Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 49

Morgunblaðið - 09.02.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2007 49 menning Glæsilegur 40 síðna blaðauki Framtíðin er í okkar höndum fylgir Morgunblaðinu í dag        Hvað þarf marga Nick Cave-aðdáendur til að skipta umljósaperu? Enga … guðleg ásjóna Cave; birtan og ylurinn af óumdeildri snilld hans, lýsir allt upp. Má maður reyna að létta aðeins á stemningunni hérna, eitthvað sem full þörf er á þegar Cave er til um- ræðu. Maðurinn ER snillingur, á því er ekki vafi, en það breytir því ekki að Cave-aðdáendur geta verið harðir í horn að taka og stundum er langt í grínið (já, ég hef fengið að kenna á því). Rökræður við þá um gæði og gildi tónlistar meistarans geta því verið mjög skemmtilegar. Ætli þeir séu ekki bara þeir allra hörðustu fyrir utan kannski Tom Waits-aðdáendur. Barumræður þeirra fylkinga geta verið ansi skrautlegar …    En nóg um okkur, dauðlegamenn. Snúum okkur að meist- aranum. Það var haustið 2004 sem hin tvöfalda Abattoir Blues/The Lyre of Orpheus kom út, og er hún nýjasta hljóðversplata Nicks Cave og hljómsveitar hans, The Bad Seeds. Algjört meistaraverk, eitt- hvað sem maður gerði sér kannski ekki alveg grein fyrir á sínum tíma, en margir telja plötuna hreinlega það besta sem Cave og sveit hans, The Bad Seeds, hafa gert frá upp- hafi. Þetta var þrettánda hljóð- versplata Cave á tuttugu árum og er því nema von að maður hafi orð- ið hissa, því vanalega fer frægð- arsólin að hníga þegar líður að ævi- kvöldi listamanna. Platan einkennist hins vegar af ungæð- islegum krafti, og lögin streyma átakalítið fram hvert af öðru (mörg laganna voru barin saman í spuna af hinum þrautþjálfuðu Bad Seeds). Það var sem Cave hefði náð að sveigja út af vafasamri braut, sem markaðist sterklega af plötunni þar á undan, Nocturama, klárlega verstu plötu sem úr hans ranni hef- ur komið (heyrði ég Cave-ara fara upp á afturlappirnar?) Gæði Abattoir Blues/The Lyre of Orpheus hafa nú enn frekar verið undirstrikuð með veglegum tón- leikapakka sem út kom við upphaf mánaðarins, og ber hann nafnið The Abattoir Blues Tour. Innihaldið eru tveir geisladiskar og tveir mynddiskar, ásamt bækl- ingi með ljósmyndum. Geisladisk- arnir tveir innihalda lög frá áð- urnefndu tónleikaferðalagi sem fram fór í Evrópu, sama haust og platan kom út, og lögin koma frá hinum og þessum tónleikastöðum. Meiri fengur er þó í mynddisk- unum, þar sem Cave og sveit hans halda úti miklu sjónarspili. The Bad Seeds er einstaklega myndræn sveit; hér höfum við her af vel sam- stilltum en sjúskuðum sént- ilmönnum sem minna svolítið á vel til höfðu örlagabytturnar sem mað- ur fann á Grand Rokk. Engum þeirra stekkur bros og töff- araheitin eru nánast yfirþyrmandi. Fyrri diskurinn inniheldur tónleika frá Brixton Academy í London, sem teknir voru upp 11. nóvember 2004 en sá síðari tónleika frá Hammers- mith Apollo í sömu borg, í júní 2003 (og koma þeir reyndar af Noct- urama-túrnum). Á þeim diski er og að finna nokkur myndbönd.    Það er til marks um styrkleikaþessara nýjustu hljóðversplötu Cave að á tónleikunum í Brixton Academy er nánast eingöngu keyrt á efni af henni – og samt hljómar það eins og safn yfir hans bestu lög. Hljómsveitin er í miklu stuði og ekki síst Cave sjálfur. Í ágætri heimildarmynd sem fylgir pakkanum ræðir Cave um gerð plötunnar og maður skynjar að það voru að sönnu einhverjir töfrar í gangi við gerð hennar. Cave er í dag þurr, sáttur og inn- blásinn sem aldrei fyrr. Ég spyr því spenntur: Hvað næst? Djöflar og dýrlingar The Abattoir Blues Tour „Engum þeirra stekkur bros og töffaraheitin eru nánast yfirþyrmandi.“ AF LISTUM Arnar Eggert Thoroddsen » [H]ér höfum við heraf vel samstilltum en sjúskuðum séntilmönn- um sem minna svolítið á vel til höfðu örlagabytt- urnar sem maður fann á Grand Rokk. KVIKMYNDIN Perfume: The Story of a Murderer eða Ilmurinn verður frumsýnd hérlendis í dag, föstudag. Myndin er byggð á samnefndri metsöluskáldsögu þýska rithöf- undarins Patricks Suskind sem kom út árið 1987 en þess má geta að bókin verður endurútgefin í kringum frumsýningu mynd- arinnar hér á landi. Atburðirnir sem myndin fjallar um gerast á 18. öld í Frakklandi og fjallar hún um ilmvatnsgerð- armanninn Jean-Baptiste Grenou- ille sem er haldinn þeirri náð- argáfu að hafa undravert þefskyn. Með snilligáfu sína að vopni fram- leiðir hann bestu ilmvötnin í Evr- ópu en hráefnið sem hann notar vinnur hann úr konum sem hann myrðir. Með aðalhlutverk fara m.a. Dustin Hoffman, Alan Rickman, Ben Whishaw, Francesc Albiol og Gonzalo Cunill. Leikstjóri er Tom Tykwer sem leikstýrði einnig myndinni Run Lola Run. Ilmurinn er sýndur í Sambíó- unum. Frumsýning | Perfume: The Story of a Murderer Ilmurinn Myndin er gerð eftir mestsölubók Peters Suskind. ERLENDIR DÓMAR: Metacritic 56/100 Empire 80/100 Premiere 75/100 Variety 70/100 Washington Post 50/100 Los Angeles Times 40/100 (Allt skv. Metacritic). Hættulegur ilmur Tónlistarmaðurinn Noel Gallag-her hefur fengið sig fullsaddan af starfsbróður sínum, söngv- aranum Bono, og finnst að hann eigi að hætta að tala um Afríku. Í viðtali við breska dagblaðið Daily Telegraph segir Gallagher Bono að „halda kjafti“ og syngja. Gallagher er orðinn hundleiður á baráttu Bono fyrir kjörum Afr- íkubúa, að létta eigi öllum erlend- um skuldum af fátækum Afr- íkuríkjum, og segir aðdáendur U2 ekki vilja láta messa yfir sér í sí- fellu. „Hvað U2 varðar þá eiga þeir að spila „One“ og halda kjafti hvað varðar Afríku. Fólk vill ekki hlusta á þetta aftur og aftur.“ Þá lætur Gallagher söngvara Ra- diohead, Thom Yorke, líka hafa það óþvegið og segir hann íþyngja aðdáendum með stjórnmálaskoð- unum sínum. Hann ætti frekar að semja almennilegt rokklag. Yorke sitji við píanóið, syngi um heims- fréttirnar og að mannkynið sé dauðadæmt. Fólk vilji bara hlusta á hann syngja lagið „Creep“ og því verði hann að hætta vitleysunni. Gallagher segist semja lög með það í huga hvernig þau muni hljóma á knattspyrnuleikvöngum. Hann vilji að fólk missi stjórn á sér við að hlusta á hljómsveit hans, Oasis. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.