt sér að verkunum án þess að augun dragist stöðugt að einhverjum blettum eða skemmdum á veggj- unum.“ Hafþór upplýsir að tækifærið hafi verið notað til að staðsetja kaffiteríu safnsins í miðrými hússins, þar sem henni var ætlað að vera samkvæmt upprunalegum teikningum. „Þar fengum við íslenska hönnun inn, en kaffiterían er nú prýdd nýjum hús- gögnum sem annars vegar Prologus og hins vegar Guðrún Lilja Gunn- laugsdóttir hafa hannað sérstaklega inn í húsið með efni þess og arkitekt- úr í huga.“ Fossar fjögurra listamanna Þrjár ólíkar sýningar hefjast við opnunina, þar á meðal er sýning und- ir heitinu Foss þar sem Hafþór er sýningarstjóri. Þar fást fjórir lista- menn við fossa en nálgun þeirra við viðfangsefnið og framsetning er afar ólík. „Pat Steiner er mjög stórt nafn í Bandaríkjunum. Ég hafði kynnst henni úti í Bandaríkjunum, þar sem ég starfaði fyrir gallerí sem var með verk eftir hana. Á þeim tíma var hún að gera ölduverk, verk sem eru mjög nátengd hreyfingu hennar sjálfrar við gerð þeirra. Upp úr því fór hún svo að gera fossaverk þar sem hún bókstaflega kastar málningunni á strigann með ákveðnum hreyfingum. Síðasta sumar frétti ég svo að hún væri hingað til landsins kom- in ásamt eig- inmanni sínum og við ákváðum að hittast. Þar sem þetta eru ab- strakt listaverk og enginn ákveð- inn foss þeim til fyrirmyndar var ég mjög hissa þegar hún fór að tala um tengsl málverka sinna við íslensku fossana, sagðist hreinlega hafa hitt fossana sem hún hefði verið að mála. Þetta var opinberun fyrir mig. Ég vissi af fossaverki Ólafs Elíassonar, Rúrí hefur unnið með fossa í mörgum verka sinna og að lokum datt mér í hug að panta verk eftir Heklu Dögg Jónsdóttur, en þessi unga listakona er virkilega að koma fram núna.“ Að sögn Hafþórs vinnur Hekla Dögg með iðnaðarefni í sínu verki og býr til fossa úr hljóðnæmum, köldum rafskautsljósum. Um framlag Ólafs segir hann að þar sé á ferð verk þar sem listamaðurinn noti hversdagslegt byggingarefni en smíði úr því nátt- úrulega upplifun. „Þetta er skúlptúr sem er byggður eins og foss en í stað þess að vatnið falli niður þá stígur það upp á við.“ Framlag Rúríar er svo kvikmynda- og hljóðinnsetning sem byggir á stórum hluta á myndum af Dettifossi. Hafþór segir að sig hafi einnig langað að setja saman þessa sýningu með það í huga hve umræðan um ís- lenska náttúru fari hátt um þessar mundir. „Ég vildi samt ekki gera sýn- ingu sem tæki pólitíska afstöðu. Kjarninn er eftir sem áður listamiðill- inn, hvernig mismunandi listamenn nálgast náttúruna á mismunandi hátt. En þessir listamenn segja okkur að hugsa um það sem við erum að horfa á og knýja áhorfandann þannig til að velta málinu fyrir sér, sama hvaða niðurstöðu hann svo kemst að.“ Tvær nýjar Kjarvalssýningar Í norðursal Kjarvalsstaða verður sett upp lítil sýning um Kjarval sem sniðin er fyrir börn og ungmenni. Loks verður opnuð óhefðbundin sýn- ing á verkum úr safneign Listasafns Reykjavíkur eftir Kjarval. Verkin eru valin af myndlistarmanninum Einari Garibalda Eiríkssyni þar sem fram- setningin er ólík því sem hefur tíðkast á hinum sígildu verkum. „Mér hefur alltaf fundist að í stað þess að hafa eina standandi sýningu árum saman þurfi að gera breytilega og nýja sýn á Kjarval þannig að fólk geti komið aftur og séð eitthvað nýtt,“ segir Hafþór að lokum og er rokinn, enda í mörg horn að líta fyrir enduropnunina. Kjarval og fossar í öndvegi Morgunblaðið/G.Rúnar Foss Hekla Dögg Jónsdóttir vinnur hér að uppsetningu á verki sínu en það er hluti af sýningunni Foss. Kjarvalsstaðir verða opnaðir að nýju á laugardag- inn eftir gagngerar endurbætur. Við það tilefni hefjast þrjár nýjar sýningar; tvær með verkum Jóhannesar S. Kjarvals og ein helguð fossum. Flóki Guðmundsson spjallaði við Hafþór Yngva- son og Einar Garibalda Eiríksson. Hafþór Yngvason Myndlist | Nýtt útlit og nýjar sýningar þegar Kjarvalsstaðir opna aftur eftir tveggja mánaða lokun „AÐ MÍNU mati er það bæði gríð- arlega djarft og mikilvægt af safni eins og Kjarvalsstöðum að hafa fengið mig til að nálgast Kjarval og leyfa mér að gera það með al- gjört listrænt frelsi.“ Svo mælir Einar Garibaldi Eiríksson en hann er sýningarstjóri Kjarvalssýning- arinnar K-þátturinn: Jóhannes S. Kjarval sem hefst á laugardaginn. Einar Garibaldi er myndlist- armaður og játar hann því að af þeim sökum sé sýningin harla ólík því sem búast mætti við af listfræð- ingi. „Í fyrsta lagi er markmið sýn- ingarinnar alls ekki að gefa list- fræðilegt eða listasögulegt yfirlit yfir feril Kjarvals. Það má segja að útgangspunktur sýningarinnar sé frekar sú samræða sem einn mál- ari á við annan. Ég í rauninni vel út úr safni Listasafns Reykjavíkur þau verk sem höfða sterkast til mín sem myndlistarmanns.“ Rödd Kjarvals látin hljóma Einar segir að í ljósi þess að ný- lega var haldin stór sýning á Kjar- valsstöðum, þar sem farið var mjög ítarlega yfir feril Kjarvals í sögu- legu samhengi, hafi hann ákveðið að reyna að þurrka svolítið út slíka sýn. Þess í stað leitist hann við að láta rödd Kjarvals hljóma beint til áhorfenda. „Sýningarskráin byggist t.d. nær eingöngu á beinum tilvitnunum í Kjarval, ef frá er talinn stuttur inngangur. Þannig læt ég rödd hans hljóma – læt hann um að segja okkur hlutina.“ Að mati Einars er mikilvægt að brjóta upp hefðbundna nálgun listasafna við gamla meistara. „Það skiptir miklu máli að skoða ekki Kjarval sem einhverja gefna stærð heldur að líta á verk hans sem lif- andi innlegg í tilveru okkar í sam- tímanum. Til þess að samræða geti átt sér stað milli okkar í samtím- anum og verka Kjarvals verðum við að vissu leyti að endurskoða nálgun okkar og þessi sýning er í mínum huga tilraun til þess að horfa á hann með nýjum hætti.“ Tólf smámyndir af Kjarval „Sú aðferð sem ég ákvað að ganga út frá er í rauninni fengin úr gamalli frétt úr Morgunblaðinu, um opnun á sýningu Kjarvals frá 1928,“ heldur Einar áfram. „Það sérstaka við þessa frétt er að þar er birtur allur verkalisti verkanna sem Kjarval sýndi á sýningunni. Sá listi er mikið í belg og biðu, ekki eftir ákveðinni númeraröð, og titl- arnir skemmtilegir. Ég ákvað að nota þessa sundurlausu númeraröð og titlana sem yfirskrift fyrir mína nálgun sem byggist í rauninni upp á tólf smámyndum af Kjarval. Í hverjum þessara kafla tek ég á ein- um þætti í verkum Kjarvals og svo blandast þeir og skarast með ýms- um hætti í gegnum sýninguna.“ Ný nálgun við Kjarval Morgunblaðið/G.Rúnar Samræða Einar Garibaldi segir útgangspunkt Kjarvalssýningarinnar, sem hann er sýningarstjóri að, vera samræða eins málara við annan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.